Morgunblaðið - 02.05.2020, Page 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
Það hefur verið stöðug veisla hjá hagyrðingum að undanförnu þó til-efnið sé ekki gleðilegt. Ég rakst á þetta á „sveitasímanum“:Þórólfur og Alma M
og yfirlögga Víðir,
við viljum að þið verðið memm
uns veiran deyr um síðir.
Höfundurinn bað vini sína að benda á ljóðstafina í fyrri vísuhelmingi.
Nú bið ég ykkur um það sama. Gefið ykkur örlítinn tíma, lítið aftur á fyrri
partinn og leysið gátuna sjálf áður en lengra er haldið!
Bókstafurinn M truflar augað. Í framburði er M=Emm. Og þá stuðlar A-
ið í Alma við E-ið í M. Ljóðstafirnir eru því sérhljóðin: a – e – y.
Skemmtilegur leikur í sóttkvínni er að setja nöfn vina og ættingja í
„kassa“ og raða kössunum
þannig að þeir myndi rétt
kveðna ferskeytlu. Það
mætti hita sig upp með því
að raða eftirfarandi nöfnum
(kössum) þannig að allt
gangi upp. Munið að í 1. og
3. braglínu þarf þriðja nafn-
ið (kassinn) alltaf að bera
stuðul (hinn stuðulinn má þá
setja hvar sem er í línuna).
Síðan þarf fyrsti kassinn í 2.
og 4. braglínu að bera höf-
uðstaf. Flóknara er það
ekki.
Nöfnin eru þessi: Jóna,
Jói, Pála, Njáll, Embla,
Ranka, Finna, Svava, Klara,
Gunna, Jenný, Sunna, Páll,
Pétur. – Góða skemmtun.
Annað spennandi við-
fangsefni tengist lestri og
orðaforða (við getum öll ver-
ið sammála um að orðabelginn þurfi að stækka). Hér er lýsing á Þorkatli
skinnvefju úr 3. kafla Bárðar sögu Snæfellsáss – og satt að segja er eins og
sjálfur COVID-19 sé mættur:
„Hann var hár maður og mjór og langt upp klofinn [þ.e. kloflangur], hand-
síður og liðaljótur og hafði mjóa fingur og langa, þunnleitur og langleitur og
lágu hátt kinnarbeinin, tannber og tannljótur, úteygður og munnvíður, háls-
langur og höfuðmikill, herðalítill og miðdigur, fæturnir langir og mjóir; frár
var hann og fimur við hvervetna, örðugur og erjusamur….“ Takið eftir hvað
stuðlunin er hér áberandi stílbragð. Verkefni: Teljið lýsingarorðin!
Hvers kyns þrautir og örvandi leikir tengdir tungumálinu geta stytt okk-
ur stundir. Við getum t.d. komið börnum og unglingum á óvart og sagt:
Strikið undir nafnorð með greini og setjið kassa utan um nafnorð án greinis í
eftirfarandi málsgrein:
Hún át banana meðan hún ræddi við bróðurbanana.
Aukaspurning: Hvernig er orðið banani í þolfalli fleirtölu með greini? (Sjá
svör hér að neðan).
Mörg tískuorð hafa komið upp að undanförnu: sviðsmyndir, einstaklingar,
skafl, brekka, áskorun o.s.frv. Góðkunningi sendi mér þessa kveðju:
„Ráðherramál: Nú er mesta ÁSKORUNIN að EINBLÍNA á að styðja
VIÐ atvinnufyrirtækin.
Mannamál: Nú er brýnast að einbeita sér að því að styrkja fyrirtækin í
landinu.“
Svar við spurningu: Án greinis: banana; með greini: bróðurbanana (ein-
tala án greinis: bróðurbani). Svar við aukaspurningu: bananana.
Teljið lýsingarorðin!
Tungutak
Baldur Hafstað
hafstad.baldur@gmail.com
Þegar horft er um öxl í hálfa öld eða meir kemur íljós, að þrátt fyrir allt hafa miklar breytingar tilhins betra orðið á okkar þjóðfélagsháttum. Þegar greinarhöfundur var í Menntaskólanum í
Reykjavík á sjötta tug síðustu aldar ríkti þögn um það,
sem nú heitir samkynhneigð, í samfélaginu. Menntlingar
þeirra tíma stunduðu hins vegar reglulega kaffihús sem
hét Laugavegur 11. Það var líka samkomustaður sam-
kynhneigðra á þeim tíma.
Þau kynni sem þar tókust gerðu það að verkum, að
minn aldursflokkur í MR upplifði samkynhneigða bara
eins og annað fólk og kom sér þess vegna ekki upp for-
dómum í þeirra garð. Áratuga barátta samkynhneigðra
leiddi svo til þess að það er liðin tíð, að þeir séu litnir
hornauga.
Á sama tíma mátti ekki tala um geðveiki í fjölskyldum.
Um geðveikt fólk ríkti þögn en þeim mun meira hvíslað
og pískrað. Á tíunda áratug síðustu aldar fór það að
breytast. Frumkvöðlarnir voru ungt fólk úr ýmsum átt-
um, sem ýmist hafði sjálft reynslu af þeim veikindum eða
af starfi við umönnun geðsjúkra. Starf þeirra leiddi til
þess að nú má segja að fram fari opn-
ar umræður í samfélaginu um mál-
efni geðsjúkra.
Svo lengi sem menn muna hefur
ríkt þögn í fjölskyldum um ofneyzlu
áfengis. Þó er það augljóslega eitt
mesta bölið í lífi fólks. Þetta fór líka
að breytast á áttunda tug síðustu
aldar, þegar einstaklingar, sem
höfðu átt í baráttu við áfengisfíkn,
fóru að kynna sér meðferð við henni í öðrum löndum og
fluttu þá þekkingu hingað heim, þegar SÁÁ varð til. Þau
samtök hafa unnið afrek á því sviði, sem seint verður full-
þakkað, og ofneyzla áfengis er ekki lengur eitthvað sem
þagað er um í fjölskyldum heldur rætt.
Hér hafa verið nefnd þrjú málefni, sem þjóðin var lengi
í þagnarbindindi um, en sú þögn hefur í þessum þremur
tilvikum verið rofin, öllum til heilla.
En er eitthvað sem enn ríkir of mikil þögn um? Það er
kannski of mikið sagt að það ríki þögn um það sem kallað
er heimilisofbeldi og afleiðingar þess, en það hefur alla
vega ekki verið efst á blaði í þjóðfélagsumræðum. Í frétt-
um RÚV sl. mánudag voru birtar óhugnanlegar upplýs-
ingar um heimilisofbeldi í okkar samfélagi og málið tekið
til meðferðar í Kveik sl. þriðjudag með áhrifamiklum
hætti.
Í fréttunum var sagt frá rannsókn Drífu Jónasdóttur,
doktorsnema í heilbrigðisvísindum við læknadeild Há-
skóla Íslands. Á síðasta ári voru tilkynnt 957 slík mál til
lögregluembætta í landinu. Á árunum 2005 til 2014 leit-
uðu 1.454 konur á Landspítala vegna ofbeldis af hálfu
maka.
Í frétt RÚV sl. mánudag segir:
„Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Drífu og kollega
hennar voru áverkarnir í meirihluta tilfella á efri hluta
líkamans; á andliti, höfði, hálsi eða handleggjum. Þetta
geta verið yfirborðsáverkar eða beinbrot, heilahristingur
og annað. Það hafði verið sparkað í konurnar, þær kýldar
í tæplega 30 prósentum tilvika og 9,8 prósent þeirra
höfðu verið tekin kyrkingartaki, þannig að mar, eins og
puttaför í laginu, eða aðrir áverkar voru sjáanlegir. 3,2
prósent kvennanna voru lögð inn á spítalann vegna afleið-
inga ofbeldisins. Í 150 tilfellum höfðu konurnar verið
beinbrotnar af mökum sínum, eða fyrrverandi mökum.
Þetta voru meðal annars nefbrot, mjaðmagrindarbrot,
handleggsbrot, fótbrot og höfuðkúpubrot, að sögn Drífu.“
Í rannsóknum Drífu kemur fram að af þeim „… tæp-
lega 1.500 konum, sem leituðu á Landspítala vegna
áverka af hendi maka, á tímabilinu 2005 til 2014, komu 38
prósent þeirra ítrekað á spítalann vegna ofbeldis …“
Ekki þarf að hafa mörg orð um þau áhrif, sem svona at-
burðir á heimilum hafa á börn, sem verða vitni að þeim á
einhvern hátt. Að upplifa slíka atburði markar þau börn
fyrir lífstíð. (Sjá grein séra Þóreyjar
Guðmundsdóttur hér í blaðinu í
fyrradag.)
Rannsóknir Drífu Jónasdóttur
benda til þess að hér sé komið næsta
stóra verkefnið, sem takast þarf á við
í samfélagi okkar. Það snýr ekki ein-
vörðungu að líkamlegu ofbeldi, sem
beitt er. Stundum getur andlegt of-
beldi valdið miklum skaða og sjálf-
sagt eru einhver dæmi um að konur komi líka við sögu í
hópi þeirra, sem ofbeldi beita.
En hvernig á að takast á við vandamál af þessu tagi?
Sennilega eru opnar umræður áhrifaríkasta aðferðin
til þess. Alla vega er það reynslan af þeim málum, sem
nefnd voru í upphafi þessarar greinar vegna sam-
kynheigðar, geðveiki og áfengissýki.
Í opnum umræðum felst eins konar endurmenntun
samfélagsins í viðkomandi málaflokki. Þær opna augu
margra fyrir því, að þögnin leysir engan vanda. Þær geta
haft áhrif á þá sem ofbeldinu beita, að þeir hinir sömu
staldri við og hugsi sinn gang og þær auðvelda þeim sem
fyrir ofbeldinu verða að tjá sig.
Meðvirkni getur nefnilega verið hættulegur sjúk-
dómur.
Þeir sem þekkja þessi málefni bezt eru vafalaust
starfsmenn í heilbrigðiskerfinu, lögreglumenn svo og
prestar, sem í sínum störfum meðal sóknarbarna kynnast
fleiru í mannlegum samskiptum en flestir aðrir.
Það er líka umhugsunarefni, hvort hægt er að nýta
skólakerfið á öllum stigum í þágu slíkrar „endurmennt-
unar“.
En það er tímabært að þessi málefni verði sett efst á
blað í forgangsröðun samfélagsins á málefnum til úr-
lausnar.
Sameinuðu þjóðirnar spá því að sex mánuðir til við-
bótar af samkomubanni geti leitt til þess að tilvik um
heimilisofbeldi verði rúmlega 60 milljónir á heimsvísu.
(Heimild Guardian.)
Það sem þagað er um
Rannsóknir Drífu Jónas-
dóttur leiða fram óhugn-
anlegar upplýsingar
um heimilisofbeldi.
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Dagana 3.-6. apríl á þessu ári satég ráðstefnu APEE, Samtaka
um einkaframtaksfræðslu, í Las
Vegas. Ég hafði framsögu og
stjórnaði umræðum á málstofu um
norræna frjálshyggju. Þar rifjaði
ég upp, að margar stjórnmála-
hugmyndir frjálslyndra manna
mætti greina í ritum Snorra Sturlu-
sonar. Heimskringla er samfelld
viðvörun við misjöfnum konungum,
en skýrastur er boðskapur Snorra í
tveimur ræðum. Þórgnýr lögsögu-
maður hinn sænski kunngerði kon-
ungi sínum, að Svíar myndu setja
hann af, ef hann héldi áfram að láta
ófriðlega og valda bændum búsifj-
um. Og Einar Þveræingur sagði, er
Ólafur digri seildist til áhrifa á Ís-
landi, að konungar væru misjafnir
og því best að hafa engan konung.
Ég benti á annað, sem ég upp-
götvaði á dögunum, að Adam Smith
hafði bein áhrif á gang mála í Dan-
mörku og á Íslandi. Í maí 1762
hafði hann kynnst þremur Norð-
mönnum, Peter og Carsten Anker
og Andreas Holt, þegar þeir komu
til Glasgow, og endurnýjuðu þeir
fjórir þau kynni í Toulouse í mars
1764. Þegar Smith gaf út Auðlegð
þjóðanna árið 1776 voru hinir
norsku vinir hans orðnir embætt-
ismenn í Kaupmannahöfn og beittu
sér fyrir því, að Frands Dræbye
þýddi ritið á dönsku. Holt var
kunnugur íslenskum högum, því að
hann var formaður Landsnefndar-
innar fyrri, sem sat 1770-1772, og
sendi hann raunar Smith ferðalýs-
ingu frá Íslandi.
Árið 1787 var Holt látinn og Pet-
er Anker fluttur til Noregs, þar
sem hann átti drjúgan hlut að Eiðs-
vallastjórnarskránni norsku 1814,
einhverri frjálslyndustu stjórn-
arskrá Evrópu á þeirri tíð. En þeir
Carsten Anker og Frands Dræbye
voru enn háttsettir í danska fjár-
málaráðuneytinu, Rentukammer-
inu, og höfðu þessir lærisveinar
Smiths áreiðanlega áhrif á það, að
þetta ár var horfið frá verslunar-
einokun við Ísland.
Sterka frjálshyggjuhefð var líka
að finna í Svíþjóð. Hinn sænsku-
mælandi finnski prestur Anders
Chydenius setti fram svipaðar
kenningar og Adam Smith um sátt
eiginhagsmuna og almannahags í
riti árið 1765, ellefu árum á undan
Smith. Johan August Gripenstedt,
einn helsti ráðamaður Svía árin
1848-1866, beitti sér fyrir þeim um-
bótum í frjálsræðisátt, sem gerðu
Svíþjóð að einu ríkasta landi heims.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Norræn hugsun
í Las Vegas
Dalsbraut 3, 260 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Fallegar 3 og 4. herbergja íbúðir í nýbyggingu.
Fullbúnar íbúðir með gólfefnum og eldhústækjum.
Verð frá aðeins kr. 29.900.000.-
• Lyftuhús
• Klætt að utan
• Sérinngangur
• Svalagangar vindvarðir
• Stórar svalir
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Sýningaríbúðir tilbúnar í vikunni - Bókið skoðun