Morgunblaðið - 08.05.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
✝ ÞorvaldurJónsson fædd-
ist í Reykjavík 17.
júní 1936. Hann
andaðist á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 29. apríl
2020.
Foreldrar Þor-
valdar voru hjónin
Sigríður S. Sigurð-
ardóttir, f. 31.5.
1903, d. 5.11. 1989
og Jón Sigurðsson, verslunar-
maður í Borgarnesi, f. 11.3. 1904,
d. 14.2. 2002. Systkini Þorvaldar
eru Elsa Sigríður, f. 18.7. 1939,
Vignir Gísli, f. 29.3. 1943, d. 3.6.
2013, og Gunnar, f. 28.2. 1945.
Dóttir Þorvaldar er Áslaug f.
3.2. 1957. Móðir hennar er Aðal-
björg Ólafsdóttir, f. 24.9. 1937.
Börn Áslaugar eru a) Logi, f. 22.3.
1978. Dóttir hans er Embla Sól.
Logi er í sambúð með Christinu
Mai, f. 30.1. 1986. Dóttir þeirra er
Zoe Ósk. b) Gauti, f. 13.4. 1981.
Sonur hans er Alexander Máni. c)
Sindri, f. 30.5. 1990, sambýliskona
er Alexía Margrét Jakobsdóttir, f.
10.11 1995. d) Elísa, f. 23.3. 1992.
Elísa er í sambúð með Baldri Jó-
hannessyni, f. 15.11. 1991.
Þorvaldur var þríkvæntur.
Hann kvæntist árið 1959 Önnu
Katrínu Steinsen, f. 17.2. 1935, d.
9.6. 1965. Dætur þeirra eru 1)
Guðrún Marta, f. 19.11. 1959.
Eiginmaður er Ómar Benedikts-
son, f. 22.10. 1959. Þeirra börn
eru a) Arnar, f. 1.11. 1984. Eigin-
1947. Þau skildu. Börn Þorvald-
ar og Ragnhildar eru 1) Pétur
Tyrfingur Gunnarsson, fóstur-
sonur Þorvaldar, f. 16.6. 1969.
Börn Péturs eru Hildur María, f.
1.1. 2004, og Bjarki Már, f. 2.11.
2008. 2) Anna Katrín, f. 15.11.
1977. Börn hennar eru Sophie
Magdalena MacNeil, f. 24.1.
2008, og Mía Celeste Anastasia
MacNeil, f. 13.2. 2011. 3) Þor-
valdur Þór, f. 4.7. 1980.
Þorvaldur ólst upp í Borgar-
nesi. Hann lauk prófi úr Sam-
vinnuskólanum á Bifröst 1957.
Eftir útskrift réði hann sig til
Flugfélags Íslands í Kaupmanna-
höfn, þar kynntist hann Önnu
Katrínu Steinsen. Þau fluttu til
Íslands árið 1962. Þorvaldur
starfaði við skipamiðlun, fyrst
hjá Harald Faaberg, síðan rak
hann Skipamiðlun Þorvaldar
Jónssonar. Þorvaldur var áhuga-
maður um stang- og skotveiði.
Hann var meðlimur í veiðifélag-
inu Þistlum, leigutaka Sandár í
Þistilfirði. Einnig var hann fé-
lagi í Lionsklúbbnum Frey.
Hjónin Þorvaldur og Ragnhildur
áttu Syðra-Fjall II við Laxá í
Aðaldal. Þorvaldur var í golf-
klúbbnum Oddi í Garðabæ og
átti golfið hug hans allan síðustu
árin.
Þorvaldur verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
dag, 8. maí 2020, klukkan 15.
Nánasta fjölskylda verður við út-
förina, en henni streymt á
https://www.facebook.com/
groups/thorvaldur. Stytt slóð á
streymið: https://n9.cl/vm16.
Slóðina má einnig nálgast á
www.mbl.is/andlat.
kona er Sunna Dögg
Björnsdóttir, f. 8.9.
1985. Dætur eru
Ylfa Sól og Marta
Líf. b) Katrín, f.
27.6. 1987. c) Einar
Bjarni, f. 21.11.
1990. Sambýliskona
er Rebekka Rós
Baldvinsdóttir, f.
8.12. 1990. Sonur
þeirra er Baldvin
Ómar. d) Fannar
Freyr, f. 27.2. 1997. Sambýlis-
kona er Guðrún Jóna Gestsdóttir,
f. 27.11. 1997. 2) Elsa Sigríður, f.
6.4. 1961. Eiginmaður er Svein-
björn Sigurðsson, f. 9.3. 1965.
Börn þeirra: a) Atli Steinn, f.
19.9. 1987. Sambýliskona er
Helga Einarsdóttir, f. 17. 5. 1988.
Synir eru Benjamín Freyr og
Jökull Fannar. b) Anna Sigríður,
f. 9.6. 1991. Sonur Önnu er Matti-
as Inza. Anna er í sambúð með Ív-
ari Erni Axelssyni, f. 9.4. 1987.
Dóttir þeirra er Elsa Katrín. c)
Þorvaldur, f. 30.3. 1994. Unnusta
hans er Gill Robelo, f. 1.5. 1996.
d) Birta Þöll, f. 4.12. 1996.
Árið 1967 kvæntist Þorvaldur
Ásu S. Björnsdóttur, f. 12.4. 1940,
d. 6.4. 2012. Þau skildu. Sonur
Ásu og fóstursonur Þorvaldar er
Björn Gunnarsson, f. 7.2. 1965.
Kona hans er Þórdís Linda
Björnsdóttir, f. 26.11. 1968. Son-
ur þeirra er Davíð Fannar f. 11.2.
2008.
Þorvaldur kvæntist árið 1977
Ragnhildi Pétursdóttur, f. 25.6.
Elsku pabbi. Oft kunni ég
ekki að meta ástina þína. Ég átt-
aði mig kannski ekki á því að við
sýndum ekki ástina okkar eins.
Ég á minn hátt og þú á þinn
hátt. Þegar ég sat hjá þér, þrem-
ur dögum áður en þú yfirgafst
okkar veraldlega líf, þá náðirðu í
kraft til að segja við mig eina
setningu. Fallegustu setningu
sem ég hef heyrt. Og það var
það síðasta sem þú sagðir við
mig. Þannig kvaddir þú mig.
Kvaddir mig með fallegustu orð-
um sem ég hef heyrt. Og
kannski var það ekki fyrr en þá
að ég lærði ég að elska þig. Það
var of seint. Og ég ætla ekki að
láta það gerast aftur. Takk fyrir
að kenna mér það. Ég elska þig.
Elsku pabbi.
Þorvaldur Þór Þorvaldsson.
Þá hefur hann pabbi minn
kvatt þetta jarðlíf. Þegar ég var
lítil stelpa ógnaði það mér meira
en allt annað að pabbi ætti ein-
hvern tíma eftir að deyja. Ég
var heppin því hann fékk að lifa í
næstum 84 ár. Pabbi var 25 ára
þegar ég fæddist og þá hafði
hann þegar eignast tvær dætur.
Þegar hann var 29 ára var hann
orðinn ekkill og einstæður faðir
með tvær dætur í sinni umsjá.
Pabbi gerði aldrei neitt með
hangandi hendi. Hann giftist
þrisvar, eignaðist fimm börn og
tvo fóstursyni. Þegar ég komst
til vits og ára hafði hann mikinn
áhuga á jeppaferðum og fór í
ótal jeppaferðir um Ísland. Um
tíma hafði hann mikinn áhuga á
skíðum og snjósleðum. Svo
kviknaði áhugi á laxveiði og það
tók hug hans allan. Hann elskaði
að standa úti í á með stöng og
veiða. Pabbi lagði mikla áherslu
á að við sem vorum með í sumum
af þessum veiðiferðum fengjum
lax og held ég að margir eigi
honum maríulaxinn sinn að
þakka.
Hann stundaði líka skotveiði
og sá um að veiða rjúpur í jóla-
matinn fyrir fjölskylduna í mörg
ár.
Sumarið 1996 vorum við eins
og oft áður í Sandá, ég var ófrísk
að mínu fjórða barni. Pabbi vildi
endilega fara með mig í ein-
hvern sérstakan hyl þar sem
hann taldi að ég myndi veiða lax.
Hann dregur mig þarna af stað í
átt að hylnum, þetta var erfitt
og djúpt. Hann spyr hvort ég sé
nokkuð lífhrædd, ég svara: nei,
ég á bara þrjú börn og eitt á leið-
inni. Orðatiltækið „þetta er ekk-
ert mál“ átti svo sannarlega vel
við pabba.
Pabbi var iðulega með
klemmu utan um peninga í vas-
anum, það var alltaf hægt að slá
lán hjá honum. Þegar ég var
stelpa fór ég í bakpokaferð með
vinkonu minni. Í París var bak-
pokunum okkar rænt og við
stóðum uppi allslausar. Gátum
hringt „collect“ heim til pabba
og beðið um lán fyrir fluginu
heim. Pabba leist ekkert á að við
kæmum heim, símsendi okkur
peninga í gegnum frænda minn
sem bjó í París og sagði okkur
bara að halda ferðinni áfram.
Þegar pabbi hætti að vinna
fyrir ca. 14 árum atvikast það
þannig að hann fær golfsett upp í
hendurnar og hann kolféll fyrir
golfinu. Hann lagði sig allan
fram til að ná sem bestum ár-
angri í íþróttinni. Eina sem hann
sagðist hafa séð eftir í lífinu var
að hafa ekki byrjað fyrr að spila
golf. Í golfinu átti hann líka sína
bestu félaga sem honum þótti
mjög vænt um.
Já, það er margs að minnast
en númer eitt minnist ég föður
sem hvatti mig áfram og kenndi
mér að standa upp eftir hvert
fall. Þó að pabbi væri ekki opinn
maður, var hann óskaplega hlýr
og átti auðvelt með að hrósa.
Pabbi var stoltur af öllu sínu
fólki, þakklátur og sáttur.
Þegar hann vissi að hann ætti
ekki langt eftir fylltist hann
æðruleysi en hann stundaði AA-
fundi í tæp 30 ár og það var hon-
um tamt að lifa eftir bæninni.
Pabbi velti fyrir sér hvernig
himnaríki væri, nú er hann kom-
inn með svörin og eflaust búinn
að hitta þá sem á undan eru
gengnir. Ég trúi því að hann sé
búinn að finna golfvöll og taki á
móti okkur þegar sá tími kemur.
Sjúkdómslega pabba var
snörp og eins og sonur minn
komst að orði; „er þetta ekki ná-
kvæmlega afi í hnotskurn? Hann
fór sínar eigin leiðir sama hvað
öðrum fannst. Nú var komið nóg,
hann gat ekki hugsað sér lífið
með þessum kvölum og þá tók
hann þennan veg og dó.“
Blessuð sé minning föður, afa
og langafa.
Elsa Sigríður Þorvaldsdóttir.
Þá er tengdafaðir minn fallinn
frá eftir snarpa sjúkrahúslegu.
Þorvaldur var einstakur mað-
ur sem fór sínar eigin leiðir.
Hann missir ungur eiginkonu
sína frá tveimur dætrum. Hann
hélt sínu striki, lét drauma sína
rætast og náði í raun að sigla í
gegnum þetta líf án þess að láta
mikið trufla sig.
Ég hitti Þorvald fyrst á skíð-
um jólin 1986 í Lech í Austur-
rríki. Ég og dóttir hans vorum
þá við nám í Berlín. Hann bauð
fjölskyldunni á skíði, það ein-
kenndi hann alla tíð að gera allt
með stæl. Á þessum árum var
hann heltekinn af fjallamennsku
og veiði. Hann átti að sjálfsögðu
flottasta fjallabílinn í flotanum,
ljósblár Cherokee með öllum
þeim breytingum sem hægt var
að hugsa sér og rúmlega það.
Fyrstu jólin á Íslandi með
tengdó voru sérstök, rjúpur á
aðfangadag. Átti ég að búa við
þetta, að borða rjúpur á jólunum
það sem eftir var? Hafði aldrei
smakkað rjúpur áður. Næstu jól
tók ekkert betra við, þá fékk ég
rjúpnakippu í hendurnar og ráð
í gegnum síma hvernig ætti að
hamfletta! Að sjálfsögðu féll ég
fyrir rjúpunum. Hann byrjaði
svo að taka mig með á rjúpu og
þá varð ekki aftur snúið. Við fór-
um margar ferðir saman og er
ég honum ævinlega þakklátur
fyrir að hafa platað mig út í
þessa skotveiði.
Árið 1987 festir Þorvaldur
kaup á jörð á bökkum Laxár í
Aðaldal, Syðra-Fjalli. Helsta
ástæðan var að sjálfsögðu lax-
veiði, en hann stundaði hana
mjög stíft alla tíð. Hann átti
nokkur leyfi í Laxá í Aðaldal,
bæði hjá Reykjavíkur- og Akur-
eyrardeild. Þegar fjölskyldan
mín bjó á Húsavík hringdi hann
iðulega í mig og spurði hvort ég
gæti bjargað honum. Það þýddi
hvort ég gæti veitt fyrir hann!
Hann komst ekki yfir alla þessa
daga og naut ég góðs af.
Sú á sem var honum kærust
var Sandá í Þistilfirði. Þar
veiddi hann tvisvar á ári frá
1975. Þar höfum við fjölskyldan
átt margar dýrmætar stundir.
Hann var gríðarlega duglegur
veiðimaður sem bar mikla virð-
ingu fyrir náttúrunni. Hann
naut þess að hjálpa börnum og
barnabörnum við að fá sína mar-
íulaxa og hreykti sér aldrei af
sínum afrekum. Fyrir tveimur
árum vorum við á leið í Sandá,
hann er slappur þegar við ætl-
uðum að leggja af stað frá Aðal-
dalnum. Ég keyrði hann inn á
Akureyri þar sem hann er lagð-
ur inn með hjartaóreglu. Tveim-
ur dögum seinna biður hann mig
um að sækja sig og förum við
beint í Sandá, hann fer í veiði-
gallann, honum er plantað á
steinn við einn hylinn. Þarna
tókst honum tókst að landa
þremur löxum, þar á meðal ein-
um 14 punda.
Það er sérstakt að hugsa til
þess að á sama tíma og Þorvald-
ur fellur frá eru tvö af elstu
veiðifélögum landsins að leggj-
ast af; Laxárfélagið og Þistlar.
Þorvaldur var ekki íþrótta-
áhugamaður framan af, ég man
að hann hneykslaðist á mér þeg-
ar ég var að fara að horfa á fót-
boltaleik eitt kvöldið og sagði
þetta bölvaða vitleysu.
Nokkrum árum seinna gerði
hann sér lítið fyrir og var kjöl-
festufjárfestir í Stoke-ævintýr-
inu.
Þegar Þorvaldur hætti að
vinna prófaði hann golf og þá
varð ekki aftur snúið. Önnur
eins eljusemi og áhugi hefur
vart sést og var hann fljótur að
vekja athygli bæði í Oddi golf-
klúbbi og meðal golfáhuga-
manna á Íslandi. Golfíþróttin
gaf Þorvaldi mikið, hann eyddi
öllum sumrum á Oddi og átti það
til að spila tvo hringi á einum
degi. Það leika ekki margir eftir.
Takk fyrir samveruna.
Þinn tengdasonur,
Sveinbjörn Sigurðsson.
Ljúfar minningar leita á hug-
ann er tengjast tengdaföður
mínum. Við fráfall hans rifjast
upp hvað hann hefur haft mikil
áhrif á líf mitt. Hann kynnti mér
laxveiði þegar við fjölskyldan
fórum í mörg ár í Sandá í Þist-
ilfirði. Einnig fórum við fjöl-
skyldan í fyrstu skíðaferð okkar
með honum til Austurríkis.
Hann fór daglega í sund og tók
ég upp þann sið og fór um árabil
í sund áður en ég fór til vinnu.
Þorvaldur var ljúfur og þægi-
legur maður. Hann forðaðist
vandræði en tók á málunum ef
þurfti. Hressleiki og hógværð
lýsa honum kannski best. Þó að
hann væri ekki maður margra
orða hafði hann gaman af að
ræða málefni líðandi stundar um
landsins gagn og nauðsynjar en
áhugamálin fengu alltaf sinn
sess. Hann ræddi mikið við mig
um viðskipti og hafði sérstakan
áhuga á flugmálum allt frá þeim
tíma sem hann vann hjá Flug-
félagi Íslands í Kaupmannahöfn
fyrir 60 árum. Einnig fylgdist
hann vel með börnum okkar og
áttu þau öll gott samband við afa
sinn.
Stuttu áður en Þorvaldur
hætti að vinna kynntist hann
golfíþróttinni. Átti hún hug hans
allan og naut hann þess mjög að
spila golf og félagsskapar sem
tengdist því. Hann ferðaðist
mikið til útlanda til að spila golf
og spilaði daglega 27-36 holur og
spilaði á hverjum degi á sumrin
á Íslandi. Hann fylgdist einnig
mjög vel með golfmótum og öll-
um fréttum tengdum golfi. Eftir
að ég hóf að spila golf hef ég oft
notið þess að spila með honum
og er ekki laust við að ég hafi
verið stoltur af orðspori hans í
golfinu.
Ég minnist Þorvaldar tengda-
föður míns með þakklæti fyrir
ánægjulega samferð. Ég mun
varðveita minningu hans í hjarta
mínu og kveð hann með söknuði.
Ómar Benediktsson.
Ég á eftir að sakna afa svo
mikið… ég trúi því ekki að ég
eigi ekki eftir að sjá hann þegar
ég kem til Íslands. Ég get
ímyndað mér hann segja „elsku
drengurinn minn“ og brosa svo
áður en hann faðmar mig. Hann
var besti afi sem hægt er að
hugsa sér og ég var svo stoltur
og heppinn að fá að hafa hann
sem afa. Hann kenndi mér svo
margt um hvernig lifa á lífinu
með sinni einstöku auðmýkt og
æðruleysi.
Ég kemst víst ekki heim út af
COVID-19 en ég kem heim um
leið og ég get. Sakna þín og elska
þig.
Þinn
Þorvaldur.
Afi var ekki maður margra
orða, en hann var mikill prin-
sippmaður, fór og gerði það sem
þurfti og það sem hann langaði
til. Fyrstu minningarnar mínar
um hann tengjast auðvitað að-
allega Syðra-Fjalli og áramótun-
um á Valhúsabraut þar sem
amma og afi bjuggu.
Mér fannst að afi hlyti að vera
ríkasti maður í heiminum en
hann geymdi klink í stöflum á
skrifstofunni sinni, átti bíla með
leðursæti sem ég gat aldrei setið
kyrr í, maður rann svo mikið til í
beygjunum!
Hann lyktaði alltaf eins og
ólívusjampó og handáburður en
ég man að á sumrin var hann
alltaf með svo þurrar hendur eft-
ir veiðarnar í Sandá og á Syðra-
Fjalli.
Það var alltaf mikil ró yfir afa,
sama hvað gekk á með okkur
systkinin þessi sumur á Syðra-
Fjalli, þá sat hann yfirleitt með
kaffibolla í sófanum sínum eða
úti í sólinni og leysti krossgátur
og lét fátt trufla sig. Það var fátt
skemmtilegra en að fá að rúnta
um á bláa stóra jeppanum niður
að á, en maður vissi líka að þetta
yrði engin skotferð, afi gat eytt
lunganum úr deginum í ánni en
inn á milli sat hann í bílnum og
talaði í bílasímann að leysa
heimsmálin.
Hann var yfirleitt með kók og
prinspóló í nesti þegar leiðin lá
niður að á. Ég furðaði mig lengi
á því hvernig hann gat náð ein-
hverju sambandi við fólk í síma
sem tengdist engu nema bílnum.
Í Sandá var alltaf mikið um að
vera en afi sást kannski minnst
enda farinn á fætur fyrir allar
aldir og kom yfirleitt ekki heim
fyrr en seint og um síðir og
kvöldmaturinn eftir því. Það tók
mig langan tíma að venjast því
að horfa á afa sjúga augun sem
hann talaði alltaf um að væru
besti bitinn af fisknum! Ég man
ekki til þess að nokkurt okkar
hafi einhvern tímann sannfærst
og smakkað þessi augu en þetta
var alltaf tilvalið söguefni þegar
vinirnir voru að ræða skrítna eða
ógeðslega hluti, þá vakti sagan
um afa og fiskiaugun yfirleitt
mestan hrollinn!
Svo var það blessaður afad-
júsinn, sem ég hélt lengi vel að
héti bara afadjús en ekki Ri-
bena-sólberjasaft. Ef afi var
ekki með kaffi við hönd þá var
það afadjús blandaður í sóda-
vatn.
Í síðustu ferðinni hans hingað
norður kom hann til að ná sér í
„heilsusafa“, þá brunaði hann
upp á fjall með tvær stórar skúr-
ingarfötur og tíndi krækiber á
leið sinni niður fjallið. Hann
skildi bílinn eftir uppi á Skolla
og fékk Arnar síðan til að skutla
sér upp eftir á fjórhjólinu til að
sækja bílinn.
Í tvo daga stóð hann í eldhús-
inu og bjó til krækiberjasaft sem
hann hellti á litlar kókflöskur
sem hann hafði sankað að sér yf-
ir árið. Bjó til saft í 52 flöskur og
drakk svo eina á viku. Hann
hafði mikla trú á að þetta væri
gott fyrir heilsuna.
Það sem einkenndi afa
kannski mest, þrátt fyrir að
hann væri ekki maður margra
orða, var að afi var alltaf þakk-
látur fyrir það sem aðrir gerðu
fyrir hann og duglegur að þakka
fyrir sig. Það kom kannski helst
fram þegar honum var boðið í
mat en hann naut þess að borða,
ég held ég hafi aldrei séð neinn
sem borðaði jafn hægt og hann!
Bless, elsku afi minn.
Anna Sigríður
Sveinbjörnsdóttir.
Hver stund með afa Nes var
ævintýri.
Að fara í veiði með afa og
vakna við óminn af rás 1, sitja
með honum og borða hafragraut
og drekka kaffi, veiða svo þar til
hann gat ekki meir því að ég var
löngu sprunginn, kaldur og
þreyttur og vona að hann færi
fljótlega að segja þetta gott.
Afi borðaði augun úr laxinum,
loðnumjöl í morgunmat og
drakk kaffi á miðnætti. „Kaffi
hefur aldrei truflað svefninn
minn,“ sagði afi bara.
Í minningum mínum er afi
sólbrúnn og flottur, með pípu,
með tuskuna á fluguveiðum á
Syðra-Fjalli og keyrandi niður
að á með okkur gargandi utan á
bláa Cherokee-jeppanum.
Fyrsta minningin mín af afa
er þar sem ég er á leikskólanum
og hann er kominn að sækja
mig, stendur uppi á hæðinni
mættur að bjarga mér úr prís-
undinni.
Afi kenndi mér þolinmæði.
Hvort sem það var að landa laxi,
slá golfkúlu eftir 6 högg í röffið
eða leysa vindhnúta á línunni.
Hann kenndi mér að vaða ár og
klifra kletta í straumhörðum
gljúfrum með veiðistöngina í
annarri hendinni.
Eitt sinn var stórfjölskyldan
nýkomin í hlað að Sandá þegar
ég hleyp niður að á með stöng
sem hafði ekki verið yfirfarin frá
fyrra sumri. Allt í einu er kippt
rækilega í færið, línan rennur út
og klárast á augnbliki. Hundfúll
yfir að missa fenginn hendi ég
stönginni frá mér. Seinna sama
dag veður afi út í á, þreifar á
botninum og kemur upp með lín-
una, dregur hana til sín og finn-
ur spúninn á hinum endanum
með kengboginn krók.
Afi var ekki mikið fyrir að
spjalla út í bláinn og ef ég vildi
fá hann til að rifja upp eitthvað
úr fortíðinni sagðist hann ekkert
muna, en sagði þó frá ýmsu ef
maður hafði fyrir því að róa eftir
því. Ef að ég sagði afa frá ein-
hverju sagði hann annaðhvort
„flott Atli minn“ eða hló létt.
Atli Steinn Sveinbjörnsson.
Þorvaldur Jónsson
Fleiri minningargreinar
um Þorvald Jónsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
Okkar ástkæri
INGÓLFUR MAGNÚSSON,
Víkurgili 19 á Akureyri,
lést hinn 16. apríl á öldrunarheimili
Akureyrar, Hlíð. Í ljósi aðstæðna fer útförin
fram í kyrrþey hinn 8. maí.
Starfsfólki Furuhlíðar eru færðar alúðarþakkir fyrir einstaka
aðhlynningu í krefjandi aðstæðum.
Jenný Karlsdóttir
Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir Brynjar Bragason
Bjargey Ingólfsdóttir Brynjar Hólm Bjarnason
Magnús Ingólfsson Jóhanna Sveinsdóttir
Karl Ingólfsson
Dagbjört Ingólfsdóttir
barnabörn og langafabörn