Morgunblaðið - 16.05.2020, Side 44
Tónlistarkonan Ingibjörg Fríða býður upp á skoðunarferð
fyrir yngstu gesti Hörpu, í fylgd fullorðinna, í leit að Max-
ímús Músíkús í dag kl. 11. Farið verður um sali, króka og
kima Hörpu og hlustað eftir stefi músarinnar. Skoð-
unarferðin endar í Norðurljósum í sögustund með Max-
ímús kl. 11:30 og er athygli vakin á því að fjöldi þátttak-
enda er takmarkaður í hverja ferð og að skráning,
miðaafhending og frekari upplýsingar megi fá hjá miða-
sölu Hörpu. Í sögustundinni munu Vala Guðnadóttir, Pét-
ur Oddbergur Heimisson og Almar Blær Sigurjónsson
skiptast á að miðla sögum úr hinum vinsæla bókaflokki
Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar við
tónlistarundirleik og myndasýningu af tjaldi.
Leit að mús og sögustund í Hörpu
„Þetta er mjög sterkt mót og þetta verður áskorun. Að
hafa svona marga sterka kylfinga mun eflaust hvetja
okkur öll til að gera enn betur,“ segir Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir atvinnukylfingur sem keppir á sínu
fyrsta alvörumóti hérlendis í fjögur ár um helgina.
Flestir bestu kylfingar Íslands eru á landinu vegna kór-
ónuveirunnar og þess vegna er ÍSAM-mótið sem fram
fer í Mosfellsbæ í dag og á morgun eitthvert sterkasta
golfmót sem fram hefur farið á Íslandi. »37
Bestu kylfingarnir í Mosfellsbæ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslendingadagsnefnd á Gimli í Mani-
toba í Kanada ætlar að halda minn-
ingu fjallkonunnar á lofti um aldur
og ævi með því að láta útbúa sér-
stakan Fjallkonustíg í Víkingagarð-
inum í bænum. Hún hefur hafið fjár-
söfnun til að hugmyndin geti orðið
að veruleika í sumar en áætlaður
kostnaður er 25.000 Kanadadollarar,
um 2,6 milljónir króna.
Víkingagarðurinn í „Íslendinga-
bænum“ Gimli er helsta aðdráttarafl
bæjarins og fjallkonan er mesta
virðingarstaðan í tengslum við ár-
lega Íslendingadagshátíð. Hún var
kynnt til sögunnar á Íslendinga-
dagshátíðinni 1924 og Sigrún Líndal
var fyrsta fjallkonan. Sama ár tók
Íslendingafélagið í Blaine í Wash-
ington-ríki í Bandaríkjunum upp
hefðina og fljótlega fylgdu önnur Ís-
lendingafélög í Norður-Ameríku í
kjölfarið. Fjallkona hefur verið hluti
af hátíðarhöldum hérlendis þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní frá 1944.
„Fjallkonan er tákn Íslands og Ís-
lendingar eru börnin hennar,“ út-
skýrir Tami Jakobson Schirlie, tals-
maður átaksins.
Hátíðin á netinu í sumar
Fyrir hönd Íslendingadags-
nefndar og Víkingagarðsins vinna
fjallkonurnar Karen Borgford Bott-
ing (2016), Tami Jakobson Schirlie
(2017), Wanda Josephson Anderson
(2018) og Margaret Thorlakson Ker-
nested (2019) að átakinu.
Í aðsendri grein í Lögbergi-
Heimskringlu í gær benda þær á að
það að vera fjallkona sé ekki aðeins
heiður í eitt ár heldur vari hann út
fyrir líf og dauða. Á hverju ári rifji
Íslendingadagsnefnd upp nöfn
þeirra sem hafi gegnt hlutverkinu og
heiðurinn fylgi kynslóðunum.
„Mamma, amma og langamma voru
allar fjallkonur,“ megi víða heyra
með lotningarröddu.
Í tilefni 125 ára afmælis Íslend-
ingadagsins 2014 var hafist handa
við gerð Víkingagarðsins og nú er
komið að öðrum áfanga, þar sem
Fjallkonustígurinn á að varðveita
minningu kvenna sem hafa verið og
eiga eftir að vera í hlutverki fjallkon-
unnar. Nöfn þeirra með frekari upp-
lýsingum verða grafin á sérstakar
plötur og þeim raðað upp ásamt
nöfnum þeirra sem styrkja verk-
efnið.
Halldóra Jakobson, amma Tami,
var fjallkona Íslendingadagsnefndar
1938 og Vivienne Doreen Jakobson,
móðir hennar, 1985. Hún segir það
ógleymanlega reynslu að hafa staðið
á sviðinu í Gimligarði og talað til
fólksins á Íslendingadeginum, „á
sama stað og sama tíma og allar
fyrri fjallkonur“. Hún segir ótrúlegt
til þess að hugsa að forfeður hennar
hafi verið í garðinum af sama tilefni.
„Ég fylltist stolti yfir því að vera
Vestur-Íslendingur og ég er ánægð
með að Íslendingadagsnefnd hefur
haldið í hefðina.“
Íslendingadagshátíðin verður
haldin í 131. sinn í sumar. Vegna
kórónuveirufaraldursins verður hún
með breyttu sniði og aðeins á netinu.
„Heima er best“ er yfirskriftin.
Styrkja má verkefnið á heimasíðu
Íslendingadagsnefndar (ice-
landicfestival.com) með því að fara
inn á Viking Park og smella á
„donate“ efst til hægri.
Fjallkonan í háveg-
um höfð á Gimli
Morgunblaðið/Steinþór
Víkingagarðurinn 2018 Grant Stefanson sýndi forsætisráðherrahjónunum
Gunnari Sigvaldasyni og Katrínu Jakobsdóttur fyrsta áfanga garðsins.
Íslendingadagsnefnd undirbýr gerð Fjallkonustígs í Víkingagarðinum
Fjallkonan 2017 Tami J. Schirlie.
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
ÍÞRÓTTIR MENNING