Morgunblaðið - 03.05.2020, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 03.05.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020 Suðurkóreski herinn segir að skothríð norð- urkóreskra her- manna á vopna- hlésbeltinu á landamærum ríkjanna hafi ver- ið óviljaverk, að sögn Yonhap- fréttastofunnar. Skyndilega hófust tvær skot- hrinur suður yfir línuna en suð- urkóreski herinn brást við með því að skjóta til baka. Hæfðu kúlur suð- urkóreska varðstöð. Atvikið á sér stað daginn eftir að ríkismiðlar Norður-Kóreu birtu fréttir og myndir af leiðtoganum Kim Jung Un sem ekkert hafði sést til eða heyrst frá í þrjár vikur. Ákaf- ar vangaveltur fóru af stað um að hann glímdi við ýmis heilsuvanda- mál. Yfirvöld í Seúl í Suður-Kóreu segja að Kim hafi ekki gengist undir skurðaðgerð, eins og talið var. „Ég er ánægður að sjá hann kom- inn hressan til baka,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í tísti í gær. agas@mbl.is SUÐUR-KÓREA Skiptust á skotum Læknar sem önn- uðust Boris John- son forsætisráð- herra Bretlands á spítala eftir að hann veiktist af kórónuveirunni voru reiðubúnir með yfirlýsingu um andlát hans dæi hann á sjúkrabeðinum. Johnson skýrir frá þessu í sam- tali við blaðið „Sun on Sunday“ í dag. Segist hann hafa þurft á óvenjumikilli súrefnisgjöf að halda til að þrauka. Hann lá m.a. þrjá sól- arhringa á gjörgæsludeild St. Thomas’-spítalans. „Ég var ekki vel á mig kominn og mér varð ljóst að áætlanir voru fyr- ir hendi. Læknarnir voru búnir að gera alls konar ráðstafanir um hvað gera skyldi ef allt færi á versta veg,“ segir Johnson í samtal- inu. Hann var í sjálfskipaðri ein- angrun nokkra daga fyrir spít- alavistina og segir erfitt að gera sér í hugarlund hversu hratt heilsu hans hrakaði í veikindunum. Verst hafi ástandið á honum verið þegar helmingslíkur voru á að renna þyrfti súrefnisslöngu niður önd- unarveginn. Um það leyti hafi læknar byrjað að ræða hvernig þeir ættu að tilkynna ef illa færi. Johnson og unnusta hans Carrie Symonds tilkynntu í gær að þau hefðu gefið nýfæddum syni sínum nafnið Wilfred Lawrie Nicholas en síðasta nafnið var valið til heiðurs læknum tveimur sem björguðu lífi Johnsons. agas@mbl.is BRETLAND Tilbúnir með andlátsbréf Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Nokkur Evrópuríki stíga í dag fyrstu skrefin í þá átt að aflétta ströngum reglum sem gripið var til vegna kórónuveirufaraldursins. Þar á meðal er Ítalía, þrátt fyrir að dauðsföll af völdum veirunnar hafi aukist aftur um helgina eða úr 269 dauðsföllum á föstudag í 474 á laugardag. Á morgun geta Ítalir heimsótt vini og vanda- menn eftir tveggja mánaða einangrun. Alls hafa 28.710 manns dáið úr veikinni á Ítalíu og smitfjöldi á dag stendur meira og minna í stað, við 1.900 ný smit. Á Spáni verða lítil þjónustufyrirtæki opnuð aftur, svo sem rakarastofur, og í Þýskalandi hefst skólastarf á sumum svæðum. Skylt verður að bera andlitsgrímu í samgöngufarartækjum á Spáni. Að minnsta kosti 243.637 manns hafa dáið af völdum kórónuveirunnar sem kom fyrst upp í Kína í desember sl., að sögn AFP. Alls hafa 3,4 milljónir smitast. Manntjónið er mest í Bandaríkjunum, eða 66.385 manns. Í Evrópu hafa 142.611 dáið. Í Rússlandi kom upp metfjöldi nýsmita á laug- ardag eða 9.623, langflest í Moskvu. Alls hafa 124.054 smitast þar í landi. Íhuga ráðamenn þar að grípa til stífra innilokunar fólks a heimilum sínum til að ná sýkingum niður. Hálfsmánaðar sóttkví fyrir alla Frakkar ákváðu í fyrradag að slaka ekki á klónni í stríðinu gegn kórónuveirunni og framlengdu neyðarástand í heilbrigðiskerfinu um tvo mánuði, til 24. júlí, til að eiga ekki yfir höfði sér aðra flóð- bylgju smits, að sögn heilbrigðisráðherrans Oli- viers Verans. Hann sagði nýjar reglur skylda þá sem koma til Frakklands til að dveljast í hálfsmán- aðar sóttkví áður en þeim yrði hleypt inn í landið. Eigi það jafnt við um Frakka á heimleið frá öðrum löndum. Í Frakklandi hafa 24.594 látist en und- anfarnar þrjár vikur hefur þeim fækkað dag frá degi. Fækkun dauðsfalla af völdum veirufaraldursins á Spáni og í Þýskalandi hefur leitt til aukins þrýst- ings á stjórnvöld um að aflétta þvingunaraðgerðum sem komið hafa hart niður á efnahagslífinu. Giu- seppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, varðist ásök- unum um að fara sér hægt í þágu atvinnulífsins. „Neytendur verða að hafa það á tilfinningunni að þeir séu óhultir og undir vernd,“ sagði hann. Stíga fyrstu afléttingarskrefin  Atvinnulífinu finnst of hægt farið í að aflétta þvingunaraðgerðum vegna kórónu- veirunnar þrátt fyrir undanhald hennar  Skylt verður að bera grímu á Spáni AFP Veðurblíða með bili Danskt par með litla dóttur nýtur veðurblíðunnar á Íslandsbryggju á Amager í Kaupmannahöfn í gær. Svæðið er kirfilega merkt til að auðvelda fólki að hafa gott bil sín á milli. Þýska flugfélagið Lufthansa er vongott um að þýska ríkið hlaupi undir bagga með því til að lina áhrif og afleiðingar kórónuveirufaraldursins á reksturinn. Lufthansa hefur sagt að sér sé að blæða fjárhagslega út og gæti þurft að fara fram á greiðslustöðvun. Hefur félagið farið fram á 10 milljarða evra aðstoð, jafnvirði um 1.600 millj- arða króna, að sögn tímaritsins Der Spiegel. agas@mbl.is AFP Lufthansa vongott um ríkisaðstoð Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.