Morgunblaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hefur þú prófað nýju kjúklingasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A Meiri samkeppnishæfni  Samningar flugmanna við Icelandair náðust Aukið vinnuframlag og meiri sveigj- anleiki starfsfólks gagnvart vinnu- veitanda eru lykilatriði í nýjum kjarasamningi Félags íslenskra at- vinnuflugmanna og Icelandair Group sem náðist í fyrrinótt. Samn- ingurinn var kynntur flugmönnum í gær og atkvæðagreiðsla um efni hans stendur í sjö daga. Segi flug- menn já er slíkt innlegg í að fá skýr- ar línur í fjármál Icelandair fyrir hluthafafund í fyrirtækinu sem verð- ur 22. maí. „Gerðar voru verulegar breyting- ar sem tryggja aukið vinnuframlag flugmanna og gefa félaginu aukinn sveigjanleika til þróunar á leiðakerfi Icelandair,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair í tilkynningu. Eftir Jóni Þór Þorvaldssyni for- manni FÍA er haft að flugmenn hafi náð sínu fram en jafnframt hafi sam- keppnishæfni Icelandair styrkst. Samningar milli Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hafa enn ekki náðst og fundur hjá ríkissáttasemj- ara hefur enn ekki verið boðaður. Í gær var gengið frá samningum milli ríkisins og Icelandair um ferðir til Evrópu og Bandaríkjanna til og með 27. júní og hugsanlega lengur. Flogið er til Boston, London og Stokkhólms og hugsanlega verður New York og Kaupmannahöfn bætt við. Fyrir þetta greiðir ríkið 300 millj. kr., en tekjur Icelandair af ferðunum lækka greiðslur. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Icelandair Á vængjum breiðum. „Tilhlökkunin er fölskvalaus. Flest- ir prestar bíða heldur ekki boðanna og messa strax,“ segir Pétur G. Markan, samskiptastjóri þjóðkirkj- unnar. Guðsþjónustur verða í kirkjum víða um landið á morgun, sunnudag, en kirkjustarf hefur leg- ið í láginni sl. tvo mánuði í sam- komubanni vegna kórónuveirunnar. Í Morgunblaðinu í dag eru aug- lýstar messur víða um landið, en þar er mikilvægi hreinlætis undir- strikað og þess að fara með gát. „Aðstæður hafa fært kirkjuna fram og fjarþjónusta yfir netið er komin til að vera. Svo höfum við lært og fundið hvað mannlegt samneyti er mikilvægt, enda þáttur í boðskap kirkjunnar,“ segir Pétur. Hann seg- ir flestar fermingar sem fram áttu að fara í vor hafa verið færðar til haustsins. Í einhverjum tilvikum verði þó fermt um hvítasunnuna eins og hefð er fyrir í sveitum. sbs@mbl.is »26 Messað á ný Mikill meirihluti, eða 85,5% þeirra sem afstöðu tóku í könnun Gallup fyrir Samtök áhugafólks um spilafíkn vilja lokun spilakassa til frambúðar. Um 70% þeirra sem tóku afstöðu eru frekar eða mjög neikvæð gagnvart því að starfsemi í almannaþágu sé fjár- mögnuð með spilakössum, „Það er gott að nú liggi fyrir að almenningi finnist skjóta skökku við að Rauði kross Íslands, Slysa- varnafélagið Landsbjörg, SÁÁ og Háskóli Íslands reiði sig á fjár- framlög frá mjög litlum hópi fólks sem glímir við spilafíkn,“ sagði Alma Hafstein formaður SÁF á blaðamannafundi í gær. »22 Mikil andstaða við rekstur spilakassa Alma Hafsteins Dönsku varðskipin Hvidbjørnen og Triton eru nú bæði í Reykjavíkurhöfn og liggja við Faxa- garð. Fátítt er að fleiri en eitt af dönsku skip- unum sé hér inni í einu, en þau annast gæslu og eftirlit við Færeyjar, Grænland og víðar á yfir- ráðasvæði Dana. Heimahöfn skipanna er Fredrikshavn á Jótlandi, en áhafnaskipti fara gjarnan fram á Íslandi og hvert úthald er um tveir mánuðir. Hvidbjørnen og Triton við Faxagarðinn Morgunblaðið/Eggert Dönsku varðskipin eru fastagestir í Reykjavíkurhöfn „Þetta er stuðningur við fyrirtæki sem þurfa að standa í skilum með uppsagnarfrest starfsmanna og með þessu úrræði tryggjum við að slík fyrirtæki munu að fullu geta staðið við launagreiðslur til sinna starfsmanna, staðið skil á lífeyr- isgreiðslum og greitt út orlof,“ seg- ir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, um nýtt úr- ræði fyrir fyrirtæki sem hafa orðið fyrir tekjufalli. Frumvörp er varða framhald á hlutastarfaleið stjórnvalda, aðstoð vegna launakostnaðar á uppsagn- arfresti, einföldun á fjárhagslegri skipulagningu fyrirtækja og at- vinnurekstrarbann til að sporna við kennitöluflakki voru samþykkt á ríkisstjórn- arfundi í gær. Bjarni segir að með áðurnefndu úrræði sé verið að verja stöðu launþega fyr- irtækja sem hafa tapað öllum sín- um tekjum í kjöl- far kórónuveirufaraldursins. „Með þessu tryggjum við að allir launþegar slíkra fyrirtækja fái rétt- indi sín að fullu gerð upp,“ útskýrir Bjarni. Nánar er fjallað um þetta á mbl.is. thor@mbl.is Nýtt úrræði sem verja á réttindi launþega Bjarni Benediktsson Fiskvinnslan Oddi hf. á Patreks- firði hefur ákveðið að hefja vinnslu á laxi sem framleiddur er í nær- umhverfi félagsins á Vestfjörðum af Arnarlaxi og Arctic fish. Gert er ráð fyrir að verkefnið skapi 16 til 18 heilsársstörf. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Odda að fyrirtækið hefur fjár- fest í vinnslulínu frá Marel sem nú er verið að stilla og hefja prófanir fyrir fullunnar laxaafurðir þar sem lögð er áhersla á bestu mögulegu nýtingu á hráefninu. Samkvæmt áætlunum munu fyrst um sinn vera unnin 2.500 til 3.000 tonn af laxi í vinnslu Odda. Skapar 16-18 ný störf á Vestfjörðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.