Morgunblaðið - 08.05.2020, Qupperneq 32
Djassklúbburinn Múlinn hefur göngu sína á ný í Hörpu í
kvöld kl. 20 þegar Frelsissveit Nýja Íslands leikur í Flóa,
sem er á jarðhæð hússins. Sveitin var stofnuð fyrir tíu
árum og hefur legið lengi í dvala en blæs nú til sóknar.
Á efnisskránni verða tvö ný verk eftir Hauk Gröndal og
Óskar Guðjónsson en einnig verk af eldri efnisskrám
færð í nýjan búning. Sveitina skipa Snorri Sigurðarson,
Haukur Gröndal, Óskar Guðjónsson, Tómas Jónsson,
Birgir Steinn Theodórsson og Scott McLemore. Fylgt
verður tilmælum yfirvalda hvað varðar fjöldatakmark-
anir og fjarlægðarmörk á tónleikunum.
Múlinn hefst á ný í Hörpu
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 129. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Inga Þór Steinþórssyni hefur verið sagt upp störfum
sem þjálfara karlaliðs KR í körfuknattleik og flest bend-
ir til þess að Darri Freyr Atlason taki við starfinu. Þetta
hefur þó ekki verið formlega staðfest en hvorugur
þjálfaranna né formaður körfuknattleiksdeildar KR
hafa tjáð sig um málið. Morgunblaðið hefur rætt við
marga aðila sem tengjast KR og ljóst er að málið er fé-
laginu afar erfitt þar sem Ingi er uppalinn félagsmaður,
mjög vinsæll innan þess og KR er ríkjandi Íslandsmeist-
ari undir hans stjórn. »27
Tekur Darri við af Inga hjá KR?
ÍÞRÓTTIR MENNING
„Ég er svolítill lestrarhestur, yrki
mest um persónur í mínu lífi og svo
það sem mér dettur í hug.“ Hann
leggur áherslu á að sér-
staklega sé gaman að yrkja
um fólk og ættingja. „Mér
finnst alltaf best að hafa
smá grín í ljóðunum, að
stríða þeim aðeins.“ Hann
áréttar að allir hafi tekið
ertninni vel og hann hafi
meðal annars gefið frænd-
um sínum sérprentuð ljóð í
afmælisgjöf auk þess sem
hann hafi ort ljóð um forseta Íslands
og þess vegna gefið honum bókina.
„Ég orti ljóðið „Bumbubúann“ um
systur mína, þegar hún var í mag-
anum á mömmu, og hef verið að
hugsa um að yrkja annað ljóð um
hana síðan hún fæddist fyrir tveimur
og hálfum mánuði.“
Undanfarin tvö ár hefur Frosti æft
karate og hann segist vera mikið á
hjólabretti á sumrin, en þegar hann
hafi verið heima vegna kórónu-
veirunnar hafi hann meðal
annars lært að sauma poka
hjá mömmu sinni. „Eitt
mesta áhugamálið mitt er
að fara í fjöruna og safna
steinum og nú er ég helst
að semja um náttúruna,
steina og allskonar svoleið-
ist.“ Hann segir að til
standi að fara í hringferð
um landið með fjölskyld-
unni í sumar, bæta í steinasafnið og
fá hugmyndir. Þangað til verður
„Töffari“, sem hann samdi um sig
sjálfan, uppáhaldsljóð skáldsins:
Þegar ég klæðist skyrtu og skóm
þá heyrist klukknahljóm.
Er stelpurnar sjá mig verða þær trylltar
ég segi þeim að vera stilltar.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Frosti Freyr Davíðsson, 11 ára ljóð-
skáld í 6. bekk Kelduskóla, Vík í
Grafarvogi, nýtti aukinn frítíma í
samkomubanninu undanfarnar vik-
ur vel og er farinn að hugsa um að
gefa út aðra ljóðabók. „Ég les mikið,
bæði sögur og ljóð, og hlusta alltaf á
hljóðbækur þeg-
ar ég er úti að
ganga í hverfinu,
hef þá fengið
margar hug-
myndir, sér-
staklega þegar
ég hef verið á
gangi í fjörunni
og velt við stein-
um,“ segir hann.
Í nóvember í fyrra sendi Frosti
frá sér ljóðabókina Lífið og leik-
endur með um 40 ljóðum um sam-
ferðafólk og fleira. Á degi íslenskrar
tungu fékk hann Íslenskuverðlaun
unga fólksins 2019 fyrir ljóðaáhuga
og skrif, og eftirfarandi ljóð, „Mun-
um við öll deyja“, var framlag hans í
ljóðasamkeppni á Ljóðadögum Óp-
erunnar 2019:
Gróðurinn er að brenna
ferskt vatn hættir að renna.
Hitinn er að hækka
á meðan jöklarnir lækka.
Dýr eru að deyja
við megum ei ruslinu fleygja.
Að flokka þarf að nenna,
það þarf öllum að kenna.
Hvað um framtíðarbarnabörnin
já eða fljúgandi örninn.
Munum við öll deyja
eða ætlum við eitthvað að segja?
„Ég er alltaf að semja ljóð en
samt ekki eins mikið og áður en ég
gaf út bókina,“ segir Frosti, sem
byrjaði að spreyta sig á ljóðagerð í 2.
bekk. „Þá fannst mér rímorð alltaf
skemmtileg, prófaði að setja þau
saman og til urðu ljóð.“
Stríðinn lestrarhestur
Frosti segir að íslenskan sé
skemmtilegasta fagið og hún ásamt
lestri bóka ýti undir skáldskapinn.
Veltir við steinum og
fær þá hugmyndir
Frosti Freyr Davíðsson, 11 ára ljóðskáld, hugar að annarri bók
Stoltur Frosti Freyr Davíðsson fékk Íslenskuverðlaun unga fólksins 2019.