Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
BREKKA 34 - 9 fm
518.000 kr.
Tilboðsverð
STAPI - 14,98 fm
389.000 kr.
Tilboðsverð
NAUST - 14,44 fm
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Samkomubannið breytti 1. maí
Engar kröfugöngur í fyrsta sinn frá 1923 Ávörp birt á vefnum Hátíðarsamkoma í Hörpu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hátíðarhöld á alþjóðlegum frídegi
verkafólks, 1. maí, voru með breyttu
sniði í gær vegna samkomubannsins.
Engar kröfugöngur voru farnar, fyr-
ir utan rafræna kröfugöngu lög-
reglumanna á Youtube. Þetta var í
fyrsta sinn frá árinu 1923 að ekki
voru gengnar kröfugöngur um götur
bæja og borgar né haldnir útifundir
hér á landi, að undanteknum fá-
mennum fundi Alþýðufylkingarinn-
ar á Ingólfstorgi.
Í stað útifunda efndi verkalýðs-
hreyfingin til samkomu í Hörpu sem
var sjónvarpað. Forystumenn hreyf-
ingarinnar birtu ávörp sín á netinu í
stað þess að flytja þau á fundum.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusam-
bands Íslands, fjallaði í ávarpi sínu
m.a. um áhrif kórónuveirufaraldurs-
ins og viðbrögð við honum. „Ísland
er fyrirmynd annarra í viðbrögðum
við faraldrinum og við skulum líka
vera fyrirmynd í því hvernig við
byggjum okkur upp að nýju. Við vilj-
um byggja upp réttlátt þjóðfélag.
Við skulum einsetja okkur að eftir
eitt ár, 1. maí árið 2021, verði búið að
útrýma atvinnuleysi með góðum og
öruggum störfum.“
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, for-
maður BSRB, fjallaði m.a. um stytt-
ingu vinnuvikunnar sem náðist sam-
komulag um í nýgerðum kjara-
samningum. Hún benti á að
lögreglumenn væru búnir að vera án
kjarasamnings í 13 mánuði. Þetta
væri með öllu óásættanlegt.
„Leiðin upp á við krefst opinberra
framlaga og fjárfestinga sem byggja
á sanngirni. Skapa þarf störf og fjár-
festa í menntun til að tryggja færni í
störfum á breyttum vinnumarkaði.
Þá þarf að skapa tækifæri með því að
efla nýsköpun og rannsóknir. Það
mun skapa störf á fjölbreyttum svið-
um og leggja grunn að verðmæta-
sköpun til framtíðar. Sókn í hús-
næðismálum til að tryggja hús-
næðisöryggi og grænar lausnir
stuðlar enn fremur að félagslegum
stöðugleika,“ sagði m.a. í ávarpi
Sonju.
Samþykkt var að halda frídag
verkafólks á þingi evrópskra verka-
lýðsfélaga í París 1889, að því er seg-
ir á Vísindavefnum. Kröfuganga á 1.
maí var fyrst gengin hér á landi árið
1923 og varð dagurinn lögskipaður
frídagur hér árið 1972.
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Ingólfstorg Alþýðufylkingin efndi til útisamkomu og af myndum af dæma
var aðsóknin vel innan marka fjöldatakmarkana í samkomubanninu.
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
„Nei, það er alveg af og frá,“ segir
Stefán Hjörleifsson, framkvæmda-
stjóri Storytel á Íslandi, spurður um
staðhæfingar Ingimars Jónssonar,
forstjóra Pennans, um að hljóðbóka-
framleiðandinn stundi það að flytja
hagnað úr landi til að halda skatt-
greiðslum til íslenskra yfirvalda í
lágmarki og þiggi á sama tíma styrki
frá ríkinu.
Sagt var frá ásökunum Ingimars í
Morgunblaðinu í gær. Benti hann
m.a. á erlendan kostnað Storytel hér
á landi 2019 en hann hefði enginn
verið 2018.
„Erlendi kostnaðurinn er vegna
forritunar appsins og líkra hluta sem
eru gríðarlega kostnaðarsamir,“
segir Stefán.
Varðandi rekstr-
arárið 2018 segir
hann:
„Það er nú bara
einfaldlega þann-
ig að við vorum
studdir af fyrir-
tækinu þá [Story-
tel AB í Svíþjóð]
og við vorum ekki
farin að skila hagnaði. Það byrjar
yfirleitt svoleiðis á þessum mörkuð-
um okkar en síðan tökum við bara
fullan þátt í kostnaði. Þetta er bæði
kostnaður vegna tæknimála og
framleiðslu markaðsefnis, sem er
meira og minna framleitt erlendis.“
Styrkina sem Ingimar gagnrýndi
að Storytel Iceland fengi frá ríkis-
sjóði segir Stefán endurgreiðslur
vegna kostnaðar við framleiðslu
efnis. Storytel framleiði mikið af
hljóðbókum hér á landi og sæki um
endurgreiðslur vegna kostnaðar eins
og aðrir útgefendur sem gefi út efni
á íslensku.
„Þetta er 25% endurgreiðsla af
framleiðslukostnaði rétt eins og í
kvikmynda- og tónlistarbransanum
og víðar. Við erum með tiltölulega
háan framleiðslukostnað og sam-
kvæmt tölum frá endurgreiðslu-
nefnd erum við næststærsti fram-
leiðandinn á Íslandi í bókaútgáfu.“
Munurinn sé aðallega sá að mesti
kostnaður Storytel fari í að greiða
leikurum fyrir að lesa inn hljóðbæk-
urnar og tæknifólki en hjá hefð-
bundnum bókaútgefendum fari að
öllum líkindum mest fyrir prent-
kostnaði, segir Stefán.
Flytja hagnað ekki úr landi
„Erlendur kostnaður“ Storytel á sér eðlilegar skýringar
Stefán Hjörleifsson
Allt frá því að líkamsræktarstöðunum var lokað
hafa landsmenn verið duglegir að hreyfa sig
utandyra. Göngu- og hjólastígar hafa verið
nýttir til hins ýtrasta og hefur mörgum jafnvel
þótt nóg um. Nú þegar sólin er byrjuð að láta sjá
sig verða enn fleiri á ferðinni. Það er enda sá
tími þegar fólk fer inn í geymslu og tekur reið-
hjólið fram, dustar rykið af hnakknum, setur loft
í dekkin og þeysist af stað.
Hjólreiðafólkið vaknað úr vetrardvalanum
Morgunblaðið/Eggert
Stúlka á grunnskólaaldri, sem veitti
jafnaldra sínum áverka með hníf í
Kópavogi á fimmtudagskvöld, hefur
verið færð til vistunar á viðeigandi
stofnun á vegum barnaverndaryfir-
valda. Pilturinn sem varð fyrir árás-
inni hlaut alvarlega áverka en er ekki
í lífshættu.
Í fyrstu var talið að ókunnugur
maður hefði ráðist á þau bæði og var
viðbúnaður mikill vegna atviksins.
Mannsins var leitað og var m.a. not-
ast við sporhund og þyrlu Landhelg-
isgæslunnar. Leit var hætt eftir að í
ljós kom að stúlkan hafði staðið að
árásinni.Var þetta þriðja hnífaárásin
á höfuðborgarsvæðinu á einni viku
þar sem brotaþolar og gerendur eru á
unglingsaldri.
Sautján ára piltur var í fyrradag
úrskurðaður í fjögurra vikna áfram-
haldandi gæsluvarðhald í þágu rann-
sóknar lögreglu á mjög alvarlegri lík-
amsárás í Breiðholti 23. apríl. Er
hann grunaður um að hafa stungið
ungan mann. Þá var lögregla kölluð
til eftir að ungur drengur beitti hníf í
slagsmálum við annan dreng í
Hafnarfirði 28. apríl. Sá sem varð fyr-
ir árásinni slasaðist ekki alvarlega, en
drengirnir eru 12 og 13 ára gamlir.
Þrjár
hnífaárásir
á einni viku
Stúlka særði jafn-
aldra sinn alvarlega