Faxi

Árgangur

Faxi - 2020, Blaðsíða 28

Faxi - 2020, Blaðsíða 28
28 FAXI Tillaga samþykkt eftir breytingar Skipulagsnefnd Keflavíkur lagði í framhaldi fyrir bæjarstjórn nýtt deiliskipulag fyrir kirkjulóðina og var hún auglýst. Fljót- lega kom í ljós að bæjarbúar voru mjög andsnúnir tillögunni og vildi bæjarstjórn Keflavíkur því að kosið yrði um tillöguna samfara kosningu um sameiningu sveitarfé- laga 20. nóvember 1993. Jafnframt var borin upp sú spurning hvort bæjarbúar vildu yfirhöfuð að byggt yrði á kirkjulóðinni? Skipulagstillagan var felld, því 1605 greiddu atkvæði á móti en 992 með tillögunni. Þótt bæjarbúar væru ekki mótfallnir nýju safnaðarheimili var staðsetningin talin fráleit. Fremstir í flokka andstæðinga voru íbúar í nágrenni kirkjunnar. Sóknarnefnd missti ekki móðinn en sannarlega hægðist á ferlinu. „Við sem erum fædd og uppalin í næsta nágrenni kirkjunnar, þar sem kirkjutúnið var leikvöllur okkar í æsku, áttum erfitt með að sætta okkur við þessar fyrirætlanir í fyrstu og létum það ósparlega í ljós. Eftirá held ég að allir hafi áttað sig á hversu mikil- vægt og nauðsynlegt það var fyrir starfið að bæta aðstöðuna, ekki bara fyrir starfsfólk kirkjunnar heldur einnig fyrir söfnuðinn. Kirkjan er vettvangur stærstu stunda í lífi fólks t.d. þegar við skírum, fermum, giftum, jörðum og leitum huggunar og svara við lífsgátunni og mikilvægt að búa vel að fólki á þessum stundum. Það lærir maður smátt og smátt að meta aldrinum,“ segir Kjartan Már Kjartansson sem sat í undirbúnings- nefnd og er fyrrum íbúi við Kirkjuteig. Ný tillaga var því borin upp á aðalsafn- aðarfundi 19. febrúar 1995 og kosið um tillöguna á kjörfundi sem hófst í framhaldi. Mjög miklar breytingar höfðu þá verið gerðar á vinningshugmyndinni, byggingin var lækkuð mikið með því að taka niður gólf og útlit hennar fellt enn betur að útliti kirkjunnar og hún vel kynnt. Tillagan var samþykkt og þá loksins náðist sátt um byggingu safnaðarheimilis eftir miklar deilur sem töfðu framgang. Bæjarstjórn gaf kirkjunni lóðina með gjafabréfi árið 1996, alls 4491 fermetra. Fyrir átti kirkjan lóðina umhverfis kirkjuna sem var alls 1134 fermetrar. „Eftir að teikningar lágu fyrir var lögð mikil áhersla á góða kynningu, m.a. var útbúið tölvumyndband þar sem fólk gat skoðað bygginguna frá öllum hliðum. Í framhaldi var efnt til kosningar meðal sóknarbarna og hlaut tillagan samþykki. Voru þá flestir sem höfðu efasemd- ir orðnir samþykkir góðu heilli,“ sagði Jónína Guðmundsdóttir sem var for- maður sóknarnefndar þegar ráðist var í bygginguna í jólablaði Faxa árið 2015. Fyrsta skóflustunga að nýju safnað- arheimili var tekin að lokinni messu 6. október 1996 af Matthildi Óskarsdóttur ekkju Árna V. Árnasonar, sem setið hafði í undirbúningsnefnd og jafnframt gegnt stöðu formanns sóknarnefndar en lést í október árið 1991. Í framhaldi hófust fram- kvæmdir við fyrsta áfanga sem var jarð- vinna og sökkull hins nýja safnaðarheimilis, en útboðsáfangar urðu fimm í heildina. Byggingarnefnd skipuðu Birgir Guðnason formaður, Guðmundur Björnsson og Einar Magnússon. Safnaðarheimilið var vígt með viðhöfn þann 1. júní árið 2000 sem var uppstigningardagur. Heildarkostnaður var rúmlega 300 milljónir. Birgir Guðnason sem var formaður byggingarnefndar safnaðarheimilisins sagði í jólablaði Faxa 2015 að bæjarfélagið hafa sýnt mikla framsýni með því að fresta byggingum á lóðum umhverfis kirkjuna ef nýta þyrfti það svæði fyrir kirkjuna. Hefði það ekki verið gert hefði safnaðarheim- ilið aldrei verið byggt. Þar var helst að nefna Björn Guðbrandsson verkstjóra hjá Keflavíkurbæ sem hafði mikinn áhuga á blóma- og trjárækt. Björn taldi kirkjuna þurfa að nýta lóðina umhverfis kirkjuna og varð manna fyrstur til að planta trjám í jaðar lóðarinnar. Heimildir: Faxi 1. tbl. 52. árg. 1992 Faxi 5. tbl. 53. árg. 1993 Faxi 1. tbl. 55. árg. 1995 Faxi 2. tbl. 60. árg. 2000 Faxi 3. tbl. 75. árg. 2015 Víkurfréttir 47. tbl. 13. árg. 1992 Víkurfréttir 48. tbl. 13. árg. 1992 Víkurfréttir 10. tbl. 14. árg. 1993 Víkurfréttir 7. tbl. 16. árg. 1995 Víkurfréttir 40. tbl. 17. árg. 1996 Víkurfréttir 23. tbl. 21. árg. 2000

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.