Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
„Við þessa ákvörðun stjórnvalda
skorti samráð, en það hefði verið
heppilegra að eiga samtal við hags-
munaaðila áður en ákvörðun lá fyrir.
Sviðslistirnar eru mjög kostnaðar-
samar og byggjast að mörgu leyti á
samvinnu margra listgreina, en við
erum með tónlistarfólk, myndlistar-
menn, rithöfunda og fleiri úr öðrum
listgreinum í okkar verkefnum og
sviðslistahópar sækja um laun fyrir
alla þessa aðila úr launasjóði sviðs-
listasjóðs,“ segir Birna og bendir á að
sú hækkun sem nú sé á borðinu fyrir
sviðslistirnar sé ekki nægjanleg. Við
forsvarsmenn fagfélaga í menningar-
geiranum höfum lengi kallað eftir því
að launamánuðum sjóðanna fjölgi og
þessi kaka stækki, enda eru lista-
menn og skapandi hugsun lykillinn
að framtíðinni,“ segir Birna og bætir
við: „Við erum svo lánsöm að eiga
stórkostlega listamenn hér á Íslandi,
sem af hug og hjarta skapa ómetan-
leg verðmæti fyrir samfélagið okk-
ar,“ segir Birna og bendir á að verð-
mætin séu svo samofin daglegu lífi að
„það er ógerningur að gera sér í
hugarlund hvernig líf okkar væri án
þeirra“.
Þörf á traustum innviðum
Aðspurð hvernig stuðningur
stjórnvalda hérlendis líti út í saman-
burði við þau lönd sem Ísland vill
bera sig saman við segir Birna úr-
ræðin svipuð, en hlutföllin þó önnur.
„Það er erfitt að vera í beinum sam-
anburði milli landa þar sem kerfin
eru ólík. Heilt yfir er verið að fara í
svipaðar aðgerðir hér og erlendis, en
upphæðirnar eru misjafnar. Í þessu
ástandi verður líka skýrt hversu
mikilvægt er að allir innviðir séu
traustir og menningarstofnanir
sterkar,“ segir Birna og bendir einn-
ig á að laga þurfi kerfið þegar komi
til dæmis að atvinnuleysisbótum, því
sjálfstætt starfandi listafólk passi illa
inn í módel Vinnumálastofnunar.
„Það lítur út fyrir að sjálfstætt
starfandi listafólk þurfi að bíða í
margar vikur og jafnvel til hausts til
að fá úrlausn sinna mála. Það er í
raun mesta furða hvernig sjálfstætt
starfandi listamenn lifa af hérlendis,
enda dýrt að lifa hér á sama tíma og
tekjuöflunin er mjög takmörkuð og
starfsöryggið lítið. Listamenn eru
drifnir áfram af ástríðu og hugsjón
og finna alltaf leið til að koma sköpun
sinni á framfæri,“ segir Birna og tek-
ur fram að óskandi væri að ástandið
núna gæfi tilefni til að endurskoða
framtíðarsýnina varðandi menningu,
listir og skapandi greinar. „Listræn
sköpun er ein stærsta auðlind sem
við eigum og það er í allra þágu að
hlúa vel að henni og taka hana ekki
sem sjálfsagðan hlut. Við eigum lista-
menn á heimsmælikvarða og tæki-
færin eru óþrjótandi,“ segir Birna og
bendir á að sviðslistir hafi fram til
þessa ekki átt útflutnings- eða
kynningarmiðstöð, en það standi sem
betur fer til bóta síðar á þessu ári.
Mikilvægi fagmennsku
„Það eru ótrúlega jákvæðar fréttir
og ástæða til að þakka ráðherra
menningarmála fyrir að koma þessu í
gegn. Við eigum svo mikið af verð-
mætum í sviðslistum sem á erindi á
alþjóðavettvangi og við búum auð-
vitað í alþjóðasamfélagi þótt tímarnir
séu svolítið skrýtnir í augnablikinu.
Listin er okkur einstaklega mikilvæg
því hún sameinar okkur, gefur okkur
kraft og andlegt hugrekki. Hún er
súrefnið sem samfélagið þarf svo
nauðsynlega á að halda.“
Birna segir að spennandi væri að
sjá aukið samstarf milli listamanna
og hefðbundinna atvinnugreina. „Ég
held að hefðbundar atvinnugreinar
gætu nýtt sér samstarfið við lista-
menn í mun meira mæli með því að fá
þá inn í alla hugmyndavinnu,“ segir
Birna og tekur fram að vonandi verði
núverandi ástand fólki hvatning til að
hugsa hlutina upp á nýtt.
Leikhúsið mitt hugvíkkandi efni
„Ég held að við myndum sem sam-
félag græða á því að hlusta meira á
listamenn og skapandi fólk,“ segir
Birna og bendir sem dæmi á að lista-
fólk hafi árum saman rætt um um-
hverfis- og loftslagsmál áður en þau
komust loks á dagskrá fyrir alvöru á
heimsvísu hjá bæði almenningi og
stjórnvöldum. „Í ljósi þess hversu
mikilvægar listir og skapandi greinar
eru samfélaginu skýtur það óneitan-
lega skökku við hversu lítið í reynd er
rætt um menningu, listir og skapandi
greinar inni á þingi.“
Aðspurð segist Birna nokkuð
ánægð með samtalið sem samtök
listamanna hafi átt við stjórnvöld að
undanförnu. „Allt samráð, samtal og
samstarf er af hinu góða. En það þarf
að fara fram á öllum tímum, ekki
bara krísutímum. Það þarf að setja
hlutina í faglegan farveg til fram-
tíðar. Það væri þannig óskandi að
menningin, listir og skapandi greinar
spiluðu stærra hlutverk í framtíðar-
sýn landsins – ef ekki aðalhlutverk.
Og fyrst ég minnist á fagmennsku þá
er ekki hægt annað en að hrósa fag-
fólkinu í þríeykinu góða sem er búið
að stjórna hér aðgerðum. Ef við vær-
um öll eins fagleg og þau gengi margt
örugglega aðeins betur hér í sam-
félaginu. Þegar kemur að úthlutun á
opinberu fjármagni, hvort heldur það
er til menningar, lista og skapandi
greina eða annarra atvinnugreina í
landinu, þá er fagmennska lykilatriði.
Núverandi aðstæður bjóða upp á
kærkomið tækifæri til endurskoð-
unar, tiltektar og sjálfskoðunar.
Við búum í heimi sem tekur sífelld-
um breytingum og hraðinn er mikill.
Leikhúsformið er listform augna-
bliksins og leikhúsið er samvera. Þar
getur allt gerst og þar er pláss fyrir
allt og alla. Ég held að við megum öll
aðeins meira við því og ég hlakka til
að geta farið aftur í leikhúsið í haust.
Kannski verða leikhúsin rekin með
aðeins breyttu sniði en það verður
gert af krafti og hugmyndaauðgi.
Leikhúsið er mitt löglega hugvíkk-
andi efni og ég mæli með því.“
Morgunblaðið/Eggert
„Lykillinn að framtíðinni“
„Listin sameinar okkur, gefur okkur kraft og andlegt hugrekki,“ segir Birna Hafstein,
formaður Félags íslenskra leikara og sviðslistafólks og forseti Sviðslistasambands Íslands
Gríman, Íslensku sviðslistaverðlaunin, verður veitt
við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu mánudaginn
15. júní og athöfnin verður í beinni útsendingu á
RÚV. „Í ljósi samkomubannsins sem sett var á vegna
kórónuveirufaraldursins varð leikárið 2019-2020 ögn
styttra en upphaflega var gert ráð fyrir. Við ákváðum
að fresta Grímunni ekki heldur taka þessu sem
áskorun og skemmtilegu tækifæri til að gera hlutina
aðeins öðruvísi – sem ég held að sé ágætis lífs-
mottó,“ segir Birna Hafstein og tekur fram að í ljósi
aðstæðna verði athöfnin með óhefðbundnum hætti
enda verða bæði stóru leikhúsin komin í frí á þessum
tíma eftir að hafa verið í samkomubanni síðan um
miðjan mars.
Að sögn Birnu er enn verið að vinna í útfærslu
athafnarinnar, en nú þegar er ljóst að Heimilistónar
halda utan um Grímuna í ár og leikstjóri hennar
verður, eins og síðustu ár, Helena Stefáns Magneu-
dóttir. „Við höldum þannig bara upp á það leikár sem
við höfðum, sem var pínulítið óhefðbundið og aðeins
styttra en venjulega,“ segir Birna. Upplýst verður um
tilnefningar til Grímunnar um mánaðamótin maí/júní.
Gríman í ár verður afhent mánudaginn 15. júní
HALDA UPP Á ÓHEFÐBUNDIÐ OG ÖRLÍTIÐ STYTTRA LEIKÁR EN VANALEGA
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er alltaf krefjandi að vera í for-
svari fyrir listafólk, en á sama tíma
mjög gefandi. Í grunninn er starfs-
öryggi listafólks mjög lítið, þannig að
við erum öllu vön. Núverandi ástand
er hins vegar einstakt og ljóst að
bæta þarf sviðslistafólki það upp þeg-
ar því er vikum og mánuðum saman
meinað að vinna eftir hefðbundum
leiðum,“ segir Birna Hafstein, for-
maður Félags íslenskra leikara og
sviðslistafólks og forseti Sviðslista-
sambands Íslands.
Samkomubannið sem sett var á
hérlendis 16. mars til að hefta út-
breiðslu kórónuveirunnar hefur svipt
fjölda listamanna framfærslumögu-
leikum sínum eins og fram kom í
könnun sem Sviðslistasambandið í
samstarfi við Sjálfstæðu leikhúsin lét
gera meðal félagsmanna sinna.
„Staðan er alvarleg, en sem betur fer
er verið að bregðast við henni, þótt
enn megi vissulega gera betur,“ segir
Birna, sem ásamt fleiri forsvars-
mönnum listafólks hefur átt samtal
við stjórnvöld á síðustu vikum um
hvernig best sé að bregðast við.
Stækka þarf kökuna
„Það er bæði eðlilegt og ber vott
um fagmennsku að bjóða samtökum
listamanna til samtals um allar mikil-
vægar ákvarðanir, ekki bara í núver-
andi árferði heldur alltaf,“ segir
Birna og fagnar því að verið sé að
setja aukið fjármagn í menningar-
sjóði, þótt fyrirhuguð hækkun dugi
að hennar mati skammt. Umsóknar-
frestur átaksverkefnis stjórnvalda
rann út fyrir helgi og samkvæmt
upplýsingum frá Rannís barst met-
fjöldi umsókna, alls 541 umsókn, í
Tónlistarsjóð, sem fékk 86 milljónir
aukalega til úthlutunar, og 192 um-
sóknir til Leiklistarráðs, sem fékk 99
milljónir aukalega, og er stefnt að því
að svara umsækjendum í byrjun júní.
„Þessi metfjöldi umsókna endur-
speglar auðvitað þörfina,“ segir
Birna og tekur fram að átaksverk-
efnið nái samt aðeins til lítils hluta
sjálfstæða listageirans. Fyrir þinginu
liggur tillaga ríkisstjórnarinnar um
að fjölga mánaðarlaunum listamanna
í ár úr 1.600 í 2.200. Um væri að ræða
250 milljóna króna hækkun, sem
skiptist samkvæmt sömu hlutfalls-
skiptingu og fram kemur í lögum um
listamannalaun sem þýðir að rithöf-
undar fá tæplega 35% starfslauna,
myndlistarmenn 27 prósent, hönn-
uðir þrjú prósent, sviðslistafólk tæp
12 prósent, tónskáld tæp 12 prósent
og tónlistarflytjendur 11 prósent.
Auðlind „Listræn sköpun
er ein stærsta auðlind sem
við eigum,“ segir Birna Haf-
stein, forseti Sviðslista-
sambands Íslands.
544 5151tímapantanir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir
ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is