Morgunblaðið - 16.05.2020, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.05.2020, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020 Óskar Bergsson fasteignasali s. 893 2499 Hildur Harðardóttir lögfr. og lgfs. s. 897 1339 Sveinbjörn Sveinbjörnsson lögmaður s. 892 2804 Vilhjálmur Einarsson fasteignasali s. 864 1190 H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0 Árangur í sölu fasteigna www.eignaborg.is Áslaug Guðrúnardóttir, kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur, mælir með list sem njóta má innan veggja heimilisins á tímum COVID-19 faraldurs. „Samkomubannið hefur haft ým- islegt gott í för með sér og jafn- vel opnað augu fólks fyrir nýjum hlutum held ég. Ég datt um beint streymi frá Sin- fóníuhljómsveit Íslands frá Hörpu í hádeg- inu um daginn og lagði við hlustir. Tónleikarnir voru ætlaðir börnum og trúður sá um að kynna verkin sem leikin voru. Hægt var að fylgj- ast með hljómsveitinni spila og ég velti fyrir mér hvernig væri fyrir þau að sitja svona langt frá hvert öðru. Þetta var dásamlega notalegt og músíkin aðgengileg, enda dag- skráin sniðin að yngri aldurshópum og hentaði mér því ágætlega þar sem ég hef ekki hlustað mikið á klassíska tónlist. Ég viðurkenni að ég var alltaf að bíða eftir að mynda- vélinni væri snúið fram í sal, þegar ég áttaði mig á að fimm ára dóttir mín væri meðal áhorfenda. Ég mæli með að hlusta á svona streymi sem margar menningarstofnanir standa fyrir, hvort sem það er í beinni eða sem upptökur. Ég hlustaði um helgina á út- varpsþátt sem var gerður fyrir Útvarpsleikhúsið á Rás 1 – Sjoppur (in memoriam). Ég er af þeirri kyn- slóð sem þekkti til sjoppa og þar sem ég bjó sem unglingur í Breið- holtinu var nóg af þeim. Sjoppur (in memoriam) er frábær útvarps- þáttur og ég er spennt að heyra seinni hlutann sem verður leikinn um næstu helgi. Þarna er rætt við allskonar fólk sem hefur hangið í sjoppum, rekið sjoppur, ort um sjoppur eða unnið í sjoppum. Minn- ingarnar hrannast upp um sjoppu- ferðirnar með klinkið, að velja sér sælgæti í litla græna plastpoka og fá misþolinmótt starfsfólk til þess að veiða upp fyrir sig molana. Það er gaman að svona þáttum sem fá mann til þess að rifja upp alls konar minningar og það er ótrúlegt hvað dúkkar upp í kollinum á manni. Í dag eru aðeins örfáar sjoppur eftir og kaffihúsin hafa eflaust tekið við sem hangs-staður fyrir unglinga. Ég mæli með þessum þætti og svo mörgum öðrum í útvarpinu okkar! Ég er nú ekki mikill sjónvarps- glápari en öðru hvoru dett ég um eitthvað sem mér finnst spennandi og þá tek ég það með trompi. Þann- ig hef ég fylgst vel með flestum norrænum spennuþáttum í gegnum tíðina og einstaka sinnum finn ég seríur á Netflix sem mér þykja áhugaverðar. Þannig var með Unorthodox sem ég horfði á nýver- ið. Þættirnir vöktu áhuga minn þar sem ég var afar forvitin um lifn- aðarhætti heittrúaðra gyðinga. Við fjölskyldan dvöldum nýverið í New York og meðal annars gengum við um þessi hverfi þar sem fyrri hluti þáttaraðarinnar gerist. Þættirnir Unorthodox svöluðu því forvitni minni um þennan kima að ein- hverju leyti. Aðalpersónan, Esty, leikin af hinni smávöxnu Shira Ha- as, er einkar heillandi og ég öðl- aðist strax mikla samúð með henni. En það var ekki síst þroskandi að öðlast einhvern skilning á að- stæðum þeirra sem eru aldir upp í svona ströngu kerfi – sem fólk fer ekkert svo auðveldlega út úr. Þætt- irnir þynntust kannski aðeins þegar á leið og urðu ótrúverðugir en mér fannst alveg frábært að fá innsýn í þennan heim – og mæli með!“ Mælt með í kófinu Morgunblaðið/Eggert Sinfó Nokkrir af hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tón- leikum sem haldnir voru á 70 ára afmæli sveitarinnar í mars á þessu ári. Sinfó, sjoppur og sjónvarpsþættir Morgunblaðið/Ernir Gítarspil Leikið á gítar fyrir utan sjoppuna Gotta fyrir níu árum en hún heyrir nú sögunni til. Áslaug Guðrúnardóttir Unorthodox Úr sjónvarpsþáttunum sem finna má á Netflix. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Hversdagsleikinn er í forgrunni í nýrri bók Ólafs Páls Jónssonar, prófessors í heimspeki við mennta- vísindasvið Háskóla Íslands. Ýmis tengsl eiga einnig stóran þátt í bók- inni, sem ber heitið Annáll um líf í annasömum heimi. Frásagnarform ljóða, esseyja og smásagna birtast öll lesandanum og brjóta söguna upp á sama tíma og þau tengja hana saman. „Ég er að reyna að skrifa um það hvernig er að vera manneskja í þessum heimi sem við lifum í og hvernig sé hægt að líða vel,“ segir Ólafur. „Hversdags- leikinn er aðal- atriðið. Ef maður er ekki ham- ingjusamur í hversdagsleik- anum þá er ham- ingjan undan- tekning. Í einhverjum skilningi held ég að þemu bókarinnar séu tengsl; tengsl við náttúruna, tengsl við annað fólk og tengsl við sjálfan sig.“ Annáll um líf í annasömum heimi fjallar um líf einnar manneskju sem er samtímis einstakt og hversdags- legt. Ólafur skiptir bókinni upp í tólf kafla eftir mánuðum ársins og byrjar hver kafli á kvæði en „lág- stemmdur hversdagsleikinn og grimmustu áskoranir samtímans fléttast saman í heimspekilegum hugleiðingum um stöðu okkar í samtímanum“ í bókinni, að því er fram kemur í káputexta bókar- innar. Vildi færi á einlægni Spurður um það hvers vegna hann nýti sér svo mörg ólík form skáldskapar í bókinni, ljóð, esseyjur og smásögur sem þó mynda eina sterka heild, segir Ólafur: „Ég hef áður gefið út nokkrar bækur um heimspeki og ég vinn við að skrifa fræðilegan texta, þó ég hafi vissulega gefið út eina barna- bók líka. Það sem mig langaði að gera er að komast út úr formi fræðimennskunnar sem ég er oftast fastur í og er ekki sérlega aðgengi- legt fyrir flest fólk. Mig langaði í senn að tala til stærri lesendahóps og að finna form sem gæfu mér færi á að vera einlægari.“ Tengsl við heimspekina eru þó sterk í bókinni. „Heimspekin er þarna alls staðar undirliggjandi í öllum þessum frá- sagnarformum. Ég skrifa bókina sem heimspekingur en mig langaði að skrifa hana sem heimspekingur hversdagsleikans sem talar við hvern sem er og er ekki aflokaður í einhverjum fræðaheimi,“ segir Ólafur. Myndir túlka árstíð og ljóð Bókin er skreytt með vatns- litamyndum, einni fyrir hvern mán- uð, sem allar túlka í senn árstíðina og ljóðið sem fer á undan hverjum kafla. Dóttir Ólafs, Ása, málar myndirnar. „Spurningin um tengslin og spurningin um að lifa saman á jörð- inni eru líka spurningar um það hvernig við getum lifað vel frá einni kynslóð til annarrar. Því fannst mér viðeigandi að þessi bók væri samstarf tveggja kynslóða,“ segir Ólafur og bætir því við að það hafi verið virkilega gaman fyrir þau feðginin að vinna saman að bókinni með þessum hætti. Morgunblaðið/Eggert Tengsl „Spurningin um tengslin og spurningin um að lifa saman á jörðinni eru líka spurningar um það hvernig við getum lifað vel frá einni kynslóð til annarrar,“ segir Ólafur Páll Jónsson m.a. um nýútkomna bók sína. „Hversdagsleikinn er aðalatriðið“  Frásagnarform ljóða, esseyja og smásagna í nýrri bók

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.