Faxi - 2020, Qupperneq 34
34 FAXI
Það þarf ekkert að fjölyrða um þær áskoranir sem fólk hefur staðið frammi fyrir í
leik og starfi mest allt þetta ár.
Mikið hefur mætt á þeim sem
staðið hafa í framlínu grunn-
þjónustu og hafa þurft að bera
grímur allan vinnudaginn og
þurft að breyta vinnulagi með
mjög stuttum fyrirvara. Rit-
stjóri Faxa heyrði í fimm konum
sem koma úr stétt hjúkrunar-
fræðinga, grunnskólakennara,
lögreglumanna, verslunarmanna
og slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna. Við veltum fyrir
okkur breytingum sem orðið hafa
í þeirra starfi á Covid tímum og
hvaða áskoranir þær hafa staðið
frammi fyrir? Þá lék okkur einnig
forvitni að vita hvort þær telji
nýtt vinnulag, sem hefur skapast,
komið til að vera og hvort jafnvel
megi draga einhvern jákvæðan
lærdóm af öllu saman?
Helga Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur
á legudeild HSS
Margar breytingar hafa verið gerðar í starfsumhverfi Helgu síðan Covid
skaut fyrst upp kollinum. Í fyrstu bylgju
voru miklar breytingar gerðar á öllu
verklagi og það þróað í takt við þarfir.
Helga segir mikinn tíma hafi farið í að
læra á breyttar aðstæður vegna heimsfar-
aldursins. „Við á legudeildinni urðum að
einangra deildina meira, loka fyrir heim-
sóknir, það varð að skipta upp starfsfólki
eins og á mörgum öðrum vinnustöðum og
takmarka þar með öll samskipti milli hópa.
Eins vorum við hvött til að einangra okkur
sem mest því við erum jú að sinna mjög
mikið af veiku fólki sem er í áhættuhópi.
Ég myndi líklega segja að stærstu
breytingarnar fyrir mig hafi verið breytingar
á samskiptum við sjúklinga og aðstandendur.
Við höfum verið talsvert meira einangruð
og hafa samskiptin við aðstandendur verið
að mestu í gegnum síma. Einnig erum við
meira meðvituð um snertifleti og nálægð við
sjúklinga og aðstandendur heldur en áður.
Það hefur líka átt sér stað töluverð tækni-
þróun til að auðvelda samskipti til dæmis í
gegnum netið og hún mun sjálfsagt halda
áfram í kjölfarið.
Í annarri og þriðju bylgju höfum við haft
meiri reynslu og því verið fljótari að bregðast
við breyttum áherslum og verklagi en í fyrstu
bylgju. Allt er þetta þó í stanslausri þróun
þannig að upplýsingaflæðið er töluvert á
tímum Covid.“
Öflugur hlífðarbúnaður mikil áskorun
Helga segir hlífðarbúnaðinn vera mjög
krefjandi en hann hafi verið mjög fyrir-
ferðamikill í faraldrinum. Öll samskipti
verði snúnari og erfiðari í búnaðinum, ekki
síst við þá sem heyri illa. Þá sé margt fólk
hálf hrætt við starfsfólkið í fullum skrúða
þegar það birtist inni á stofu þeirra sem
eru í einangrun til að aðstoða. „Ég hef
ekki unnið á Covid deildunum í þessum
faraldri og þarf þess vegna að vera mjög
lítið í þessu miðað við fólkið sem vinnur
Helga Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á legudeild HSS í fullum skrúða. Margir hræðast
hlífðarbúnaðinn og hann gerir samskipti erfiðari.
Konur í framvarðasveitum
á tímum Covid-19