Faxi

Årgang

Faxi - 2020, Side 35

Faxi - 2020, Side 35
FAXI 35 þar og hafa þau alla mína samúð að vera í fullum skrúða í marga tíma í senn. Mér persónulega hefur fundist erfitt í tilfellum líknarsjúklinganna okkar að reyna að halda fjarlægð frá bæði sjúklingum og aðstand- endum vegna þess að á erfiðum tímum vill maður sýna væntumþykju og geta tekið utan um fólk í sorginni en í dag er maður meira meðvitaður um hætturnar á smiti og þess vegna nálgast maður fólk ekki eins og vanalega, bæði til að vernda okkur sjálf en einnig sjúklingana á deildinni. Svo ber líka að nefna það að þegar vinnustaðnum er skipt upp að þá breytist vaktafyrirkomulagið hjá starfsfólki með litlum fyrirvara sem auðvitað gerir það að verkum að möguleg plön með fjölskyldunni raskast vegna breytts vinnutíma. Einnig er aðskilnaður frá hluta af vinnufélögunum mjög krefjandi og þetta ástand þreytir fólk til lengdar.“ Betur undirbúin til að takast á við svona aðstæður Helga segist telja að einhverjar af þeim breytingum sem hefur þurft að gera verði til frambúðar og nefnir þá sérstaklega verkferla. „Ég held að allir hafi lært að vera meira meðvitaðir um sig og nærumhverfi sitt á þessum tímum sem mun pottþétt halda áfram þegar við komumst yfir þetta ástand. Tæknihluti starfseminnar hefur far- ið hraðar fram núna en áður og hjálpar það sérstaklega heilsugæslustarfseminni. Núna hefur líka átt sér stað þróun á verkferlum þegar kemur að því að eiga við heimsfarald- ur og þess vegna erum við betur undirbúin til að takast á við svona hluti í framhaldinu. Ég held að það sé það jákvæða sem við tök- um með okkur á þessum krefjandi tímum.“ „Vá hvað þetta eru skrítnir tímar“ Radmila Medic verslunarstjóri Krambúðarinnar í Innri Njarðvík Radmila, kölluð Milla, segir að fyrir sig persónulega sé gríman stærsta breytingin í hennar starfsumhverfi. „Þetta var allt hálfpartinn eins og venjulega þang- að til grímuskylda á alla kom. Þá hugsaði ég fyrst „Vá hvað þetta eru skrítnir tímar.“ Milla segir mestu áskorunina aðallega þá að reyna að fylgja öllum sóttvarnar- reglum og passa að enginn smitist, hvorki viðskiptavinir né starfsfólk. „Rútínan er að sótthreinsa, þurrka af og spritta. Ég held að það væri bæði gott að halda áfram að spritta og passa fjarlægðarmörkin þó faraldri verði lokið.“ -Finnst þér þú geta dregið jákvæðan lærdóm af ástandinu? „Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa vinnu. Það hafa margir misst vinnuna á þessu ári út af Covid og það er mjög erfitt og sárt að horfa upp á. Ef eitthvað er þá hefur þetta fært okkur meira saman, við vinnum þetta sem ein heild með öryggi allra að leiðarljósi.“ Radmila Medic verslunarstjóri Krambúðarinnar í Innri Njarðvík. Hún segir grímuna vera stærstu breytinguna í hennar starfsumhverfi. Mesta áskorunin er að passa að hvorki viðskiptavinirnir né starfsfólkið sýkist í versluninni.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.