Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sáð verður í mánuðinum fyrir fyrstu
salathöfðunum í nýrri garðyrkjustöð
eiganda Lambhaga á jörðinni Lundi
í Mosfellsdal. Stöðin er búin sjálf-
virkum búnaði sem Hafberg Þóris-
son lét hanna og smíða þannig að
sáningu, ræktun og skurði salatsins
er stjórnað úr tölvu og garðyrkju-
maðurinn þarf ekki að koma inn í
gróðurhúsið nema til eftirlits.
Unnið er að lokafrágangi fyrsta
áfanga nýju garðyrkjustöðvarinnar
en hann er 7.000 fermetrar að
stærð, svipaður og knattspyrnuvöll-
ur í fullri stærð. Fullbyggð verður
stöðin 21 þúsund fermetrar, auk að-
stöðu- og íbúðarhúsnæðis.
Unnið hefur verið að fram-
kvæmdinni í hálft annað ár en Haf-
berg hefur undirbúið verkefnið í
mörg ár. Hann á sjálfur jörðina
Lund.
Ræktun stjórnað úr einni tölvu
Hafberg tók upp samvinnu við
danskan framleiðanda tæknibún-
aðar fyrir stöðina. Hann vildi auka
sjálfvirknina enn frekar en enginn
framleiðandi treysti sér til að smíða
þannig búnað. „Það varð til þess að
við settum sjálfir upp smiðju á Fjóni
og smíðuðum tækin þar. Þau voru
prófuð úti og eru nú komin upp í
stöðinni og virka vel,“ segir Haf-
berg.
Hann segist ekki hafa hug á því
að hefja framleiðslu á tækjum fyrir
aðra. Telur þó víst að hann muni fá
heimsóknir að utan, þegar kórónu-
veirufaraldurinn verður genginn
yfir. Vel geti verið að samstarfs-
menn hans ytra vilji taka upp fram-
leiðslu á tækjum fyrir aðra.
„Þetta gefur manni dálítinn
kraft,“ segir Hafberg þegar hann er
spurður hvernig tilfinning það sé að
koma hugmynd sinni í framkvæmd.
„Ég sat uppi með hálfbyggt hús og
varð að gera eitthvað.“
Vélasamstæðan er sambyggð og
ferlinu frá sáningu til skurðar sal-
atsins er stjórnað úr einni tölvu.
Ræktunin fer fram á tveimur hæð-
um sem báðar eru með ræktunar-
lýsingu. Ungplönturnar eru rækt-
aðar á neðri hæðinni en lyftast upp
á efri hæðina eftir vissan tíma og
færast smám saman til baka að
skurðarvélinni. Reiknað er með að
ræktunin taki 22 daga en Hafberg
segir óvarlegt að fullyrða of mikið
um tímann, hann geti breyst en alla-
vega taki ræktunin ekki meira en
mánuð.
Ætlunin er að rækta nokkrar teg-
undir salats í stöðinni, smálaufa-
salat, og eru sumar þeirra nýjung
hér á markaði. Hann vonast til að
markaður sé fyrir þessa afurð.
„Kannski vill þetta enginn,“ segir
Hafberg og minnir á að lítill mark-
aður hafi verið fyrir salat hér á landi
þegar hann hóf framleiðslu í Lamb-
haga fyrir 40 árum. Hann hafi orðið
að kenna fólki að borða salat.
Þreföldun á næstu árum
Kostnaður við þennan fyrsta
áfanga verður um 1,1 milljarður kr.
að sögn Hafbergs. Hann vonast til
að geta hafist handa við annan eins
áfanga í haust eða á næsta ári.
Aðeins tveir eða þrír starfsmenn
verða í Lundi, garðyrkjumaður og
tæknimaður, auk starfsmanns sem
kemur frá Lambhaga.
Stöðin í Lambhaga er 15 þúsund
fermetrar að stærð og þar eru 22
starfsmenn. Þeir munu þjóna Lundi
að hluta til, til dæmis sölumenn.
Stöðin í Lambhaga er einnig öðru-
vísi uppsett og því mannaflsfrekari.
Starfsmennirnir í vélasalnum í
Lundi geta annað stjórnun og eftir-
liti í mun stærri stöð og telur Haf-
berg að hann þurfi ekki að bæta við
starfsfólki að ráði þótt stöðin verði
tvöfölduð.
Efins um garðyrkju í Reykjavík
Spurður um framtíðina í Lamb-
haga segir Hafberg að hann muni
vera þar áfram með framleiðslu, á
meðan það verði hægt. Hann telur
þó að athygli stjórnenda borgar-
innar beinist aðallega að þéttingu
byggðar og reiðhjólastígum og efast
um að hægt verði að stunda garð-
yrkju til frambúðar í Reykjavík.
Gefur manni dálítinn kraft
Nýjar tegundir af salati verða framleiddar í nýrri alsjálfvirkri garðyrkjustöð í Lundi í Mosfellsdal
Hafberg Þórisson setti upp eigin smiðju í Danmörku til að framleiða búnaðinn sem hann vildi fá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðaleigandi Hafberg Þórisson og samstarfsmenn hans eru að leggja lokahönd á uppsetningu búnaðar í nýja húsinu. Sáð verður fyrir salati á næstunni.
Mosfellsdalur Í fyrsta áfanga uppbyggingar í Lundi eru sjö þúsund fermetra gróðurhús. Bakkakot í bakgrunni.
Tölvustýring Ræktun salats í Lundi verður alsjálfvirk og stýrt af tækni-
manni úr einni tölvu. Verið er að setja tæknibúnaðinn upp.
Síðumúli 13
108 Reykjavík
S. 577 5500
ibudaeignir.is
Halldór Már
Sverrisson
Löggiltur fasteignasali
S: 898 5599
halldor@ibudaeignir.is
Evert
Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
S: 823 3022
evert@ibudaeignir.is
Ólafía
Pálmadóttir
Viðskiptafr./lögg. leigumiðlari
S: 864 2299
ibudaeignir@ibudaeignir.is
VILTU BJÓÐA ÍBÚÐINA ÞÍNA
TIL LANGTÍMALEIGU?
Tökum að okkur að útvega
trausta leigjendur.
Traust og fagleg þjónusta.
Allar nánari upplýsingar veitir: