Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020 Hæst hlutfall skráðra dauðsfalla af völdum kórónuveirunnar er í Belgíu þegar litið er til hlutfalls látinna af hverri milljón íbúa. Þetta tekur vef- síðan Statista saman, samkvæmt dánartölum frá 30. apríl. Skráð dauðsföll í Belgíu vegna kórónuveirunnar eru 7.501 og þar búa 11,42 milljónir manns, sem gerir að 656,71 af hverjum milljón íbúum er látinn. Faraldurinn hefur því náð mestri útbreiðslu í Belgíu, sé litið til dauðs- falla á hverja milljón íbúa. Í 2. sæti situr Spánn og í því þriðja Ítalía, en næst koma Bretland, Frakkland, Holland og Írland. Í 8. sæti er Svíþjóð en Bandaríkin í 10. sæti, með 186,17 dauðsföll á hverja milljón. Hlutfallið er hærra í Svíþjóð, þar sem dauðsföllin eru 241,77 á hverja milljón. Þar sem listinn er byggður á hlut- falli látinna á hverja milljón íbúa er Ísland ekki á listanum. Aðrar Norðurlandaþjóðir standa betur að vígi en Svíar í baráttunni við farald- urinn. Í Danmörku eru dauðsföllin um þrisvar sinnum færri, eða 76,41 á hvern íbúa. Í Noregi eru þau 38 á hverja milljón og lestina rekur Finn- land, með 37,33 dauðsföll á hverja milljón. Kína neðarlega á listanum Skráð dauðsföll í Kína á hvern íbúa eru 3,33, miðað við íbúafjöldann 1.392.730, samkvæmt tölum frá 30. apríl. Tala látinna þar í landi er 4.637. Hæst dánartíðni í Belgíu og Bandaríkin í 10. sæti AFP Faraldur Dánartíðnin meðal fjöl- mennari landa er hæst hjá Belgíu. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Stjórnvöld í Ástralíu og Frakklandi vinna nú markvisst að því að rétta hlut innlendra fréttamiðla í sam- keppni við netrisa eins og Face- book og Google, sem komist hafa upp með það um árabil að nota fréttir og annað efni miðlanna á vefjum sínum án greiðslu. Hafa þau leitað til dómstóla í þessu skyni. Lögsókn Frakka byggir á ný- legri tilskipun framkvæmdastjórn- ar Evrópusambandsins um staf- rænan útgáfurétt. Ástralar styðjast við löggjöf þar í landi gegn einokun og hringamyndun. Þá hafa ríkis- stjórnirnar fyrirskipað Facebook og Google að semja við innlendu miðlana um eðlilegar greiðslur fyr- ir notkun á efni þeirra. Ástralar krefjast þess að slíkur samningur liggi fyrir ekki síðar en í júlí á þessu ári. Stór skref stigin Dean Miller, fréttaskýrandi dag- blaðsins Seattle Times, segir að þótt of snemmt sé að segja um áhrif þessara aðgerða megi fullyrða að hér séu stór skref stigin til þess að knýja netrisana tvo til að horf- ast í augu við alvarleika málsins. Viðurkennt sé að fagleg blaða- mennska skipti þjóðfélagslega máli en núverandi skipulag á netinu sé ekki til þess fallið að styðja við hana. Breytingar þurfi að verða ef menn vilji áfram njóta trausts og ábyrgs fréttaflutnings og upplýs- ingamiðlunar. Forráðamenn Google hafa lýst óánægju með að Frakkar skilgreini fyrirtækið sem samkeppnishindr- andi. Þeir hafa þó fallist á viðræður en óljóst er hvað kemur út úr þeim. Fram að þessu hefur netrisunum tekist að víkja sér undan öllum til- raunum til að fá þá til að fallast á greiðslur fyrir fréttirnar sem þeir miðla, Google á fréttasíðu sinni og Facebook á hinum vinsæla sam- félagsvef. Sarah Ganter, prófessor við Sim- on Frasier-háskólann í Bandaríkj- unum, segir að Facebook og Google muni halda áfram að reyna að kom- ast undan öllum greiðslum til inn- lendra miðla en ljóst sé að meiri al- vara en nokkru sinni fyrr sé í kröfum stjórnvalda í Ástralíu og Frakklandi á hendur netrisunum. Lokuðu á Spán Fyrir átta árum gripu stjórnvöld á Spáni til aðgerða gegn leyfis- lausri fréttamiðlun Google. Var þess krafist að fyrirtækið greiddi viðkomandi aðilum fyrir notkun sína á efninu. Í stað þess að greiða fyrir fréttirnar ákvað Google hins vegar að hætta miðlun frétta á spænsku. Ekki er ólíklegt að fyrir- tækið hyggist grípa til hliðstæðra aðgerða gagnvart Frökkum. Nikos Smyrnaios, prófessor við Háskólann í Toulouse í Frakklandi, segir að með viðbrögðunum gagn- vart Spánverjum hafi netrisinn ein- faldlega verið að segja: „Ef þið vilj- ið ekki vera á Google – þá hverfið þið bara af netinu.“ Þessari stefnu hyggist hann líklega fylgja gagn- vart Frökkum í stað þess að semja. En því fleiri ríki sem setja net- risunum stólinn fyrir dyrnar, þeim mun erfiðara verður fyrir þá að stela fréttum sem aðrir fjölmiðlar hafa unnið með ærnum tilkostnaði. Þá kunna þeir að kjósa að semja. Og þeir munu líka finna fyrir því fjárhagslega tapi þeir, sem vel má vera, dómsmálunum sem Ástralar og Frakkar hafa höfðað gegn þeim. Fram undan er spennandi viður- eign og afar mikilvæg fyrir faglega fjölmiðlun um allan heim. „Þá hverfið þið bara af netinu“  Frakkar og Ástralar vilja að Facebook og Google deili auglýsingatekjum með innlendum miðlum AFP Netrisar Vilja ekki borga fyrir að nota fréttirnar sem aðrir semja. Enga mótmælendur var að sjá á degi verkalýðs- baráttu í Nantes í Vestur-Frakklandi í gær, enda útgöngubann enn í gildi alls staðar í landinu og hefur verið frá 17. mars. Hins vegar blasti falleg sjón við þeim sem hætti sér út á stræti Nantes. Voru götur borgarinnar prýddar litríkum borðum til að hylla baráttu launafólks fyrir betri kjörum. Hefur vafalaust mörgum hlýnað um hjartarætur við þær fréttir. AFP Litadýrð en engin mótmæli á degi verkalýðsbaráttu Verkalýðsdagurinn óvenjulegur í Frakkland Halla Lögg. fast. 659 4044 Ólafur Sölu- og markaðsstjóri 690 0811 Ellert Sölustjóri 661 1121 Sigþór Lögg. fast. 899 9787 Hafrún Lögg. fast. 848 1489 Bárður Sölustjóri 896 5221 Elín Urður Lögg. fast. 690 2602 Elín Rósa Lögg. fast. 773 7126 Lilja Sölufulltrúi 820 6511 Kristján Sölufulltrúi 691 4252 Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is Kína reyndi að þrýsta á Evrópusam- bandið um að draga úr í skýrslu sambandsins um að röngum upplýs- ingum um kórónuveiruna hefði verið deilt af ásetningi. Þetta staðfestir Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, samkvæmt frétt EUobserver. Hann segir að þetta sé hefðbundin aðferð í samskiptum ríkja. Þetta hafi ekki haft nein áhrif á það sem kom fram í skýrslunni og að tónninn hafi ekki verið mildaður að beiðni Kín- verja. Borrell sagði í gær að Kín- verjar hefðu lýst áhyggjum yfir skýrslunni þegar þeir vissu hvað fælist í henni en ekki hefði verið far- ið eftir óskum þeirra. Skýrslan var birt 24. apríl en New York Times náði í upprunalegu skýrsluna, sem átti að koma út 21. apríl. Þegar skýrslurnar eru bornar saman sjást breytingar frá fyrri gerðinni, sem ekki var gefin út. Með- al annars var notað mun mildara orðalag þegar nafn Kína bar á góma. Eins var dæmum sleppt úr skýrsl- unni, þar á meðal um deilur milli Frakka og Kínverja varðandi áróður Kínverja. Borrell vill meina að það sé hefðbundið að innanhússskýrslur séu ekki eins og þær sem eru birtar opinberlega. Þrýstingur kom frá Kína  Kínverjar vildu breyta ESB-skýrslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.