Morgunblaðið - 02.05.2020, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 02.05.2020, Qupperneq 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2020 Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Mörgæs með brostið hjarta er ný skáldsaga eftir Stefán Mána. Bókin er þó ólík því sem flestir þekkja frá höfundinum en um er að ræða ástar- sögu. „Þetta er alltaf spurning um hvaða hugmyndir detta í kollinn á manni,“ segir hann, spurður af hverju hann vendi kvæði sínu í kross. „Það bara vildi svo til að ég fékk þessa skrítnu hugmynd,“ segir Stef- án Máni sem er best þekktur fyrir glæpasögur sínar. „Svo þróaðist þetta út í ástarsögu. Maður veit aldrei hvað gerist þegar maður fær hugmyndir. Hugmyndirnar taka oft stjórnina og það endar einhvern veginn. Mér fannst líka spennandi tilbreyting að gera eitthvað nýtt.“ Hann segir bókina hafa verið nokkuð lengi í bígerð, fyrsta uppkast hafi verið skrifað fyrir nokkuð löngu. „Svo leið nú smátími þar til ég fór að viðra þetta við útgefandann. Maður veit aldrei hvernig útgefendur líta á það sem er öðruvísi og svo fram- vegis.“ Bókin er ljóðræn og heimspekileg og í henni má finna lýsingar frá- brugðnar þeim sem lesendur hafa vanist í glæpasögum Stefáns Mána. - Færðu að sleppa fram af þér beislinu í þessari bók? „Já, algjörlega. Ég fæ að hvíla mig á ofbeldinu og hraðanum og fá útrás fyrir ljóðskáldið sem er inni í mér. Það er alveg til staðar þetta element í manni og það er gott og gaman að hleypa því á skeið. Ég hafði alveg rosalega gaman af því að skrifa þessa bók og gefa hana út. Þetta gaf mér mikið.“ Furðuleg tímasetning Sagan fjallar um óframfærinn rit- höfund sem reynir að koma sinni fyrstu skáldsögu á blað. Hann skrif- ar um ástfangna mörgæs með mann- legar tilfinningar, fulla af kvíða. Sögurnar tvinnast saman þegar á líður. „Hann er svolítið að skrifa um sjálfan sig, auðvitað. Þau eru svolítið skyld, hann og mörgæsin.“ Inn í söguna tvinnast eitt stærsta málefni samtímans, hlýnun jarðar. Stefán Máni segir sér hugleikið ákveðið ástand í tengslum við þetta. „Ég ólst upp í kalda stríðinu þar sem óttinn við kjarorkuvá og heimsendi var alltaf yfirvofandi. Það er svolítið svipað ástand núna. Það er ótti og fólk hefur áhyggjur af framtíðinni. Það er þetta andrúmsloft. Að heim- urinn sé viðkvæmur og það geti brugðið til beggja vona,“ segir hann og bætir við: „Það er þessi stemning og tilfinning að það geti allt farið til fjandans. Að tengja hana við ástina og lífið fannst mér spennandi.“ Á einum tímapunkti kemur tóm Reykjavík við sögu. Stefán Máni tekur undir að það eigi vel við í dag, á tímum kórónuveirunnar. „Ég hef alltaf verið heillaður af þessu „Palli einn í heiminum“-ástandi. Þetta er mjög spennandi tilvist – spennandi og skelfileg, auðvitað,“ segir hann. „Þetta hittir alveg ótrúlega vel á. Það er búið að vera magnað að fara niður í bæ undanfarnar vikur þegar enginn er á ferli. Það er því alveg furðuleg tímasetning á bókinni, ég verð að viðurkenna það sjálfur.“ Saknar litlu hlutanna Stefán Máni segist hugsa sem minnst um hvort og hverjir muni lesa bókina. „Ég veit að það er fullt af fólki sem hefur gaman af þessari bók. Ég vona bara að það uppgötvi bókina. Að hún fari ekki framhjá því. En ég reyni að skrifa alltaf fyrir sjálfan mig og svo vonar maður bara að einhverjir aðrir hafi gaman af því líka. Sem er nú yfirleitt raunin, sem betur fer.“ - Hvernig er annars líf skáldsins á þessum óvenjulegu tímum? „Það er bara sérstakt eins og hjá öllum öðrum. Maður er meira ein- angraður og mér finnst vont að kom- ast ekki í sund og í ræktina. Ég sakna þessara litlu hluta sem eru í rauninni svolítið stórir. Maður heim- sækir ekkert foreldra sína og þetta er allt svolítið sérstakt. Ég er búinn að vera að lesa meira og er kannski ekki einn um það.“ Þá segist Stefán Máni ekki hafa neitt sérstakt fyrir stafni en sé alltaf eitthvað að dunda sér við skrif og annað. „Maður veit aldrei neitt hvað verður úr því.“ Að lokum hvetur hann alla til þess að lesa, bæði nýju bókina hans og aðrar. Fyrir þá sem ekki treysta sér í bókabúðir er hægt að panta bókina heim á netinu hjá Sögur útgáfa sem gefur hana út. „Það er um að gera að nota þennan skrítna tíma til að næra andann og sálina,“ segir hann. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gefandi „Ég hafði alveg rosalega gaman af því að skrifa þessa bók og gefa hana út,“ segir Stefán Máni. Hugmyndirnar taka stjórn  Stefán Máni skrifaði fyrstu ástarsögu sína  „Ég fæ að hvíla mig á ofbeldinu og hraðanum og fæ útrás fyrir ljóðskáldið sem er inni í mér,“ segir höfundurinn Kvikmyndahúsakeðjan AMC, sú stærsta í Bandaríkjunum, hefur brugðist illa við þeirri ákvörðun kvikmyndaversins Universal að frumsýna samtímis kvikmyndir sín- ar í kvikmyndahúsum og á sjón- varps- og netveitum. Segist forstjóri AMC, Adam Aron, ekki ætla að sýna kvikmyndir Uni- versal eftir að samkomubanni lýkur og bíó verða opnuð. Sendi hann stjórnarformanni Universal bréf þess efnis sem birt var á kvikmynda- vefnum Deadline. Aron telur þessa ákvörðun Universal brjóta samning fyrirtækisins við AMC. Kvikmynda- hús AMC eru ekki aðeins í Banda- ríkjunum heldur líka í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Stjórnendur Universal hafa svar- að því til að þeir hafi enn fulla trú á kvikmyndahúsum og þeirri upplifun að sjá kvikmyndir í slíkum húsum. Þeir ætli að halda áfram að frum- sýna í kvikmyndahúsum en líka selja aðgang að þeim stafrænt, þ.e. á fyrr- nefndum veitum. Stjórnendur kvikmyndahúsakeðj- unnar Odeon hafa tekið í sama streng og kollegar þeirra hjá AMC og lýst því yfir að myndir Universal verði ekki sýndar í þeirra húsum. AFP Deilur Stjórnendur AMC og Odeon eru ósáttir við stefnu Universal. Hér má sjá eitt kvikmyndahúsa AMC sem er lokað eins og önnur í Bandaríkjunum. Munu ekki sýna kvikmyndir Universal Sænski rithöfundurinn Maj Sjöwall er látin 84 ára að aldri eftir langvar- andi lungnaveikindi. Sjöwall er þekktust fyrir tíu glæpasögur sínar um Martin Beck rannsóknarlög- reglumann í Stokkhólmi sem hún skrifaði í samvinnu við sambýlis- mann sinn, Per Wahlöö, sem lést 1975. Í bókunum, sem öðlast hafa heimsathygli, þótti kveða við nýjan tón í glæpasögum þar sem sam- félagsádeilan var áberandi. „Markmið okkar var að gagnrýna samfélagsþróunina og það tókst,“ sagði Sjöwall í viðtali við Politiken 2016. Segir hún þau Wahlöö í bókum sínum hafa viljað vara við óheftum kapítalisma og svikum við vinnandi stéttir. Því miður hafi ekki verið hlustað á varnaðarorð þeirra. „Við höfðum hreinlega ekki ímyndunarafl til að sjá hversu slæm neysluhyggj- an, ofbeldið og kaldhæðnin gæti orð- ið. Í dag hefur kapítalisminn sigrað. Manneskjur hafa ekkert vægi. Og allt er í Svíþjóð, líkt og annars stað- ar í Evrópu, að fara til helvítis,“ sagði Sjöwall og tók fram að í sam- anburði við samtímann væru glæpa- sögur þeirra Wahlöös jafn sakleysis- legar og barnabækur. Í samtali við sænska ríkisútvarpið (SVT) segir Ann-Marie Skarp, út- gefandi hjá Piratförlaget, sem verið hefur vinur Sjöwall til 40 ára, að bækurnar hafi veitt glæpasagnahöf- undum nútímans mikinn innblástur, en í því samhengi megi nefna höf- unda á borð við Ian Rankin, Jo Nesbø, Lizu Marklund og Lee Child. Fyrsta bókin um Martin Beck kom út 1965 og hafa þær verið þýdd- ar á um 40 tungumál og seldar í um 10 milljónum eintaka á heimsvísu. Höfundur Maj Sjöwall er þekktust fyrir bækur sínar um Martin Beck. Maj Sjöwall látin 84 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.