Morgunblaðið - 02.05.2020, Síða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020
90 ára Rósa Jóns-
dóttir er fædd og upp-
alin á Djúpavogi en hef-
ur í rösk 70 ár búið á
Suðurnesjum, fyrst í
Sandgerði og síðan í
Reykjanesbæ.
Maki: Jón H. Júlíusson,
f. 1927, d. 1987, hafnarstjóri.
Börn: Júlíus Jón, f. 1950, Ína Dórothea,
f. 1952, Alma, f. 1955, d. 2019, Birgir, f.
1959, Hallvarður Þröstur, f. 1962, og
Víðir Sveins, f. 1969.
Foreldrar: Jón Guðmundsson, f. 1884, d.
1969, verkamaður og bóndi á Melum á
Djúpavogi og Jónína Kristín Jónsdóttir,
húsfreyja á Melum, f. 1897, d. 1986.
Rósa Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver ættingi þinn bankar upp á
og er stútfullur af nýjum og spennandi
fréttum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ættir að stefna að því að eiga
tíma fyrir þig á hverjum degi, þótt ekki
væri nema hálftími. Það þýðir ekkert fyrir
þig að horfa framhjá því sem þarf að gera.
Brettu upp ermarnar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Óvænt tækifæri til ferðalaga eða
aukinnar þjálfunar á einhverju sviði eru
hugsanleg. Gættu þess að haga vænt-
ingum þínum alltaf í samræmi við það
sem þú veist að er mögulegt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft á óvenjumikilli hvíld að
halda núna. Gerðu bara það sem þú getur
og mæltu þér mót við vini þegar þú treyst-
ir þér til.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vinur færir þér fréttir sem koma þér
úr jafnvægi í dag. Reyndu ekki að breyta
staðreyndum mála þér í hag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Búðu til lista yfir ólokin verkefni og
reyndu að ljúka þeim á tilsettum tíma.
Gerðu svo aðeins það sem þig langar mest
til að gera.
23. sept. - 22. okt.
Vog Margir möguleikar bíða handan
hornsins og það er bara að láta sig hlakka
til að glíma við þá. Ekki láta neinn skipa
þér fyrir verkum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert ákveðinn í að komast
til botns í ákveðnu máli í dag. Ástin svífur
yfir vötnum hjá þér þessa mánuðina.
Temdu þér jákvæðni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert nú full/ur orku til að
takast á við alla hluti. Ekki forðast að opna
gömul sár. Það mun frelsa þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að verja sjálfa/n þig
betur og hætta að hafa svona miklar
áhyggjur af fólki sem þér finnst einblína á
þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur reynst affarasælt að
láta hlutina hafa sinn gang um tíma. Við-
urkenndu fyrir þér hina miklu sköpunar-
hæfileika sem þú býrð yfir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert kannski ekki að leita að nýj-
um verkefnum, en þau þefa þig uppi. Ekki
gefast upp þótt útlitið sé svart.
hafa sköpum fyrir gæði og arðbæra
nýtingu hráefnis úr sjávarafla. Hann
hefur jafnframt verið afkastamikill í
miðlun þekkingar innanlands og er-
lendis. Framlag Sigurjóns hefur leitt
til stóraukinnar nýtingar sjávarafla
og þar með skapað ríkulegar tekjur
fyrir þjóðarbúið. Rannsóknarstarf
hans hefur skilað sér í yfir 100 rit-
rýndum greinum og bókarköflum og
yfir 300 skýrslum og greinum.
Sigurjón sat í stjórn EVFÍ 1978-
hefur kennt við Sjávarútvegsskóla
HSÞ frá stofnun skólans árið 1998.
Hann hefur verið stundakennari við
Háskólann á Akureyri frá 1990 í
námsgreininni vinnslutækni og leið-
beint nemendum í lokaverkefnum.
Hann hefur einnig verið stundakenn-
ari við Fiskvinnsluskólann og Stýri-
mannaskólann.
Sigurjón hefur sýnt mikið frum-
kvæði og einstaka þrautseigju við
innleiðingu fjölda nýjunga sem skipt
S
igurjón Arason fæddist 2.
maí 1950 í Neskaupstað
og ólst þar upp. Hann var
í sveit á Útnyrðings-
stöðum á Héraði 6-9 ára
og að Vöðlum í Vöðlavík 10 ára.
Sigurjón var í Barnaskólanum í
Neskaupstað og tók landspróf frá
Gagnfræðaskólanum þar. Hann gekk
í Menntaskólann á Akureyri og tók
stúdentspróf þaðan 1971. Hann lauk
B.Sc.-gráðu í efnafræði við Háskóla
Íslands 1974 og M.Sc.-gráðu í efna-
verkfræði við Tækniháskólann í
Kaupmannahöfn 1977. Samhliða
námi vann Sigurjón í frystihúsi Fram
í Neskaupstað 10-13 ára, við fisk- og
humarvinnslu í KASK á Hornafirði
14 ára og byggingarvinnu 15 ára.
Hann var sjómaður á humarbáti á
Hornafirði 16-21 ára, var eftirlits-
maður hjá Fiskmati ríkisins 22-24
ára og vann við byggingarvinnu,
bryggjusmíði og aðstoðarlóðs á
Hornafirði 25-26 ára.
Sigurjón hóf meginstarfsferil sinn
hjá Niro Atomizer (nú GEA) í Kaup-
mannahöfn. „Ég hóf störf þar 1976 og
vann við að þróa nýja tækni til að
minnka loftmengun frá verksmiðjum.
Ég var síðan hjá Atlas-fiskiðnaðar-
deildinni í Ballerup 1977-1978 og
starfaði við hönnun og skipulagningu
fiskvinnslurása og verksmiðja. Eftir
haustið 1978 flutti ég heim og hóf
störf hjá Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins sem deildarstjóri og frá 1989
var ég yfirverkfræðingur og stað-
gengill forstjóra.“ Sigurjón starfar
nú sem yfirverkfræðingur hjá Matís
ohf.
„Ég hef alltaf lagt áherslu á að
tengja saman háskólaumhverfi og at-
vinnulíf, en ég hóf kennslu við Há-
skóla Íslands 1978 og hef kennt mat-
vælaverkfræði og fiskiðnaðartækni.“
Sigurjón var skipaður prófessor við
Háskóla Íslands 2012. Hann hefur
komið að fjölda rannsóknarverkefna í
matvælafræði og véla- og iðnaðar-
verkfræði. Síðastliðin tólf ár hefur
hann verið leiðbeinandi í mörgum
doktorsverkefnum og hafa 15 dokt-
orsnemar útskrifast. Sigurjón hefur
jafnframt kennt frá 1987 við Jarð-
hitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna (HSÞ) um nýtingu jarðhita í
fiskiðnaði og þurrkun matvæla. Hann
1981 og var formaður frá 1979-1981.
Hann hefur setið í fjölmörgum nefnd-
um á vegum Rannsóknaráðs ríkisins
og þó einkum fyrir Sjávarútvegs-
ráðuneytið. Hann var einn af fimm
einstaklingum sem voru sérstaklega
heiðraðir á aldar afmæli Verkfræð-
ingafélagsins árið 2012 fyrir for-
göngu og árangur á sínu sviði. Árið
2014 var Sigurjón sæmdur heiðurs-
merki Verkfræðingafélags Íslands og
árið 2013 hlaut hann sérstaka við-
urkenningu samstarfsvettvangs fyr-
irtækja innan Íslenska sjávarklasans
fyrir framlag til aukinnar verðmæta-
sköpunar í íslenskum sjávarútvegi.
„Áhugamál mín eru útivera, fjall-
göngur og að dvelja í sumarbústað
okkar hjóna austur í Lóni og þar
stunda ég fiskveiðar. Svo hef ég gam-
an af því að spila brids og er búinn að
spila með sömu félögunum í 40 ár.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurjóns er Margrét
Sigurðardóttir, f. 18.8. 1951, iðjuþjálfi
á Reykjalundi. Þau eru búsett í
Kópavogi. Foreldrar Margrétar voru
hjónin Sigurður Hjaltason, f. 12.5.
1923, d. 22.10. 2008, sveitarstjóri á
Höfn og framkvæmdastjóri Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi, og
Aðalheiður Geirsdóttir, f. 11.3. 1923,
d. 24.2. 2014, húsmóðir og vefnaðar-
kennari. Þau giftust 1950 og bjuggu
alla tíð á Hornafirði.
Börn Sigurjóns og Margrétar eru
1) Aðalheiður Una, f. 2.8. 1970, nær-
ingar- og matvælafræðingur og með
MBA, starfar hjá PolyOne í Banda-
ríkjunum. Hún er gift Benjamin
Bradford Lincoln, f. 7.3. 1966, raf-
eindatækni. Synir þeirra eru Alex-
ander Ari, f. 2002, og Theodór Alden,
f. 2006. Þau eru búsett í Groton; 2)
Sigurður Ari, f. 13.4. 1981, verkfræð-
ingur hjá LS Retail, kvæntur Guð-
rúnu Rósu Björnsdóttur, f. 3.6. 1976,
starfsmanni á leikskóla. Dætur
þeirra eru Stefanía Rós, f. 2011, og
Heiða Margrét, f. 2013. Þau eru
búsett í Kópavogi.
Systkini Sigurjóns eru Jóna Katrín
Aradóttir, f. 3.11. 1952, röntgen-
myndari í Neskaupstað; Ingibjörg
Aradóttir, f. 4.10. 1957, nuddari í
Kongsberg í Noregi; Eysteinn Ara-
son, f. 31.3. 1960, lyfjafræðingur í
Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur og prófessor – 70 ára
Í Randulffs sjóhúsi á Eskifirði Pjetur, Hilmar, Eysteinn, Jóna Katrín, Ingi-
björg og Sigurjón ásamt Ara föður þeirra á 90 ára afmæli hans, 2. maí, í fyrra.
Frumkvöðull í nýtingu sjávarafurða
Hjónin Margrét og Sigurjón í fjall-
göngu kringum Mont Blanc.
Í Nígeríu Sigurjón með skynmat í
réttu umhverfi, á markaði í Lagos.
40 ára Egill ólst upp
í Kópavogi en býr í
Hafnarfirði. Hann er
stúdent frá Keili og
er vörustjóri í Húsa-
smiðjunni.
Maki: Sóley Árna-
dóttir, f. 1975,
læknaritari hjá Landspítalanum.
Synir: Alexander Björn, f. 2007, Krist-
ófer Árni, f. 2010, og Elís Hilmar, f.
2011.
Foreldrar: Guðrún Nanna Guðmunds-
dóttir, f. 1953, kennari, búsett í Kópa-
vogi, og Björn Gunnarsson, f. 1951, d.
2006, bókari.
Egill Björnsson
Til hamingju með daginn
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is