Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 36
ÞÝSKALAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Landsliðsframherjinn Alfreð Finn-
bogason og liðsfélagar hans í þýska
knattspyrnufélaginu Augsburg
hefja leik að nýju um helgina eftir
tæplega tveggja mánaða hlé vegna
kórónuveirufaraldursins.
Barátta Þjóðverja við faraldurinn
hefur gengið afar vel en leikmenn
Augsburg voru byrjaðir að æfa sam-
an í litlum hópum strax um miðjan
mars.
Liðið er sem stendur í fjórtánda
sæti deildarinnar af átján liðum, 9
stigum frá fallsæti og 5 stigum frá
umspilssæti um fall úr deildinni, en
Augsburg tekur á móti Wolfsburg í
26. umferð þýsku Bundesligunnar í
dag.
„Það eru allir í Þýskalandi mjög
spenntir fyrir því að hefja leik,“
sagði Alfreð Finnbogason í samtali
við Morgunblaðið. „Ég tel að end-
urkoma deildarinnar muni ekki bara
hafa góð áhrif á knattspyrnu-
áhugamenn í landinu heldur líka
bara á þýsku þjóðina í heild sinni. Ef
allt gengur vel hjá okkur, þessar
fyrstu vikur, þá er þýska deildin
klárlega eitthvað sem aðrar deildir
geta horft til og Bundesligan getur
auðveldega verið ákveðin fyrirmynd
fyrir aðrar deildir.
Tímabilið hjá Augsburg hefur ver-
ið hálfkaflaskipt og við byrjum tíma-
bilið illa. Svo náum við frábærum úr-
slitum rétt fyrir jól á meðan það
hefur lítið sem ekkert gengið eftir
áramót og Martin Schmidt, fyrrver-
andi þjálfari liðsins, er svo látinn
fara í mars. Eins og staðan er í dag
erum við fimm stigum frá umspils-
sæti um fall úr deildinni og það er
kannski það sem við erum að horfa á
þessa stundina. Markmiðið er því að
reyna safna stigum og fjarlægjast
botnsvæðið og vonandi tekst okkur
að skríða aðeins upp töfluna í loka-
leikjum tímabilsins.“
Tvö próf á viku
Þjóðverjar voru fljótir að hemja
veiruna en alls hafa 175.123 manns
greinst með veiruna þar í landi sam-
kvæmt John Hopkins-háskólanum.
Ýtrustu varúðar er gætt þegar kem-
ur að smithættu og á Alfreð von á
því að lokaleikir tímabilsins muni
ganga smurt fyrir sig.
„Ég held að það sé algjört eins-
dæmi hvernig hefur verið tekið á
kórónuveirunni hérna í Þýskalandi
og líka bara hvernig þýska knatt-
spyrnusambandið hefur staðið að
hlutunum. Leikmenn deildarinnar
fóru á sinn fjórða upplýsingafund í
vikunni um það hvernig við eigum að
haga okkur í kringum leikdaga og
annað. Leikmenn á bekknum sem
dæmi verða allir að vera með and-
litsgrímur og það verður að vera
tveggja metra bil á milli manna þar.
Undanfarnar vikur hafa allir leik-
menn deildarinnar farið í tvö kór-
ónuveirupróf á viku og þegar deildin
fer af stað munu allir fara í próf dag-
inn fyrir leik. Fáir þú jákvætt út úr
því prófi þá ertu bara settur strax út
úr hópi og ferð í einangrun í tvær
vikur. Það er mjög vel staðið að öllu
hérna og kannski er þetta komið út í
smá öfgar en það er samt sem áður
alltaf betra að gera frekar meira en
minna og vonandi er þetta nóg til
þess að hlutirnir geti gengið nokkuð
eðlilega fyrir sig.“
Fyrstir til að hefja æfingar
Ólíkt öðrum knattspyrnumönnum
í Evrópu hefur Alfreð ekki þurft að
æfa mikið einn eftir að tímabilinu
var frestað um óákveðinn tíma. Þá
var Heiko Herrlich ráðinn þjálfari
Augsburg um miðjan mars en hann
á enn þá eftir að stýra sínum fyrsta
leik hjá félaginu.
„Við tókum eina viku í hvíld eftir
að keppni í deildinni var frestað.
Eftir þessa einu viku byrjaði liðið
svo aftur að æfa, í litlum hópum. Ég
held að það sé rétt með farið hjá mér
að vorum fyrsta liðið til þess að
byrja að æfa í Þýskalandi en það var
gert í samráði við bæjaryfirvöld í
Augsburg. Maður fór svo bara heim
til sín í sturtu og annað þannig að
það var allt gert til þess að halda öll-
um snertingum í lágmarki.
Við erum því búnir að ná að æfa
gríðarlega vel, undanfarnar átta vik-
ur, og menn eru í virkilega góðu lík-
amlegu formi þessa stundina. Von-
andi þá mun þetta gefa okkur
aukinn kraft, farandi inn í síðasta
hluta tímabilsins. Við fengum nýjan
þjálfara sem tók við rétt áður en öllu
var frestað og hann á því enn þá eftir
að stýra sínum fyrsta leik. Hann hef-
ur því fengið góðan tíma til þess að
setja sín fingraför á liðið og ég held
að þessi „pása“ hafi haft mjög góð
áhrif á liðið ef svo má segja.“
Ekki í höndum deildarinnar
Tveir leikmenn þýska B-
deildarfélagsins Dynamo Dresden
greindust með kórónuveiruna um
síðustu helgi. Allt liðið var því sett í
sóttkví en Alfreð segir að engan bil-
bug sé að finna á Þjóðverjum þrátt
fyrir þessa uppákomu.
„Það eru allir staðráðnir í að klára
tímabilið hérna og allir leikdagar
hafa verið vel skipulagðir. Síðasti
leikdagur verður 27. júní en það eru
allir meðvitaðir um að það geta kom-
ið upp smit hjá liðum, líkt og í tilfelli
Dynamo Dresden. Í svoleiðis til-
fellum er það ekki í höndum deild-
arinnar hvað verður gert heldur er
það sett í hendurnar á heilbrigð-
iskerfinu í hverju héraði fyrir sig.
Það eru þeir sem ákveða hvort allt
liðið verði sett í sóttkví eða bara þeir
leikmenn sem eru smitaðir.
Það yrði að sjálfsögðu mjög slæmt
ef allt liðið færi í sóttkví þar sem það
myndi seinka tímabilinu um ein-
hverjar vikur. Það er líka hægt að
spyrja sig að því hversu sanngjarnir
leikirnir verða þegar eitt lið er búið
að spila samfleytt í tvær vikur á
meðan hitt er búið að vera í sóttkví í
tvær vikur. Planið, sem hefur gengið
vel hingað til, er að menn hagi sínu
lífi á sem allra einfaldastan hátt utan
vallar. Það er búið að innstimpla það
algjörlega í alla að hugsa sig tvisvar
til þrisvar sinnum um, áður en þeir
fara út úr húsi, og það er því allt gert
til þess að halda smithættu í algjöru
lágmarki.“
Mikið undir hjá leikmönnum
Alfreð hefur dvalist á hóteli und-
anfarna viku ásamt liðsfélögum sín-
um. Hann fær svo að fara aftur heim
um helgina og hitta fjölskyldu sína.
„Allir leikmenn deildanna tveggja
eru búnir að vera samfleytt í eina
viku inn á hóteli núna til þess að
reyna koma í veg fyrir smit. Frá síð-
asta laugardegi hefur maður því
bara tekið því rólega inn á liðshót-
elinu og í raun bara reynt að láta lít-
ið fyrir sér fara þannig lagað. Maður
hefur því ekkert hitt fjölskylduna
sína á þeim tíma en eftir helgina
kemst maður aftur heim. Daginn
fyrir leik og á leikdegi verður maður
hins vegar áfram á hóteli og það er
því allt reynt til þess að halda smit-
hættu í algjöru lágmarki.
Það er mælst til þess að við reyn-
um að einfalda líf okkar eins mikið
og kostur er. Eins og gengur og ger-
ist þá þarf fólk engu að síður að fara
út úr húsi öðru hverju til þess að
sækja nauðsynjavörur og það er
auðvitað alltaf hægt að smitast þar.
Það er ekki hægt að koma algjörlega
í veg fyrir smit því fólk þarf að geta
lifað sínu lífi áfram, upp að einhverju
marki í það minnsta. Markmiðið er
samt sem áður að klára tímabilið á
sex vikum og við gerum okkur grein
fyrir því að það þarf allt að ganga
upp til þess að það takist.
Það hafa ekki verið nein smit í
mínu liði hingað til en auðvitað getur
það alltaf gerst að menn sofni á
verðinum og geri eitthvað sem menn
eiga ekki að gera. Þegar allt kemur
til alls eru menn aðallega að skaða
sjálfan sig með því að fara ekki var-
lega því deildin bíður ekki eftir
manni. Eins þá getur maður skaðað
liðið sitt ansi mikið með því að fara
óvarlega þannig að það er ansi mikið
undir. Heilt yfir finnur maður að það
eru allir saman í bátnum um að
leggja þetta á sig og klára tímabilið
almennilega.“
Tíðarandinn jákvæður
Af fimm sterkustu deildum Evr-
ópu er sú þýska fyrst til þess að
hefja leik að nýju eftir faraldurinn.
Frakkar aflýstu sínu tímabili en
England, Ítalíu og Spánn stefna öll á
að hefja leik að nýju í júní. Leik-
menn í þessum deildum hafa hins
vegar viðrað áhyggjur sínar að und-
anförnu og eru hræddir við að hefja
leik.
„Tíðarandinn hérna í Þýskalandi
er mjög jákvæður í garð fótboltans á
meðan þetta hefur kannski verið að-
eins öðruvísi annars staðar. Kór-
ónuveirufaraldurinn gekk seinna yf-
ir England og veiran var skæðari
þar, á Ítalíu og Spáni heldur en til
dæmis hér. Það myndi því ekki koma
manni á óvart ef tímabilin þar væru
að hefjast þegar við erum að klára
okkar.
Það verður mjög forvitnilegt að
sjá hvernig Þjóðverjum tekst að
tækla þetta en þegar allt kemur til
alls þarf íþróttalíf í landinu að vera í
takt við tilmæli stjórnvalda. Það
gengur ekki upp að ætla hefja leik á
meðan það er útgöngu- eða
samkomubann í gildi. Það hafa
ákveðnar tilslakanir á boðum og
bönnum hér í Þýskalandi átt sér stað
á undanförnum vikum og það er já-
kvætt. Um 30 milljónir Þjóðverja
fylgjast með deildinni hérna hverja
einustu helgi og það verða því ansi
margir sem munu fagna því þegar
tímabilið fer aftur af stað.“
Erfitt að byrja alltaf á núlli
Alfreð var óheppinn með meiðsli á
síðasta ári og meiddist í landsleik
gegn Tyrkjum í Istanbúl í und-
ankeppni EM í nóvember á síðasta
ári. Hann var kominn á fullt með
Augsburg þegar hlé var gert á deild-
inni vegna kórónuveirunnar en
framherjinn hefur byrjað átta leiki í
þýsku 1. deildinni á tímabilinu þar
sem hann hefur skorað þrjú mörk.
„Ég lenti í axlarmeiðslum í lands-
leiknum gegn Tyrkjum í nóvember
en mér var farið að líða mjög vel
fram að þeim tímapunkti. Ég gekkst
undir aðgerð í apríl og kom því að-
eins seinna inn tímabilið og það tók
mig smá tíma að komast á almenni-
legt skrið. Mér var farið að líða mjög
vel á vellinum þegar ég meiðist svo í
þessum umrædda leik gegn Tyrkj-
um og við taka þá tveir og hálfur
mánuður utan vallar. Ég var svo aft-
ur að komast af stað af einhverri al-
vöru þegar kórónuveirufaraldurinn
blossaði upp í Evrópu.
Eins og staðan er í dag er ég fyrst
og fremst spenntur að ná almenni-
legri leikjahrinu með Augsburg og
spila fótbolta. Það eina sem hefur
vantað hjá manni undanfarin tvö
tímabil kannski er að ná tíu til fimm-
tán leikjum í röð því ég veit að ég get
verið mjög mikilvægur leikmaður
fyrir þetta lið. Það er erfitt að sýna
sitt rétta andlit þegar maður er allt-
af að byrja upp á nýtt en mér líður
virkilega vel í augnablikinu og von-
ast til þess að geta tekið mjög virkan
þátt í þeim leikjum sem eftir eru af
tímabilinu,“ bætti Alfreð Finn-
bogason við í samtali við Morg-
unblaðið.
Einsdæmi hvernig Þjóðverj-
inn hefur tæklað hlutina
Þýski fótboltinn fer af stað í dag Alfreð hefur dvalið á hóteli alla vikuna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Langþráð Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg hefja lokasprettinn í
þýska fótboltanum í dag en Augsburg mætir Wolfsburg kl. 13.30.
36 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
16. maí 1992
Eyjólfur Sverrisson er þýskur
meistari í knattspyrnu með
Stuttgart sem
vinnur Lever-
kusen 2:1 á úti-
velli í gífurlega
spennandi loka-
umferð og
hreppir titilinn á
betri markatölu
en Dortmund. Hann lék 31 af
34 leikjum liðsins í deildinni á
tímabilinu.
16. maí 2009
Eiður Smári Guðjohnsen er
spænskur meistari í knatt-
spyrnu með Barcelona en tutt-
ugasti meistaratitill félagsins
er í höfn áður en flautað er til
leiks í 36. umferð af 38 í deild-
inni. Eiður lék 24 af 38 leikj-
um liðsins í deildinni á tíma-
bilinu og hafði með þessu
orðið meistari í tveimur af
sterkustu deildum heims, á
Englandi og Spáni.
17. maí 1966
Íslenska karlalandsliðið í
handknattleik sigrar Banda-
ríkjamenn, 41:19, í vin-
áttulandsleik í New Jersey.
Hermann Gunnarsson skorar
17 mörk fyrir Ísland og setur
með því markamet. Það stóð í
31 ár, eða þar til Gústaf
Bjarnason skoraði 21 mark
gegn Kína á Selfossi árið 1997.
17. maí 1980
Pétur Pétursson skorar tvö
mörk fyrir Feyenoord þegar
liðið sigrar Ajax,
3:1, í úrslitaleik
hollensku bik-
arkeppninnar í
knattspyrnu
frammi fyrir 65
þúsund áhorf-
endum á De Ku-
ip, heimavelli Feyenoord í
Rotterdam. Frank Arnesen
skoraði fyrsta mark leiksins
fyrir Ajax en Pétur gerði síð-
an fyrsta og þriðja mark
Feyenoord.
17. maí 1989
Ásgeir Sigurvinsson og sam-
herjar í þýska liðinu Stuttgart
gera jafntefli, 3:3, á heimavelli
við Diego Maradona og félaga
í ítalska liðinu Napoli í seinni
úrslitaleik liðanna í UEFA-
bikarnum í knattspyrnu og
tapa þar með einvíginu 4:5.
Ásgeir leggur upp eitt marka
Stuttgart fyrir Jürgen Klins-
mann.
17. maí 2008
Hermann Hreiðarsson er
enskur bikarmeistari í knatt-
spyrnu með Portsmouth sem
sigrar Cardiff, 1:0, í úrslita-
leik frammi fyrir 90 þúsund
áhorfendum á Wembley og
spilar allan leikinn. Nwankwo
Kanu skorar sigurmarkið.
Hermann er þar með fyrstur
Íslendinga til að fagna sigri í
keppninni.
17. maí 2014
Valskonur eru Íslandsmeist-
arar í hand-
knattleik í sex-
tánda skipti og í
fjórða sinn á
fimm árum með
því að sigra
Stjörnuna 23:20 í
oddaleik liðanna
um Íslandsmeistaratitilinn í
Mýrinni í Garðabæ. Anna Úr-
súla Guðmundsdóttir skorar
sex mörk fyrir Val og Hrafn-
hildur Ósk Skúladóttir fjögur
en Hrafnhildur hafði áður gef-
ið út að þetta yrði sinn síðasti
leikur á ferlinum.
Á ÞESSUM DEGI