Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tillaga Arkís arkitekta hlaut fyrstu
verðlaun í samkeppni um hönnun
nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík.
Heimilið mun standa undir hlíðum
Húsavíkurfjalls og þaðan verður fal-
legt útsýni, meðal annars út á Skjálf-
andaflóa og til Kinnarfjalla.
Lengi hefur verið þörf á nýju
hjúkrunarheimili á Húsavík. Dvalar-
og hjúkrunarheimilið Hvammur er
orðið of lítið og fullnægir ekki kröf-
um nútímans, hvorki fyrir heimilis-
fólk né starfsfólk.
Framkvæmdasýsla ríkisins aug-
lýsti samkeppni um hönnun nýs
heimilis í lok síðasta árs og voru úr-
slit hennar kynnt í gær og verðlaun
afhent. Arkís arkitektar fengu 5
milljónir í verðlaunafé. Tvenn önnur
peningaverðlaun voru veitt, til
Teiknistofunnar Traðar sem varð í
öðru sæti og A2F arkitekta sem
urðu í þriðja sæti. Auk þess var til-
laga Andrúms arkitekta keypt.
Nýja hjúkrunarheimilið er fyrir
60 íbúa og mun leysa af hólmi dval-
ar- og hjúkrunarheimilið Hvamm.
Með tilkomu þess fjölgar um sex
hjúkrunarrými á svæðinu.
Stefnt er að því að framkvæmdir
hefjist á næsta ári. Í fyrsta aðgerða-
pakka ríkisstjórnarinnar vegna kór-
ónuveirufaraldursins var veitt 200
milljónum kr. til að hefja fram-
kvæmdir en heildarkostnaður er
áætlaður 2,5 til 2,7 milljarðar kr.
Stefnt er að því að heimilið verði
tilbúið fyrir lok árs 2023.
Heimilislegt yfirbragð
Í samkeppnislýsingu var lögð
áhersla á að keppendur hefðu um-
hverfissjónarmið og vistvæna hönn-
un að leiðarljósi. Dómnefnd taldi að
hönnuðir hefðu verið meðvitaðir um
þetta. Dómnefnd lagði sérstaka
áherslu á heimilislegt yfirbragð til-
lagnanna og þægilegt vinnuum-
hverfi.
Dómnefnd nefnir í rökstuðningi
fyrir ákvörðun fyrstu verðlauna að
tillagan sé einföld og frekar lág-
stemmd. Hún falli vel að landi og að-
liggjandi byggingum. Tillagan leysi
flestar þær kröfur sem komi fram í
samkeppnislýsingu á sannfærandi
hátt en sé jafnframt hugmyndarík
og bjóði upp á marga möguleika.
Í heildina bjóði tillagan upp á fjöl-
breytt líf og ólíka snertifleti innan
sambýliseininga, milli þeirra og úti/
innirýma. Sem galli er nefnt að úti-
svæðið að norðan sé í skugga stóran
hluta sólarhringsins.
Heilbrigðisráðuneytið og sveitar-
félögin Norðurþing, Skútustaða-
hreppur, Þingeyjarsveit og Tjörnes-
hreppur standa saman að byggingu
heimilisins.
Tölvuteikning/Arkís arkitektar
Húsavík Gott útisvæði verður við aðkomutorg nýja hjúkrunarheimilisins auk garðs sem auðvelt verður að komast í.
Fjölbreytt líf verði í
nýju hjúkrunarheimili
Arkís fékk fyrstu verðlaun fyrir tillögu á Húsavík
„Við verðum að reyna að bregðast
við þessu. Það er engin spurning,“
segir Sigmar Vilhjálmsson, eigandi
Barion í Mosfellsbæ, spurður um
hvort fótboltaáhugamönnum standi
til boða að fylgjast með knatt-
spyrnuleikjum á staðnum nú um
helgina. Efsta deildin í knattspyrnu
í Þýskalandi, Bundesligan, fer af
stað í dag eftir hlé sem tilkomið var
vegna áhrifa kórónuveirunnar þar í
landi.
Geta Íslendingar nálgast leiki
deildarinnar í gegnum streymis-
veituna Viaplay. Á veitunni verða
allir eftirstandandi leikir deildar-
innar sýndir en einungis níu um-
ferðir eru eftir af yfirstandandi
keppnistímabili. Verða síðustu leik-
ir deildarinnar leiknir fyrir luktum
dyrum en áhugamenn geta fylgst
með framgangi leikjanna í sjón-
varpinu. aronthordur@mbl.is »36
Þýski Lið Alfreðs Finnbogasonar, Augs-
burg, hefur leik í þýsku deildinni í dag.
Þýski boltinn rúllar
af stað á nýjan leik
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?
Fasteignir
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝ
SENDING
Glaðningur fylgir öllum
Frank Walder kaupum
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
y ,
gætum fyllsta öryggis v/ covid.
SKO
ÐIÐ
NÝJA
NETVE
RSLUN
LAXD
AL.IS
FERÐUMST INNANLANDS,
VANDAÐUR
FERÐAFATNAÐUR