Faxi - 2020, Qupperneq 30
30 FAXI
Reykjanesið minnti hressilega á sig á liðnu ári með töluverðum jarðhræring-
um svo mönnum þótti nóg um. Það má því
segja að Reykjanesið sé lifandi tilraunastofa
jarðfræðinnar enda skaginn einstakur
á heimsvísu og viðurkenndur UNESCO
Global Geopark.
Sérstaða Reykjaness felst í flekaskilunum
á Mið-Atlantshafshryggnum sem ganga í
gegnum Reykjanesskagann endilangan. Á
flekaskilunum eiga sér stað bæði jarðskjálftar
og eldgos sem er afleiðing kvikuhreyfinga
þegar Norður-Ameríku- og Evrasíuflekinn
færast í sundur, að jafnaði um tvo sentimetra
á ári. Það eru þessir flekar sem eru grunnur-
inn að vinsælum áfangastað ferðamanna á
Reykjanesi er kallast Brú milli heimsálfa en
þar er hægt að ganga á milli Ameríku og
Evrópu, svona hugmyndafræðilega séð.
Sýnileiki flekaskilanna gerir Reykjanes
einstakt á heimsvísu og varð það til þess að
það hlaut inngöngu í alþjóðlegt net jarðvanga,
Global Geoparks Network og European
Geoparks Network en samtökin eru studd af
UNESCO (United Nations Educational, Sci-
entific and Cultural Organization). Reykjanes
Geopark er annar jarðvanga á Íslandi og er
hann samstarfsvettvangur sem byggir á því
að nýta sérstöðu svæðisins til verðmætasköp-
unar.
Í janúar hófst skjálftahrina á Reykjanesi
sem ekki sér fyrir endann á og gefur til kynna
mikla spennulosun á Reykjaneshryggn-
um. Hún er sú öflugasta sem mælst hefur
á Reykjanesi frá því að stafrænar mælingar
hófust árið 1991 og hefur hún mælst frá Eldey
og að Krýsuvík. Velta menn því fyrir sér hvort
kominn sé tími á eldgos á Reykjanesi en sagan
virðist styðja það. Stóra spurningin er hins
vegar hvenær?
Land fer að rísa
Upptökin voru við bæjarfjall Grindvíkinga,
Þorbjörn, um 2 km austur af Svartsengis-
virkjun en þar mældust margir skjálftar yfir
þrá að stærð og land fór að rísa sem þótti
gefa tilefni til þess að fylgjast sérstaklega náið
með framvindu á svæðinu. Vegna nálægðar
við Grindavík, Svartsengi og Bláa lónið olli
það þó nokkrum áhyggjum og var boðað til
borgarafundar vegna málsins og óvissustig
almannavarna virkjað. Íbúar í Grindavík voru
að vonum nokkuð skelkaðir en ef til eldgoss
kæmi gæti þurft að flytja allt að fimm þúsund
manns á brott, það er íbúa Grindavíkur og
starfsmenn Svartsengisvirkjunar og Bláa lóns-
ins, að ógleymdum ferðamönnum á svæðinu.
Reykjanesið skelfur
Lifandi tilraunastöð jarðfræðinnar