Morgunblaðið - 08.05.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty
Höfum opnað vefverslunmisty.is
Sendum frítt ef verslað er yfir 10.000 kr.
GLEÐJUM
MÖMMU Á
MÆÐRADAGINN
Handáburður frá Spa of Iceland
fylgir öllum gjafabréfum fyrir
10.000 kr. eða meira.
SVIÐSLJÓS
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við hér á Seltjarnarnesi erum orðin
langþreytt á því hvernig málum sem
þessu er hugsunarlaust ýtt áfram.
Geirsgata er, ásamt Hringbraut,
samgönguæð okkar og það verður
að tryggja gott flæði bílaumferðar á
þessum götum í stað þess að
þrengja sífellt að. Það voru því gríð-
arleg vonbrigði að upplifa þetta
mikla samráðsleysi hjá Reykjavík-
urborg,“ segir Magnús Örn Guð-
mundsson, forseti bæjarstjórnar
Seltjarnarness, í samtali við Morg-
unblaðið.
Vísar hann í máli sínu til fram-
kvæmdar við Geirsgötu í miðbæ
Reykjavíkur. Er þar verið að setja
upp nýja stoppistöð Strætó og hefur
það vakið talsverða athygli að ekk-
ert útskot fylgir stöðinni, líkt og
greint var frá hér í Morgunblaðinu
síðastliðinn þriðjudag. Þetta veldur
því að strætisvagnar munu þurfa að
stoppa á miðri akbraut til að hleypa
farþegum sínum inn og út úr vagn-
inum með fyrirséðum töfum á um-
ferð um Geirsgötu.
Í kjölfar fréttaflutnings blaðsins
af málinu var framkvæmd Reykja-
víkurborgar tekin fyrir á fundi hjá
skipulags- og umferðarnefnd Sel-
tjarnarnesbæjar. Telur nefndin að
framkvæmdirnar séu ekki í sam-
ræmi við samkomulag Reykjavíkur-
borgar og Seltjarnarness um skipu-
lag svæðisins, sem undirritað var 12.
nóvember 2013, þar sem þær þrengi
að umferð að Seltjarnarnesi. Telur
nefndin það jafnframt vera ámælis-
vert að ekki hafi verið haft samráð
við Seltjarnarnesbæ og hefur skipu-
lagsfulltrúi þegar komið athuga-
semdum á framfæri við Reykjavík-
urborg vegna þessa.
Verkið sé víðáttuvitleysa
Magnús Örn segir framkvæmdina
við Geirsgötu einnig verða til um-
ræðu á næsta bæjarstjórnarfundi og
að bæjarstjóri Seltjarnarness muni
senda borgarstjóra erindi þar sem
verkinu er mótmælt. Segir hann
allra leiða verða leitað til að fá út-
færslu á stoppistöðinni breytt.
„Ég held að þessi framkvæmd sé
bara gríðarlega illa undirbúin, enda
stenst hún ekki einu sinni samkomu-
lag okkar við borgina. Það má ekki
gleyma að um Geirsgötu er mikil og
þung umferð, bæði í Vesturbæinn og
á Nesið en einnig á þjónustusvæðið
á Granda, svo ekki sé minnst á olíu-
flutninga. Það verður að tryggja
góðar og öruggar samgöngur á milli
sveitarfélaga og ég efast um að
Strætó telji þetta vera heppilegustu
lausnina, einkum í ljósi umferðarör-
yggis,“ segir hann.
Þá segir Magnús Örn það und-
arlegt að Reykjavíkurborg skuli
fremur kjósa róttæka aðgerð í stað
þess að fara skynsamlegan milliveg í
góðri sátt og samráði við aðra.
„Það er alltaf verið að tala um að
þörf sé á því að gera öllum jafn hátt
undir höfði í umferðinni. Hér er
beinlínis verið að fara þvert á það.
Það hefði verið svo einfalt að útfæra
þetta öðruvísi enda mikið pláss á
þessu svæði. En í stað þess að hafa
alla sátta þá tókst mönnum einhvern
veginn að klúðra því. Manni fallast
hreinlega hendur, svona útfærsla er
ekkert annað en víðáttuvitleysa og
við munum krefjast breytinga.“
Verða að treysta á rétt mat
Jóhannes Svavar Rúnarsson er
framkvæmdastjóri Strætó. Hann
segir sveitarfélög ákveða staðsetn-
ingu stoppistöðva. „Við verðum bara
að treysta því að þessi sveitarfélög
séu að vinna í samræmi við það sem
þau telja best fyrir farþegana og
aðra vegfarendur,“ segir hann.
Nánar má lesa um þetta á mbl.is.
Mótmæla borginni harðlega
Seltjarnarnesbær telur samráðsleysi Reykjavíkurborgar vera ámælisvert Orðin langþreytt á mál-
um sem hugsunarlaust er ýtt áfram, segir forseti bæjarstjórnar Krefjast breytinga á skýlinu án tafar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þrenging Ekki er gert ráð fyrir útskoti fyrir strætó vegna nýrrar stoppistöðvar við Geirsgötu í miðbænum. Á svæð-
inu er þó vel hægt að koma fyrir útskoti en þá yrði hjólastígur norðan við skýlið að taka smá sveig.
Fyrri ummæli
» Vigdís Hauksdóttir, borgar-
fulltrúi Miðflokksins, sagði
framkvæmdina ekkert annað
en hluta af þrengingarstefnu
meirihlutans í Reykjavík.
» Sigurborg Ósk Haralds-
dóttir, borgarfulltrúi Pírata,
sagði óþarft að hafa áhyggjur
af stoppistöðinni. Ekki sé vilji
hjá borginni til að hafa umferð-
arhávaða í miðbænum.
» Þetta snýst um forgangs-
röðun ferðamáta, sagði hún.
Skannaðu kóðann
til að lesa meira
um þetta á mbl.is
„Um 50% færri einstaklingar út-
skrifuðust hjá okkur í apríl en í
sama mánuði á síðasta ári og skýr-
ingin á því er eflaust sú að það er
mun erfiðara að útskrifa ein-
staklinga í vinnu við þessar að-
stæður og því höfum við gefið
ákveðinn tímabundinn slaka hvað
varðar útskriftir,“ segir Vigdís
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
VIRK starfsendurhæfingarsjóðs.
Hlutverk sjóðsins er að efla starfs-
getu einstaklinga með heilsubrest
sem stefna að aukinni þátttöku á
vinnumarkaði.
Vigdís segir að þjónustan þessa
dagana fari að mestu fram í gegnum
síma og fjarfundarbúnað en það sé
samt sem áður smám saman að
breytast. „Við höfum t.d. opnað fyr-
ir einstaklinga í starfsendurhæfing-
armat hjá sjúkraþjálfurum, sálfræð-
ingum og læknum og ég á von á því
að upp úr miðjum mánuði fari ein-
staklingar að koma aftur í viðtöl á
starfsstöðvum ráðgjafa ef allt geng-
ur vel,“ segir hún.
Vigdís segir að þjónustan hafi
gengið vel undanfarnar vikur þrátt
fyrir erfiðar aðstæður. Hafi ráð-
gjafar VIRK, sérfræðingar og ein-
staklingar í þjónustu lagt sig alla
fram um að gera sitt besta. Þjón-
ustuaðilar um allt land hafi einnig
verið mjög duglegir að bjóða upp á
ýmis úrræði í gegnum fjarfundar-
búnað.
Í dag eru 2.760 einstaklingar í
þjónustu hjá VIRK og hafa aldrei
verið fleiri. Í mars komu 202 nýir
einstaklingar inn í þjónustuna og
voru það um 20% fleiri en á sama
tíma í fyrra. Í apríl kom 171 nýr ein-
staklingur inn í þjónustu og er það
svipaður fjöldi og í fyrra. Stöðug
fjölgun hefur verið á umsóknum og
gert er ráð fyrir að svo verði áfram.
„Faraldurinn mun eflaust hafa
áhrif á fjölda umsókna til okkar en
þau áhrif geta einnig orðið seinna.
Einstaklingar sem missa vinnuna
tímabundið þurfa yfirleitt ekki á
starfsendurhæfingu að halda. Löng
fjarvera frá vinnumarkaði getur
hins vegar haft alvarlegar heilsu-
farslegar afleiðingar og dregið úr
vinnugetu einstaklinga,“ segir Vig-
dís.
Hún segir að hugsa þurfi til fram-
tíðar núna og mikilvægt að styðja
það fólk sem er í framlínunni í bar-
áttu við faraldurinn til að sporna við
brottfalli þess af vinnumarkaði síð-
ar. gudmundur@mbl.is
VIRK útskrifaði
50% færri í apríl
Finna vel fyrir samdrættinum
Geirsgata í Reykjavík hefur lengi verið einn af stofnvegum landsins, en
með því er átt við vegi sem tengja saman byggðir landsins og eru þeir í
umsjá Vegagerðarinnar. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vega-
gerðarinnar, segir Geirsgötu nú vera það sem kalla má „skilaveg“ og mun
gatan fara í umsjá Reykjavíkurborgar um næstu áramót með lagabreyt-
ingu. G. Pétur segir Reykjavíkurborg ekki hafa ráðfært sig við Vegagerð-
ina áður en tekin var ákvörðun um að koma umræddu strætóskýli fyrir
við Geirsgötu. Spurður hvort borgin hefði átt að gera það svarar hann:
„Vegurinn er enn í okkar umsjá og því hefði verið kurteisi að gera það.
En kannski gerði borgin það ekki því við höfum til þessa ekki verið að
setja okkur upp á móti breytingum þarna því vegurinn er að færast yfir til
þeirra. Þeir hafa bara litið svo á að það sé ekki sérstök þörf á því.“
Spurðu ekki um leyfi áður
GEIRSGATA ER ENN Í UMSJÁ VEGAGERÐARINNAR