Morgunblaðið - 03.05.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.05.2020, Qupperneq 26
LANDSLIÐIÐ Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Knattspyrnuheimurinn hefur auð- vitað orðið fyrir skakkaföllum und- anfarið vegna kórónuveirufaraldurs- ins en aðeins virðist þó vera farið að birta til. Æfingar eru að fara aftur af stað og til stendur að hefja Ís- landsmótið í næsta mánuði. Fé- lagslið eru smátt og smátt að ná vopnum sínum á ný en staðan verð- ur áfram erfið hjá landsliðsþjálf- urum eins og Morgunblaðið komst að eftir samtal við Jón Þór Hauks- son, þjálfara kvennalandsliðs Ís- lands. „Við höfum reynt að vera í sam- skiptum síðan við komum frá Spáni í mars, þetta ástand fór á fulla ferð á meðan við vorum úti og við bara rétt sluppum heim,“ sagði Jón en lands- liðið keppti á Pinatar-mótinu á þeim tíma sem faraldurinn var að skella á. „Við höfum reynt að heyra í leik- mönnum og aðstoða þá ef hægt er. Aðalatriðið hefur bara verið að at- huga hvort allir séu ekki heilir heilsu, það er númer eitt, tvö og þrjú í þessu. Sem betur fer hafa allir sloppið vel, það er jákvætt.“ Ástandið er hörmulegt Staðan á liðinu er hins vegar erf- ið. Leikirnir þrír á Spáni voru þeir fyrstu hjá landsliðinu í hálft ár og nú er ljóst að liðið þarf að bíða álíka lengi eftir að koma saman aftur. „Ástandið er hörmulegt, það er ekki hægt að segja annað. Vonandi fer þetta í gang aftur í haust en þá er staða okkar þannig að við erum búin að spila þrjá leiki á heilu ári, það er bara mjög slæm staða. Við fundum fyrir því í mars að það var langt síðan við spiluðum leik þar undan, þetta er ekki góð staða til að vera í með lið. Það segir sig sjálft,“ bætti Jón við og benti á að landslið ættu engan möguleika á að koma saman á næstunni. „Þegar tímabilið fer í gang aftur höfum við engan möguleika á að koma saman heldur. Það er sérstakt starf, að vera landsliðsþjálfari, og enn meira svo í svona ástandi. Þegar deildirnar fara loks aftur í gang verður spilað mjög þétt og enginn tími mun gefast fyrir neitt annað. Það er mikil pressa að klára þessar deildakeppnir og auðvitað bitnar það á landsliðunum.“ Jón segist hafa nokkrar áhyggjur af knattspyrnufólki og hvernig það hefur unnið sig út úr þessum erfiðu tímum. Íslandsmótið á að hefjast aftur snemma í næsta mánuði og kemur þá fljótt í ljós hvar leikmenn standa. „Við munum sjá strax þegar bolt- inn fer aftur að rúlla hverjir hafa nýtt tímann vel og hugað að sínum leikmönnum. Þá er ég líka að tala um andlega heilsu. Eftir okkar langa undirbúningstímabil á Íslandi kemur þetta ástand þegar knatt- spyrnufólk var farið að sjá grasið loks grænka og orðið fullt tilhlökk- unar fyrir tímabilinu. Þetta var auð- vitað mikið högg andlega.“ Ætlum okkur á EM Hann er þó vongóður um að landsliðið geti haldið uppteknum hætti, þegar undankeppni EM hefst aftur í haust, en Ísland vann fyrstu þrjá leiki sína en á eftir að mæta Svíþjóð tvívegis, sem einnig hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína. „Eins og staðan er núna eigum við að spila í september og við eig- um fimm leiki eftir í undankeppn- inni. Vonandi verður hægt að klára þessa leiki á árinu og þá er eins gott að við séum tilbúin þá. Við munum þurfa að nýta tímann vel.“ Þá hefur Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, frestað Evrópu- keppninni sjálfri, sem átti að fara fram á Englandi sumarið 2021, um eitt ár og fer hún því fram dagana 6. til 31. júlí 2022. „Við ætlum okkur að komast þangað, við erum í góðri stöðu í riðl- inum og höfum byrjað vel. En þetta er auðvitað bara byrjun og það er langt síðan við spiluðum. Það var góður taktur í liðinu en það vinnur gegn okkur hvað við höfum spilað lítið undanfarið.“ Þá vék hann sér að lokum að orð- rómnum um að landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir gæti skipt yfir úr meistaraliði Wolfsburg í Þýskalandi í sterkasta lið Evrópu, Lyon í Frakklandi. „Þetta er toppurinn í kvenna- knattspyrnunni, Lyon er stærsta liðið og ég vil sjá okkar leikmenn í stærstu liðunum. Þetta er algjört draumaskref fyrir hana og hún er algjörlega tilbúin í það. Ég held að hún muni styrkja gríðarlega öflugt Lyon-lið, það væri mjög spennandi og eflandi fyrir íslenska kvenna- knattspyrnu almennt.“ Erfiðara að vera landsliðs- þjálfari núna  Munu spila þrjá leiki á einu ári  Draumaskref fyrir Söru Björk Morgunblaðið/Kristinn Magnússon EM 2022 Ásta Eir Árnadóttir, Jón Þór Hauksson og Glódís Perla Viggós- dóttir fyrir sigurleikinn gegn Slóvakíu í undankeppni EM í haust. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020 4. maí 1975 Kristbjörg Magnúsdóttir er vesturþýskur meistari í hand- knattleik með Eintracht Mind- en sem sigrar RW Kiebitzreihe 12:8 í úrslitaleik. Hún er eina ís- lenska konan sem hefur unnið þýska meistaratitilinn. Eig- inmaður hennar Axel Axels- son leikur úrslitaleikinn í karlaflokki með Dankersen en lið hans bíður lægri hlut gegn Gummersbach, 13:7. 4. maí 1984 Ásgeir Sigurvinsson skorar tvö marka Stuttgart og leggur eitt upp í 5:1- sigri á Kickers Offenbach í vest- urþýska fótbolt- anum og fær þá umsögn í sjón- varpslýsingu leiksins að hann sé besti leikstjórnandi Bundes- ligunnar. Ásgeir er þá kominn með 11 mörk í deildinni á tímabilinu og Stuttgart er með eins stigs forskot á Ham- burger SV í baráttunni um vesturþýska meistaratitilinn þegar þremur umferðum er ólokið. 4. maí 1990 Morgunblaðið segir frá því að Guðmundur Torfason lands- liðsmaður í knattspyrnu hafi fengið sjö viðurkenningar sem leikmaður ársins hjá St. Mirr- en í skosku úrvalsdeildinni. Hann skoraði 13 af 28 mörk- um liðsins í deildinni á tíma- bilinu 1989-90. 4. maí 1997 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik sigrar Hvít- Rússa, 30:22, í lokaleik sínum á alþjóðlegu móti á Spáni, sem er síðasti leikurinn í undirbún- ingi fyrir HM í Kumamoto. Gústaf Bjarnason skorar níu mörk fyrir Ísland í leiknum og Valdimar Grímsson fimm. 4. maí 2002 Eiður Smári Guðjohnsen tekur fyrstur Íslendinga þátt í úr- slitaleik ensku bikarkeppn- innar í knatt- spyrnu. Eiður, sem gerði 23 mörk fyrir Chelsea á tíma- bilinu sem þarna var að ljúka, verður þó að sætta sig við silfurverðlaunin en Arsenal leggur Chelsea að velli, 2:0, á Millennium- leikvanginum í Cardiff. 4. maí 2014 Valsmenn leggja KR-inga að velli, 2:1, í fyrstu umferð Ís- landsmóts karla í knattspyrnu en KR þarf að spila heimaleik sinn á gervigrasvelli Þróttar í Laugardal. Ian Williamson og Kristinn Ingi Halldórsson skora fyrir Val en Gary Mart- in fyrir KR sem á Íslands- meistaratitil að verja. Jóhann Birnir Guðmundsson úr Kefla- vík skorar hinsvegar fyrsta mark mótsins þegar Keflavík sigrar Þór, 3:1. Á ÞESSUM DEGI Hvíta-Rússland BATE Borisov – Neman Grodno ........... 3:1  Willum Þór Willumsson lék allan leikinn með BATE.  Efstu lið: Slutsk 16, Torpedo Zhodino 14, BATE 13, Energetik Minsk 12, Isloch 12, Shakhter Soligorks 11, Dinamo Brest 10. KNATTSPYRNA Bandaríska knattspyrnukonan Megan Rapinoe, besti leikmaður HM 2019, sagði á Twitter að leik- menn bandaríska landsliðsins myndu aldrei hætta baráttunni fyrir jafnrétti. Á laugardag var kröfu 28 leikmanna liðsins um að fá sömu laun og karlalandslið þjóðarinnar hafnað af alrík- isdómstóli á þeim forsendum að kvennaliðið hefði áður hafnað því að fá greitt á sömu forsendum og karlarnir, og væri auk þess með hærri laun en þeir á ársvísu. Leik- ir kvennaliðsins eru hins vegar mun fleiri. Hætta aldrei bar- áttu fyrir jafnrétti AFP Leiðtogi Megan Rapinoe er áber- andi í baráttu bandaríska liðsins. KR-ingar verða með tvö lið í tveimur efstu deildum Íslands- móts karla í körfuknattleik næsta vetur eftir að KV tók boði móta- nefndar KKÍ um að leika í 1. deildinni 2020-21. Lið KV er skip- að ungum leikmönnum úr KR og hafnaði í þriðja sæti af tólf liðum 2. deildar í vetur, á eftir B-liðum KR og Vals. Félögin eru jafn- framt með sameiginlegan drengja- og unglingaflokk á Ís- landsmótinu. Þar með verða tíu lið í 1. deild næsta vetur í stað níu á nýliðnu tímabili en ekkert lið fellur. KR líka með lið í 1. deildinni Ljósmynd/KR Sigursælir Leikmenn KV fagna sigri í leik í 2. deild síðasta vetur. leikmenn auk þjálfara geti æft í hverri einingu fyrir sig. Gert er ráð fyrir að Íslandsmótið í knattspyrnu fari af stað í júní ef ekki kemur bak- slag vegna kórónuveirunnar. Þar hafa dagsetningarnar 5. júní fyrir bikarkeppnina og 14. júní fyrir Ís- landsmótið verið nefndar en það er ekki staðfest enn sem komið er. Áréttað er varðandi leiki og æf- ingar 16 ára og yngri að ætlast sé til þess að foreldrar séu ekki við- staddir. Golfsamband Íslands hefur gefið út leiðbeiningar fyrir kylfinga en fram kemur á vef GSÍ að golf upp- fylli nánast öll skilyrði samkomu- banns og því er fyrst og fremst lögð Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslensk íþróttafélög hefja starfsemi sína á ný í dag en fyrsta þrepið í af- léttingu samkomubanns hefur í för með sér að börn og ungmenni 16 ára og yngri geta hafið æfingar að nýju án takmarkana. Fullorðnir og ungmenni frá 17 ára aldri þurfa hinsvegar að æfa með takmörkunum næstu þrjár vikurnar eða svo, eða fram að næsta þrepi af- léttingarinnar. KSÍ hefur birt á vef sínum að í meistaraflokki og 2. flokki sé heimilt að skipta knattspyrnuvelli í fullri stærð í fjórar einingar þar sem sjö áhersla á þá hluti sem gætu orsakað smithættu. Þar er ítarlegar leiðbein- ingar að finna um slíkt. Allt móta- hald GSÍ er samkvæmt áætlun fyrir sumarið og fer af stað fljótlega. Engar upplýsingar um byrjun tímabilsins í frjálsíþróttum er að finna á vef FRÍ en samkvæmt móta- skrá eiga fyrstu frjálsíþróttamótin að fara fram 21. maí. Líney Rut Halldórsdóttir fram- kvæmdastjóri ÍSÍ sagði á upplýs- ingafundi almannavarna á laug- ardaginn að tekjutap íþrótta- hreyfingarinnar vegna veirunnar væri í kringum tveir milljarðar en ítarlega er fjallað um fundinn á mbl.is/sport. Ljósmynd/Lögreglan ÍSÍ Líney Rut Halldórsdóttir fram- kvæmdastjóri ÍSÍ fór yfir stöðuna. Starfsemi íþróttafélaganna fer af stað á ný í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.