Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.05.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Hreppamenn eru ekki nýtt fólk fyrir mér, ég er fædd og uppalin hér í sveitinni. Þar fyrir utan hef ég sinnt þessu svæði í sex og hálft ár sem dýralæknir, því ég var að vinna á dýralæknastofu á Hellu al- veg frá því ég kom heim úr námi og hef mikið sinnt veikum skepnum hér á svæðinu, enda hef ég allan þann tíma búið á Flúðum,“ segir Guðríður Eva Þórarinsdóttir dýra- læknir, en hún opnaði sína eigin dýralæknastofu á Flúðum í Hruna- mannahreppi um síðustu páska. Guðríður er aðeins 31 árs og segist snemma hafa ákveðið að verða dýralæknir. „Ég var bara krakki þegar ég vissi hvað ég vildi verða, enda hef ég alla tíð verið með óstjórnlega dýrasýki. Langamma og langafi voru með kúabú í Reykjadal hér í sveit, en ég flutti þangað með for- eldrum mínum frá Flúðum þegar ég var níu ára. Á bernskuárum mínum í Reykjadal voru foreldrar mínir með hross en kúabúskapur- inn var aflagður. Þó að ég sé hrifin af öllum dýrum finnst mér þau misskemmtileg. Mér er til dæmis alveg sama þótt ég þurfi aldrei að meðhöndla páfagauk,“ segir Guð- ríður og hlær. Náði í skagfirskan hestamann „Ég sinni öllum tegundum af dýrum en þau eru ólíkir einstak- lingar, rétt eins og fólk. Kettir geta til dæmis verið afskaplega van- þakklátir sjúklingar, sumir bíta þegar ég er að sinna þeim, en aðrir eru mjög góðir og prúðir. Ég fæ smærri dýr á stofuna til mín, hunda og ketti, en ég keyri heim á bæina ef ég þarf að sinna stór- gripum, hrossum og kúm, sem og kindum,“ segir Guðríður og bætir við að hún keyri stundum enn aust- ur í Rangárvallasýslu og sinni fyrr- verandi viðskiptavinum þar. „Dýralæknastofunni á Hellu, þar sem ég starfaði ásamt öðrum dýra- læknum, var lokað. Ég byrjaði að vinna þar þegar ég var að skrifa lokaritgerðina mína og mér stóð til boða að kaupa reksturinn þar og halda áfram ein eftir að hinir hættu. Mig langaði meira að vera hér á Flúðum, enda er þetta heimasveit mín og ég hef búið á Flúðum alveg frá því ég kom heim frá Danmörku úr dýralæknanám- inu, svo það var nærtækara,“ segir Guðríður, sem sinnir líka skepnum í nágrannasveitunum, Biskups- tungum og Skeiða- og Gnúpverja- hreppi. Hún er mikil hestakona og náði sér auðvitað í hestamann úr Skaga- firði, Jón William Bjarkason, sem starfar sem járningamaður. „Við erum með þó nokkuð af hestum og ræktum líka ástralska fjárhunda.“ Hefja verk Kindin Pála fékk strax í upphafi slakandi sprautu og Óskar hélt í hana á meðan, en Una fylgdist með úr garðanum. Skorið Guðríður þurfti að skera nokkur lög, í húð, þrjá vöðva og í legið. Hún gekk faglega til verksins og allt gekk að óskum. Undirbúningur Eftir rakstur, sótthreinsun og deyfingu setti Guðríður haft á Pálu, til öryggis fyrir skurðaðgerðina. Saumaskapur Að lokum saumaði Guðríður saman alla skurðina, nokkur lög, gimbrarnar litlu biðu þolinmóðar eftir að fá að fara á spena mömmu. Bráðakeisari í fjárhúsi á prestsetri  Kindin Pála lenti í þeim ósköpum að skera þurfti úr henni lömbin, því engin opnun var á leghálsi  Hóað var í Guð- ríði dýralækni sem framkvæmdi keis- araskurð  Bændurnir Óskar og Una í Hruna glöddust yfir gimbrum tveim Morgunblaðið/Eggert Annað?! Hið óvænta lamb númer tvö dregið beint úr legi móður sinnar og Una tekur við til að hjálpa því að draga fyrsta andann. N E T D A G A RN E T D A G A R 20% AFSLÁTTUR 15. - 17. MAÍ WWW.LIFSTYKKJABUDIN.IS Sauðburður í sveitinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.