Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 21

Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Rúmlega þrjú hundruð þúsund manns víðs vegar um heim hafa látist eftir að hafa smitast af kórónuveirunni. Þetta er byggt á opinber- um upplýsingum. En samkvæmt úttekt AFP- fréttastofunnar gætu dauðföllin verið langtum fleiri en tölurnar sýna. Hin opinberu gögn byggjast eingöngu á staðfestum tilvikum um smit af völdum veirunnar. Séu dauðsföll und- anfarnar vikur borin saman við sama tímabil á undanförnum árum eru þau mun fleiri nú. Sér- fróðir menn telja að fjöldi fólks hafi látist af völdum sjúkdóma sem það fékk ekki lækn- ismeðhöndlun við eða sjúkrahúsvist vegna for- gangs hinna veirusmituðu. Þá er bent á að það sé mjög mismunandi hvernig einstök ríki safni upplýsingum um dauðsföll af völdum veirunn- ar, þannig að samanburður milli landa sé erf- iður. Frá 20. febrúar á þessu ári til loka mars voru 12.428 skráðir látnir af völdum kórónu- veirunnar á Ítalíu. En tölur um dauðsföll í landinu á sama tíma sýna að 25.354 hafa látist umfram dauðsföll að meðaltali síðastliðin fimm ár. Munurinn á opinberum tölum um látna af völdum veirunnar og dauðsföllum umfram meðaltal er enn meiri í Bandaríkjunum. Í mars, áður en faraldurinn stakk sér niður af fullum þunga þar í landi, létust 6.000 fleiri en í meðalári. Það eru þriðjungi fleiri en opinberar tölur um dauðsföll af völdum veirunnar. Jafnvel í Þýskalandi, sem almennt þykir hafa tekið af meiri festu og ábyrgð á faraldr- inum en önnur ESB-ríki, létust 3.706 fleiri í mars en í meðalári. Opinberar tölur segja að 2.219 hafi látist af völdum kórónuveirunnar. Þessu er öðruvísi farið í Frakklandi. Frá 1. mars til 27. apríl létust þar samkvæmt op- inberum tölum 23.291 eftir að hafa smitast af veirunni. Það er mjög nálægt dauðsföllum um- fram meðaltal sem voru 24.116 á tímabilinu. Yvonne Doyle, forstjóri Heilsuverndar- stofnunar Bretlands, segir að tölur um fjölda látinna umfram meðaltal séu besta vísbend- ingin um áhrif veirunnar í mismunandi lönd- um. „Þetta eru breytur sem eru samanburð- arhæfar milli allra landa, hvaða aðferðir sem þau styðjast við að öðru leyti við að skrá dauðsföll vegna kórónuveirunnar.“ Aðrir sér- fræðingar vara þó við því að hrapa að álykt- unum um áhrif veirunnar út frá meðaltalstöl- um um dauðsföll frá einu tímabili til annars. Um sé að ræða tölfræðilega aukningu, en or- sakirnar séu ekki þekktar. Mun fleiri dauðsföll en í meðalári  Dauðsföll af völdum kórónuveirunnar gætu verið langtum fleiri en hinar opinberu tölur hafa sýnt  Fjöldi látinna umfram meðaltal fyrri ára er talinn besta vísbendingin um áhrif kórónuveirunnar AFP Dauðsföll 53 ára gamall karl, sem lést af völdum veirunnar í Brasilíu, borinn til grafar. Hópur Óslóarbúa mótmælir fyrirhuguðu niðurrifi ráðuneytisbyggingar í miðborginni sem skartar á öðrum gafli sínum vegglistaverki eftir Pablo Pi- casso og innandyra annarri veggmynd eftir hann. Húsið eyðilagðist sumarið 2011 þegar þar sprungu öflugar sprengjur sem hryðjuverkamað- urinn Anders Behring Breivik hafði komið fyrir. Til stendur að listaverkin prýði byggingu í ná- grenninu en mótmælendur vilja að núverandi hús með verkunum standi áfram sem minnisvarði um ódæðisverk Breiviks sem myrti 77 ungmenni á Útey, skammt fyrir utan Ósló. AFP Vilja varðveita byggingu með vegglist eftir Picasso Söguspurning sem lögð var fyr- ir nemendur sem þreyttu inn- tökupróf í háskóla í Hong Kong hefur vakið mikla reiði í Kína. Lengi hefur grunnt á því góða á milli höfuðbólsins og hjáleig- unnar, en Hong Kong er sem kunnugt er hluti af Kína en hefur ákveðna sjálfstjórn. Spurningin sem um ræðir var hvort innrás Japana í Kína á árunum 1900 til 1945 hefði ver- ið til góðs eða ills. Eftir harða gagnrýni frá kín- verska utanríkisráðuneytinu og fullyrðingar um að verið væri að skapa jarðveg fyrir óþjóð- holla afstöðu sagði Kevin Yeung, menntamálaráðherra Hong Kong, að spurningin yrði ógilt við yfirferð prófanna þar sem hún væri hlutdræg og hefði sært tilfinningar og virð- ingu Kínverja. Ráðherrann krafðist þess einnig að skóla- yfirvöld greindu sér frá því hvernig það hefði borið til að spurningin var lögð fyrir á inn- tökuprófinu. Innrás Japana í Kína og her- nám þeirra á hluta landsins um áratugaskeið er talin hafa leitt til dauða milljóna Kínverja. Heimildir sýna að framganga Japana var ákaflega hrottaleg. KÍNA Söguspurning vekur mjög heit viðbrögð Landamæri Slóv- eníu voru opnuð að nýju í gær fyrir öllum ríkis- borgurum frá löndum Evrópu- sambandsins. Til- kynntu stjórnvöld þar að kórónuveiru- faraldurinn í land- inu væri yfir- staðinn, en engu að síður var þá enn verið að greina frá nýjum smitum. Fólk utan ESB-ríkjanna þarf áfram að fara í tveggja mánaða sóttkví við komu til Slóveníu. „Hvergi í Evrópu er staðan jafn góð,“ fullyrti Janez Jansa, forsætisráð- herra Slóveníu, þegar hann greindi frá ákvörðuninni. Tveir mánuðir eru liðnir sðan kórónuveiran barst til landsins. Á fimmtudaginn voru staðfest tilfelli veirunnar þar orðin 1.500 og dauðsföll 103. Ekki verður strax slakað á ýms- um varúðarráðstöfunum sem verið hafa í gildi undanfarnar vikur. Óheim- ilt er að margir safnist saman á al- mannafæri, menn þurfa að halda tveggja fjarlægð sín á milli og bera sóttvarnargrímur. Hótel hafa verið opnuð og einnig verslunarmiðstöðvar. Slóvenía opnast á ný Ljúblíana Hjólað með grímur. INNRITUN fyrir skólaárið 2020-2021  552 7366 songskolinn.is songskolinn@songskolinn.is rafraen.reykjavik.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.