Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 44
Ég var öllum stundum úti ínáttúrunni að leika mér,drullumallaði bæði kökurog eitthvað annað; ég
raðaði steinvölum á ýmsan máta,
fann fjöl sem ég lagði yfir læk og þar
með bjó ég til brú yfir lækinn. Ég
fann eitthvert spýtnarusl og bjó til
úr því ýmislegt; lá á bakinu tímunum
saman og horfði upp til skýjanna og
sá stöðugt í þeim nýjar og nýjar
myndir. Það
voru endalaus-
ir möguleikar.
(S.B. bls. 2)
Á síðasta ári
kom út bók
um lista-
mannsferil
Sigríðar
Björnsdóttur,
myndlistar-
manns og listmeðferðarfræðings.
Sigríður fagnaði þá níræðisafmæli
og af því tilefni réðust aðstandendur
hennar í gerð þessarar bókar þar
sem mörg verka hennar sjást nú
opinberlega í fyrsta sinn. Sigríður
var brautryðjandi í listmeðferðar-
fræðum á Íslandi og starfaði meðal
annars á Barnaspítala Hringsins í
fjölda ára og er þekkt fyrir sitt
mikilvæga frumkvöðlastarf á því
sviði. Hún hefur þó alltaf sinnt
myndlistinni samhliða öðrum störf-
um og eftir hana liggja yfir 700 verk.
Sigríður var alin upp í sveit en
flutti með fjölskyldu sinni til Reykja-
víkur á hernámsárunum, þegar hún
var á ellefta ári. Eftir útskrift frá
Verslunarskóla Íslands, lá leiðin í
Myndlista- og handíðaskólann og
þaðan lauk hún myndlistarkenn-
araprófi árið 1952. Fáum árum síðar
nam hún við Central School af Art
and Crafts í London og árið 1984
lauk hún diplómanámi í listmeðferð
frá Goldsmiths College í London.
Megintexti bókarinnar er eftir Aðal-
stein Ingólfsson, „Sigríður Björns-
dóttir: Myndir endurtekinnar hug-
ljómunar“, þar sem hann fer yfir
myndlistarferil hennar og stöðu í ís-
lenskri myndlistarsögu. Í kaflanum
„Valin verk“ má sjá ljósmyndir af
verkum sem undirstrika tímabilin í
verkum Sigríðar en einnig er í bók-
inni heildaryfirlit ljósmynda af verk-
um hennar í tímaröð frá 1950-2019.
Auk þess birtist í bókinni ljóðabók
Sigríðar, Ljóð teikningar, í heild
sinni.
Líf Sigríðar hefur verið samofið
íslenskri myndlistarsenu með einum
eða öðrum hætti. Eftir námið í
London vann hún sem myndlistar-
maður í starfsnámi á sjúkrahúsi á
Englandi, þar sem hún byrjar að
nota myndlist til meðferðar fyrir
börn. Um miðjan sjötta áratuginn
starfaði Sigríður í Kaupmannahöfn
þar sem hún kynntist tilvonandi
manni sínum, Dieter Roth. Þau
fluttu til Íslands árið 1957 og Dieter
átti eftir að hafa afgerandi áhrif á ís-
lenskt myndlistarlíf og víðar um
Evrópu þegar leið á tuttugustu öld-
ina. Verk Sigríðar hafa ekki verið
sýnd oft opinberlega á söfnum og
sýningarstöðum hér á landi og Aðal-
steinn bendir á að mögulega sé hæv-
ersku hennar um að kenna en einnig
þeim örlögum Sigríðar og margra
mætra listakvenna sem voru giftar
starfandi myndlistarmönnum að lifa
í skugga maka síns, án þess að vera
metnar að verðleikum.
Margbreytilegur ferill
Þegar litið er yfir feril Sigríðar kem-
ur í ljós að hann er æði margbreyti-
legur, verkin eru viðbragð og úr-
vinnsla utanaðkomandi áreitis. Starf
hennar sem listmeðferðarfræðingur
hefur haft áhrif á sköpun hennar,
þar sem listamaðurinn sækir í eigið
innsæi og vitund fremur en áhrif frá
liststraumum samtímans. „Því ein-
kennist myndlistarferill hennar
fremur af skyndilegum hugljóm-
unum, jafnvel kollsteypum, en óslit-
inni framvindu“ (bls. 13).
Sigríður notar ólíkan efnivið í
verk sín svo sem bílalakk, ritblý,
olíuliti, húsamálningu, gasbrennara,
eggjárn auk ýmissa aðskotahluta.
Tímabilið frá 1957-1970 var frjótt í
listsköpun Sigríðar og Aðalsteinn
dregur vel fram listrænt sjálfstæði
hennar gagnvart verkum Dieters.
Sigríður prófaði sig áfram og gerði
tilraunir með fótógrömm (þar sem
ljósmynd er búin til án ljósmynda-
vélar) undir lok sjötta áratugarins. Í
sumum þeirra verða til myndljóð þar
sem hún fellir orð og bókstafi inn í
verkin. Um tíma gerði Sigríður verk
þar sem ýmiss konar aðskotahlutum
er steypt saman, svokallaðar „sam-
skeytur“. Í listsögulegu samhengi er
fróðlegt að kynnast frumlegri nálg-
un Sigríðar á þessu tímabili. „Sam-
skeytingar Sigríðar frá 1961-1962
staðfesta ótvírætt listrænt frum-
kvæði hennar í þessari grein mynd-
listar og gefa fullt tilefni til endur-
mats á framlagi hennar til mynd-
listarsögunnar í landinu á þessu
umbrotatímabili.“ Að mati Aðal-
steins eru þessi verk týndur hlekkur
milli frjálsrar abstraktlistar og ný-
raunsæis SÚM-hreyfingarinnar (21-
22).
Metnaðarfull útgáfa
Mikill metnaður hefur verið lagður í
útgáfuna og hönnun bókarinnar er
vel heppnuð. Sjaldgæft er að freista
þess að birta nánast öll verk lista-
manns á prenti eins og gert er hér,
enda er útkoman stórt og mikið rit
sem telur um 300 blaðsíður. Það er
spurning hvort það þjónar tilgangi í
útgáfu sem þessari og hefði farið
betur að halda heildarská verka til
haga með öðrum hætti. En vissulega
gefur það heildstætt yfirlit yfir feril
Sigríðar og opnar lesendum sýn á
listamann sem tekur stöðugum
breytingum og gerir áhugaverðar
tilraunir á löngum ferli. Í nýjustu
landslagsverkum Sigríðar standa
eftir einföld grunnform sem minna á
blæbrigði náttúrunnar en áhorfand-
anum er látið eftir að búa til eigin
skýjamyndir.
Skýjamyndir
Brautryðjandi Bókin gefur „heildstætt yfirlit yfir feril Sigríðar og opnar lesendum sýn á listamann sem tekur stöð-
ugum breytingum og gerir áhugaverðar tilraunir á löngum ferli,“ segir um bókina um feril Sigríðar Björnsdóttur.
Myndlist
Sigríður Björnsdóttir. Myndverk
1950-2019 bbbbn
Ritstjórar og höfundar inngangs: Karl
Roth, Guðríður Adda Ragnarsdóttir,
Björn Roth og Vera Roth.
Höfundur texta: Aðalsteinn Ingólfsson.
Hönnun: Ármann Agnarsson og Björn
Roth.
Útgefendur: Börn Sigríðar, ROTH Ver-
lag, 2019. Kilja, 303 bls
ALDÍS
ARNARDÓTTIR
BÆKUR
Fjölbreytileg Eitt verka Sigríðar í
vandaðri og vel hannaðri bókinni.
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
Ný þáttaröð er væntanleg af hinum
vinsælu dönsku dramaþáttum
Borgen sem sýndir voru á RÚV
fyrir fáeinum árum. Danska ríkis-
útvarpið, DR, mun sem fyrr fram-
leiða þættina en nú í samstarfi við
hina voldugu streymisveitu Netflix.
Þáttaröðin verður sú fjórða og
ekki frumsýnd fyrr en eftir tvö ár,
2022, en þá verða níu ár liðin frá
því síðasta þáttaröð var sýnd.
Þættirnir verða bæði sýndir á DR
og á Netflix og verða eldri syrpur
þáttanna aðgengilegar síðar á
þessu ári. Leikkonan Sidse Babett
Knudsen mun snúa aftur í hlutverki
Birgitte Nyborg sem verður að
þessu sinni í starfi utanríkis-
ráðherra Danmerkur. Borgen eru
meðal vinsælustu þátta DR fyrr og
síðar og margverðlaunaðir. Hafa
þeir m.a. hlotið Bafta-verðlaunin og
Peabody.
Endurkoma Sidse Babett Knudsen snýr
aftur í fjórðu þáttaröð Hallarinnar.
Fjórða syrpan af
Höllinni árið 2020
Ný heimildarmynd, sem hinn
þekkti heimildarmyndahöfundur
Michael Moore framleiðir, hefur
valdið usla meðal vísindamanna og
baráttumanna í umhverfismálum.
Er myndin sögð beina spjótum sín-
um að meintri hræsni umhverfis-
verndarsinna og vera hættuleg,
afvegaleiðandi og skaðleg, að því er
fram kemur á vef dagblaðsins The
Guardian. Hvetur hópur vísinda-
manna og umhverfisverndarsinna
til þess að myndin verði fjarlægð úr
sjónvarpsveitum þannig að almenn-
ingur geti ekki horft á hana.
Myndin nefnist Planet of the
Humans og var gerð aðgengileg í
síðustu viku. Í lýsingu á myndinni
segir að hún sé árás á hinar heilögu
kýr og sýni m.a. fram á galla raf-
magnsbíla og sólarorku.
Umdeildur Michael Moore er bæði dáður
og fyrirlitinn heimildarmyndasmiður.
Heimildarmynd
sögð skaðleg
ÞJÓNUSTA FYRIR
ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ