Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 37

Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 37
ÍÞRÓTTIR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020 „Hvernig ætlið þið að fara að því að fylla íþróttasíðurnar næstu vikur?“ Þessa spurningu fengum við oft á fyrstu dögunum eftir að allri keppni í íþróttum var hætt um miðjan mars vegna kórónu- veirunnar. Nú eru tveir mánuðir liðnir þar sem eina mótið sem hægt hefur verið að skrifa um er hvít- rússneska fótboltadeildin en undirritaður getur sagt með góðri samvisku að í útgáfu Morg- unblaðsins og mbl.is hafi tekist ágætlega til við að framleiða áhugavert efni fyrir lesendur. Viðbrögð þeirra eru í það minnsta meiri og betri en í venju- legu árferði. Kannski vegna þess að þá er allri íþróttaumfjöllun tekið sem sjálfsögðum hlut. Íslensku fjölmiðlarnir hafa haft sína aðferðina hver við að sjá lesendum og áhorfendum fyrir íþróttaefni. Það sem þeir eiga sameiginlegt er að þeir hafa flestir rifjað upp sögulega við- burði úr íþróttasögunni. Þar er af nógu að taka. Sjón- varpsstöðvarnar hafa endursýnt eftirminnilega viðburði, prent- og netmiðlar hafa rifjað upp löngu gleymd afrek, og fyrir vikið er íþróttafólk sem var í sviðsljós- inu fyrir tíu, tuttugu og jafnvel fimmtíu árum allt í einu komið í umræðuna á ný. Og nú fáum við fyrirspurnir um hvort „sögulegt sælgæti“ verði ekki áfram í boði á íþróttasíð- unum okkar þó að kórónuveiran hverfi á braut. Hér á Mogganum hefur „Sögu- stund“ Kristjáns Jónssonar verið vinsælt lesefni um árabil og án þess að lofa upp í ermina á mér gæti ég trúað því að ein af já- kvæðum afleiðingum kórónuveir- unnar verði sú að lesendur verði enn upplýstari en áður um alla þá miklu sögu sem er til staðar í íþróttaheiminum. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is GOLF Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Ég er mjög spennt að keppa aftur á Íslandi. Ég er búin að spila tvisv- ar á þessum velli í vikunni og ég er að venjast íslenskum aðstæðum á ný. Það gengur ágætlega,“ sagði at- vinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í samtali við Morg- unblaðið. Hún verður á meðal þátttakenda á ÍSAM-mótinu sem fram fer á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfells- bæjar um helgina. Leiknir verða þrír hringir, tveir í dag og einn á sunnudag. Allir sterkustu áhuga- og atvinnukylfingar landsins eru með á mótinu, þar sem ekki er keppt erlendis um þessar mundir vegna kórónuveirunnar. Má því nánast fullyrða að mótið verður það best mannaða hér á landi frá upp- hafi. Skrítið að keppa á Íslandi „Þetta er mjög sterkt mót og þetta verður áskorun. Að hafa svona marga sterka kylfinga mun eflaust hvetja okkur öll til að gera enn betur,“ sagði Ólafía sem lék síðast keppnisgolf hér á landi fyrir fjórum árum er hún lék á Íslands- mótinu á Akureyri 2016. „Það er svolítið skrítið að koma að keppa á Íslandi. Ég er búin að vera svo mikið erlendis og maður er að sjá fólkið allt aftur,“ sagði Ólafía, sem hefur leikið sem atvinnumaður allar götur síðan; fyrst í Evrópumótaröð- inni og síðar LPGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi. Nú leikur hún í Symetra-mótaröðinni og freistar þess að vinna sér inn keppni á LPGA á nýjan leik. Næstu vikur og mánuði mun hún hinsvegar einbeita sér að því að spila á mótum hérlendis. Þarf að venjast aðstæðum „Það verður meira keppt á Ís- landi í ár því ég fer ekki út að keppa á minni mótaröð úti fyrr en í júlí. Ég tek alla vega næstu þrjú stigamót fram að Íslandsmótinu í holukeppni. Þá fæ ég tíma til að venjast íslenska golfinu aftur,“ sagði Ólafía. Hefur hún undanfarin ár keppt við bestu aðstæður, en að- stæður á Íslandi geta verið óút- reiknanlegar. „Ég er búin að taka tvo hringi á Hlíðavelli. Ég náði að spila einn hring í geggjuðu veðri og svo einn hring í svakalegri rigningu og vindi, svo ég er búin að venjast báðum aðstæðum. Það er góður undirbún- ingur og svo er völlurinn í góðu standi,“ sagði hún. Von á hörkukeppni Mun Ólafía m.a. mæta atvinnu- kylfingunum Valdísi Þóru Jóns- dóttur og Guðrúnu Brá Björgvins- dóttur og má því búast við hörkukeppni. Í karlaflokki mæta kylfingar á borð við Axel Bóasson, Andra Þór Björnsson, Guðmund Ágúst Kristjánsson og Harald Franklín Magnús til leiks. „Til að byrja með lít ég á þetta sem undirbúningsmót fyrir móta- röðina mína úti. Ég skráði mig hins vegar á mótið, eins og allir aðrir, til þess að vinna það. Ég er ekki mætt til Íslands bara til að vera með. Ég er hérna til að bæta mig og gera eins vel og ég get,“ sagði hún ákveðin. Óvissa er með framhaldið hjá Ólafíu í Symetra-mótaröðinni, vegna þess ástands sem er í heim- inum. Hún vonast samt sem áður til að geta haldið til Bandaríkjanna í júlí. Trump að gefa grænt ljós „Við vorum að fá upplýsingar í dag [í gær] um að mótin verða færð aftur. Mótaröðin átti að fara af stað aftur í byrjun júlí en núna hefur henni verið frestað fram í miðjan júlí. Við sjáum til, kannski verður henni frestað aftur. Ég held að að- almálið sé að styrktaraðilar eru að taka skref til baka og langar frekar að halda mótin á næsta ári og það er óvissa þar. Það er svo enn verið að vinna að því hvernig við erlendu kylfingarnir komumst aftur inn í landið. Mér heyrist að Trump sé að gefa grænt ljóst á það.“ Verði hægt að hefja leik í móta- röðinni í júlí verður væntanlega spilað fram í desember og sæti í LPGA-mótaröðinni í boði fyrir þá kylfinga sem skara fram úr. Ætlar sér aftur á LPGA „Það á að vera svipaður fjöldi móta og var upprunalega á dagskrá og þá verður spilað fram í desem- ber. Ég veit ekki hvernig það verð- ur núna því það er búið að færa þessi tvö aukamót og við byrjum aðeins seinna. Það á að reyna að halda mótafjöldanum uppi og gefa okkur færi á að vinna okkur inn á LPGA. Þau vilja ekki gefa keppn- isrétt á LPGA ef mótaröðin er bara fimm mót. Þau vilja að þú sannir þig á heilu tímabili,“ sagði Ólafía og markmiðið er skýrt. Hún ætlar sér aftur í sterkustu mótaröð í heimi. „Alltaf. Stefnan er alltaf sett þang- að,“ sagði Ólafía Þórunn. Ekki bara til að vera með  Fyrsta keppnismót Ólafíu á Íslandi í fjögur ár  Ætlar sér sigur en þarf að venjast aðstæðum  Vill aftur í LPGA  Bestu kylfingar Íslands taka þátt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hlíðavöllur Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir ætlar sér sigur á Hlíðavelli um helgina. Rússneska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að keppni í úrvals- deild karla þar í landi yrði haldið áfram 21. júní og myndi ljúka 22. júlí. Síðustu átta umferðir deild- arinnar verða því leiknar á fjórum vikum. Rússar höfðu lokið 22 um- ferðum af 30 þegar keppni var frestað vegna kórónuveirunnar um miðjan mars. Jón Guðni Fjóluson leikur með Krasnodar sem er í þriðja sæti og þeir Arnór Sigurðs- son og Hörður Björgvin Magnússon með CSKA Moskva sem er í fimmta sæti. Zenit er með níu stiga forystu. Ljúka keppni á fjórum vikum Ljósmynd/CSKA Moskva Moskva Arnór Sigurðsson og Hörð- ur Björgvin leika með CSKA. Knattspyrnumaðurinn Ásgeir Sig- urgeirsson hefur framlengt samning sinn við KA en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í gær. Samingurinn er til næstu tveggja ára og gildir út tíma- bilið 2022. Ásgeir, sem er 23 ára gamall, á að baki 56 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 16 mörk. Hann er uppalinn hjá Völsungi á Húsavík en gekk til liðs við KA árið 2016 eftir að hafa verið um skeið í röðum norska félagsins Stabæk. Þá hefur hann einnig spilað með öllum yngri landsliðum Íslands. Ásgeir á Akureyri næstu tvö árin Ljósmynd/Þórir Tryggvason Akureyri Ásgeir Sigurgeirsson leik- ur með KA næstu tvö árin. FIFA mun til- kynna hvar loka- mót HM kvenna í fótbolta 2023 fer fram 25. júní næstkomandi. Brasilía, Kól- umbía og Japan koma til greina, sem og Ástralía og Nýja-Sjáland sem vilja halda mótið saman. Átti nýr gestgjafi upprunalega að vera kynntur í Addis Ababa, höf- uðborg Eþíópíu, en vegna ástands- ins í heiminum mun gestgjafinn vera tilkynntur í útsendingu á net- inu. Ljóst er að nýr gestgjafi verður tilkynntur því mótið hefur aldrei farið fram í þeim löndum sem koma til greina. Tvisvar hefur mótið farið fram í Kína og Bandaríkjunum. Sví- þjóð, Þýskaland, Kanada og Frakk- land hafa síðan haldið mótið einu sinni hvert. Í tilkynningu frá FIFA í gær kom fram að sambandið ætli að fjárfesta einum milljarði dollara í knatt- spyrnu í kvennaflokki vegna afleið- inga kórónuveirunnar. Hafa margir lýst yfir áhyggjum yfir framhaldi kvennaknattspyrnunnar undanfarið. Gestgjafi loka- móts HM 2023 tilkynntur Megan Rapinoe Rúnar Ingi Erlingsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfuknattleik. Rúnar Ingi þekkir vel til í Njarðvík en hann hefur verið aðstoð- arþjálfari kvennaliðsins undanfarin tvö tímabil og tekur nú við liðinu af Ragnari Ragnarssyni. Lárus Ingi Magnússon verður aðstoðarmaður hans en hann er afar reynslumikill þjálfari og var aðstoð- arþjálfari Njarðvíkinga þegar liðið varð Íslands- og bik- armeistari keppnistímabilið 2011-12, undir stjórn Sverr- is Þórs Sverrissonar. Njarðvíkingar voru í fjórða sæti 1. deildarinnar þeg- ar keppni var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins með 26 stig eftir 22 leiki en liðið lék síðast í úrvalsdeildinni keppnistímabilið 2017-18. Rúnar Ingi Erlingsson Rúnar tekur við Njarðvíkingum Frank Aron Booker, landsliðsmaður í körfubolta, hefur framlengt samning sinn við Val og mun hann leika með lið- inu á næstu leiktíð. Frank Aron er 26 ára og skoraði hann 15,3 stig að meðaltali og var með tæplega 40 prósenta þriggja stiga nýtingu í vetur. Frank bjó fyrstu æviárin á Íslandi en flutti til Bandaríkjanna ellefu ára gamall og var þar allt til 23 ára aldurs. Þá flutti hann til Frakklands þar sem hann lék með Evereux í B-deildinni. Eftir það lá leiðin til Vals. Skotbakvörðurinn lék sinn fyrsta landsleik síðasta sumar og hefur alls leikið fjóra leiki með A-landsliðinu. Þá hefur körfuknattleiksdeild Fjölnis gengið frá samn- ingi við litháísku landsliðskonuna Linu Pikciute og mun hún leika með liðinu á næstu leiktíð. Hefur Pikciute m.a. leikið í Euroleague, sterkustu keppni í Evrópu. Frank Aron Booker Landsliðsmaður áfram á Hlíðarenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.