Morgunblaðið - 02.05.2020, Side 4

Morgunblaðið - 02.05.2020, Side 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. Guðni Einarsson Alexander Kristjánsson Eitt kórónuveirusmit greindist í fyrradag hjá veirufræðideild Land- spítalans en ekkert hjá Íslenskri erfðagreiningu (ÍE), samkvæmt vefnum Covid.is. Þann dag voru greind 511 sýni hjá ÍE og 211 hjá Landspítala, samtals 722 sýni. Af 1.798 sem höfðu greinst með kórónu- veirusmit höfðu 1.689 náð bata og því voru 109 virk smit í fyrradag. Farið var yfir stöðu mála á upplýs- ingafundi almannavarna í gær. Þar töluðu þeir Víðir Reynisson yfirlög- regluþjónn, Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og svöruðu fyrirspurnum. Ánægjulegt að njóta trausts Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði ánægjulegt og uppörv- andi að sjá jafnmikið traust við að- gerðir stjórnvalda og mældist í skoðanakönnun Gallups sem kom út á dögunum. Í könnuninni kom fram að 96% landsmanna teldu stjórnvöld vera að takast vel á við kórónuveir- una. Könnunin var framkvæmd í 17 löndum, en íslensk stjórnvöld komu best allra út úr henni. Þá sagði Þórólfur ánægjulegt að milli 80 og 90% landsmanna segðust hafa breytt venjum sínum vegna veirunnar, og að 90% segðust stunda meiri handþvott. „Það er óhætt að segja að þetta sé það sem hefur skil- að árangri í baráttunni gegn COVID-19,“ sagði Þórólfur á blaða- mannafundi almannavarna. Sýkingar fátíðari nú Þá greindi hann frá því að sam- komutakmarkanir hefðu ekki aðeins hægt á útbreiðslu kórónuveirunnar heldur einnig ýmissa annarra sýk- inga. Þannig hefðu aldrei sést jafn- lágar tölur um öndunarfærasýking- ar og niðurgangspestir, svo dæmi væru tekin. Þá hefði heimsóknum á heilsugæslu fækkað í apríl frá því sem verið hefði. Slakað verður á samkomubanni á mánudaginn, 4. maí. Spurður hvort gera megi ráð fyrir að nýjum smitum fjölgi í kjölfarið sagði Þórólfur von- ast til að fólk héldi áfram „einstak- lingsaðgerðum“ sínum, þvæði sér um hendur, virti samskiptafjarlægð og forðaðist faðmlög og handabönd. Það trú hans að þessar aðgerðir skiptu mestu. Vinnuhópar að störfum Vinnuhópar innan stjórnkerfisins vinna nú tillögur að því hvernig hægt verði að opna Ísland aftur fyrir ferðamönnum, að sögn Þórólfs. Hann sagði ýmsar útfærslur vera til skoðunar en að ekkert lægi fyrir í þeim efnum enn sem komið væri. Sóttvarnalæknir mun vinna minnis- blað til heilbrigðisráðherra upp úr tillögum vinnuhópsins. Hann benti á að erfitt væri að reiða sig á tölur frá einstaka löndum um útbreiðslu faraldursins, sem skýrðist af því að lönd væru misöflug í skimun. Nefndi Þórólfur Svía sem dæmi, en á Íslandi hafa um tuttugu sinnum fleiri verið skimaðir miðað við höfðatölu en í Svíþjóð. Aðspurður sagði Þórólfur að gengið væri út frá því að ferðamenn sem hefðu sýkst af veirunni gætu ekki fengið hana aftur og þyrftu því ekki að fara í sóttkví við komuna til landsins. „En vandinn er oft að fá staðfestingu á því að þeir hafi fengið veiruna,“ sagði hann. Landamærum Íslands hefur frá því í mars verið lokað fyrir ferðir ut- an Evrópusambandsins, Schengen- svæðisins og Bretlands, en frá 24. apríl hafa ferðamenn sem koma hingað frá fyrrnefndum ríkjum þurft að fara í tveggja vikna sóttkví. Gott velferðarkerfi skiptir máli Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, sagði ástæðu til að hafa sérstakar áhyggjur af faraldrinum í þeim samfélögum sem legðu mest upp úr einstaklingshyggju. Hann vísaði í nýja umfjöllun læknatímaritsins The Lancet um einkenni þeirra samfélaga sem best hefði tekist að hafa hemil á faraldr- inum. Öflugt velferðarkerfi væri ekki síður mikilvægt en stuðningur fjölskyldu og vina, sagði hann. „Sér- gæska og fókus á þröngan eigin hag skilar fólki bara ofan í gröfina,“ sagði Páll, sem sagðist telja að faraldurinn myndi sýna nauðsyn þess að byggja upp heilbrigðiskerfi næstu árin. Þá gerði Páll, sem er doktor í geð- lækningum, hugtakið þolgæði (e. re- silience) að umtalsefni sínu. „Ég held að það sé mikilvægt að við ræktum með okkur þann eiginleika að gefa hlutum sinn tíma til að ná árangri, á næstu mánuðum.“ Það sem einkenni hinn þolgóða sé hæfileikinn til að muna markmiðið sem stefnt er að, að missa ekki sjónar á því og láta ekki áföll brjóta sig heldur gefa eftir, bogna – en koma svo til baka og halda áfram ótrauður. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 2 41 Útlönd 1 0 Austurland 8 18 Höfuðborgarsvæði 1.312 377 Suðurnes 77 31 Norðurland vestra 35 15 Norðurland eystra 46 28 Suðurland 178 64 Vestfirðir 97 33 Vesturland 42 24 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 49.135 sýni hafa verið tekin 10 einstaklingar eru látnir 6 eru á sjúkrahúsi Enginn á gjörgæslu 99 einstaklingar eru í einangrun 99 eru með virkt smit Fjöldi smita frá 28. febrúar til 30. apríl Heimild: covid.is 1.798 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 1.789 99 apríl 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 81% 57% 9,0% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,56% sýna tekin hjá ÍE 19.112 hafa lokið sóttkví631 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit mars 1.689 einstaklingar hafa náð bata Breytt hegðun er árangursrík  Eitt smit greindist  Íslensk stjórnvöld komu best út  Opnun landsins fyrir ferðamönnum í skoðun  Faraldurinn sýnir nauðsyn þess að byggja upp heilbrigðiskerfið  Mikilvægt að efla með sér þolgæði Ljósmynd/Lögreglan Upplýsingafundur almannavarna Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, fóru yfir stöðu mála á fundinum í gær og svöruðu spurningum. Opnun landamæra og möguleikinn á ferða- lögum til og frá land- inu eru mörgum hug- leikin. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í fyrradag að hann hefði talað fyrir opnun landamæra á milli nor- rænu ríkjanna í óformlegum við- ræðum við norræna kollega. Hann sagði ljóst að taka þyrfti tillit til margra ólíkra þátta við slíka ákvarð- anatöku og ekki mætti tefla þeim ár- angri sem hefði náðst í tvísýnu. Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, greindi evrópskum kollegum sínum frá því í á fjarfundi fyrr í vikunni að íslensk stjórnvöld gerðu tæplega ráð fyrir því að ferðaþjónustan næði sér aftur á strik fyrr en á næsta ári. Þá sagði hann í Facebook-færslu að þegar Covid-19 faraldrinum lyki myndi fólk leitast við að ferðast til öruggra staða og Ísland væri eitt af þeim ríkjum sem hefðu brugðist fljótt við sóttvarnalega og efnahags- lega. „Samræmdar aðgerðir ríkja við að aflétta takmörkunum í al- þjóðaflugi munu hjálpa til í viðspyrn- unni og hraða okkur út úr krepp- unni,“ skrifaði Sigurður Ingi. Bjarni Benediktsson, fjármála- ráðherra og formaður Sjálfstæðis- flokksins, var á fjarfundi með for- ystumönnum norrænna íhaldsflokka fyrr í vikunni. Þar varpaði hann fram hugmynd um frjálsari för fólks á milli Norðurlandaríkjanna, þar sem tekist hefði að ná nokkuð góðum tökum á kórónuveirufaraldrinum. Sigurður Ingi sagði í samtali við Kastljós í fyrrakvöld að starfshópur fimm ráðuneyta ynni að afléttingu ferðatakmarkana. Það yrði ekki gert nema í samráði við önnur lönd. Hann varpaði fram þeirri hugmynd að ef til vill yrði hægt að opna á ferðir milli vestnorrænu landanna Færeyja, Grænlands og Íslands. Svo væri ekki ólíklegt að opnað yrði milli tveggja landa með tví- hliða samningum. Hann nefndi í því sambandi Noreg og Finnland til að byrja með og síðan Danmörku. Þetta gæti skýrst betur í kringum 10. maí. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt Evrópusambandinu (ESB) að til greina komi að þau framlengi strangt landamæraeftirlit um 90 daga, eða fram í miðjan ágúst. Þar með gætu Norðmenn framlengt nú- verandi fyrirkomulagi landamæra- gæslu eftir 15. maí, en ekki hefur verið tilkynnt formlega hvað þeir ákveða að gera. Hert landamæra- gæsla til tveggja mánaða var tekin upp í Noregi 16. mars. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir hefur upplýst að hann muni skila minnisblaði fyrir 15. maí um hvað lagt verði til varðandi ferðir um landamæri Íslands. Opnun landamæra Guðlaugur Þór Þórðarson  Ljóst er að landamæri verða ekki opnuð nema að höfðu samráði milli ríkja Sigurður Ingi Jóhannsson Bjarni Benediktsson 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.