Morgunblaðið - 16.05.2020, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
SÖLUSÝNING SUNNUDAGINN 17. maí frá kl. 14-15
Hafnargata 29, í miðbæ Keflavíkur
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Nýjar fullbúnar íbúðir í vönduðu fjölbýli.
Sjávarútsýni í meirihluta íbúða
Stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum.
Verð frá aðeins kr. 39.900.000.-
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Ímars sl. voru 30 ár liðin frá þvíað skákhreyfingin, TaflfélagReykjavíkur og Skák-samband Íslands fluttust í
nýtt húsnæði í Faxafeni 12 í Reykja-
vík. Haft var á orði við opnunina að
sennilega væri þarna kominn einn
stærsti skákklúbbur í heimi í fer-
metrum talinn og viðburðirnir sem
haldnir voru í tilefni þessarar opn-
unar voru ekki af verri endanum. Sá
fyrri var Stórveldaslagur VISA int-
ernational með þátttöku Sovét-
ríkjanna, Bandaríkjanna, Englands
og úrvalsliðs Norðurlanda. Strax á
eftir hófst svo 14. Reykjavíkur-
skákmótið og var skipað flestum
þeim sem tóku þátt í Stórveldaslagn-
um, þar af voru margir af fremstu
skákmeisturum Sovétríkjanna.
Á meðan Einars S. Einarssonar
naut við hjá VISA sáu menn þar á
bæ ekkert því til fyrirstöðu að láta
hluta fjármuna sem ráðstafa átti til
kynningarmála renna til menningar-
tengdra viðburða. Áður hafði fyrir-
tækið staðið fyrir keppni milli liðs
Norðurlanda og Bandaríkjanna og
síðar var á dagskrá mótaröð fyrir
norræna skákmenn.
Kínverjar harðir í netskákinni
Það er enginn hörgull á skák-
viðburðum á netinu þó að ýmsa sé nú
farið að lengja eftir skákkeppnum
með hefðbundnu sniði. Sl. fimmtu-
dag tilkynnti heimsmeistarinn
Magnús Carlsen um fjögur mót til
viðbótar í nýrri mótaröð sem ber
nafn hans. Það næsta hefst þriðju-
daginn 19. maí og lokamótið hefst 9.
ágúst nk. Magnús vann fyrsta mótið
sem fór fram í apríl.
En á dögunum lauk líka óopin-
berri heimsmeistarakeppni FIDE á
netinu en 6 öflug lið tefldu tvöfalda
umferð á fjórum borðum með tíma-
mörkunum 25 10. Tvö þau efstu
komust í sérstaka úrslitakeppni.
Kínverjar höfðu talsverða yfirburði í
undankeppninni og var sæti þeirra í
úrslitakeppninni aldrei í hættu. Þeir
hlutu 25 ½ vinning af 40 mögulegum
en Bandaríkjamenn rétt mörðu 2.
sæti með 22 vinninga. Þar á eftir
kom lið Evrópu, þá Rússar og
heimsliðið rak svo lestina.
Í úrslitakeppni Kínverja og
Bandaríkjamanna gekk á ýmsu.
Tefld var einföld umferð á fjórum
borðum og lauk viðureigninni með
jafntefli, 2:2. Þar sem Kínverjar
höfðu unnið undankeppnina dugði
þeim jafntefli til sigurs. Einn besti
Kínverjinn nú um stundir, Yangyi
Yu, hlaut 7½ vinning úr 10 skákum
og tók hinn bráðsnjalla andstæðing
sinn í karphúsið með eftirminnileg-
um hætti:
Liðakeppni FIDE á netinu, úrslit:
Yangyi Yu – Wesley So
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Rf3 d5 5. Db3 c5 6. dxc5 Ra6 7. cxd5
Rxd5 8. c6!
Það er vel til fundið að losa sig við
c-peðið með þessum hætti.
8. … Da5 9. Bd2 bxc6 10. g3 Rxc3
11. bxc3 Be7 12. Bg2 O-O 13. O-O e5
14. Dc2 Dc7 15. De4 f6 16. Dc4 Kh8
17. Be3 Rb8 18. Hfd1 Ba6 19. De6
Bxe2 20. Hd2 Ba6 21. Rh4 Bc8 22.
Dc4 f5 23. Rf3 h6 24. Had1 Kh7 25.
h4 Hf6
Það er erfitt að finna betri leik en
þennan. En nú kemur sleggjan.
26. Rg5+! hxg5 27. hxg5 Hg6
27. ... Ba6 er svarað með 28. Db3!
Hf8 29. f4 og vinnur samkvæmt „vél-
unum“ og 27. … He6 er svarað með
28. Bh3!
28. Bd5!
Magnaður biskupsleikur. Nú virð-
ist hægt að leika 28. … Bxg5 en þá
kemur 29. Bxg5 Hxg5 30. Dh4+ Kg6
31. Bg8! og vinnur.
28. … f4 31. Be4!
Með hugmyndinni 31. … fxe3 32.
Df7! og vinnur.
31. … Bxg5 32. Hd6! Bf6 33. Kg2!
f3+ 34. Kxf3! Bg4+ 35. Kg2 Bxd1
36. Hxd1
- og svartur gafst upp.
30 ár frá Stórvelda-
slag og opnun
skákmiðstöðvar
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Við setningu Stórveldaslagsins 1990. Fremsta í röðinni má þekkja f.v.
Nigel Short sem tefldi á 1. borði fyrir Englendinga, Ólaf Ásgrímsson skák-
stjóra, Jóhann Hjartarson, aðalskákdómarann Arnold Eikrem, Einar S. Ein-
arsson, forstjóra VISA, Ríkharð Sveinsson skákdómara, Þorstein Þor-
steinsson skákdómara, Artur Jusupov sem tefldi á 1. borði fyrir Sovétmenn
og Simen Agdestein sem tefldi á 1. borði úrvalsliðs Norðurlanda.
Ég var fimm sumur
í sveit í Króksfjarð-
arnesi í Austur-
Barðastrandarsýslu.
Þar bjuggu búi sínu
systkinin Jón Ólafs-
son, símstjóri, hrepp-
stjóri og fv. kaup-
félagsstjóri, og
Bjarney Ólafsdóttir.
Mikið sómafólk. Ólafía
B. Ólafsdóttir var þar,
dóttir Þuríðar Ólafsdóttur, hún var
dóttir Ólafs Andréssonar sem var
lausamaður í Gufudalshreppi, bróð-
ir Guðmundar Andréssonar gull-
smiðs í Reykjavík. Við Ólafía vorum
kærustupar frá átta ára aldri til tólf
ára. Hún var fjarska lífleg og
skemmtileg manneskja og seinna
giftist hún og
varð bóndakona
á Breiðabólstað á
Fellsströnd.
Bóndi hennar var
bróðir Friðjóns
Þórðarsonar
sýslu- og alþing-
ismanns.
Kvöld eitt 3.
júlí 1947 fórum
við Óla að heyja
fyrir dýrin okk-
ar, sem voru leggir, skeljar og
kjammar, sem urðu vitanlega að
eiga hey til vetrarsins. Ég, níu ára,
kunni vitanlega ekki að leggja á ljá
– en gerði það samt og síðan hófst
slátturinn. Ekki hafði ég slegið
lengi er ég fór að brýna ljáinn.
Gekk það brösulega og missti ég
orfið – þannig að ljárinn skar í
sundur löngutöng vinstri handar.
Við, bæði háorgandi, hlupum inn í
bæ til Bjarneyjar hús-
freyju. Einhver
hringdi eitthvað, ég
var drifinn alblóðugur
til Reykhóla þar sem
læknirinn var, Jón
Gunnlaugsson, en
kona hans var Selma
Kaldalóns, dóttir Sig-
valda Kaldalóns.
Nú-nú, þarna lá ég í
nokkra sólarhringa og
væsti ekki um oss. Á
þriðja degi legunnar
heyrði ég söng og pí-
anóspil í næsta herbergi. Þá var
puttinn farinn að gróa nokkuð.
Þarna sitja að tónlistarflutningi
sjálfur Sigfús Halldórsson tónskáld,
Sigurður Elíasson, tilraunastjóri á
Reykhólum, og Selma Kaldalóns,
kona læknisins. En Sigurður samdi
textann við Litlu fluguna sem enn
lifir góðu lífi í íslenskri tónmenn-
ingu. Þarna hafði þessi litli gutti
orðið vitni að merkum atburði, sem
hann gleymir ekki svo létt, og
heiðrar minningu þess góða fólks
Sigfúsar Halldórssonar, Selmu
Kaldalóns og hins frábæra læknis
Jóns Gunnlaugssonar, sem kom
þessu öllu heim og saman – þótt ör-
ið sjáist enn 72 árum síðar.
Litla flugan og
fingurmeinið
Eftir Braga
Kristjónsson
»Ekki hafði ég slegið
lengi er ég fór að
brýna ljáinn. Gekk það
brösulega og missti ég
orfið – þannig að ljárinn
skar í sundur löngutöng
vinstri handar.
Bragi Kristjónsson
Höfundur var fornbókaupmaður í
Reykjavík.
Sigfús Halldórsson
tónskáld.
Einar Guðfinnsson fæddist
17. maí 1898 á Litlabæ í Skötu-
firði í Ísafjarðardjúpi. For-
eldrar hans voru Guðfinnur
Einarsson og Halldóra Jó-
hannsdóttir.
Fjölskyldan flutti frá
Litlabæ að Tjaldtanga í Súða-
víkurhreppi árið 1915 og átti
Einar þar heima í fjögur ár.
Þar keypti hann sexæring og
reri á honum frá Bolungarvík á
vetrum. Síðan flutti hann í
Hnífsdal og gerðist íshússtjóri
og þar eignaðist hann tvo mót-
orbáta.
Einar kaupir síðan eignir
Nathans & Olsen í Bolungarvík
árið 1924 og á nokkrum áratug-
um byggði hann þar upp fyrir-
tæki í útgerð, fiskvinnslu og
verslun, sem varð eitt hið
glæsilegasta og best rekna í
landinu.
Einar átti sæti í hreppsnefnd
Hólshrepps í 30 ár, var vara-
þingmaður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og gegndi marg-
víslegum trúnaðarstörfum.
Einar var gerður að heiðurs-
borgara í Bolungarvík 1974 og
var fyrsti heiðursborgari sveit-
arfélagsins. Hann hlaut stjörnu
stórriddara fálkaorðunnar árið
1977.
Eiginkona Einars var El-
ísabet Hjaltadóttir, f. 1900, d.
1981. Þau eignuðust níu börn
og komust átta til fullorðinsára.
Einar lést 29.10. 1985.
Merkir Íslendingar
Einar
Guðfinnsson
Allt um sjávarútveg
Atvinna