Morgunblaðið - 16.05.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 16.05.2020, Síða 35
DÆGRADVÖL 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020 „BERGUR SKILDI EKKI HVAÐ HÚN SÁ VIÐ HANN. KANNSKI VAR HÚN BARA SVONA HRIFIN AF VAMPÍRUM.” „PABBI, JÓI Í BEKKNUM MÍNUM SEGIR AÐ VIÐ SÉUM ÖLL KOMIN AF MÖNNUM.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að hinn eini rétti er einhvers staðar þarna úti. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SKÖPUNARVERK MITT LIFIR! TALAÐU NÚ, TALAÐU! VOFF! VOFF! ÍGOOOOOR? HVAR FÉKKSTU HEILANN? JÆJA GRIMMÚLFUR GRIMMI, HVERNIG HEFURÐU ÞAÐ? ÍGOR ER Í TÓMU TJÓNI! TAKK FYRIR AÐ SPYRJA! ÞÚ ERT AFAR UMHYGGJUSAMUR! EN EF ÉG SEGI ÞÉR ÞAÐ, ÞÁ ÞARF ÉG AÐ STÚTA ÞÉR. KLA PPI KLA PPI auðvitað. „Ég ætla að bjóða nán- ustu fjölskyldu og vinum í dögurð í tilefni dagsins og njóta sólarinnar.“ Fjölskylda Sambýlismaður Hörpu er Guð- mundur Atli Pétursson, f. 14.1. 1981, ljósameistari Rúv og tónlistarmaður. Þau eru búsett í Kópavogi. Foreldrar Guðmundar Atla eru hjónin Heiðveig Andr- ésdóttir, f. 30.6. 1955, kennari, og Pétur Heimir Guðmundsson, f. 13.4. 1956, vélamaður. Þau eru bú- sett í Mosfellsbæ. Fyrrverandi eig- inmaður Hörpu er Haraldur Ægir Guðmundsson, f. 30.7. 1977, málari og tónlistarmaður. Dætur Hörpu og Haraldar eru Halldóra Björg Haraldsdóttir, f. 15.12. 2003, nemi, og Matthildur Haraldsdóttir, f. 7.12. 2009, grunn- skólanemi. Stjúpsonur Hörpu og sonur Guð- mundar Atla er Aron Berg Guð- mundsson, f. 5.11.2012, grunn- skólanemi, búsettur í Reykjavík. Systkini Hörpu eru Guðfinna Halla Þorvaldsdóttir, f. 14.6. 1970, framkvæmdastjóri, búsett í Kópa- vogi; Skúli Magnús Þorvaldsson, f. 12.4. 1973, landfræðingur, búsett í Kópavogi. Foreldrar Hörpu eru Hólmfríður Skúladóttir, f. 26.6. 1947, fyrrver- andi iðnverkakona, og Þorvaldur Böðvarsson, f. 24.7. 1946, fyrrver- andi rekstrarstjóri Vegagerð- arinnar á Norðurlandi vestra. Þau eru búsett á Hvammstanga. Harpa Þorvaldsdóttir Friðrik Arnbjörnsson bóndi og hreppstjóri á Syðsta-Ósi Ingibjörg Þorvaldsdóttir húsfreyja á Syðsta-Ósi í Miðfirði Böðvar Friðriksson bóndi og hreppstjóri á Syðsta-Ósi Guðfinna Jónsdóttir húsfreyja á Syðsta-Ósi og verkakona í Reykjavík Þorvaldur Böðvarsson fyrrv. rekstrarstjóri á Hvammstanga Jón Eiríksson bóndi á Neðri- Svertingsstöðum Hólmfríður Bjarnadóttir húsfreyja á Neðri- Svertingsstöðum í Miðfirði Guðný Friðriksdóttir húsfreyja á Bjargi í Miðfirði HólmfríðurBöðvarsdóttir fv. blómaskreytingakona og skrifstofukona Kjartan Sveinsson tónlistarmaður og var í Sigur Rós Friðrik Pálsson hótelstjóri á Hótel Rangá Magnús Þorleifsson verkamaður á Hvammstanga Hólmfríður Júlíana Sigurgeirsdóttir kennari á Hvammstanga Skúli Magnúson vegaverkstjóri á Hvammstanga Halldóra Ingibjörg Þórðardóttir Líndal húsfreyja og verkakona á Hvammstanga Þórður Líndal Þorsteinsson bóndi í Þórukoti Efemía Guðný Benediktsdóttir húsfreyja í Þórukoti í Víðidal Úr frændgarði Hörpu Þorvaldsdóttur Hólmfríður Skúladóttir iðnverkakona á Hvammstanga Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Við það oft er fleyi fest. Féð var geymt á þessum stað. Oft þar lúnum líður best. Líka hellir vera kvað. Helgi R. Einarsson svarar: Við ból er festur bátur, í bólið ærin fer, ég blunda í bóli kátur, bólið hellir er. Þessi er lausn Eysteins Péturs- sonar: Oft við ból var bytnu lagt. Á bóli kvía ær gaf sjá. Leggjast í ból var seggi sagt. Svo má í helli bólstað fá. Harpa á Hjarðarfelli náði smá stund frá sauðburðinum og sendi þessa lausn: Oft er fleyið fest við ból. Féð kom heim á kvíaból. Oft ég lúin leggst í ból. Líka hellir nefnist ból. Guðrún Guðbjarnardóttir svarar: Liggur smábátur við ból. Í bóli fær ærin skjól. Úr bólinu seiðir sól. Saga Fúsabóls kól. Sigmar Ingason á þessa lausn: Traustlega skal binda bát við ból. Búfé reka úr högunum á kvíaból. Smali að verki loknu leggst í ból. Lítinn helli fann ég upp við Valaból. Þorgerður Hafstað svarar: Bólfæri, fiskar, bátar; bændur, vatnsból, fé; bólfarir, konur kátar; í kletti ból ég sé. Þessi er skýring Guðmundar á gátunni: Oft við ból er fleyi fest. Féð á ból oft rekið var. Lúnum hugnast bólið best. Ból svo hellir vera kvað. Þá er limra: Í bólinu maddama Marta við makann var sífellt að kvarta, en ekki gekk neitt, þau unnust jafn heitt og krybba og halakarta. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Margt er það, sem miður fer og miðar flestu aftur hér, en ekki bregst þó gátan góð, sem gleður bæði menn og fljóð: Ljós í myrkri lítið er. Lítið tár á vanga sést. Uppstytta til hálfs er hér. Höfum víst í kolli flest. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Köttur í bóli bjarnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.