Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 50
þörfum. Markmiðið er að vera alltaf sjálfbær þannig að ef þú endar á ein- hverjum kynngimögnuðum stað sem þú vilt alls ekki yfirgefa þá þarftu þess ekki. Tilbúið kjöt í kryddlegi er líka snjöll lausn enda geymist það vel og er gott að eiga. Kartöflusalöt, tilbúnar sósur og fleira í þeim dúr er gott að eiga en gleymið ekki grænmeti og ávöxtum á ferðalaginu. Svo á ég alltaf soðin egg og harðfisk, auk prótein- og granóla- stykkja sem gott er að grípa í eftir gönguferðir og góða útivist. Uppskrift að túnfisksalatinu Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi hjá mér enda er hún eins einföld og hugsast getur. Ég geri yfirleitt marg- faldan skammt auk þess sem ég á allt- af soðin egg inni í ísskáp þannig að auðvelt er að laga það við minnsta til- efni. Ég vil hafa majónesið fremur feitt en það er ekkert mál að hafa það létt – eða jafnvel skipta yfir í kotasælu sé það efst á listanum. Þessi hlutföll eru hins vegar góð til viðmiðunar. Túnfisksalat 1 dós túnfiskur í vatni 4 harðsoðin egg ½ rauðlaukur ½ grænt epli (má sleppa) Hellmanns-majónes eftir smekk Salt og pipar Sigtið vatnið frá túnfisknum og sax- ið rauðlaukinn mjög smátt. Skerið eggin niður með eggjaskera á tvo vegu svo þau fari í litla bita. Blandið öllu saman í skál og setjið majónesið saman við. Ég nota alltaf Hellmanns. Bæði af því að mér finnst það gott og svo líka af því að hægt er að fá það í mismunandi gerðum eftir því hverju þú ert að leita að. Ég set að meðaltali 6 matskeiðar eða þar um bil en það fer svolítið eftir því hvernig ég vil hafa salatið. Prófaðu þig áfram hér enda misjafnt hvernig fólk vill hafa sal- atið. Ég krydda svo vel með salti og pipar og nota alltaf sjávarsalt. Tengda- mamma notar svo alltaf Aromat en hún er sögð gera besta túnfisksalat í heimi og tek ég hiklaust undir það. Gott salat er gulli betra Það er fátt betra en að gæða sér á góðu snarli eftir útiveruna. Á ferð og flugi Húsbílar eru ekki gerðir til þess að hossast um á háfjallavegum. Bara alls ekki og ég ræð öllum frá því að reyna þá vitleysu. Haldið ykkur við malbik- aða þjóðvegi og verið með smá plan um hvar á að gista. Tjaldsvæðin eru æskilegasti áningarstaðurinn þar sem þið komist í rafmagn þar en það er auðvitað ekki nauðsynlegt því á húsbíl getið þið í raun stoppað hvar sem er og það sjást engin verksummerki eftir ykkur né bílinn. Hitakerfið gengur fyr- ir gasi þannig að rafmagnið er ekki nauðsynlegt. Víða eru merkingar um að ekki megi hafa bílinn yfir nótt á svæðinu. Það er gott og vel en jafn- framt er snjallt að spyrjast fyrir og fá ráðleggingar heimamanna um hvar mætti mögulega leggja bílnum yfir nótt sé tjaldvæði ekki laust eða nálægt – eða ef ykkur langar að vera í friði. Stærsti kosturinn að mínu mati (fyr- ir utan auðvitað þægindin) var hversu auðvelt það var að ferðast í honum. Maður bókstaflega keyrði á milli áhugaverðra staða og var einhvern veginn alltaf tilbúinn í allt. Spurningar eins og „hvar eigum við að borða há- degismat“ voru sjálfsagðar því hreyf- anleikinn er svo mikill. Skemmtilegt er að brjóta upp ferðalagið með því að fara á kaffihús og veitingastaði sem eru óðum að opnast þessa dagana og undirbúa sig fyrir komu ferðamanna sem verða flestir innlendir í sumar ef að líkum lætur. Það er gott að sýna stuðning í verki og versla við veit- ingafólkið okkar sem leggur hart að sér alla daga við að þjóna gestum og gangandi. Þetta er hörkuvinna og við skulum virða það. Guð blessi Gunnar Helgason Ég hef lengi ætlað að fá mér Story- tel-aðgang og lét loks verða af því, sannfærð um að það gerði fjölskyld- unni gott að hlusta á gott íslenskt mál meðan ekið væri. Ég er með fínan ferðahátalara sem var aftur í setustofu hjá krökkunum sem höfðu það eins og farþegar á fyrsta farrými. Fyrsta bók- in sem varð fyrir valinu var Siggi sítr- óna eftir Gunnar Helgason sem var lesin af honum sjálfum. Án þess að orðlengja neitt að óþörfu um snilldina sem Storytel og Gunnar Helgason eru þá las hann bókina með svo miklum til- þrifum að öll fjölskyldan engdist um af hlátri meðan hvert áfallið í lífi söguper- sónanna reið yfir með katastrófískum afleiðingum. Það var engu líkara en Gunni sæti aftur í á Saga Class með krökkunum og skemmtunin var slík að tíminn á veginum leið ógnarhratt. Sér- staklega fyrir dóttur mína sem er ekk- ert alltof hrifin af löngum bílferðum. Nauðsynlegt nesti Þó þú getir vel matreitt í bílnum er ákjósanlegt að vera með eins mikið tilbúið og hugsast getur. Sjálfri finnst mér nauðsynlegt að eiga alltaf tilbúin salöt til að taka með. Á ég þá við tún- fisk- og rækjusalöt sem hægt er að borða hvenær dags sem er. Vertu búinn að ákveða hvað þú ætl- ar að hafa í matinn og gera nákvæman lista yfir hvað þú þarft að eiga. Það er vissulega hægt að versla í ferðalaginu sjálfu en sjálfri þykir mér best að vera með góðan grunn og bæta svo við eftir Í fimmtán ár hefur mig dreymt um að leigja húsbíl og ferðast um landið. Nú þegar aðstæður eru eins og þær eru vegna heimsfaraldursins eru húsbílar orðnir vænlegur kostur til að leigja fyrir Íslendinga í leit að ævintýrum. Ég ákvað að ríða á vaðið í maí og kanna lendur landsins og hvernig það er að ferðast í húsbíl. Morgunblaðið/ÞS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020  Glamping hvað! Þetta er eins og hótelherbergi á hjólum.  Sundbann er ekki vandamál þegar þú ert með sturtu um borð.  Það er klósett í bílnum og það er stórfínt.  Þú getur ákveðið hvaða útsýni þú vilt hafa yfir matnum.  Þú ert örugg/ur í hvaða veðri sem er.  Þú getur vaskað upp.  Farið í bílalúgu – það er ekki hægt í hjólhýsi.  Kuldi er ekki vandamál.  Það er fremur auðvelt (ef maður er jafn skipulagður og ég) að hafa sig til og hundskast af stað. Athugið að listinn er ekki tæmandi  Arnarstapi  Sölvahamar  Miðgjá og Eystrigjá  Ganga yfir í Hellnar  Rauðfeldsgjá  Djúpalónssandur  Lóndrangar  Vatnshellir  Snæfellsjökull  Bjarnarhöfn  Stykkishólmur  Ólafsvík  Grundarfjörður  Rif  Hellissandur Staðir sem nauðsynlegt er að skoða á Snæfellsnesi Kostir þess að ferðast í húsbíl Ferðast á fyrsta farrými Frábær ferðamáti Það kemur glettilega á óvart hversu þægilegur ferðamáti húsbílar eru. Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Það hefur lengi loðað við húsbíla- eigendur að þeir séu upp til hópa eldri borgarar í samstæðum jogg- inggöllum og með sólskyggni í stíl. Eftir að hafa farið í jómfrúarferðina, full tilhlökkunar, get ég staðhæft að húsbílar eru svalasti ferðamáti sem sögur fara af. Að auki er bíllinn net- tengdur þannig að auðvelt var að setja upp heimaskrifstofu þegar á þurfti að halda enda þurfa blaða- menn matarvefsins ferðafrelsi til að kynnast af eigin raun hverju landinn er að gæða sér á. Glæsilega par excellence! Til er það hugtak á ensku sem kallast glamping og er samruni orðanna glamorous (í. glæsileiki) og camping (í. útilega). Þetta er notað yfir lúxus-útilegur þar sem þæg- indin eru slík að orð ná vart yfir það. Íslenska þýðingin á þessu gæti verið glæsilega, sem á vel við um ferðalög í húsbíl, sérstaklega ef þú tekur þetta alla leið. Ég tók til að mynda með mína eigin sængur og kodda enda finnst mér það skipta máli. Ég pakkaði ekki miklum fatnaði og óþarfa en var búin að gera lista þannig að ég var með allt sem ég þurfti þannig að þetta var eins og að fara til útlanda. Eins æðislegt og það er að gista í tjaldi uppi á öræfum er líka frábært að prófa hitt. Jólakortamyndin í ár Eystrigjá á Arnarstapa er góður minnisvarði um mikilfengleika íslenskrar náttúru. Morgunblaðið/ÞS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.