Morgunblaðið - 08.05.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
70 ára Jörgen er Reyk-
víkingur, fæddur þar og
uppalinn, en býr í
Garðabæ. Hann er með
BA-gráðu í íslensku,
ensku og sálfræði frá
Háskóla Íslands og tók
meistarapróf í tilrauna-
sálfræði frá Háskólanum í Sussex 1977
og doktorspróf frá sama skóla 1982.
Jörgen hefur verið prófessor við sál-
fræðideild HÍ frá 1996. Hann er í heið-
ursdoktorsnefnd HÍ.
Maki: Aldís Unnur Guðmundsdóttir, f.
1950, fv. menntaskólakennari.
Börn: Lóa, f. 1970, Anna Guðrún, f. 1974,
og Finnur Kári, f. 1986. Barnabörnin eru
orðin átta og langafabörnin þrjú.
Foreldrar: Kaj Pind, f. 1910 í Kaup-
mannahöfn, d. 1989, húsgagnabólstrari,
og Anna Gudrun Pind, f. 1926 í Herning á
Jótlandi, d. 1967, húsmóðir. Þau voru bú-
sett í Reykjavík.
Jörgen
Leonhard Pind
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hvaða eigur þínar veita þér vel-
líðan? Þarftu að eignast allt? Spurðu þig
þessara spurninga.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef þú ert óánægð/ur með eitthvað
skaltu líta í eigin barm og athuga hverju þú
getur breytt. Farðu vel með sannfæringar-
kraftinn sem þú býrð yfir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Til þín er litið um lausnir erfiðra
mála. Biddu afsökunar á því sem kann að
særa aðra. Láttu ekki deigan síga þótt á
móti blási í nokkra daga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þér tíma til þess að fara í
gegnum hlutina í ró og næði. Þér verður
bent á tækifæri sem gæti gert líf þitt
spennandi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er enginn tími til að vera vand-
fýsinn núna. Leyfðu þér smá dekur. Ekki er
allt gull sem glóir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú nálgast viðfangsefni þín af mik-
illi kænsku. Þú ert ráðagóð/ur með af-
brigðum og því er þér treyst fyrir krefjandi
verkefnum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hugsar mikið um tilgang lífsins
þessa dagana. Það að komast í stutt frí
núna gæti gert gæfumuninn. Þú færð góð-
ar fréttir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert nánast að drukkna í
alls kyns verkefnum en tekst að klára þau
með því að taka á honum stóra þínum. Allt
hefur sinn tíma, mundu það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gefðu efasemdum og van-
máttartilfinningum engan gaum í dag. Ekki
lána peninga þeim sem þú treystir ekki.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gefur af þér til fólks sem er í
kringum þig. Ef þú gerir góðverk þá muntu
finna hvað það er gefandi. Miklar fram-
kvæmdir virðast fram undan hjá þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki krefjast þess að fjöl-
skyldumeðlimir séu þér sammála eða lúta
vilja þínum í einu og öllu. Þú ættir að reyna
að finna tíma til að sinna áhugamálum
þínum betur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Allt hefur sinn tíma og þú ættir að
ræða málin við þá sem þér þykir vænt um
til að fá botn í gamalt deilumál. Þér eru all-
ir vegir færir.
B
jarni Torfi Álfþórsson er
fæddur í Reykjavík 8.
maí 1960 og ólst upp á
Seltjarnarnesi, þangað
sem fjölskyldan flutti
1967. Bjarni lauk prófi frá Versl-
unarskólanum, síðan námi frá Lög-
regluskóla ríkisins 1982, námi frá
Kennaraháskólanum 1992 og námi í
kerfisfræði frá Handelskolen í Ball-
erup 1998.
Bjarni Torfi var í átta ár í umferðar-
deild lögreglunnar frá 1981 og vann
síðan sem grunnskólakennari á Sel-
tjarnarnesi árin 1992-1995. Þá tók við
6 ára dvöl í Danmörku við nám og
störf. Bjarni Torfi starfaði í þrjú ár
fyrir alþjóðafyrirtækið Oracle, en þar
vann hann við innleiðingu viðskipta-
kerfa Oracle í Sviss, Ítalíu og á öllum
Norðurlöndunum. Eftir að hafa flutt
aftur til Íslands 2001 starfaði Bjarni
Torfi hjá Skýrr í 6 ár og í framhaldi af
því hjá Símanum þar til hann hóf störf
hjá Specialisterne á Íslandi í árs-
byrjun 2011 þar sem hann er fram-
kvæmdastjóri. Specialisterne eru
samtök sem aðstoða einstaklinga á
einhverfurófi við að komast út í at-
vinnulífið.
Bjarni Torfi hefur ávallt verið mjög
virkur í félagsstarfi og þá einkum und-
ir merkjum íþróttafélagsins Gróttu,
en Bjarni stundaði allar boltaíþróttir
sem voru í boði þar sem barn og ung-
lingur og lék síðan með meistaraflokki
félagsins í hand-, fót- og körfubolta.
Bjarni Torfi var formaður félagsins í
sjö ár og formaður handknattleiks-
deildarinnar í tvö ár og er handhafi
gullmerkis félagins. Sjálfboðavinna í
þágu Gróttu er enn stór þáttur í dag-
legu lífi Bjarna. Samhliða kennslu í
Mýrarhúsakóla sinnti Bjarni einnig
félagsstarfi innan skólans og sá m.a.
um skákkennslu yngri barna og starf-
aði sem handknattleiksþjálfari yngri
stráka hjá Gróttu.
Árið 2002 var Bjarni Torfi kjörinn
bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, þar
sem hann hefur setið síðan, ef undan
eru skilin árin 2006-2010. Sem bæjar-
fulltrúi hefur Bjarni setið í stjórn
Sorpu, verið formaður skólanefndar,
skipulagsnefndar og fjölskyldu-
nefndar auk þess að vera forseti
bæjarstjórnar árin 2015-2018.
„Mér líður hreint ekki eins og ég sé
kominn á sjötugsaldurinn, en ég hef
nú meira fyrir stafni en ég hafði þegar
ég fagnaði 50 ára afmælinu. Vinna mín
hjá Specialisterne á Íslandi tekur
mestan tíma minn, auk setu minnar í
bæjarstjórn Seltjarnarness. Á sumrin
hef ég síðustu ár verið í fararstjóri í
hjólaferðum fyrir Bændaferðir, en
ferðirnar eru nú rétt um 20, vítt og
breitt um Evrópu. Áhugamál mín finn
ég svo öll í öflugasta bridgeklúbbi
landsins, en þar eru góðir vinir okkar
hjóna frá dvöl okkar í Danmörku.
Þessi vinahópur stundar hjólreiðar,
golf, gönguskíði, göngur og svo auðvit-
að bridge.
Það verður trúlega með öðru sniði
afmælið mitt á þessum tímamótum en
til stóð. Fjölskyldan og nánustu vinir
ætluðu að fagna 60 ára afmælinu í
Danmörku síðar í þessum mánuði, en
eitthvað verður sú veisla trúlega að
bíða.“
Fjölskylda
Eiginkona Bjarna Torfa er Erla
Lárusdóttir, f. 17.12. 1963, kennari.
Foreldrar hennar voru Lárus Krist-
inn Árnason, f. 30.6. 1926, d. 21.11.
1973 og Aðalheiður Ingimundardóttir,
f. 26.12. 1920, d. 25.7. 1982.
Börn Bjarna Torfa og Erlu eru 1)
Björg Bjarnadóttir, f. 20.9. 1986, líf-
efnaverkfræðingur hjá Nova Nordisk
í Danmörku. Maki: Rasmus Möller,
rafmagnsverkfræðingur hjá Rockwool
í Danmörku. Synir þeirra eru tvíbur-
arnir Viktor Bjarni og Alexander
Chor, f. 8.9. 2014; 2) Lárus Brynjar
Bjarni Torfi Álfþórsson, framkvæmdastjóri, bæjarfulltrúi og fararstjóri – 70 ára
Fjölskyldan Bjarni Torfi, Erla, börn og tengdasynir í brúðkaupi Bjargar og Rasmusar við Herlufsholm kirkju 2014.
Sjaldan haft jafn mikið að gera
Barnabörnin Á efri myndinni eru Christian Álfþór og Ísabella Erla og á
neðri myndinni eru Viktor Bjarni og Alexander.
40 ára Halldóra er
fædd og uppalin í
Reykjavík en býr í
Reykjanesbæ. Hún er
kennari að mennt og
lauk framhaldsnámi
frá University of Birm-
ingham í kennslu
blindra og sjónskertra. Halldóra er
kennsluráðgjafi og verkefnastjóri í ís-
lensku sem öðru máli á fræðslusviði
Reykjanesbæjar. Hún er varabæjarfulltrúi
og formaður velferðarráðs Reykjanes-
bæjar.
Maki: Friðrik R. Gunnarsson, f. 1979, lög-
giltur bifreiðasali, starfar hjá Hertz.
Dætur: Erna Dís, f. 2002, Elísa Helga, f.
2005 og Eydís Sól, f. 2011.
Foreldrar: Erna Haraldsdóttir, f. 1955,
ofuramma og Þorvaldur Þór Björnsson,
f. 1956, hamskeri hjá Náttúrufræði-
stofnun Íslands og æðarbóndi, búsett í
Reykjavík.
Halldóra Fríða
Þorvaldsdóttir
Til hamingju með daginnBeta Glucans IMMUNE SUPPORT+
FYRIR ÓNÆMISKERFIÐ
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Öflug blanda af vítamínum, jurtum og
steinefnum sem styrkja og styðja við
ónæmiskerfi líkamans
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is