Morgunblaðið - 23.05.2020, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 23.05.2020, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020 Fjöldi fólks lét lífið um hálftíuleytið í gærmorgun þegar pakistönsk farþegavél brotlenti í íbúðarhverfi í Karachi, höfuðborg landsins. Um borð í vélinni voru 99 farþegar og sjö manna áhöfn. Auk þeirra lést fólk sem bjó í hverf- inu, en ekki liggur fyrir hve margir eru látnir og slasaðir. Aðeins nokkrir dagar eru síðan farþegaflug var leyft á ný í Pakistan, en vegna kórónuveirufaraldursins hefur allt flug legið niðri um nokkurra vikna skeið. Vélin sem var í eigu pakistanska flugfélagsins PIA var við það lenda þegar eitthvað gerðist sem olli því að hún skall niður yfir íbúðarhverfi. Mikil sprenging varð þegar vélin brotlenti og stóðu eldtungur hátt í loft upp frá slys- staðnum. Bráðamóttaka í Karachi staðfesti að til hennar hefðu verið fluttir fimmtán manns sem slasast höfðu á jörðu niðri. Þá var vitað um aðra átta sem höfðu látist. Fjórtán ára gamall sjónarvottur sem AFP-fréttastof- an ræddi við sagðist hafa verið að koma frá bænastund í mosku þegar hann sá vélina hallast á aðra hliðina og ein- kennileg hljóð koma frá hreyflum hennar. Hún hefði flog- ið svo lágt að húsveggirnir heima hjá honum hefðu nötrað. Innanríkisráðherra Pakistans, Ijaz Ahmad Shah, sagði að flugstjórinn hefði örstuttu fyrir hrapið sent frá sér neyðarkall um að vélin hefði misst vélarafl sitt. Fjöldi fólks lést í flugslysi  Farþegaflugvél brotlenti í íbúðarhverfi í Karachi AFP Karachi Björgunarsveitir sprauta vatni á flak farþega- vélarinnar sem hrapaði í þéttbýlu íbúðarhverfi. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Farþegar sem koma til Bretlands frá útlöndum þurfa frá mánaðamót- unum og um ótiltekinn tíma að fara í fjórtán daga sóttkví. Innanríkisráð- herrann Priti Patel greindi frá þessu í gær. Reglan gildir jafnt um breska ríkisborgara sem útlendinga. Stjórnvöld hafa heimildir til að fylgjast með því að fólk haldi sig í sóttkvínni. Þeir sem óhlýðnast fyrir- mælunum geta átt von á eitt þúsund punda sekt. Með þessum ráðstöfunum vilja stjórnvöld koma í veg fyrir að önnur bylgja kórónuveirufaraldursins skelli á landinu. Ferðir á milli Bretlands og Norð- ur-Írlands og Ermarsundseyjanna eru undanþegnar sóttkvínni svo og farþegar frá Írska lýðveldinu. Þá þurfa heilbrigðisstarfsmenn ekki að fara í sóttkví né heldur þeir sem annast birgðaflutninga til landsins. Örfáir aðrir eru undanþegnir regl- unni. Undanþágan sem Írska lýð- veldið fær hefur vakið undrun og gagnrýni. Við komu til Bretlands verða far- þegar frá útlöndum skikkaðir til að gera grein fyrir því hvar þeir muni dvelja á meðan á sóttkvínni stendur. Gengið er út frá því að Bretar muni dvelja á heimilum sínum. Heil- brigðisstarfsmenn munu gera úrtakskannanir á því hvort fólk er í sóttkvínni og hvernig heilsa þess er. Þessar nýju reglur eru áfall fyrir þá Breta sem hugðust ferðast til út- landa nú þegar búið er að opna landamæri sumra nágrannaland- anna og draga úr takmörkunum sem þar hafa verið í gildi. Priti Patel innanríkisráðherra sagði í gær að reglurnar yrðu endurskoðaðar á þriggja vikna fresti. Óljóst væri hve lengi þær þyrftu að vera við lýði. Mörg ríki krefjast enn fjórtán daga sóttkvíar af öllum farþegum sem koma að utan. Þar á meðal eru Bandaríkin, Suður-Kórea, Spánn og Nýja-Sjáland. Önnur hafa fellt slík- ar kröfur úr gildi nýlega eða áforma það í næsta mánuði. Óttast skaðann Talsmenn margra breskra flug- félaga og ferðaþjónustufyrirtækja hafa lýst megnri óánægju með sótt- kvína. Þeir óttast skaðleg langtíma- áhrif á atvinnugreinina. „Við fögnum heimsóknum útlend- inga til Bretlands. En við verðum að hugsa um að vernda heilsu þeirra og þjóðarinnar og þess vegna er sóttkvíin nauðsynleg eins og á stendur,“ sagði Brandon Lewis, ráð- herra Norður-Írlands, við frétta- menn. Allir farþegar í 14 daga sóttkví  Nýjar reglur taka gildi í Bretlandi  Gilda jafnt um breska ríkisborgara sem farþega frá útlöndum  Talsmenn flugfélaga og ferðaþjónustufyrirtækja mjög ósáttir og óttast áhrifin á atvinnugreinina AFP Sóttkví Priti Patel innanríkisráðherra greindi frá nýju reglunum í gær. Föstumánuði múslima, ramadan, helgustu hátíð þeirra, lauk í gær og minntust trúaðir þess hvar- vetna um hinn íslamska heim með bæna- stundum. Myndin er tekin í mosku í Karachi, höfuðborg Pakistans. Meðan á föstunni stendur neita múslimar sér um fæði, reykingar og kynlíf frá sólarupprás til sólarlags. Börnum er þó ekki ætlað að fasta á þessa tímabili, né heldur sjúku fólki og öldruðu. AFP Ramadan múslima lauk með bænastundum Enginn hefur rétt til þess að veita morðingjum sádi- arabíska blaða- mannsins Jamals Khashoggis sakaruppgjöf. Þetta sagði unn- usta hans, Hatice Cengiz, í gær eft- ir að annar tveggja sona hans lýsti því yfir í færslu á Twitter að þeir bræður fyrirgæfu bana- mönnum hans athæfið og veittu þeim uppgjöf saka nú þegar Ramad- an, hinum helga föstumánuði músl- ima, væri að ljúka. Khashoggi, sem tilheyrði efstu lögum valdastéttarinnar í Sádi- Arabíu, var myrtur á hrottalegan hátt þegar hann heimsótti skrifstofu aðalræðismanns landsins í Ankara í Tyrklandi í október 2018. Hann hafði gagnrýnt stjórnvöld og skrifað opinskáar greinar um ástandið í landinu í vestræna fjölmiðla. Talið er fullvíst að krónprinsinn, Mohammed bin Salman, hafi fyrirskipað athæfið til að þagga niður í Khashoggi, en konungsfjölskyldan hefur harðlega neitað því. Morðingjarnir eru nú fyr- ir rétti í Sádi-Arabíu og er talið að yfirlýsing sonanna verði til þess að þeir sleppi við dauðarefsingu. Morðingjar fái ekki upp- gjöf saka Jamal Khashoggi Halla Lögg. fast. 659 4044 Ólafur Sölu- og markaðsstjóri 690 0811 Ellert Sölustjóri 661 1121 Sigþór Lögg. fast. 899 9787 Hafrún Lögg. fast. 848 1489 Bárður Sölustjóri 896 5221 Elín Urður Lögg. fast. 690 2602 Elín Rósa Lögg. fast. 773 7126 Lilja Sölufulltrúi 820 6511 Kristján Sölufulltrúi 691 4252 Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.