Morgunblaðið - 02.05.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það er mikið af sjóbirtingi fyrir aust-
an og rosalega mikið af stórum fisk-
um,“ segir Gunnar J. Óskarsson, for-
maður Stangaveiðifélags Keflavíkur
(SVFK), þegar spurt er fregna af
veiðivorinu. Félag hans leigir Geir-
landsá og frá því að helstu veiðistaðir
voru orðnir íslausir snemma í mán-
uðinum hafa menn verið að veiða vel
þar fyrir austan, eins og virðist vera
raunin víðast hvar þar sem sjóbirt-
ingsveiði er stunduð í apríl. Víða er
reynt við birtinginn aðeins inn í maí-
mánuð, en þá er hann genginn til
hafs.
Blaðamaður kom við í Tungulæk í
Landbroti í vikunni og þar virtist lítið
fararsnið vera á fiskum og mikið af
50 til 65 cm geldfiski í læknum, auk
stærri fiska sem hrygndu í vetur –
talsverð tökugleði hefur verið í geld-
fiskinum og hafa hundruð fiska
veiðst þar í mánuðinum.
„Svakalegir fiskar“
„Það hafa veiðst alveg rosalegir
boltar í vor,“ segir Gunnar um veið-
ina í Geirlandsá og bætir við að það
sé framhald á því sem hafi verið síð-
ustu þrjú, fjögur ár. „Í fyrra voru í
heildarveiðinni 120 fiskar yfir 80 cm
langir, 80 cm eru 10 til 11 punda, og
af því voru 15 yfir 90 cm langir.“
Sjálfur veiddi Gunnar tvo í þeim
stærðarflokki, 95 og 96 cm, við opnun
árinnar. „Það voru svakalegir fisk-
ar.“
Gunnar hefur veitt sjóbirting í
fjóra áratugi og hefur orðið góða yfir-
sýn yfir sveiflur sem hafa orðið á
þeim tíma. Við að skoða veiðibækur
megi sjá reglulegar tíu ára sveiflur,
þegar fiskurinn var stór hafi verið
færri einstaklingar en síðan hafi
meðalstærðin minnkað á milli með
mun fleiri einstaklingum. „Þetta
hélst áður í hendur en nú hefur þetta
greinilega breyst. Það eru margir
einstaklingar og mjög stórir.“
Þegar Gunnar er spurður hvort
hann sé með kenningar um ástæðu
þess, segir hann án efa spila þar inn í
hvað farið sé markvisst að veiða og
sleppa, hjá þeim í Geirlandinu sem og
í öðrum sjóbirtingsám.
„Það segir sig sjálft að fiskur sem
er drepinn stækkar ekki!“ segir
hann. Í Geirlandsá er öllum niður-
göngufiskum nú sleppt á vorin og
mælst til þess á haustin að fiskum yf-
ir 70 cm sé sleppt.
Þeir sem stundað hafa veiði á sjó-
birtingi í ám landsins síðustu ár segja
stofnana í góðu standi og Gunnar
tekur undir það. „Yfir línuna eru
stofnar sterkir og mikið af stórum
fiskum. Það verður áhugavert að sjá
hvernig þróunin verður næstu ár,
hvort það haldist eða hvort við séum
að upplifa toppinn í uppsveiflu.“
Hörkufínir urriðar
Eins og fjallað hefur verið um í
Sporðaköstum á Mbl.is á síðustu vik-
um hafa stórir birtingar glatt veiði-
menn víða. Í Tungufljóti í Skaftár-
tungum landaði 17 ára unglingur,
Brynjar Vignir Sigurjónsson, til að
mynda sannkölluðum metfiski, 100
cm löngum og fimm millimetrum bet-
ur. Í Eldvatni í Meðallandi hefur
veiðst ljómandi vel og þannig sögur
hafa líka borist frá Ytri-Rangá þar
sem hörkufínir urriðar hafa veiðst.
Þá er urriðaveiðin komin í ágæt-
ann gang víða frá bökkum Þingvalla-
vatns eftir hið kalda vor, jafnt frá
ION-svæðinu nærri Nesjavöllum,
þar sem fleiri tugir fiska hafa veiðst,
fyrir Kárastaðalandi og í þjóðgarð-
inum. Stórum urriðum virðist fara
fjölgandi í vatninu, samhliða aukinni
ásókn í vorveiðinni þegar hann gefur
sig á grunninu. Einn veiðimaðurinn
sem stundar þjóðgarðssvæðið, Cez-
ary Fijakowski, hefur náð yfir tutt-
ugu í vor, þeir stærstu um 90 cm.
Fleiri veiðast í Eyjafjarðará
Athygli hefur vakið í veiðifréttum
vorsins að margir vænir sjóbirtingar
hafa veiðst í Eyjafjarðará og að sögn
Jóns Gunnars Benjamínssonar,
stjórnarmanns í veiðifélagi árinnar,
hafa rúmlega tvö hundruð fiskar ver-
ið færðir til bókar. „Það hefur alltaf
verið mikið af sjóbirtingi í Eyjafjarð-
ará en ekki fyrr en á síðustu árum að
menn hafa farið að einbeita sér að því
að veiða hann.“
Byrjað var að heimila vorveiði á
fiskinum fyrir fjórum árum og hefur
svæðum að veiða á smám saman ver-
ið fjölgað neðst í ánni; veitt er á flugu
og ber að sleppa veiddum fiski.
„Við höfum verið að auka aðgengi
að þessari auðlind og það hefur fallið
vel í kramið,“ segir Jón Gunnar. „Að-
stæður voru erfiðar í vor, gríðarlegt
vetrarríki, en á síðustu dögum hefur
aðeins vorað. Það má veiða til 15. maí
en besti gangurinn er alltaf fyrst.
Allra stærstu fiskarnir í vor hafa ver-
ið yfir 90 cm.“ Veiðihlé er í Eyja-
fjarðará frá 15. maí.
„Alveg rosalegir boltar í vor“
Þrátt fyrir kulda framan af aprílmánuði hefur sjóbirtingsveiði verið góð í mörgum ám Fregnir
af stórum fiskum berast víða að „Það segir sig sjálft að fiskur sem er drepinn stækkar ekki!“
Ljósmynd/Aðsend
Vorurriði Benedikt Andrason með 75 cm urriða sem hann veiddi í Þingvallavatni frá Kárastaðalandi, þar sem hefur
veiðst vel undanfarið. Fiskurinn tók hina klassísku Black Ghost-straumflugu sem Benedikt hnýtti á sökkenda.
Eftir rúmt ár verða athyglisverðar breytingar á tilhugun
laxveiða í Þistilfirði því rúmlega hálfrar aldar leigu
veiðifélagsins Þistla á Sandá lýkur nú í sumar og hafa
landeigendur samið beint við Stangaveiðifélag Reykja-
víkur. Sandá er ein fjögurra góðra laxveiðiáa í Þistilfirði
og býr yfir rómuðum stórlaxastofni. Veitt er á þrjár til
fjórar stangir og leyfin ætíð eftirsótt. Í samtali við
Sporðaköst á Mbl.is sagði Jón Þór Ólafsson, formaður
SVFR, að farið yrði í mikla kynningu á ánni samhliða
uppbyggingu. „Þetta er mjög spennandi verkefni fyrir
okkar félagsmenn enda hefur komið í ljós að okkar fólk sækist einna
helst eftir þriggja til fimm stanga ám þar sem menn sjá um sig sjálfir.“
SVFR leigir eftirsótta stórlaxaá
BREYTINGAR Á LEIGU SANDÁR Í ÞISTILFIRÐI
Veitt í Sandá.
Mjög kalt var í veðri framan af ný-
liðnum aprílmánuði og útlit var fyr-
ir að hann yrði í hópi hinna köldustu
á öldinni. En mánuðurinn tók svo
vel við sér á lokasprettinum, að því
er fram kemur í pistli Trausta Jóns-
sonar veðurfræðings. „Þótt ekki sé
beinlínis hægt að tala um hlýindi
síðustu tíu dagana hafa þeir samt
verið góðir og nægt til þess að koma
hitanum upp í meðallag síðustu tíu
ára á landsvísu og upp í 9. til 13.
sæti (af 20) á aldarlista hinna mis-
munandi spásvæða,“ segir Trausti.
Hlýjast að tiltölu hefur verið á
Norðausturlandi, þar er mánuður-
inn í 9. hlýjasta sæti á öldinni, en
kaldast að tiltölu hefur verið á
Suðurlandi, þar er hann í 13. sæti.
Til lengri tíma litið telst mánuður-
inn í hlýjasta þriðjungi, á landsvísu í
33. hlýjasta sæti af 147 mældum
mánuðum.
Úrkoma í Reykjavík mældist 74,6
millimetrar og er það í ríflegu með-
allagi. Á Akureyri mældist úrkom-
an 33,1 mm, rétt ofan meðallags.
Lengi vel var mjög sólarlítið í
Reykjavík en síðustu dagar hafa
verið óvenjusólríkir, segir Trausti.
Endanleg summa liggur ekki fyrir
en gæti orðið í kringum 115 stundir.
Það er nokkuð undir meðallagi.
Fæstar sólskinsstundir sem við vit-
um um í apríl í Reykjavík mældust
1974, 57,2, en flestar 242,3 árið
2000. Í fyrra mældust sólskins-
stundir í apríl 116,4 í Reykjavík. Á
Akureyri voru sólskinsstundirnar á
sjálfvirka mælinum orðnar rúmlega
180. Líklega telst apríl sólríkur á
Akureyri.
Illviðrið snemma í mánuðinum er
í flokki hinna verstu í apríl. Senni-
lega í hópi þeirra 10 verstu síðustu
100 árin, segir Trausti að lokum.
sisi@mbl.is
Apríl tók við sér
á lokasprettinum
Síðustu dagar verið óvenju sólríkir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sólríkur Fólk nýtti sér sólina síð-
ustu daga apríl og sat utandyra.