Faxi

Árgangur

Faxi - 2020, Síða 33

Faxi - 2020, Síða 33
FAXI 33 Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða. Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða. Brunavarnir Suðurnesja sími 421-4748 urðu nokkur eldgos með hléum á tímabilinu 1210-1240 og voru kölluð Reykjaneseldar. Hins vegar eru litlar líkur taldar á sprengigosi á Reykjanesi þótt þau séu algengust á Íslandi en þó er Krýsuvík undanskilin en þar er jarðskorpan þynnri en víðast annars staðar á landinu. Mikilvægt að meta hættuna sem getur fylgt gosi Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur hefur sagt að eldgos gæti orðið hvað úr hverju á Reykjanesskaga en hann hefur rannsakað náttúruvá á svæðinu undanfarin ár ásamt samstarfsfólki sínu í Háskóla Íslands. Þorvald- ur segir mikilvægt að meta hættuna sem fylgir yfirvofandi gosi svo hægt sé að bregðast við því viðbragðsaðilar munu aðeins hafa nokkra klukkutíma til stefnu eftir að eldgos hefst en byggðalög á Reykjanesskaga eru nær öll í grennd við „heit svæði“. Í því skyni hefur eldgosa- og náttúru- várhópur jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands unnið að reiknilíkani fyrir jarðvá á Reykjanesi. Þar eru jarðfræðileg gögn notuð til að vinna áhættumat fyrir ákveðin svæði og reynt að meta hvar á svæðinu sé líklegast að gjósi. Þannig er hægt að vinna áætlun um viðbrögð fari að gjósa og eins er hægt að hafa upplýsingarnar til hliðsjónar þegar unnið er skipulagt fyrir byggð í kring. Unnin hafa verið hermilíkön sem hægt er að nota til að spá fyrir um hvert hraunið muni flæða, hvert gjóska dreifist og hvernig gas breiðist út. Þannig verði hægt að gera viðbragðsáætlun í samræmi við upplýsingarnar. Flugsamgöngur niðri og mengað drykkjarvatn En hvernig skyldum við vera undirbú- in undir eldgos ef af verður? Hraunflæði, öskufall og brennisteinsmengun gæti valdið skaða og óþægindum og þá myndu flugsam- göngur að öllum líkindum liggja niðri enda eru stærstu flugvellir landsins, Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllur innan áhættusvæðisins. Þá getur eldgos haft áhrif á grunnvatnsgeyma og mengað drykkjarvatn. Eldgos á Reykjanesi er því efni í æsispennandi hamfaramynd, með Bruce Willis í aðalhlutverki. En hvað það verður, veit nú enginn eins og segir í kvæðinu og engin leið að spá fyrir um eldgos. Að mati sérfræðinga má vera að styttist í næstu goslotu en aðdragandinn gæti þess vegna verið tugir eða hundruð ára, sem er kannski ekki langur tími í jarðfræðiárum. En það er óhætt að segja að Reykjanesið hafi minnt allverulega á sig á liðnu ári og haldið okkur á tánum, eins og vera ber. Ég vona bara að það haldi í sér áður en Faxi kem- ur út svo þessi grein verði ekki hjákátleg. Dagný Maggýjar Heimildir Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga - jardvis.hi.is Páll Einarsson, prófessor í jarðfræði RÚV 20.10.2020, Enn líkur á jarðskjálfta allt að 6,5 að stærð. RÚV 27.1.2020. Tími kominn á eldgos á Reykjanesskaga. Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur. Vefur Háskóla Íslands. Kortleggur jarðvá á Reykjanesi. Viljinn 27. Janúar 2020. Reykjanesið er eldbrunnið frá fjöru til fjalla. Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur RÚV 21.10.2020. Meiri virkni eftir þvi sem austar dregur. Þorvaldur þorvaldsson eldfjallafræðingur Vísir 5. október 2018. Reykjanesið komið á tíma og búast má við eldgosi hvenær sem er. Magnús Tumi Guðmundsson DV 27.1.2020. Eldgos ekki það líklegasta í stöðunni. DV 20.10.2020. Magnus Tumi róar þjóðina - það er ekki að fara að gjósa. Yfirlit um jarðfræði Reykjanesskaga. Samantekt frá Kristjáni Sæmundssyni jarðfræðingi ÍSOR, birt árið 2010, teikningar uppfærðar í janúar 2020.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.