Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 16

Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 16
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verði tilllögur stjórnarflokkanna í Noregi um álagningu framleiðslu- gjalds á lax úr sjókvíum að lögum verður gjaldtaka af norsku fiskeldi mun lægri en af íslensku. Munurinn ræðst af verðþróun á mörkuðum en gjaldið verður að minnsta kosti tvö- falt á við það sem hér er, jafnvel fjór- falt hærra ef langtímaspár um laxa- verð á heimsmarkaði ganga eftir. Tillaga norsku ríkisstjórnarinnar um að taka upp framleiðslugjald af sjókvíaeldi kveður á um að inn- heimta skuli 40 norska aura á hvert kíló af eldislaxi og silungi sem fram- leiddur er í sjóeldi sem svarar til tæplega 6 króna íslenskra. Gjald- takan hefst á næsta ári. Tekjurnar eiga að renna til sveitarfélaga og fylkja þar sem fiskeldi er stundað. Á móti mun ríkið taka stærri hlut af öðrum tekjum sem sveitarfélögin hafa af fiskeldinu. Gjaldið er heldur hærra en fisk- eldisiðnaðurinn hafði lagt til en þó virðast stjórnendur fiskeldisfyrir- tækja sætta sig við það, ef marka má frásagnir í norskum fjölmiðlum, enda búið að veifa framan í þá mun hærri tölum. Falla frá hækkun tekjuskatts Eru þessi áform mikil breyting frá tillögum sem meirihluti stjórn- skipaðrar nefndar gerði í svokallaðri hvítbók á síðasta ári. Þar var gert ráð fyrir afkomutengdu auðlinda- gjaldi í formi 40% viðbótar við tekju- skatt fyrirtækjanna. Tillögurnar féllu ekki í frjóan jarðveg. Stjórn- arflokkarnir höfnuðu þeim og einnig var andstaða meðal sveitarstjórn- armanna sem óttuðust að mikil skattlagning drægi úr getu og vilja fiskeldisfyrirtækjanna til að fjár- festa og auka umsvif sín og það hefði þar með neikvæð áhrif á byggðirnar og uppbyggingu atvinnu. „Norðmenn hafa greinilega áttað sig á að ofurgjaldtaka af þessu tagi gæti haft neikvæð áhrif í norsku fiskeldi, ekki síst í vinnsluþættinum, og draga úr atvinnusköpun eins og margir raunar vöruðu við,“ segir Einar K. Guðfinnsson, sem vinnur að fiskeldismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS. Gjald ræðst af markaðsverði Lög um töku gjalds vegna fisk- eldis í sjó og fiskeldissjóð sem tóku gildi í byrjun þessa árs gera ráð fyr- ir að fyrirtækin greiði gjald í rík- issjóð fyrir hvert framleitt kíló. Gjaldið ræðst af verði á laxi á heims- markaði á hverjum tíma. Það verður á þessu ári einn sjöundi af fullu verði, fer stighækkandi og fullt gjald verður innheimt árið 2029. Þá er gert ráð fyrir að um þriðjungur af gjaldinu renni til uppbyggingar inn- viða og þjónustu á vegum sveitarfé- laga þar sem eldi í sjókvíum er stundað. Ef gert er ráð fyrir að gjaldið verði í miðþrepi, eins og helst var gert ráð fyrir þegar frumvarpið var lagt fram, verður það 2% af sölu- verði og gæti, miðað við núverandi aðstæður, orðið 14 krónur á kíló. Er gjaldið því meira en tvöfalt það gjald sem lagt verður á í Noregi. Gjaldið verður tæpar 25 krónur, miðað við núverandi forsendur, ef laxaverð verður hærra en 4,8 evrur á kíló en sérfræðingar telja líkur á að heims- markaðsverð verði yfir þeim mörk- um þegar til lengri tíma er litið. Samkvæmt því verður framleiðslu- gjaldið rúmlega fjórum sinnum hærra hér á landi en í Noregi. Þriðji möguleikinn er að gjaldið verði mun lægra, eða 3,50 krónur á kíló, ef heimsmarkaðsverð verður lægra en 4,30 evrur. Ef svo færi yrði gjaldið mun hærra í Noregi en hér. SFS hafa miðað við að gjaldið verði í hæsta þrepi og taka þá mið af lang- tímahorfum um heimsmarkaðsverð á laxi. Kerfi að færeyskri fyrirmynd „Þetta sýnir að mínu mati að ekki er mikil innistæða fyrir umræðu hér um að Norðmenn séu að flýja ofur- skattlagningu og flytja framleiðsl- una til Íslands. Skattaumhverfið hér er ekki hagfelldara atvinnugreininni en er í Noregi, heldur þvert á móti,“ segir Einar K. Guðfinnsson. Þess má geta að íslensku regl- urnar um gjaldtöku á sjókvíaeldi eru sniðnar eftir reglum sem verið hafa í gildi í Færeyjum í sjö ár. Gjaldhlut- fallið er þó heldur lægra hér. Í greinargerð með frumvarpinu á Al- þingi voru rökin fyrir því sögð vera að tekjuskattur væri lægri í Fær- eyjum en á Íslandi auk þess sem ís- lensk fiskeldisfyrirtæki greiði þegar gjald í umhverfissjóð sjókvíaeldis. Fleiri atriði flækja þennan sam- anburð. Gjaldið í umhverfissjóðinn hækk- aði um áramót um 67% og sam- svarar nú 4 krónum á hvert kíló sem fiskeldisfyrirtæki hefur leyfi til að framleiða. Tekur tíma að ná fram- leiðslunni upp þannig að iðulega er verið að greiða gjald af framleiðslu sem ekki fer fram. Varðandi samanburð á milli Ís- lands og Noregs má minna á að Norðmenn hafa boðið út ný laxeld- isleyfi síðustu ár. Umfang þeirra er takmarkað enda áður búið að út- hluta flestum bestu svæðunum og það varanlega. Í íslensku fiskeld- islögunum er sömuleiðis gert ráð fyrir uppboðum við úthlutun nýrra leyfa í framtíðinni. Er þar miðað við tímabundna úthlutun, ekki var- anlega. Á eftir að reyna á hverju það skilar. Lægra framleiðslugjald í Noregi  Ríkisstjórn Noregs leggur til að 40 norskra aura framleiðslugjald verði lagt á lax úr sjókvíum  Gjaldið á Íslandi er tvöfalt hærra og gæti orðið fjórfalt hærra með hækkuðu heimsmarkaðsverði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Patreksfjörður Einn af fóðurprömmum Arctic Fish við sjókvíar á Patreksfirði, skammt frá þorpinu. Sveitarfélögin eiga að fá um þriðjung af framleiðslugjaldi sem ríkið innheimtir af sjókvíaeldi, til að nota við uppbyggingu innviða. Framleiðslugjald » Áform eru um að leggja 40 aura framleiðslugjald á lax úr sjókvíum við Noregsstrendur eða sem svarar til tæplega 6 kr. íslenskra. » Á Íslandi ræðst framleiðslu- gjaldið af heimsmarkaðsverði á markaði og getur orðið allt frá 3,50 kr. til 24,50 kr. á kíló, miðað við aðstæður í dag. » Sérstakar aðstæður eru á heimsmarkaði vegna kór- ónuveirunnar og hefur verð á laxi fallið að undanförnu. Verð- ið var þó 4,35 evrur í síðustu viku þannig að gjaldstofninn hangir enn í miðjuflokknum. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020 Viljayfirlýsing um að taka í notkun háspennibúnað fyrir flutningaskip við Sundabakka og Vogabakka í Reykjavík var undirrituð í gær. Umhverfis- og auðlindaráðu- neytið, Reykjavíkurborg, Faxaflóa- hafnir, Veitur, Samskip og Eimskip undirrituðu viljayfirlýsinguna. Búnaðurinn mun draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og staðbundinni loftmengun frá starf- semi hafnarsvæða í Reykjavík. Um er að ræða fyrsta áfanga í því verk- efni að tryggja raftengingar fyrir stærri skip í höfnum á Íslandi. Áætlað er að rafvæðingin í þess- um áfanga komi til með að draga úr bruna á yfir 660 þúsund lítrum af ol- íu og draga þannig úr losun koldíox- íðs um 9.589 tonn eða um 20% af nú- verandi losun á hafnarsvæðinu. Faxaflóahafnir, Veitur og ríkið leggja til 100 milljónir hvert um sig í þennan fyrsta áfanga en ef allt geng- ur að óskum munu flutningaskip Eimskips og Samskipa geta tengst landrafmagni á næsta ári. Á næstu árum áforma Faxaflóahafnir að hefja landtengingar fyrir skemmti- ferðaskip, en bygging dreifistöðvar Veitna við Sægarða er forsenda þess verkefnis. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sundahöfn Skrifað var undir samninginn í gærmorgun á Skarfabakka. Flutningaskipin tengd háspennu Nýhöfn faste ignasa la ı Borgartúni 25 ı 105 Reyk jav ík ı S ími 515 4500 ı www.nýhöfn. i s Hrólfsskálamelur 5 I 170 Seltjarnarnes Til sölu er mjög falleg tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í nýju lyftuhúsi og flottu útsýni á Seltjarnarnesi. Vandaðar innréttingar sem hannaðar eru af Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttur. Með íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Í stofu og svefnherbergi er aukin lofthæð, 2,85 metrar. Fullkomið loftræstikerfi er í húsinu með bæði vélrænu útsogi og ferskloftsinntöku sem tryggir góð loftskipti í íbúðinni. Íbúðin er 74,1 m2, þar af er geymsla í sameign 9,3 m2. Verð 53,5 milljónir. Hafið samband á nyhofn@nyhofn.is eða í síma 515 4500 Lárus Ómarsson | löggiltur fasteignasali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.