Morgunblaðið - 23.05.2020, Qupperneq 14
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Meginástæðan fyrir því aðvið stofnuðum þettaíþróttafélag er sú aðíþróttaiðkun hér í upp-
sveitunum hefur verið þannig að
hver sveit er með æfingar í sínu
horni. Fyrir vikið hefur ekki náðst
nægilegur fjöldi til að halda úti full-
skipuðum liðum,“ segir hinn fram-
takssami Sólmundur Magnús Sig-
urðarson, sem er 19 ára og hvata-
maður að því að nú á vordögum var
stofnað nýtt íþróttafélag sem og
nýtt fótboltalið í meistaraflokki,
undir heitinu Íþróttafélag Upp-
sveita, ÍBU.
„Kveikjan að þessu er sú að ég
og Gústaf Sæland erum að þjálfa
krakka á grunnskólaaldri í Reyk-
holti í Biskupstungum og við vorum
ekki með nógu marga krakka til að
fara með þau og keppa á mótum, því
þar er miðað við flokka og það þurfa
að vera sjö í hverju liði. Við gátum
troðið okkur sums staðar inn á mót
með yngri flokkana með því að bæta
einum og einum eldri eða yngri í lið-
ið hjá okkur. Þetta var mjög haml-
andi, svo við Gústi fórum að bjóða
krökkum úr Grímsnesinu og frá
Laugarvatni með á æfingar og mót í
fyrrasumar. Í framhaldinu hafa ver-
ið sameiginlegar æfingar félaganna
um helgar.“
Skiptast á að þjálfa krakkana
„Þetta nýja félag er í raun eins
og regnhlíf yfir öll liðin í sveitunum
hér í uppsveitum Árnessýslu, sem
sagt í Bláskógabyggð, Grímsnesi,
Hrunamannahreppi og Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. ÍBU-skammstöf-
unin átti að standa fyrir Íþrótta-
bandalag uppsveita, en við komumst
að því að við megum ekki heita
bandalag, svo við breyttum því í
Íþróttafélag Uppsveita, eða Upp-
sveitir, í styttingu,“ segir Sólmund-
ur, sem hefur undanfarin tvö ár
þjálfað ásamt fyrrnefndum Gústa
krakka í fótbolta á grunnskólaaldri í
Reykholti fyrir Ungmennafélag
Biskupstungna, en Sólmundur er
fæddur og uppalinn í þeirri sveit.
„Við Gústi skiptum þessu á
milli okkar, ég sé um þjálfunina
einn dag í viku en hann sér um það
hinn daginn,“ segir Sólmundur, sem
keyrir til þeirra verka frá Selfossi í
hverri viku, því hann stundar nám í
Fjölbrautaskóla Suðurlands og býr
fyrir vikið á Selfossi.
Sumarið mun byrja í júní
Sólmundur segir að á stofn-
fundi félagsins ÍBU hafi einnig ver-
ið stofnaður formlega nýr meistara-
flokkur í fótbolta karla.
„Áhuginn á fótbolta er mikill og
það voru svo margir eldri iðkendur
að við vorum komin með meistara-
flokk hjá körlum. Við lítum á þenn-
an meistaraflokk sem aukaafurð í
nýja íþróttafélaginu. Þegar meist-
araflokkurinn var kominn á flug
hafa margir bæst í hópinn, líka við
að vinna í stofnun félagsins. Í þess-
um meistaraflokki etjum við fram
einu liði fullorðinna karla, en við er-
um um það bil 40 sem erum virkir í
hópnum sem æfum og spilum fót-
bolta. Sá sem þjálfar okkur heitir
Elvar Már Svansson og við æfum
þrisvar í viku í Árnesi og á Flúð-
um,“ segir Sólmundur, sem þarf því
að keyra frá Selfossi fjórum sinnum
í hverri viku, einu sinni til að þjálfa
og þrisvar til að æfa sjálfur í meist-
araflokknum sem heitir KSÍ upp-
sveitir.
„Aldursskiptingin í hópnum er
þannig að um
helmingur okkar
er átján til tutt-
ugu ára, en hinn
helmingurinn er
25 ára til þrí-
tugs. Við erum
spenntir, fórum
á okkar fyrsta
æfingaleik fyrir
áramót og höf-
um keppt á æf-
ingamótum líka.
Við spiluðum fyrsta
KSÍ-leikinn okkar í
Lengjubikarnum, en
sú keppni var skömmu síð-
ar blásin af vegna
Covid. Samkvæmt
KSÍ eigum við að
spila næst 7. júní, þá
byrjar sumarið hjá okkur,“ segir
Sólmundur og bætir við að mikill
hugur sé í þeim félögunum, sannur
ungmennafélagsandi og metnaður.
„Margir okkar keyra langan
veg til að komast á æfingar, sumir
búa á Selfossi og nokkrir í Reykja-
vík. Í vetur höfðum við eina æfingu í
viku á Selfossi til að koma til móts
við þá sem búa í bænum.“
Gyllt fyrir Gullna hringinn
Sólmundur segir að sveitar-
félögin séu að spá og spekúlera
hvernig þau eigi að koma að þessu
nýja félagi, Íþróttafélagi Uppsveita.
„Þau eru að setja upp alls kon-
ar sviðsmyndir um hvernig þetta
gæti verið, hversu mikið vægi þetta
félag verður með á móti gömlu fé-
lögunum og hvort okkar félag verði
regnhlíf yfir fleiri
íþróttir en fót-
bolta og fleira í
þeim dúr. Þetta
er allt í mótun,
en mér finnst
líklegt að félagið
muni ná yfir
fleiri íþróttir í
uppsveitunum í
framtíðinni.“
Hvers vegna
völduð þið hrútinn
sem tákn í merki
hins nýja félags?
„Við lögðum þær
línur fyrir hönnuðinn að ein-
kennin í merkinu
ættu að vera hrútur í
einhverri mynd og
merkið ætti að hafa í
sér gylltan lit og rauðan. Gyllti lit-
urinn stendur fyrir Gullna hringinn,
ferðamannahringinn sem liggur í
gegnum svæðið hér, en rauði litur-
inn varð fyrir valinu af því við vild-
um ekki vera með lit sem gömlu fé-
lögin voru með í sínum merkjum.
Við þurfum að skera okkur úr.
Hrúturinn stendur fyrir sveitina,
bændasamfélagið.“
Regnhlíf yfir öll liðin í sveitunum
Þeir gerðu sér lítið fyrir
ungu mennirnir í upp-
sveitum Árnessýslu og
stofnuðu nýtt íþróttafélag
og líka nýtt lið í meistara-
flokki karla í fótbolta.
Sólmundur Sigurðarson
segir mikinn hug og
metnað vera í hópnum.
Stofnfundur Þessir ungu menn hafa ekki látið sitt eftir liggja við að stofna nýtt íþróttafélag. Hér eru þeir á stofnfundi sem fór fram nýlega. F.v: Anthony
Karl Flores, Sverrir Örn Henriettuson, Sólmundur Magnús Sigurðarson, Kolbeinn Loftsson, Karl Jóhann Einarsson, Bergsveinn Vilhjálmur Ásmundsson,
Máni Snær Benediktsson, Sölvi Freyr Freydísarson, Ásgrímur Örn Jónasson, Gústaf Sæland, Jón Óskar Jóhannesson og Björn Mikael Karelsson.
Uppsveitir Hrútur stendur
fyrir bændasamfélagið.
Framtíðin er björt Þjálfararnir Sólmundur og Gústi ásamt ungu liði ÍBU.
Efri röð f.v. Sólmundur, Bjarni, Árni Tómas, Birkir og Friðrik. Neðri röð
f.v. Unnsteinn Magni, Jóhann Hilmir, Kjartan og Gústaf Sæland.
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.