Morgunblaðið - 02.05.2020, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 02.05.2020, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020 Kveðja til pabba, sem lifði lífi gríðarlegra áfalla. Hann fæddist á Akureyri þegar foreldrar hans voru á Kristnesspítala. Þegar hann var tveggja ára voru for- eldrar hans orðnir það veikir að þau gátu ekki hugsað um hann og var hann sendur í fóstur til Kristjáns Eyfjörð og Jóhönnu konu hans og var þar í þrjú ár. Á meðan hann dvaldi þar lenti hann í slysi þriggja ára og var á spítala í sex mánuði og hlaut varanlega örorku sem hann þurfti að lifa með til æviloka. Þegar fjölskyldan sameinað- ist fluttist hún að Lyngási í Mosfellssveit og bjó þar næstu árin. Árið 1960 dó mamma pabba, Ármey, og var fjölskyld- unni mikill harmdauði. Fóru systkinin þrjú, pabbi, Erna og Siggi, þá á mjög góð fóstur- heimili. Fór pabbi til Vestmannaeyja til heiðurshjónanna Óskars og Sigríðar, sem áttu sjö börn, en Óskar var föðurbróðir Ármeyj- ar. Börn þeirra hjóna tóku pabba sem einu af systkinum sínum og entist sú vinátta til æviloka. Eftir veruna í Eyjum kom Björn Viðar Sigurjónsson ✝ Björn ViðarSigurjónsson fæddist 7. júní 1944. Hann lést 4. apríl 2020. Útför Björns Viðars fór fram 21. apríl 2020. hann til Reykjavík- ur. Hann byrjaði að vinna hjá Skelj- ungi, þar sem hann var í 42 ár, en í millitíðinni kynnt- ist hann konunni sinni, Bergljótu. Þau giftu sig og eignuðust þrjú börn en Bergljót átt eitt barn fyrir. Hjá ungum hjónum um tvítugt hefst lífsbaráttan með því að koma þaki yfir höf- uðið og þau byrjuðu á leiguíbúð í Smálöndum, risíbúð í Lækj- arfit 7. Árið 1970 keyptu þau blokkaríbúð í Breiðholti. Eftir að þau skildu flutti pabbi í Mið- tún 62 þar sem hann bjó til æviloka. Fyrir sex árum var hann byrjaður að finna fyrir veik- indum og fékk aðstoð frá heimaþjónustunni. Eftir alvar- leg veikindi þremur árum seinna varð ekki aftur snúið heim í Miðtún. Síðustu tvö árin var hann í Skógarbæ, þar sem hann var svo heppinn að tengdadóttir og barnabarn voru í vinnu. Minnisstætt er að í byrjun febrúar sagði hann að kórónufaraldurinn myndi kosta mörg mannslíf enda hefði móð- ir sín dáið úr spænsku veikinni með þrjú ung börn á heimilinu. Það er kannski táknrænt fyrir ástandið rétt fyrir andlát- ið að á síðustu myndinni af okkur saman er ég með grímu. Hvíldu í friði elskulegi faðir. Aðalsteinn R. Björnsson. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Sálm. 86.11 biblian.is Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ODDUR K. SÆMUNDSSON skipstjóri, Heiðarhorni 18, Keflavík, lést á líknardeild HSS laugardaginn 25. apríl. Í ljósi þjóðfélagsaðstæðna fer útför hans fram að viðstöddum nánustu aðstandendum fimmtudaginn 7. maí. Minningarathöfn verður auglýst og haldin síðar. Jónína Guðmundsdóttir Helga Jóhanna Oddsdóttir Einar Jónsson Guðmundur J. Oddsson Guðrún Mjöll Ólafsdóttir Sæmundur J. Oddsson Edda Björk Pétursdóttir og barnabörnin Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, SNORRI H.Ó. AÐALSTEINSSON, Cheney, Washington, Bandaríkjunum, lést mánudaginn 6. apríl. Sigrún S. Bender Aðalsteinsson Ásgeir Aðalsteinsson Linda J. Aðalsteinsson Agnar S. Aðalsteinsson Cindy M. Aðalsteinsson Axel Aðalsteinsson Snorri H. Aðalsteinsson barnabörn, barnabarnabörn og systkini Ástkær bróðir minn og frændi okkar, GÍSLI ÞÓR ÞORGEIRSSON frá Patreksfirði, lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, föstudaginn 24. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 6. maí klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda viðstödd athöfnina, en henni verður streymt úr kirkjunni á slóðinni akraneskirkja.is. Aðstandendur vilja þakka starfsfólkinu á Höfða fyrir kærleiksríka umönnun. Dagný Björk Þorgeirsdóttir Jósef Gunnar Sigþórsson Þórey Sigþórsdóttir Sólrún Guðjónsdóttir Svava Hrund Guðjónsdóttir Mjöll Guðjónsdóttir Guðmundur Ingþór Guðjónsson og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn 28. apríl. Jarðsungið verður frá Akraneskirkju fimmtudaginn 7. maí klukkan 13. Vegna sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu og fjöldatakmarkana verður streymt úr kirkjunni, sjá vefslóð: www.akraneskirkja.is. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Höfða fyrir einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Höfða. Guðjón Smári Agnarsson Guðfinna Björk Agnarsdóttir Sigurður Sævar Sigurðsson Ólöf Agnarsdóttir Sigurjón Skúlason Björg Agnarsdóttir Þór Arnar Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær frænka, systir og merkiskona, ÁSTHILDUR SIGURÐARDÓTTIR, Adda, Palo Alto, Kaliforníu, lést á heimili sínu að kvöldi þriðjudags 28. apríl. Minningarathöfn á Íslandi verður haldin síðar í sumar. Hildur Zoëga Diljá Ámundadóttir Zoëga Brynhildur Sigurðardóttir Hanna Sigurðardóttir Sigurður Sigurðsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍS GÍSLASON skipstjóri, Grundarfirði, lést sunnudaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 9. maí með fjölskyldu og nánustu ættingjum. Við þökkum starfsfólki á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli og starfsfólki heimahjúkrunar Heilsugæslunnar í Grundarfirði fyrir kærleiksríka umönnun. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Dvalarheimilisins Fellaskjóls. Hulda Valdimarsdóttir Valdimar Elísson Guðlaug Sturlaugsdóttir Jóhanna Elísdóttir Gísli Bachmann Ragnheiður Elísdóttir Haukur Tómasson Hugrún Elísdóttir Katrín Elísdóttir Gísli Karel Elísson Vala Ólöf Jónasdóttir barnabörn og barnabarnabarn Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA KRISTÓFERSDÓTTIR, Álftamýri 59, lést á Landakoti miðvikudaginn 8. apríl. Vegna aðstæðna mun útförin fara fram í kyrrþey mánudaginn 4. maí klukkan 13. Hægt verður að fylgjast með athöfninni á slóðinni www.bui.is. Hjartans þakkir sendum við starfsmönnum á B4 á Landspítalanum Fossvogi og K1 á Landakoti fyrir einstaka umönnun og hlýju. Hörður Ívarsson Geir Harðarson Helga Þóra Jónasdóttir Drífa Harðardóttir Hinrik Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, KLARA JÓHANNA OTTÓSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 28. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey sökum aðstæðna. Ólafur Þór Ottósson Helga Björg Sigurðardóttir Aðalheiður Björk Ottósdóttir Ása Hrund Ottósdóttir Sigurþór Ragnarsson Katrín Alexandra, Ottó Gauti, Birgitta Rún og Júlía Gurrý. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.