Morgunblaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
Á nokkrum mánuðum hafa þrír
íþróttamenn, sem hlotið hafa
sæmdarheitið Íþróttamaður
ársins hjá samtökum íþrótta-
fréttmanna, ákveðið að láta
staðar numið sem keppnisfólk.
Knattspyrnukonan Mar-
grét Lára Viðarsdóttir, körfu-
knattleiksmaðurinn Jón Arnór
Stefánsson (gaf það sterklega í
skyn í það minnsta) og nú í
vikunni landsliðsfyrirliði í hand-
knattleik til margra ára, Guðjón
Valur Sigurðsson. Allt leikmenn
sem náðu óvenju miklum ár-
angri á íslenskan mælikvarða.
Er þetta til marks um að kyn-
slóðaskipti séu að eiga sér
stað þegar fólk í þessum
gæðaflokki hverfur af þessu
sjónarsviði. Ef til vill hefur Jón
Arnór ekki tekið endanlega
ákvörðun og þar má kannski
slá varnagla.
Fleiri hafa ákveðið að láta
gott heita. Ásgeir Örn Hall-
grímsson, sem vann til tvennra
verðlauna á stórmótum með
landsliðinu í handknattleik, er
hættur. Þá hefur Ásdís Hjálms-
dóttir, Íslandsmethafi í tveimur
greinum og þrefaldur ólympíu-
fari í spjótkasti, ákveðið að
hætta eftir sumarið.
Í umfjöllun hér í blaðinu um
fyrsta landsleikinn eftir að
Ólafur Stefánsson hætti með
landsliðinu, gegn Hvíta-
Rússlandi í október 2012, virð-
ist ég hafa skrifað að ég von-
aðist til þess að Guðjón Valur
myndi gefa kost á sér í lands-
liðið þar til hann yrði 67 ára.
Augljóslega hefði það verið
sanngjörn krafa en ég mun
ekki erfa það við Guðjón að
hætta tæplega 41 árs. Hvernig
hægt er að spila í hæsta gæða-
flokki fram að þeim aldri er
rannsóknarefni út af fyrir sig.
#takkgaui
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þess
efnis að félög væru staðráðin í að
leika tímabilið til enda og að deildin
færi aftur af stað þegar það væri
öruggt. Í yfirlýsingunni var lögð
áhersla á að öryggi og heilsa leik-
manna væri í fyrirrúmi, sem og
heilsa þjálfara, starfsfólks og stuðn-
ingsmanna.
Unnið er að því að gera deildinni
kleift að hefjast á ný í fyrsta lagi í
næsta mánuði. Verður það gert í
samstarfi við stjórnvöld og heil-
brigðisyfirvöld. Stofnuð hafa verið
samtök starfsfólks í heilbrigðisþjón-
ustu sem eiga að koma að því að
hjálpa íþróttamönnum í fremstu röð
að komast örugglega af stað á ný.
Munu leikmanna- og þjálfarasamtök
leika stórt hlutverk til að deildin
geti hafist að nýju.
Minni líkur eru á að tímabilið
verði klárað í næstu þremur deild-
um fyrir neðan. Leeds og West
Bromwich Albion eru í tveimur
efstu sætum B-deildarinnar og náist
ekki að klára tímabilið fá þau vænt-
anlega sæti í úrvalsdeildinni. Leeds
er í toppsætinu með 71 stig og West
Brom með einu stigi minna. Liðin í
3.-6. sæti myndu mætast innbyrðis í
umspili um þriðja og síðasta lausa
sætið í deild þeirra bestu. Þar eru
sem stendur Fulham, Preston,
Brentford og Nottingham Forest.
Yrðu umspilsleikirnir leiknir á hlut-
lausum völlum.
Staðráðin í að klára tímabilið
Evrópska knattspyrnusambandið
samþykkti í gær tillögu hollenska
knattspyrnusambandsins um að
verðlauna fimm efstu lið hollensku
úrvalsdeildarinnar með sætum í Evr-
ópukeppnum á næstu leiktíð.
Hollensku úrvalsdeildinni var af-
lýst í síðustu viku, en þrátt fyrir það
heldur deildin fimm Evrópusætum.
Ajax og AZ Alkmaar fá sæti í
Meistaradeild Evrópu á næstu leik-
tíð, en liðin voru í tveimur efstu sæt-
um deildarinnar. Albert Guðmunds-
son leikur með AZ, sem lék í
Evrópudeildinni á þessari leiktíð.
Þá fá Feyenoord, PSV og Willem II
sæti í Evrópudeildinni, en þau voru
nokkuð á undan liðunum þar fyrir
neðan.
Tímabilinu í Hollandi var aflýst og
var enginn meistari krýndur, ekkert
lið féll og ekkert lið fór upp. Efstu fé-
lög B-deildarinnar voru allt annað en
sátt og má hollenska knattspyrnu-
sambandið búast við lögsókn frá
Cambuur og De Graafschap á næstu
vikum, en þau voru bæði á góðri leið
með að tryggja sér sæti í efstu deild.
Elías Már Ómarsson er leikmaður
Excelsior, sem var í sjöunda sæti í B-
deildinni og átti enn möguleika á að
fara upp um deild.
Stærsta sviðið bíður Alberts
hann fór ekki í 18 holu umspil um
sigurinn á mánudeginum. Þá fór um
okkur. Nú var hann orðinn mega-
stjarna og okkur datt ekki í hug að
þá væri hægt að fá hann til Íslands.
Við töldum að við þyrftum að fá ann-
an í staðinn með litlum fyrirvara. Við
settum okkur í samband við IMG og
þau skildu ekki þessar áhyggjur
okkar. Maðurinn væri einfaldlega
með samning og bókaður þennan til-
tekna dag á Íslandi. Eins og gefur að
skilja vorum við afskaplega ánægð
með að fá hann sjóðandi heitan til Ís-
lands.
Goosen er alveg pollrólegur á velli.
Ekkert haggaði honum og hann
kvartaði ekki yfir neinu. Hvorki dett-
ur af honum né drýpur þegar hann
einbeitir sér að golfinu. Eftir svona
hálftíma í kvöldverðinum setti hann
niður keppnissvipinn og kom út úr
skelinni. Þá reyndist hann mjög
skemmtilegur og ég endaði með hon-
um á pöbbarölti til eitt um nóttina,“
sagði Sigurjón og hló að minning-
unni. Með Goosen í för var Ronan
Rafferty, sem hafði unnið Ryder-
bikarinn með Evrópuliðinu árið 1989.
Rose afskaplega kurteis
Árið eftir kom Padraig Harrington
og með honum Nick Dougherty, sem
í dag er þekktur sjónvarpsmaður hjá
Sky Sports. Harrington tók sig til og
vann þrívegis risamót 2007 og 2008.
Opna breska tvívegis og PGA-
meistaramótið einu sinni. Var á því
einn albesti kylfingur heims um tíma
og verður liðsstjóri Evrópu í næstu
keppni um Ryder-bikarinn sem til
stendur að verði í haust.
„Harrington vann ekki mótið á
Hvaleyrinni og fór ekki með okkur
út að borða um kvöldið. Hann var
frekar svona stirður að mér fannst
en kannski fór hann bara í fýlu af því
að hann tapaði. Allir hinir voru af-
skaplega almennilegir,“ sagði Sigur-
jón og ber Justin Rose sérstaklega
vel söguna, en hann kom 2003. Rose
er núverandi ólympíumeistari í golfi,
sigraði á Opna bandaríska 2013 og
var um tíma í efsta sæti heimslist-
ans. Peter Baker kom einnig, en
hann var í Ryderliði Evrópu 1993.
„Við fórum með Justin Rose í Bláa
lónið. Hann var afskaplega kurteis
drengur og þakklátur fyrir allt sem
gert var fyrir hann. Rose var ekki
orðinn þessi súperstjarna sem hann
var í dag. Núverandi eiginkona hans
var einnig stödd á Hvaleyrinni. Þau
höfðu verið saman í nokkur ár en svo
vildi til að hún var starfsmaður um-
boðsskrifstofunnar á þeim tíma.“
Immelman stóð uppi allslaus
Síðasta mótið var haldið 2004 og
þá kom Trevor Immelman. Hann var
ekki mjög frægur á þeim tíma en það
átti heldur betur eftir að breytast
þegar hann sigraði á Masters 2008
og vann Tiger Woods með þremur
höggum. Babb kom hins vegar í bát-
inn hjá Immelman á Íslandi.
„Þegar við sóttum hann á hótelið
klukkan 7 um morguninn sagði
Immelman: „Ég er kominn en það
vantar allt dótið.“ Þá hafði búnaður-
inn ekki skilað sér. Var það allur
búnaður hans sem tengdist golfinu,
hvort sem það voru kylfur og boltar
eða hlífðarföt og skór. Hann var alls-
laus og átti að keppa á Hvaleyrinni
síðar um daginn.
Ólafur Þór Ágústsson og félagar
hjá Keili hringdu strax í golfverslun í
Hafnarfirði. Tjáðu þeim að hér væri
þessi ágæti maður kominn til að spila
á Hvaleyrinni en væri ekki með
neitt. Þá var farið í að græja kylfur,
skó og annað frá Nike sem Immel-
man var með samning við. Var
hlaupið með þetta út á völl. Hann
hafði því aldrei slegið með þessum
kylfum þegar hann fór út á völl.
Þegar Immelman spilaði var
virkilega hvasst. Var það eiginlega í
eina skiptið þegar þessi mót fóru
fram. Maður dáðist að því hversu
flinkur hann var að spila í vindinum.
Hann afsannaði kenningar um að Ís-
lendingar yrðu betri en útlending-
arnir í rokinu. Var mjög gaman að
sjá Immelman pútta og hvernig
hann las púttlínuna. Mikil fag-
mennska var í kringum það allt sam-
an og hann setti niður mörg löng
pútt.
Geta þessara manna er auðvitað
mögnuð. Goosen sló til dæmis upp-
hafshöggið út í hraunið á 5. holunni,
sem er par 4. Þurfti að taka víti og
slá þá þriðja höggið. Setti það inn á
flötina með 8 járni, púttaði í og fékk
par. Ekkert mál.“
Ekki alveg sjálfsagt
Sigurjón bendir á að aðstæður
hafi verið tímabundið með þeim
hætti að gerlegt var að ráðast í
mótshaldið þar sem Nýherji og Golf-
klúbburinn Keilir lögðust saman á
árarnar. Það sé hins vegar allt annað
en sjálfsagt mál að geta fengið slíkar
kempur til að spila hérlendis.
„Að mörgu leyti var viss heppni að
við hefðum aðgang að þessum mönn-
um en þessu fylgdi einnig mikil
vinna. Canon var með samninga við
kylfingana sjálfa rétt eins og KPMG
er með samning við Ólafíu Þórunni
Kristinsdóttur og fleiri kylfinga.
Eftir 2004 sneri Canon sér að öðrum
íþróttum. Fyrirtækin færa gjarnan
áherslurnar til og eru ekki alltaf í því
að styrkja sömu íþróttina. Þegar
Canon hætti að styrkja golf þá var
mótinu í raun sjálfhætt.
Ég er ekki viss um að Íslendingar
hafi ekki endilega áttað sig á því
hversu stór viðburður það var að fá
þessa menn hingað. Átta sig ekki á
því að þetta er ekki alveg sjálfsagt.
Ég er þess nokkuð viss að þessi mót
voru hins vegar mikil lyftistöng fyrir
golfíþróttina á Íslandi. Við áttum
frábært samstarf við alla sem að
þessu komu og ekki síst forsvars-
menn og stjórnendur hjá Keili, sem
lögðu allt í að gera þetta sem best úr
garði,“ sagði Sigurjón Hjaltason enn
fremur við Morgunblaðið.
tti ekki Íslandsferð
Ljósmynd/ Úr safni Nýherja/Phil
Hvar er ég? Justin Rose leitar í hrauninu á fyrri hluta vallarins.
umferðum þegar keppnin var flaut-
uð af. Sandra segist ekki hafa haft
mikinn tíma til að kynna sér nýja fé-
lagið en hún veit þó að stefnan er
sett á að komast beint aftur upp í
efstu deild.
„Ég hafði ekki mikinn tíma til að
svara og er aðeins að stökkva út í
djúpu laugina. Ég veit að fyrsta
deildin er mjög sterk og við stefnum
á að vera í toppbaráttunni og helst
að komast strax upp aftur. Ég held
að þessar deildir, hér heima og úti,
séu svipaðar. Það eru toppliðin sem
eru svipuð og svo aðeins lakari lið
þar fyrir neðan,“ sagði Sandra og
bætti við að draumurinn væri nú að
vinna sér inn fast sæti í landsliðinu.
„Það er auðvitað bara undir mér
komið. Það væri óskandi og það sem
maður vill en svo sjáum við til.“
Sandra hefur talað opinskátt um
erfiðleika sína vegna átröskunar, en
um tíma var handknattleiksferill
hennar hreinlega í hættu. Hún seg-
ist hafa um tíma gefið drauminn um
að komast í atvinnumennsku upp á
bátinn og þetta sé því mikill sigur
fyrir hana. „Á tímapunkti hélt ég að
þessi draumur væri bara farinn. Það
er ótrúlega mikill sigur að vera allt í
einu á leiðinni að spila úti. Ég vona
að stelpur sem eru að vinna sig út úr
þessu sjái að það getur allt gerst í
framtíðinni,“ sagði Sandra Erlings-
dóttir enn fremur.
Morgunblaðið/Eggert
Álaborg Sandra Erlingsdóttir mun reyna fyrir sér í sterkri atvinnumannadeild á næsta keppnistímabili.