Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrum
aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á
þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til
framhaldsnáms erlendis á skólaárinu 2020-2021.
Veittur er einn styrkur að upphæð 1.500.000 kr.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og framtíðaráform, sendist til formanns
sjóðsins á netfangið: jpj@i8.is fyrir 21. júní nk.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka eða önnur gögn sem sýna
hæfni umsækjenda.
2019GeirþrúðurA.Guðmundsdóttir- selló
2018HrafnhildurM.Guðmundsdóttir-selló
2017 Sölvi Kolbeinsson-saxófón
2016BaldvinOddson-trompet
2015RannveigMarta Sarc-fiðla
2014Sólveig Thoroddsen-harpa
2013Hulda Jónsdóttir-fiðla
2012BenediktKristjánsson-söngur
2011Matthías I. Sigurðsson-klarinett
2010GunnhildurDaðadóttir-fiðla
2009Helga ÞóraBjörgvinsdóttir-fiðla
2008 JóhannNardeau-trompet
2007MelkorkaÓlafsdóttir-flauta
2006Elfa RúnKristinsdóttir-fiðla
2005ÖgmundurÞór Jóhannesson-gítar
2004VíkingurHeiðarÓlafsson-píanó
2003BirnaHelgadóttir-píanó
2002LáraBryndís Eggertsdóttir-orgel
2001PálínaÁrnadóttir-fiðla
2000HrafnkellOrri Egilsson-selló
1999UnaSveinbjarnardóttir-fiðla
1998ÁrniHeimir Ingólfsson-píanó/tónv.
1997ÞórðurMagnússon-tónsmíðar
1996 IngibjörgGuðjónsdóttir-söngur
1995SigurbjörnBernharðsson-fiðla
1994GuðniA. Emilsson-hljómsveitarstj.
1993TómasTómasson-söngur
1992ÞóraEinarsdóttir-söng
Styrkur til
tónlistarnáms
Ím
y
n
d
u
n
a
ra
fl
/
M
-J
P
J
f y r r u m s t y r k þ e g a r
MINNINGAR
SJÓÐUR
JPJ
www.minningarsjodur-jpj.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Allt hefur sinn tíma en ég tel mig
nú vera búinn að standa vaktina.
Þetta eru að verða komin 32 ár síðan
ég byrjaði,“ segir Árni Róbertsson,
kaupmaður á Vopnafirði.
Árni hefur ákveðið að hætta versl-
unarrekstri 1. júlí næstkomandi. Þá
verður skellt í lás í versluninni
Kauptúni og sjoppunni Robbanum,
en þetta hafa um árabil verið einu
sölustaðir nauðsynjavara fyrir íbúa
á Vopnafirði. Reksturinn er þó til
sölu svo ekki er útséð um að einhver
grípi gæsina.
„Það er að mínu mati mjög erfitt
að vera einstaklingur í þessum
geira. Það er ekki alltaf rétt gefið,“
segir Árni og jánkar því að erfitt sé
að keppa við stórar verslanakeðjur.
Hann segir að rekstur verslunar-
innar hafi gengið vel en síðustu tveir
vetur hafi þó verið mjög erfiðir.
Loðnubrestur hafi sett svip sinn á
bæjarlífið. „Það er svo mikil innspýt-
ing þegar þessar vertíðir eru og við
höfðum fengið mjög góð ár fram að
því. En svo safnast upp erfiðleikar.“
Árni hóf verslunarrekstur ásamt
Guðrúnu Steingrímsdóttur eigin-
konu sinni í bílskúrnum sínum árið
1988. Fimm árum síðar opnuðu þau
Kauptún, sem er matvöruverslun
með meiru. Eftir að kaupfélagið á
staðnum lagði upp laupana flutti
Kauptún í húsnæði þess árið 2004.
Síðan þá hefur það verið eina versl-
unin í bænum. Í fyrra tóku Árni og
synir hans einnig að sér rekstur
sjoppunnar á Vopnafirði.
Árni segir að persónulegar ástæð-
ur ráði því að þessi ákvörðun er tek-
in núna. „Það hafa einhverjir sýnt
rekstrinum áhuga en það er ekkert í
hendi. Í þessu ástandi undanfarið
hefur svo sem ekkert verið hægt að
ferðast hingað en það hafa verið
fyrirspurnir.“
Kaupmaðurinn kveðst ekki hafa
miklar áhyggjur af framtíð versl-
unarreksturs í bænum. „Nei, ég er
sæmilega bjartsýnn á að það verði
búð hérna áfram. Ég hef haft góðan
og tryggan kúnnahóp og hef notið
góðs stuðnings frá HB Granda og
síðan Brimi. Ég er mjög stoltur af
sveitungum mínum og samskiptum
við þá.“
Hættir verslunarrekstri á
Vopnafirði eftir rúm 30 ár
Kauptúni verður lokað 1. júlí Erfitt að keppa við risa
Ljósmynd/Aðsend
Feðgar Árni á milli sona sinna, Steingríms til vinstri og Nikulásar Alberts
til hægri. Myndin var tekin á 30 ára afmæli Kauptúns fyrir tveimur árum.
Allt að 200 manns mega koma saman
frá og með 25. maí, þegar næsta
stóra skref í afléttingu samkomutak-
markana verður tekið. Fjöldatak-
mörkunin miðar nú við 50 manns.
Upphaflega var stefnt að því að talan
yrði næst hækkuð í 100 en í ljósi já-
kvæðrar þróunar kórónuveiru-
faraldursins síðustu daga verður far-
ið hraðar í afléttingar takmarkana.
Eitt smit greindist síðastliðinn
sólarhring, það fyrsta í sex daga, en
viðkomandi var í sóttkví er hann
greindist. Eru greind smit kórónu-
veirunnar hér á landi því 1.802, en
þar af eru virk smit einungis 12.
Enginn liggur nú á sjúkrahúsi með
veiruna en enn eru níu sjúklingar á
Landspítala sem ekki eru með veir-
una en eru að ná sér af veikindum af
völdum hennar.
Á mánudag, 18. maí, verður heim-
ilað að heimsækja sjúklinga á deild-
um Landspítalans með ákveðnum
skilyrðum. Í Fossvogi og við Hring-
braut verður aðeins einum aðstand-
anda, og fylgdarmanni ef nauðsyn
krefur, heimilt að heimsækja sjúk-
ling í að hámarki eina klukkustund í
senn, en spítalinn verður opinn fyrir
heimsóknir á milli klukkan 16 og 19.
350 mega fara í
Laugardalslaug
Á mánudag verða sundlaugar
sömuleiðis opnaðar á ný. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir sagði á
blaðamannafundi almannavarna í
gær að miðað yrði við að laugar
mættu taka við helmingnum af hefð-
bundnum hámarksfjölda gesta. Í
samtali við Morgunblaðið segir
Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri
rekstrar og þjónustu hjá ÍTR, sem
rekur sundlaugar borgarinnar, að
miðað verði við að um 350 gestir geti
verið í Laugardalslaug samtímis en
á bilinu 100-200 í öðrum laugum.
Skipta þarf stærri laugum upp í
svæði til að tryggja að fjöldi á hverju
svæði fari ekki yfir leyfilegt hámark.
Þá hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvort allir hlutar lauga, á borð
við gufubað og vatnsrennibrautir,
verði opnir.
Opna má krár og skemmtistaði 25.
maí og mega þau þá hafa opið til
klukkan ellefu á kvöldin. Staðirnir
hafa verið lokaðir frá því í mars, en á
sama tíma hafa veitingastaðir, sem
jafnan selja áfengi, mátt halda opnu
og hefur það lagst misjafnlega í
skemmtistaðaeigendur.
Engum vísað úr landi
Á blaðamannafundinum var Þór-
ólfur spurður út í fyrirætlanir
stjórnvalda um að skima fyrir veir-
unni meðal ferðamanna á Kefla-
víkurflugvelli. Sagði hann að fólki
sem greindist með veiruna yrði ekki
vísað úr landi og því þyrfti að
tryggja því sjúkrahúsvist. alexand-
er@mbl.is
Allt að 200 manns mega
koma saman frá 25. maí
Slakað á heimsóknarbanni og opna má bari að nýju
Ljósmynd/Lögreglan
Tilslakanir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kynnti næstu skref í aflétt-
ingu samkomutakmarkana í gær. 200 manns mega koma saman frá 25. maí.
1.780 hafa náð bata
1.802 smit voru
staðfest í gær kl. 13.00
10 einstaklingar eru látnir
19.743 hafa lokið sóttkví
692 eru í sóttkví
1 einstaklingur er á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
1 nýtt smit tilkynnt í gærÞar af var
12 einstaklingar eru með virkt smit og
eru í einangrun
Mikil óánægja er innan samninga-
nefndar Flugfreyjufélagsins með
þá ákvörðun Icelandair að senda
öllum félagsmönnum Flugfreyju-
félagsins tölvupóst með kynningar-
bæklingi á tilboði félagsins að
kjarasamningi og yfirferð á alvar-
legri stöðu flugfélagsins.
Í bréfi sem Sigrún Jónsdóttir,
formaður samninganefndar flug-
freyja, sendir félagsmönnum segir
hún að skrif forstjórans séu í besta
falli „grafalvarlegt inngrip í kjara-
samningsviðræður“. Samninga-
nefnd flugfreyja hafi þegar kynnt
tilboð Icelandair fyrir flugfreyjum,
sem feli í sér tugprósenta launa-
lækkun og afsal á réttindum, en
það mætti mikilli andstöðu meðal
félagsmanna.
Segir Sigrún að forsvarsmenn
Icelandair hafi með póstinum til fé-
lagsmanna gengið á bak orða sinna,
en þeir hafi áður staðfest að ekki
stæði til að senda slíkan póst.
Flugfreyjufélagið hafi enda mót-
mælt því að fyrirtækið hygðist
grípa á þennan hátt inn í kjara-
viðræður og studdi lögfræðingur
ASÍ félagið með vísan í lög um
vinnudeilur og verkföll.
Samningafundi í gær lauk án
niðurstöðu og ekki er útlit fyrir að
boðað verði til frekari funda, að því
er segir í tilkynningu frá Iceland-
air.
Í kapphlaupi við tímann
Í póstinum sem Bogi Nils Boga-
son, forstjóri Icelandair, sendi flug-
freyjum í gær segir að Icelandair
Group rói nú lífróður og hafi
neyðst til að segja upp stórum
hluta starfsfólks.
„Við vinnum nú í kapphlaupi við
tímann að því að tryggja framtíð
félagsins til lengri tíma og störf
okkar allra,“ segir í póstinum.
Þá segir Bogi að tilgangurinn
með póstsendingunni sé að veita
upplýsingar um samningstilboð fé-
lagsins milliliðalaust, en Flug-
freyjufélagið hafði áður sent félags-
mönnum tillögurnar með athuga-
semdum. Segir hann að í nú-
gildandi kjarasamningum séu mörg
ákvæði sem byggist á gömlum for-
sendum, frá þeim tíma er sam-
keppni á markaði var gjörólík því
sem nú er. alexander@mbl.is
„Grafalvarlegt
inngrip“ í
kjaraviðræður
Tíminn okkar að renna frá okkur,
segir Bogi Nils í bréfi til flugfreyja
Morgunblaðið/Eggert
Kjör Icelandair kallar eftir róttæk-
um breytingum á kjarasamningum.