Morgunblaðið - 08.05.2020, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
KOMIN AFTUR Í BÍÓ
TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN !
Einar Bárðarson, framkvæmda-
stjóri Votlendissjóðs, mælir með
list, afþreyingu og dægradvöl á
tímum Covid-19.
„Það eru tveir menn sem hafa
sett svip sinn á Covid-tímann minn.
Báðir hafa hafa mætt mér í gegnum
tæknina. Annar
er Helgi Björns
vinur minn, sem
hefur skemmt
mér og nánast
allri þjóðinni á
laugardögum.
Vandað og
skemmtilegt efni
og gaman að sjá
hvernig honum
tekst nánast fum-
laust að skemmta öllum aldurs-
hópum þjóðarinnar á sama tíma og
það er eins og þjóðin stilli bara
Covid-klukkurnar sínar eftir Helga
þessa daganna.
Hinn er Guðni vinur minn
Gunnarsson. Í gegnum tíðina hef ég
sótt rope yoga-tíma hjá honum, les-
ið bækurnar hans og sótt námskeið
hjá honum en núna er öldin önnur
og ekkert af því opið nema bæk-
urnar auðvitað. Frá samkomubanni
hef ég sótt 25 mínútna hugleiðslu
með öndunaræfingum hjá honum í
gegnum Facebook-síðu Rope yoga
setursins. Þetta
er bein útsending
frá honum á
hverjum morgni
kl. 6.50 og þar
sáldrar hann yfir
mann orkunni
sem maður þarf
til að takast á við
verkefnin. Svefn-
inn er manni
auðvitað hollur
en til þess að vera vaknaður í vit-
und á þessum tíma sofna ég yfirleitt
milli 10 og 11 á kvöldin og það er
magnað að vakna inn í daginn með
þessu hætti.
Þá hef ég verið að kynnast
geisladiskasafninu mínu upp á nýtt
því ég keypti vandaðan geislaspil-
ara fyrir tveimur árum sem tengd-
ur var við gæða magnara og hátal-
ara og það má segja að hljómurinn
sem kom út hafi eiginlega gert það
að verkum að ég eignaðist allt safn-
ið mitt upp á nýtt. Þessi tími núna
hefur gefið manni fjölda stunda fyr-
ir framan þessi tæki og núna er ég
til dæmis að hlusta mikið á Dream
of the Blue Turtles með Sting og
After Here Through Midland með
Cock Robin, plötur sem komu út á
miðjum níunda áratugnum, og það
er mikið ljúft að rifja þetta upp.“
Mælt með í kófinu
Ljósmynd/Mummi Lú
Stuðbolti Helgi Björns skemmti landanum vikulega í samkomubanni.
Helgi, Guðni og
ljúf upprifjun
Einar
Bárðarson
Guðni
Gunnarsson
Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun
Rithöfundasambands Íslands og
Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns verða veitt í
fjórða sinn í maí. Upplýst var í
Gunnarshúsi í gær hvaða höfundar
væru tilnefndir til Maístjörnunnar
í ár. Tilnefnd eru Jónas Reynir
Gunnarsson fyrir Þvottadagur sem
Páskaeyjan gefur út; Kristín
Eiríksdóttir fyrir Kærastinn er
rjóður sem JPV gefur út; Sigurlín
Bjarney Gísladóttir fyrir Undra-
rýmið sem Mál og menning gefur
út; Þórður Sævar Jónsson fyrir
Vellankatla sem Partus gefur út og
Þór Stefánsson fyrir Uppreisnir
sem Oddur gefur út. Tilnefndar
bækur eru allar til sýnis í anddyri
Þjóðarbókhlöðunnar.
Gjaldgengar voru allar útgefnar
íslenskar ljóðabækur ársins 2019
sem skilað var til Landsbókasafns
Íslands – Háskólabókasafns og
fékk dómnefnd þær til umfjöll-
unar. Dómnefnd skipa Guðrún
Steinþórsdóttir, fyrir hönd Rithöf-
undasambandsins, og Arnaldur
Sigurðsson, fyrir hönd Landsbóka-
safnsins.
Verðlaunin verða veitt við athöfn
í Þjóðarbókhlöðunni í maí. Verð-
launafé er 350 þúsund krónur.
Maístjarnan er einu verðlaun á
Íslandi sem veitt eru eingöngu fyr-
ir útgefna íslenska ljóðabók. Verð-
laununum er ætlað að vekja sér-
staka athygli á blómlegri ljóða-
bókaútgáfu á Íslandi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ljóðskáldin Upplýst var í Gunnarshúsi í gær hvaða fimm höfundar eru tilnefndir til Maístjörnunnar í ár.
Tilnefningar til Maí-
stjörnunnar upplýstar
Circus Days and Nights nefnist ný
ópera eftir Philip Glass sem heims-
frumsýnd verður hjá Óperunni í
Málmey í Svíþjóð 29. maí 2021.
Þessu greinir danska dagblaðið
Politiken frá, en Óperan kynnti ný-
verið komandi starfsár sitt. Um er
að ræða óperu í þremur þáttum sem
byggir á ljóðum eftir bandaríska
ljóðskáldið Robert Lax er fjalla um
líkindi heimsins við sirkus. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Óperunni í
Málmey mun sviðsetningin koma
óperugestum á óvart þar sem um
„markalausa nýsirkusupplifun“
verður að ræða í anda Cirkus
Cirkör. Þekktustu óperur Glass eru
Einstein on the Beach og Aknathan.
Samstarf tónskáldsins við Óperuna í
Málmey má rekja til þess að Þjóðar-
óperan í Stokkhólmi setti upp
óperuna Satyagraha fyrir nokkrum
árum, en sú ópera fjallar um
Mahatma Gandhi.
Morgunblaðið/Kristinn
Þríeyki Philip Glass kom fram á tón-
leikum í Hörpu árið 2014 ásamt Víkingi
Heiðari Ólafssyni og Maki Namekaw.
Ný ópera eftir Philip Glass í Málmey