Morgunblaðið - 23.05.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ýmsar breytingar verða gerðar á teng-
ingum við aðra vegi þegar ráðist verð-
ur í tvöföldum Suðurlandsvegar frá
Bæjarhálsi að Hólmsá, Mosfellsbæ og
Reykjavík.
Vegagerðin hefur lagt fram tillögu
að matsáætlun vegna mats á umhverf-
isáhrifum fyrirhugaðrar tvöföldunar
en samkvæmt samgönguáætlun er
áætlað að framkvæmdir hefjist á öðru
tímabili hennar, á árunum 2025-2029.
Kaflinn sem verður tvöfaldaður í um-
ræddum áfanga er alls 5,3 kílómetrar
auk þess sem gerð verða mislæg vega-
mót við Breiðholtsbraut, Norðlingavað
og Hafravatnsveg.
Einn af þeim vegköflum sem taka
munu breytingum er Heiðmerkur-
vegur. Kannast eflaust margir við
teppur sem skapast hafa við vegamót-
in og hættu sem getur skapast þegar
bílar taka vinstri beygju inn á Suður-
landsveg. Lagt er til að eftir tvöföld-
unina komist umferð frá Reykjavík
eftir sem áður með hægri beygju að
Heiðmörk og umferð til austurs frá
Heiðmörk komist inn á Suðurlandsveg
á sama stað. Tveir kostir eru til skoð-
unar varðandi umferð frá Heiðmörk til
vesturs. Annars vegar að gera nýjan
550 metra einstefnuveg sem muni
liggja frá hringtorgi á Heiðmerkur-
vegi, meðfram núverandi reiðleið, yfir
Hólmsá og undir tvöfaldan Suður-
landsveg áður en ekið er inn á hann.
Þessum kosti hafa hestamenn mót-
mælt harðlega. Í umsögn frá reiðvega-
nefnd hestamannafélagsins Fáks segir
að hætta geti skapast fyrir ríðandi um-
ferð verði hann fyrir valinu.
Hinn kosturinn er að hafa tengingu
eingöngu með hægri beygjum inn á
Suðurlandsveg. Þá þarf umferð af
Heiðmerkurvegi til vesturs að fara að
hringtorgi við Hafravatnsveg og snúa
þar við til að komast til vesturs. Umferð
að austan inn í Heiðmörk verður þá að
fara að hringtorgi við Norðlingavað og
snúa þar við til að komast í Heiðmörk.
Gert er ráð fyrir að verkið verði unn-
ið í fimm áföngum. Í áföngum 1 og 2
verður vegurinn tvöfaldaður án mis-
lægra vegamóta. Tvöfalt hringtorg
verður við vegamót Hafravatnsvegar. Í
áföngum 3 til 5 verða mislæg vegamót
byggð við öll vegamót á kaflanum nema
við Heiðmerkurveg.
Breikkun Suðurlands-
vegar í Reykjavík
Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg
og Mosfellsbæ, áformar að tvöfalda Suður-
landsveg frá vegamótum við Bæjarháls að
Hólmsá ofan Reykjavíkur.
Byggð verða þrenn mislæg vegamót og veg-
urinn verður byggður í allt að fi mm áföngum.
Vesturlandsvegur
Suðurlandsvegur
Suðurlandsvegur
Breiðholtsbraut
Rauðavatn
Hólm
sá
Hólmsheiði
Hádegishæð
ÁRBÆR
HÓLAR
GRAFARHOLT
NORÐL INGA-
HOLT
HVÖRF
Elliðavatn
1. áfangi
Tvöföldun Suðurlands-
brautar frá Bæjarhálsi
að Norðlingavaði
3. áfangi Mislæg gatna-
mót í stað hringtorgs
við Breiðholtsbraut 2. áfangi
Tvöföldun Suðurlands-
brautar frá Norðlinga-
vaði að Hólmsá
5. áfangi
Mislæg gatnamót
við Hafravatnsveg.
4. áfangi
Mislæg gatnamót
við Norðlingavað
Mögulega lokað fyrir
varasama vinstri beygju
Til skoðunar að breyta gatnamótum Heiðmerkurvegar
LC02 hægindastóll
Leður – Verð 319.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
Nýtt merki
Green Goose
Stærðir 36-52
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
SUMARGLEÐI
afsláttur
20%-50%
SKOÐIÐ
LAXDAL
NETVERSLUNLAXDAL.IS
GERRY-WEBER - BETTY BARCLAY
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points Josy
23.990 kr.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Heimilt verður að gefa frá sér ferða-
gjöf sem stjórnvöld hafa kynnt að
standi til boða í sumar. Um er að
ræða fimm þúsund króna inneign
sem stjórnvöld gefa út til einstaklinga
sem eru fæddir árið 2002 eða fyrr og
eru með íslenska kennitölu. Hver ein-
staklingur má að hámarki greiða með
fimmtán ferðagjöfum, alls 75 þúsund
krónur. Ferðagjöfin er undanþegin
skatti. Þá er hámark á ferðagjafir
sem hvert fyrirtæki má taka við. Al-
mennt er það 100 milljónir króna en
25 milljónir hafi fyrirtækið verið met-
ið í rekstrarerfiðleikum um síðustu
áramót.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir ferðamálaráðherra kynnti
frumvarp þessa efnis á ríkisstjórnar-
fundi í gær. Um
er að ræða út-
færslu á áður boð-
aðri aðgerð
stjórnvalda um
1,5 milljarða
króna innspýt-
ingu til að örva
innlenda eftir-
spurn eftir ferða-
þjónustu.
Hægt verður að
nálgast gjafabréf-
ið á ferdalag.is og það má nota það
hvar sem er á landinu, líka í sínum
heimabæ. Það nýtist hjá ferðaskrif-
stofum, gististöðum, veitingastöðum,
bílaleigum og á söfnum og hjá fyrir-
tækjum sem bjóða sýningu þar sem
áhersla er lögð á íslenska menningu,
sögu eða náttúru. Ferðagjöfin verður
virkjuð snemma í júní.
Hægt að safna ferða-
gjöfum stjórnvalda
Hámarkið 75 þúsund krónur á mann
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð
Gylfadóttir