Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
Forstjóri óskast
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framsýnum leiðtoga með brennandi áhuga á að bæta þjónustu og
rekstur ríkisins sem forstjóri Ríkiskaupa.
Forstjórinn þarf að hafa framtíðarsýn fyrir rekstur og þjónustu ríkisins ásamt frumkvæði og metnaði til að
sýna árangur og kraft til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Viðkomandi mun taka virkan þátt í umbreyt-
ingarferli og innleiðingu aðgerða þvert á stofnanir ríkisins ásamt því að stýra stofnuninni og bera ábyrgð á
rekstri hennar, þjónustu og árangri.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.
• Árangursrík reynsla af stjórnun, rekstri, stefnumótun og áætlanagerð er skilyrði.
• Færni og reynsla af umbótavinnu og breytingarstjórnun er skilyrði.
• Sannfærandi samskipthæfni ásamt leiðtogahæfileikum, getu og vilja til að hvetja aðra til árangurs.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu og alþjóðasamstarfi er kostur.
• Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf um hvers vegna sótt er um starfið, rökstuðningi um
færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð í fyrri störfum.
Nánari upplýsingar um Ríkiskaup er að finna á heimasíðu stofnunarinnar www.rikiskaup.is
Fjármála og efnahagsráðherra skipar forstjóra Ríkiskaupa til fimm ára. Starfskjör eru í samræmi við grunn-
mat starfa forstöðumanna sem er aðgengilegt á vef Stjórnarráðs Íslands ásamt stjórnendastefnu ríkisins.
Upplýsingar um embættið veitir Guðrún Ögmundsdóttir skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, í
síma 545 9200.
Umsóknarfrestur er til og með 11. maí nk.
Umsóknum skal skila rafrænt á vef Starfatorgs.
Finnur þú starf við þitt hæfi
hjá Kópavogsbæ?
kopavogur.is
P
ip
a
r\TB
W
A
\ SÍA
Kynntu þér fjölbreytt og spennandi störf hjá Kópavogsbæ á vefsíðu okkar, kopavogur.is.
Hlökkum til að starfa með þér.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
Verkstjóri
Fagverk verktakar ehf. óskar eftir að ráða
verkstjóra til að sinna daglegri stjórnun
og skipulagningu á vinnu starfsfólks við
malbiksframkvæmdir. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi reynslu
af verkstjórn og starfsmannahaldi ásamt
hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af
malbiksframkvæmdum æskileg.
Umsóknir sendast til
villigeir@malbikstodin.is fyrir 12. maí 2020.