Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Aldrei þessu vant steig Warren
Buffett á svið fyrir framan galtóman
sal á árlegum aðalfundi Berkshire
Hathaway í Omaha um helgina. Í
seinni tíð hefur aðalfundur félagsins
orðið að risaviðburði og vörusýningu
en þar var slegið nýtt met í fyrra
þegar 40.000 manns frá öllum heims-
hornum flykktust til Omaha til að
hlýða á stjórnendur þessa volduga
eignarhaldsfélags. Vegna kórónuvei-
rufaraldursins voru þátttakendurnir
aðeins tveir að þessu sinni; forstjór-
inn Warren Buffett og Greg Abel,
varaformaður stjórnar. Charlie
Munger var fjarri góðu gamni, sem
og Ajit Jain sem einnig er varafor-
maður stjórnar. Búist er við að Abel
og Jain taki við stjórnartaumunum í
félaginu þegar Buffett og Munger
stíga til hliðar en þeir eru í dag 89 og
96 ára gamlir.
Bandarískir galdrar
Heyra mátti á svörum Buffetts á
fundinum, sem sendur var út á fjár-
málavef Yahoo, að hann er bjartsýnn
á að bandarískt efnahagslíf muni
jafna sig á því tjóni sem veirufarald-
urinn hefur valdið: „Við höfum tekist
á við stærri áskoranir, og banda-
ríska kraftaverkið – bandarísku
galdrarnir – hafa alltaf orðið ofan á.“
Þegar hann var beðinn að spá um
framhaldið sagði Buffett, sem oft er
kallaður véfréttin frá Omaha, að af-
leiðingar veirufaraldursins gætu
þróast með margvíslegum hætti, en
hægt væri að þrengja betur hring-
inn í dag en fyrir nokkrum vikum
um mögulega framvindu mála.
„Núna virðist ólíklegt að heims-
byggðin þurfi að glíma við að allt fari
á allra versta veg, bæði á sviði efna-
hags- og heilbrigðismála,“ sagði
hann og bætti við að hagkerfi
Bandaríkjanna myndi jafna sig með
tíð og tíma.
Buffett er m.a. þekktur fyrir að
forðast að fjármagna fjárfestingar
sínar með lántökum og notaði hann
hluthafafundinn til að minna á
hversu gagnlegt það væri í erfiðu ár-
ferði eins og nú að sitja ekki uppi
með háar skuldir: „Það er alltaf
óhætt að veðja á Bandaríkin, en það
er ekki sama hvernig maður veðjar,
því markaðurinn er til alls líklegur.“
Ekki nógu margir farþegar
til að fylla flugvélarnar
Ljóst er að Buffett er alltént ekki
reiðubúinn að veðja á bandarísku
flugfélögin og var greint frá því fyrir
aðalfundinn að Berkshire hefði selt
alla þá hluti sem félagið átti í fjórum
bandarískum flugfélögum. Það þóttu
merkileg tíðindi árið 2016 þegar
Berkshire eignaðist nokkuð stóra
hluti í Delta, American, Southwest
og United því áður hafði Buffett ver-
ið mjög andvígur fjárfestingum í
flugfélögum og gengið svo langt að
kalla þau „dauðagildru fyrir fjár-
festa“. Greinir FT frá að í apríl hafi
Berkshire selt frá sér um sex millj-
arða dala virði af hlutabréfum í fé-
lögum tengdum flugrekstri.
Af ummælum Buffetts á hluthafa-
fundinum má ráða að hann hafi ekki
mikla trú á að umskipti verði í flug-
geiranum á komandi misserum. „Ég
vona að ég hafi rangt fyrir mér, en
ég held að rekstrarumhverfi flug-
félaga hafi tekið meiriháttar breyt-
ingum,“ sagði hann og kvaðst efast
um að fólk yrði jafn duglegt að
fljúga að tveimur eða þremur árum
liðnum og það var á síðasta ári. „Og
ef eftisrpurnin eftir flugi nær að
verða 70 eða 80% af því sem hún var
[fyrir faraldur] þá hverfa ekki þær
flugvélar sem þegar eru í notkun.
Það er of mörgum flugvélum til að
dreifa.“
Erfið byrjun á árinu
Berkshire var rekið með miklu
tapi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
Nam tapið nærri 50 milljörðum dala
og hefur aldrei verið meira í sögu fé-
lagsins. Sagði Buffett að flest af
þeim u.þ.b. 90 fyrirtækjum sem
Berkshire á að hluta eða í heild
glímdu við allt frá tiltölulega létt-
vægum yfir í mjög alvarleg vanda-
mál vegna veirufaraldursins.
Frammistaða Berkshire hefur vald-
ið fjárfestum vonbrigðum og hefur
hlutabréfaverð félagsins lækkað um
19% það sem af er þessu ári, en á
sama tíma hefur S&P 500-vísitalan
veikst um 12%.
AFP
Klípa Buffett á hluthafafundi Berkshire fyrir ári. Hann spáir gjörbreyttu rekstrarumhverfi flugfélaga.
Hefur selt alla hluti Berkshire í bandarískum flugfélögum Hann á von á
minni eftirspurn eftir flugsætum á komandi árum en offramboði á flugvélum
Buffett bjartsýnn fyrir
hönd Bandaríkjanna
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnlíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
4. maí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 146.42
Sterlingspund 183.17
Kanadadalur 105.59
Dönsk króna 21.358
Norsk króna 14.256
Sænsk króna 14.595
Svissn. franki 150.91
Japanskt jen 1.3734
SDR 200.11
Evra 159.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.7208
Hrávöruverð
Gull 1673.05 ($/únsa)
Ál 1460.5 ($/tonn) LME
Hráolía 22.87 ($/fatið) Brent
Á sunnudag varð
7,4% hrun í Tada-
wul-kauphöllinni
í Sádi-Arabíu eft-
ir að Mohammed
Al-Jadaan, fjár-
málaráðherra
konungsríkisins,
tilkynnti að hið
opinbera myndi
þurfa að ráðast í
sársaukafullar
niðurskurðaraðgerðir, bæði vegna
kórónuveirufaraldursins og vegna
verðhruns á olíumörkuðum.
Hlutabréf ríkisolíufélagsins Saudi
Aramco lækkuðu um rúmlega 5% og
kosta núna 30 ríala en voru seld á 32
ríala við skráningu félagsins í kaup-
höll í desember á síðasta ári.
Hlutabréfaverð þriggja stærstu
banka landsins lækkaði um 6,7 til
8,7% en margir sádiarabískir bankar
veittu lán fyrir kaupum á hlutabréf-
um Aramco gegn veði í bréfunum
sjálfum. ai@mbl.is
Lækkun í
Sádi-Arabíu
Mohammed
al-Jadaan
Norska lággjaldaflugfélagið Nor-
wegian tilkynnti á sunnudag að
samið hefði verið við lánardrottna
félagsins um að breyta um 1,2 millj-
arða dala virði af skuldum í hlutafé.
Að sögn Reuters þýðir þetta að
eignarhald yfir félaginu færist að
stærstum hluta til kröfuhafa flug-
félagsins, en samningurinn eykur
líkurnar á að takist að bjarga
rekstrinum á meðan kórónuveiru-
faraldurinn gengur yfir.
Samkomulagið náðist á síðustu
stundu því aukaaðalfundur hefur
verið boðaður hjá Norwegian í dag,
mánudag, þar sem vonir standa til
að hluthafar samþykki nýja björg-
unaráætlun fyrir flugfélagið.
Viðræður við kröfuhafa runnu út
í sandinn á föstudag en um helgina
tókst Norwegian að tryggja sér
stuðning nægilega hás hlutfalls
skuldabréfaeigenda til að breyta
skuldum félagsins. Nú hyggst Nor-
wegian gefa út ný hlutabréf og
þannig afla 400 milljóna norskra
króna, jafnvirði um 5,6 milljarða ís-
lenskra króna. Þar sem hlutfall
skulda af eigin fé hefur batnað mun
félagið geta nýtt sér lánaábyrgð
sem norska ríkið veitir, að upphæð
allt að 2,7 milljörðum norskra
króna. ai@mbl.is
AFP
Lent Norwegian er hólpið í bili.
Norwegian
tókst að
semja