Faxi - 2020, Page 36
36 FAXI
Hefur kennt mér
margt nýstárlegt
Kristbjörg Eyjólfsdóttir
grunnskólakennari í Gerðaskóla
Kristbjörg segir stærstu breytinguna í starfi sínu sem grunnskólakennara á
Covid tímum vera þá að geta ekki nálgast
nemendur eins og hún hafi alltaf gert, geta
ekki tekið utan um þá og verið í þeirri nánd
sem hún hefur kosið í gegnum árin. „Ég
er mjög kærleiksrík manneskja og finnst
snerting vera mikilvægur hluti af góðum
samskiptum við þá sem eru í kringum mig.
En það er þessi Covid veira sem ég hræðist.
Að ég geti borið hana með mér, í nemendur
og samstarfsfólk og í móður Teresu. Ég segi
móður Teresu vegna þess að móðir mín,
áttatíu og tveggja ára, er einstök kona sem
hefur kennt mér mikið um mannleg sam-
skipti og kærleika.“
Kristbjörg skipti um vinnustað í miðjum
faraldri, hóf kennslu í 6. bekk í Gerðaskóla
en hafði 13 ár þar á undan kennt í Njarð-
víkurskóla. Hún upplifði því fyrstu bylgjuna
í Njarðvíkurskóla en þá þriðju í Gerðaskóla.
„Í fyrstu bylgju veirunnar í vor var ég um-
sjónarkennari 7. bekkjar í Njarðvíkurskóla
og fór kennslan að mestu fram á netinu,
með fjarkennslu. Þær breytingar voru mjög
áhugaverðar, krefjandi en skemmtilegar.
Þessar kennsluaðferðir kenndu mér í raun
og veru mjög margt nýstárlegt sem ég nýti
í kennslu í dag. En ég vona svo sannarlega
að Covid tíminn fari að líða undir lok og þá
verður yndislegt að geta kennt, með kærleik
og án hræðslu við veiruna. Þetta ár hefur
reynt mismunandi á einstaklinga. Æðru-
leysið hefur hjálpað mér og ég sendi það út
til ykkar hinna, hér með.
Kærleikurinn umvefur okkur með hlýju,
nú skulum við upplifa lífið að nýju.
Bjartir, góðir, yndislegir tímar koma aftur,
til samfélagsins streymir mikill kraftur.
Nemendurnir fljótir að aðlagast
Varðandi þær áskoranir sem Kristbjörg
hefur staðið frammi fyrir í starfi nefnir
hún sérstaklega þá að axla þá ábyrgð að
nemendur séu varðir gegn veirunni. Þar
sé mikilvægt að passa upp að allir innan
skólans fari eftir reglum og kenni nemend-
um að hlýða Víði. „Nemendur eru ótrúlega
snjallir og þeir voru fljótir að aðlagast þegar
þeir þurftu að nota grímur í tíma. Sem
betur fer var það ekki langur tími því ég
sjálf átti í erfiðleikum með að nota grímu.
Unglingarnir eru þó enn að nota grímur
en þeir aðlagast ótrúlega vel og tek ég ofan
fyrir þeim. Starfsfólki skólans er skipt niður
í hólf, en það gengur mjög vel að passa upp
á það sé ekki verið að blanda hópum saman.
Við erum framlínufólk sem þurfum að vera
góðar fyrirmyndir og við komumst í gegn-
um þetta í sameiningu.
Í þriðju bylgju hefur skólakerfið verið
betur undirbúið en í fyrstu tveimur. Upplýs-
ingar frá yfirvöldum eru þó að koma heldur
seint svo hægt sé að vinna eftir tilskipun
þeirra en reynslan úr fyrri bylgjum virðist
skila sér. Skólastjórnendur þessa lands fá
stórt og mikið hrós, þvílík vinna sem fer
fram hjá þessum snillingum. Að koma öllu
heim og saman þarfnast skipulags og tíma.
Það hafa stjórnendur skóla svo sannarlega
gert með miklum sóma.“
Verum þakklát og sáum kærleik
Kristbjörg segist sannfærð um að nýting
tækninnar í starfi sé komin til að vera og
eigi eftir að opna augu þeirra sem hafa
hræðst hana. „Í haust þegar samskipta-
dagur skólans átti að vera ákváðum við að
hringja í foreldra í gegnum Zoom forrit eða
með öðrum öppum. Það gekk vel og fannst
mér einhvern veginn vera léttara yfir öllu
í þessum samskiptum. Í heildina finnst
mér rólegra yfir öllu, einhvern veginn. Við
höfum þurft að breyta eigin hegðun, siðum,
venjum og lífsmynstri. Það kemur manni til
að hugsa meira inn á við. Við eigum að vera
þakklát fyrir það sem við höfum og finnst
mér þá þakklæti vera mér efst í huga.
Ég trúi því að næsta ár eigi eftir að rísa
upp með kyrrð, seiglu, samhygð og vilja.
Betri tíð með blóm í haga var einhvern
tímann sagt. Íslendingar hafa alltaf risið
upp með elju.
Ég er með bjartsýnis eðlisfarið.
Ég vil að tímann ykkar varið
að gefa af ykkur með gleði,
af alúð!!! ég segi, það hjálpar ykkar geði.
Æðruleysið mikla kallar okkur á,
ég bið ykkur, elskurnar, öll fallega að sá
kærleik, það sko ykkur gefur
segir sá Mikli, sem einn það hefur.
Kristbjörg Eyjólfsdóttir grunnskólakennari með hressum nemanda úr 6. bekk í Gerðaskóla.
Mest áskorunina segir Kristbjörg hafa verið að verja nemendur gagnvart veirunni.