Morgunblaðið - 08.05.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
8. maí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 147.51
Sterlingspund 182.66
Kanadadalur 104.97
Dönsk króna 21.348
Norsk króna 14.376
Sænsk króna 14.605
Svissn. franki 151.35
Japanskt jen 1.3875
SDR 200.88
Evra 159.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.6057
Hrávöruverð
Gull 1698.9 ($/únsa)
Ál 1438.5 ($/tonn) LME
Hráolía 32.27 ($/fatið) Brent
Undirritað hefur verið samkomulag
um sameiningu Kynnisferða og fé-
laga sem eru í eignasafni Eldeyjar,
sjóðs sem hefur fjárfest í mörgum
ferðaþjónustufyrirtækjum á borð við
Norðursiglingu, Arcanum Fjallaleið-
sögumenn, Dive.is og Logakór.
Kynnisferðir eru eitt stærsta ferða-
þjónustufyrirtæki landsins á sviði
fólksflutninga. Samkvæmt tilkynn-
ingu miðar sameiningin að því að hag-
ræða í rekstri auk þess að styrkja
sameiginlegt sölu- og markaðsstarf.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að enn liggi ekki fyrir hversu stór
hlutur núverandi eigenda fyrirtækj-
anna verður í sameinuðu félagi en
viðræður standa nú yfir um útfærslu
samkomulagsins.
Samruni í
kortunum
Eldey og Kynnis-
ferðir sameinast
Hagnaður
Heimavalla
dróst saman um
44% á fyrsta
ársfjórðungi
miðað við sama
tímabil í fyrra.
Nam hann nú
52,3 milljónum
króna, saman-
borið við 93,2
milljónir í fyrra.
Leigutekjur námu 794,4 millj-
ónum og drógust saman um 103,2
milljónir. Rekstrarkostnaður fjár-
festingareigna jókst hins vegar
milli ára og nam 240,2 milljónum
samanborið við 234,7 milljónir á
fyrsta fjórðungi ársins 2019. Annar
rekstrarkostnaður dróst talsvert
saman. Nam nú 75,9 milljónum en
var 124 milljónir í fyrra.
Matsbreytingar fjárfestingar-
eigna voru jákvæðar um 44,9 millj-
ónir en höfðu verið 33,8 milljónir í
fyrra. Hins vegar var nú bókfært
sölutap af fjárfestingareignum upp
á 9,7 milljónir en hagnaður hafði
reynst af slíkri sölu upp á 132,6
milljónir í fyrra.
Fjármagnsgjöld drógust saman
milli ára og námu tæpum 467 millj-
ónum samanborið við 603,3 millj-
ónir í fyrra. Eignir Heimavalla
stóðu í 52,6 milljörðum í lok fyrsta
ársfjórðungs og lækkuðu um ríflega
1,4 milljarða frá áramótum. Eigið
fé var nærri því óbreytt eða rúmir
20 milljarðar og eiginfjárhlutfallið
38,1%.
Hagnaður
Heimavalla
minnkar
Arnar Gauti
Reynisson
Matsbreytingar
hækka milli ára
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn og fjölgun
fólks í fjarvinnu hefur ekki breytt
áætlunum Landsbankans um nýjar
höfuðstöðvar við Hörpu.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
bankans við fyrirspurn blaðsins.
Sagði þar að gert væri ráð fyrir að
bankinn flytti starfsemi sína í nýjar
höfuðstöðvar árið 2022.
Þá var spurt hvort faraldurinn
hefði haft áhrif á áætlaða húsnæðis-
þörf bankans í húsinu.
„Áætluð húsnæðisþörf er óbreytt
en húsakynnin sem bankinn mun
nota í nýja húsinu eru tæplega helm-
ingi minni en þau sem hann nýtir
undir starfsemina nú.“
Betra að hafa fólkið í húsinu
Því næst var spurt hvort bankinn
hefði mögulega endurmetið hversu
margir starfsmenn gætu verið í fjar-
vinnu til frambúðar.
„Þótt fjarvinna/heimavinna hafi
gengið vel, hjá þeim hluta starfsfólks
sem hefur kost á því, og verði áfram
notuð í einhverjum mæli, teljum við
betra að starfsfólk komi að jafnaði til
starfa á vinnustaðnum. Ekki hefur
farið fram sérstakt endurmat á hlut-
falli starfsfólks sem unnið getur í
fjarvinnu,“ sagði í svari bankans.
Svo var spurt hvort bankinn hefði
mögulega endurmetið væntar leigu-
tekjur af öðrum hlutum hússins.
„Væntar leigutekjur hafa ekki
verið endurmetnar og áfram er gert
ráð fyrir að skrifstofu- og þjónustu-
húsnæði á þessum fágæta stað verði
til framtíðar eftirsótt til útleigu.“
Engin ákvörðun verið tekin
Loks var spurt hversu hátt hlut-
fall húsgagna í nýju höfuð-
stöðvunum yrði erlend framleiðsla.
Svarið var að ekki hefði verið
tekin ákvörðun um hvernig kaup-
um á lausum búnaði yrði háttað.
Fram kom í tilkynningu frá
bankanum í febrúar síðastliðnum
að Landsbankinn myndi nýta um
60% höfuðstöðvanna, eða um 10
þúsund fermetra, en leigja frá sér
eða selja um 40% byggingarinnar,
eða 6.500 fermetra.
Áætlað var að höfuðstöðvarnar
myndu kosta um 11,8 milljarða
króna og að kostnaður við þann
hluta sem bankinn myndi nýta væri
7,5 milljarðar. Bankinn myndi flytja
starfsemi úr 12 húsum í miðborg-
inni, ásamt stærstum hluta Borg-
artúns 33, undir eitt þak í nýju húsi.
Þegar bankinn birti þessar upp-
lýsingar 7. febrúar síðastliðinn kost-
aði evran 137,9 krónur. Nú kostar
hún hins vegar 20 krónum meira.
Af þessu tilefni var send sérstök
fyrirspurn til bankans um hvort
kostnaðurinn yrði fyrir vikið hærri.
„Kostnaðaráætlun hefur ekki ver-
ið uppfærð frá því sem kemur fram í
ársskýrslu bankans en hafa bera í
huga að kostnaðaráætlunin tekur
breytingum í samræmi við þróun
byggingavísitölu,“ sagði í svarinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Uppbygging í miðborginni Landsbankinn hyggst flytja í nýjar höfuðstöðvar við Hörpu árið 2022.
Landsbankinn flytur 2022
Faraldurinn hefur ekki breytt áformum Landsbankans Betra sé að hafa
starfsfólk í höfuðstöðvum en í fjarvinnu Gengisveiking gæti aukið kostnað
Landsbankinn tapaði 3,6 milljörðum
króna á fyrsta ársfjórðungi. Við-
snúningur frá fyrra ári nemur 10,4
milljörðum því á fyrsta ársfjórðungi
2019 nam hagnaður bankans 6,8
milljörðum króna. Virðisrýrnun út-
lána nam 5,2 milljörðum en yfir sama
tímabil í fyrra var slík rýrnun bók-
færð á 1 milljarð. Jafngildir virðis-
rýrnunin um 0,4% af lánasafni bank-
ans. Hins vegar var vanskilahlutfall
útlána í lok marsmánaðar 0,7% sem
er sama hlutfall og í lok mars 2019.
Útlán til ferðaþjónustu nema 95,7
milljörðum hjá bankanum, eða um
8,1% af heildarútlánum hans. Lækk-
uðu þau á fjórðungnum um hálfan
milljarð.
Arðsemi eigin fjár var neikvæð um
5,9% á ársgrundvelli, samanborið við
11,2% arðsemi yfir sama tímabil í
fyrra.
Hreinar vaxtatekjur bankans voru
9,4 milljarðar og lækkuðu um 800
milljónir frá fyrra ári. Hreinar þjón-
ustutekjur námu 2 milljörðum og
lækkuðu um 5,6% miðað við sama
fjórðung fyrra árs.
Rekstrarkostnaður dróst saman
um 488 milljónir og nam 6,7 millj-
örðum. Þar af var launakostnaður
3,8 milljarðar en var 3,7 milljarðar
yfir sama tímabil í fyrra. Útlán til
einstaklinga og fyrirtækja jukust um
4,4% frá áramótum eða um rúma 50
milljarða króna. Þar af voru um 33
milljarðar vegna gengisbreytinga.
Innlán jukust um 47 milljarða frá
áramótum sem jafngildir 6,7% aukn-
ingu.
Eigið fé bnkans var 244,1 milljarð-
ur í lok mars og eiginfjárhlutfallið
24,9%.
Lilja Björk Einarsdóttir banka-
stjóri segir viðsnúning í rekstri end-
urspegla greinilega þau áhrif sem
kórónuveiran hefur haft. Bankinn
vinni nú með viðskiptavinum að því
að greiða úr þeim vanda sem hún
hefur valdið. „Til þessa hafa tæplega
1.250 einstaklingar og fjölskyldur
frestað greiðslum á íbúðalánum um
sex mánuði en samtals nema útlánin
sem um ræðir um 7% af útlánum
bankans til einstaklinga. Þá hafa yfir
600 fyrirtæki sótt um að fresta af-
borgunum en útlánin sem um ræðir
nema um 8% af útlánum bankans til
fyrirtækja,“ segir Lilja Björk m.a. í
tilkynningu frá bankanum.
Landsbanki tapar 3,6 milljörðum
Virðisrýrnun útlána 5,2 ma. 1.250 lántakendur fresta greiðslum af íbúðalánum