Morgunblaðið - 02.05.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 02.05.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐhjahrafnhildi.is VOR ÚTSALA 30-50% AFVÖLDUMVÖRUM Í VEFVERSLUN 30. APRÍL – 6. MAÍ Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook SUMAR GLAÐNINGUR GERRY-WEBER | BETTY BARCLAY FRÍ HEIMSENDING hjá Laxdal gætum við fyllsta öryggis v/ covid 20%-60%afsl. NÝTT LAXDAL NETVERSLUN LAXDAL.IS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um 500 starfsmenn Icelandair og dótturfélaga þess koma að því stóra verkefni sem félagið hefur nú með höndum – flutningi á hjálpargögnum og heilbrigðisvörum frá Kína til Evr- ópu. Í aprílmánuði var í þrígang far- ið á vélum félagsins frá Íslandi til Sjanghæ og þar sóttar vörur, meðal annars fyrir Landspítalann, sem þurfti vegna aðhlynningar sjúklinga með COVID-19. Þetta spurðist út og vatt upp á sig. „Þetta er mjög þýðingarmikið verkefni fyrir okkur, nú þegar farþegaflug ligg- ur alveg niðri. Með þessu móti skapast mikil- vægar tekjur út á nokkrar flugvélar sem annars færu hvergi,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, í samtali við Morgunblaðið. Breiðþotur og 45 ferðir Vélar á vegum Icelandair Cargo eru nú í reglulegum ferðum fyrir al- þjóðlegu flutningsmiðlunina DB Schenker milli Keflavíkur, Sjanghæ og München, með hjálpargögn frá Kína til Þýskalands og eftir atvikum áfram til Íslands. Til þessa notar fé- lagið þrjár Boeing 767-breiðþotur sem hafa verið sérstaklega útbúnar til fraktflugs. Samið hefur verið um að farnar verði minnst 45 ferðir og má búast við að verkefnið standi eitthvað fram á sumarið. Þessu fylgir að farnar verða nokkrar ferðir fyrir sama aðila með lækningavörur frá Kína áfram til Ís- lands og þaðan áfram til Bandaríkj- anna, þar sem áfangastaðurinn er Chicago. Allt er þetta unnið í góðri samvinnu starfsfólks systurfélag- anna Icelandair Cargo og Loftleiða, en á síðarnefnda staðnum er til stað- ar mikil reynsla við leiguflug á fjar- lægar slóðir. Vörum dreift frá Íslandi Í síðustu viku var svo samið al- þjóðlega flutningafyrirtækið Air Logistics Group um flug milli Sjanghæ og Keflavíkur um flutning á ýmsum heilbrigðistengdum vörum, sem fara í birgðastöð á Keflavíkur- flugvelli og dreift þaðan áfram til kaupenda í Evrópu og Bandaríkj- unum. Til þessa verður notuð fjórða Boeing 767 breiðþotan frá Iceland- air. Þá munu fraktvélar Icelandair Cargo dreifa vörunum frá Íslandi. Einnig hafa tvær 757-300 þotur einnig verið leigðar til þriðja aðila; en um helgina er unnið að því að breyta þeim fyrir þetta verkefni. Fyrstu ferðirnar verða farnar nú eftir helgina vikunni en búast má við þetta starf vari í tvo til þrjá mánuði. „Þeir óvenjulegu tímar sem við lif- um nú kalla á að hugsað sé út fyrir kassann og nýrra möguleika leitað,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson. Lausnir fundnar og liðsinni veitt Í fyrstu Kínaferðunum var fraktin flutt í farþegarými og sett í sæti og annars staðar sem vera mátti. Þegar ljóst var á framhald yrði á verkefn- inu var tæknimönnum Icelandair falið að útbúa lausn sem hentaði, það er fjarlægja sæti úr vélunum og út- búa farþegarýmið fyrir frakt. Í því sambandi þarf að gæta að mörgum atriðum varðandi burðarþol, rúmmál og jafnvægispunkta. „Tæknifólkið var ótrúlega fljótt að finna útfærslu sem Samgöngustofa samþykkti. Þegar við svo hófum ferðirnar fyrir DB Schenker þurfti að afla leyfa og skipuleggja flugið og þar var okkar fólk hjá Loftleiðum, sem kann pappírsvinnuna. Með frá- bærri samvinnu fólks í hinum ýmsu deildum og dótturfélögum Iceland- air Group small þetta saman,“ segir Gunnar Már. Hann segir að kröftugt liðsinni utanríkisráðuneytisins, sendiráðs Kína á Íslandi og þýskra stjórnvalda hafi haft úrslitaáhrif svo dæmið gekk upp. Þar hafi meðal annars og mjög munað um atbeina Jin Zhijian, sendiherra Kína á Ís- landi, og Andres Scheuer, sam- gönguráðherra þýsku sambands- stjórnarinnar. Frakt Sæti hafa verið tekin úr farþegarými breiðþotanna og vörum þar komið fyrir. Að mörgum þarf að hyggja varðandi hleðslu og burðarþol. 500 manna verkefni  Icelandair Cargo með hjálpargögn frá Sjanghæ til Münc- hen  Breiðþotum er breytt  Samvinna systurfélaganna Gunnar Már Sigurfinnsson Áhöfn Hér komin á slóð veirunnar í Kína og að sjálfsögðu með grímur. Í ferðum til Kína er flogið til NA frá Íslandi, yfir Norður-Noreg, Rúss- land, Mongólíu og þaðan til Sjanghæ í Kína, sem er um það bil tólf tíma flug. Í hverri áhöfn eru sex flug- menn og flugstjórar, tveir flug- virkjar og fjórir hlaðmenn. Þeir síðarnefndu sjá um hleðslu vélanna, sem flugvirkjar staðfesta og aðstoða við, rétt eins og flugmennirnir. Eru á uppsagnarfresti Í Kínaverkefninu þarf í hverja áhöfn tólf manns og eru fjórar slíkar myndaðar fyrir hverja flugvél, sem verða alls sex. Í flughópnum eru alls 288 manns. Allt er þetta starfsfólk sem Icelandair sagði upp í vikunni en er á uppsagnarfresti og verður endurráðið þegar og ef tök leyfa. Flugið frá Sjanghæ til München tekur þrettán tíma. Þegar hafa verið farnar sex ferðir fyrir DB Schenker af 45 umsömdum. Icelandair hefur ekki áður flogið til Kína, en í þessu nýmæli felast þó ýmis tækifæri. Frá Íslandi fljúga vélarnar tómar til Shanghai og nú stendur til að bjóða íslenskum fiskútflytjendum að nýta sér þennan valkost. Hvað varðar svo flugið fyrir DB Schenker töldu for- svarsmenn fyrirtækisins henta vel að hafa München sem frakthöfn sína í Evrópu. Á sama hátt sér Air Log- istics sér hag í því að flytja vörur frá Kína til Íslands og áframsenda héðan. Krafturinn virkjaður „Þetta er skemmtilegt verkefni, því allir sem að því koma hafa lagst á eitt; flugáhafnir, flugþjónustan, fólk hér á skrifstofunum og svo framvegis. Að skapa flugfélaginu verkefni er líka mikilvægt nú. Þá kemur til að við hjá Icelandair höf- um tengsl út um allan heim sem eru virkjuð þegar sund virðast lokið. Krafturinn er virkaður,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson að síð- ustu. Flugið frá Keflavík til Kína tekur um tólf klukkustundir  Pláss fyrir íslenskan fisk í vélum sem fljúga tómar austur Flugfólk Áhöfn við þotu Icelandair við upphaf leiðangurs til Kína. Styrkjum sem samtals nema um 106 milljónum króna var úthlutað til 74 verkefna í fyrri úthlutun Nýsköp- unarsjóðs námsmanna fyrir árið 2020. Tæplega 190 umsóknir bárust sjóðnum. Verkefnin eru margs konar og tengjast mennta- og vísindastofnun- um um land allt, svo sem Háskóla Ís- lands, Hafrannsóknastofnun, Land- búnaðarháskóla Íslands og Lista- háskóla Íslands, auk fjölda annarra stofnanna. Sjóveikihermir, í umsjón Hannes- ar Petersen og Paolo Gargiulo, hlaut 2,7 milljónir í styrk. Var hermirinn til sýnis í HR í febrúar, þar sem boð- ið var upp á sýndarveruleika tengd- an við hreyfanlegt undirlag, þar sem hægt var að líkja eftir aðstæðum á sjó, við akstur og flug svo fátt eitt sé nefnt. Verkefni tengd Listaháskóla Ís- lands sem fengu styrk voru níu tals- ins og heyrðu undir þrjár deildir skólans; tónlistardeild, listkennslu- deild og hönnunar- og arkitektúr- deild. Verkefnið „Flokk til you drop“ fékk 2,7 milljónir í styrk fyrir þrjá nemendur í þrjá mánuði. Þar vekja nemendur athygli á því magni fatnaðar og textíls sem gefinn er til Rauða krossins, til þess að efla vitund um neyslumenningu Íslend- inga. Munu nemendur þá skoða hvers konar fatnað fólk gefur til fata- söfnunarinnar og hvernig megi nýta og skapa flíkunum sem best fram- haldslíf. Í senn felur verkefnið í sér flokkunarstöð, rannsóknarstöð og listaverkstæði. Haft er eftir Lilju Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, á vef menntamálaráðuneytis- ins að sjóðurinn sé mikilvæg brú fyr- ir atvinnulífið og vísindasamfélagið. veronika@mbl.is 74 verkefni fá 106 milljónir í styrk  Nýsköpunarsjóður námsmanna fékk nær 190 umsóknir Morgunblaðið/RAX Sjóveikihermir Hann hlaut 2,7 millj- ónir í styrk úr Nýsköpunarsjóði. Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur spáir því að næstu tvær vikur verði fremur þurrar. Þetta kemur fram á vef hans, Bliku. „Maí er alla jafna þurrasti mán- uður ársins. Fyrir því eru gildar ástæður. Oftast fremur lítill lægða- gangur við landið, gjarnan þaul- setin hæð yfir Grænlandi og loftið fremur þurrt þar fyrir utan. Þá er lítil uppgufun yfir landi á meðan leysir klaka og snjó til fjalla. Allt leggst á eitt og úrkoma því lítil um þetta leyti árs. Mörg dæmi um lang- varandi þurrk í maí, sérstaklega fyrir norðan og ekki markvert þó ekki komi dropi úr lofti í vikur,“ skrifar Einar. Hann segir að í nýrri spá Reikni- miðstöðvar evrópskra veðurstofa (ECMWF) sé einmitt gert ráð fyrir að úrkoma verði lítil heilt yfir fram yfir miðjan maí og jafnvel minni en í meðalárferði. Loftþrýstingur í hærra lagi og þurrt loft lengst af hér allt í kring. Helst að það rigni vestan til samfara SV-átt framan af næstu viku. Spáir lágmarksúrkomu næstu tvær vikur Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.