Morgunblaðið - 23.05.2020, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
Nú þegar keppnir afýmsu tagi liggja niðri áhverju byggðu bóli erekki laust við að gæti
fortíðarþrár í skrifum þeirra sem
fjalla um keppnisgreinar. Skákin
hefur ekki farið varhluta af því þó
svo að mörg mót farið fram á net-
inu t.d. í mót nr. 2 í syrpu sem
Magnús Carlsen stendur fyrir.
Víða má rekast á umfjöllun um
löngu liðin skákmót og er hún þá
oftast sett fram eins og að tiltekið
mót standi yfir akkúrat þessa dag-
ana. Dæmi um þetta fann ég á vef-
síðu Chessbase um stórmótið í
New York 1924 og fyrirsögnin var:
Lasker eykur forystu sína eða:
Capablanca sannfærandi –
Lasker heppinn.
Þetta var raunar merkilegt
skákmót sem fór fram þarna í
heimsborginni fyrir næstum 100
árum og gat af sér fyrstu for-
síðumynd Time af skákmeistara.
Hana prýddi kúbverski heims-
meistarinn og kvennaljóminn Jose
Raoul Capablanca.
Á áðurnefndri vefsíðu er Bobby
Fischer vinsælastur í þessari teg-
und umfjöllunar. Rakin hafa verið
nokkur mót þar sem hann var
meðal þátttakenda árið 1970 og
áskorendakeppnin sem hófst ári
síðar fær svipaða meðferð. Sér-
fræðingi, sem var kallaður var til,
tókst að sanna með aðstoð öflugra
forrita að staða hans í fjórðu ein-
vígisskákinni við Taimanov árið
1971 hafi verið unnin eftir allt sam-
an en Taimanov þótti hafa varist
illa og að Tigran Petrosjan hafi
getað haldið jafntefli í sjöttu skák-
inni í einvíginu við Fischer sem
fram fór nokkrum mánuðum síðar,
en til þess þurfti hann að hitta á
biðleik sem var samt einhvern veg-
inn alveg út úr karakter Armen-
ans.
Úr skáksögu okkar má líka rifja
upp marga merkis viðburði. Í sum-
ar verða t.d. 70 ár liðin frá því að
íslenskir skákmenn unnu alla
flokka Norðurlandamótsins sem
fram fór í nýreistu Þjóðminjasafni.
Baldur Möller varði titilinn frá
1948, Friðrik Ólafsson 15 ára vann
meistaraflokk og Þórir Ólafsson,
Birgir Sigurðsson og Ólafur Ein-
arsson unnu riðla 1. flokks.
Fyrir lokaumferð mótsins hafði
Baldur naumt forskot í landsliðs-
flokki og átti að tefla við helsta
keppinaut sinn um sigurinn, Norð-
manninn Aage Vestöl, sem var ½
vinningi á eftir og varð að vinna.
Mögnuð viðureign og vel tefld.
Fyrirsögn Morgunblaðsins þann
10. ágúst árið 1950 var:
Biðskák hjá Vestöl og Baldri
Möller í gær.
Biðstaðan var þessi:
Skákþing Norðurlanda 1950; 9.
umferð:
Aage Vestöl – Baldur Möller
Það hallar greinilega á hvítan.
Biðleikurinn var:
41. e6 d2 42. Hf1 Ke5 43. Ke2 Kf6
44. Hf4 Hd6 45. Kd1 Hd5 46. Hf3
He5 47. Hf1 a6 48. Hg1 Kxf5 49. a4
bxa3
50. Hf1+?
Í skýringum í Skákritinu var því
haldið fram að hvítur gæti haldið
jafntefli með 50. Hg5+ Kxe6 51.
Hg6+ Kd5 52. Hd6+! Hrókurinn
eltir kónginn, og ef hann er drepinn
er hvítur patt. En ungur maður,
Freysteinn Þorbergsson, hafði sitt-
hvað við þetta athuga. Hann sendi
Skákritinu bréf og þar stóð m.a.:
Eftir 49. leik svarts telur skýring-
arhöfundur, að hvítur geti náð jafn-
tefli með 50. Hg5+ Kxe6 51. Hg6+
Kd5 52. Hd6+ o.s.frv. En eftir 52. …
Ke4 53. Hd4+ Ke3 54. Hd3+ Kf4 55.
Hf3+ Ke4 56. Hf4+ Ke3! (til þess að
fá hrókinn á 3. reitalínuna) 57. Hf3+
Kd4 58. Hd3+ Kc5 59. Hxc3 Kb4
vinnur svartur auðveldlega.
50. … Kg4 51. Hg1+ Kh3
- Hvítur gafst upp og Baldur Möll-
er var Norðurlandameistari öðru
sinni.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Oliver Steinn fæddist 23. maí
1920 í Ólafsvík. Foreldrar hans
voru hjónin Jóhannes Magnús-
son, f. 1887, d. 1936, og Guð-
björg Oliversdóttir, f. 1890, d.
1962.
Oliver ólst upp í Ólafsvík og
frá 1933 í Hafnarfirði. Hann
lauk gagnfræðaskólaprófi frá
Flensborgarskóla, var versl-
unarmaður hjá KRON og
verslunarstjóri Bókaverslunar
Ísafoldarprentsmiðju. Hann
rak eigin bókaverslun í Hafn-
arfirði 1957-1978 og jafnframt
sitt eigið bókaforlag, Skuggsjá.
Oliver var í stjórn Félags ís-
lenskra bókaverslana 1953-
1955, var formaður Bóksala-
félags Íslands sem nú heitir
Félag íslenska bókaútgefenda
1964-1969 og 1980-1984. Hann
sat í stjórn Styrktarfélags aldr-
aðra í Hafnarfirði frá stofnun
þess 1968, sat í stjórn FH um
árabil og sat í fyrstu stjórn
Frjálsíþróttasambands Ís-
lands. Hann var bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði 1974-1978.
Oliver var margfaldur Ís-
landsmeistari og methafi í
frjálsum íþróttum 1939-1947,
en sérgrein hans var lang-
stökk.
Eiginkona Olivers var Sig-
ríður Þórdís Bergsdóttir, f.
1924, d. 1998. Börn þeirra eru
þrjú.
Oliver lést 15.4. 1985.
Merkir Íslendingar
Oliver Steinn
Jóhannesson
Capablanca á forsíðu Time.
Fortíðarþrá
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is
Hamraborg 12
200 Kópavogur
416 0500
www.eignaborg.is
ÁRANGUR
Í SÖLU
FASTEIGNA
Birkigrund 9a , 200 Kópavogur
Eignin verður sýnd eftir pöntun
Verð 118 m.
Stærð 189 m2 + óskráð rými
Upplýsingar gefa
Vilhjálmur Einarsson lgfs í síma 864 1190, villi@eignaborg.is
og Óskar Bergsson lgfs sími 893 2499, oskar@eignaborg.is
Virðulegt og vel byggt steinsteypt einbýlishús byggt árið 1950 sem stendur á tæplega 2.000 fm lóð með miklum trjágróðri.
Eignin er einstaklega vel staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu en um leið á mjög rólegum og afar veðursælum stað í
náttúruperlu Fossvogsdalsins, Kópavogsmegin. Skóli og leikskóli eru í göngufjarlægð og stutt er í
fallegar gönguleiðir. Virkilega fallegt og vel umgengið einbýli á þremur hæðum. Aðeins tveir
eigendur frá upphafi. Gott fjölskylduhús með aukaíbúð á efstu hæð.
ASÍ – stéttarfélög.
Hvað er það? Við
sem höfum unnið frá
blautu barnsbeini
höfum greitt til stétt-
arfélaga mánaðarlega
hluta af launum.
Greitt í lífeyrissjóði,
sem eru ekkert ann-
að en dulbúinn lög-
legur þjófnaður.
Þegar svo kemur að
eftirlaunaaldri virkar lífeyrissjóð-
urinn lítið og Tryggingastofnun
spilar með; passar upp á að halda
þessum greiðslum til eftirlauna-
þega á botninum. Stéttarfélögin
eru eins og spilakassar; þegar
mánaðarlegar greiðslur sem hlut-
fall af launum hætta að berast
koma eftirlaunaþegarnir stétt-
arfélögunum ekkert við lengur.
Spilakassinn stoppar þegar klink-
ið hættir að berast, þó svo að þeir
hafi greitt til þessara félaga alla
sína vinnuævi.
Ég sendi fyrrverandi formönn-
um stéttarfélaganna Eflingar,
ASÍ og VR tölvupóst. Svarið sem
ég fékk, og á það skriflegt, frá
formönnum þessara félaga var að
þeir ynnu fyrir starfandi félaga,
ekki fyrrverandi félaga. ASÍ er
einn af þessum forarpyttum.
Drífa og hinn nýi framkvæmda-
stjóri hennar, báðar á góðum
launum, vinna ekki fyrir almenn-
ing.
Þriðjudaginn 19. maí var skrif-
að undir samstarf nokkurra stétt-
arfélaga ASÍ og Öryrkjabanda-
lagsins, ekki höfðu þeir með
fulltrúa eftirlaunaþega. Öryrkjar
væru vel að þessu komnir, en
þarna stigu þeir út úr samstarfi
við eftirlaunaþega. NB: Þegar ör-
yrki nær eftirlaunaaldri fer hann
á eftirlaun en ekki sem öryrki og
verður á strípuðum eftirlaunum
frá TR. ASÍ er rotið félag svo og
flest stéttarfélög; „gambling“
félög, sem skammta
sér góð laun, koma
sínum flokksfélögum
að og þá kemur þeim
ekkert við um þá sem
áður byggðu upp fé-
lögin, þeir mega éta
það sem úti frýs.
Þegar foringjar
vinna svona hlýtur að
skapast forsenda fyrir
að fá endurgreiðslu á
öllum stéttarfélags-
gjöldum, með vöxtum
og verðtryggingu. Svona fram-
koma við fyrrverandi félaga, sem
hafa skilað sínu æviverki, lýsir
þessum félögum og því hugarfari
sem þeir bera til sinna fyrrver-
andi meðlima. Ég tel að skyldu-
aðild að stéttarfélagi hljóti að
vera á vafasömum grundvelli.
Til að fá fram vilja og skoðanir
þessara aðila sendi ég eins og
fyrr segir tölvupóst til fyrrver-
andi formanna ofangreindra fé-
laga og fékk skýr svör; þeir ynnu
aðeins fyrir þá sem væru greið-
andi í félögin, þeir sem væru
komnir á eftirlaun kæmu þeim
ekkert við. Ég sendi öllum þeim
nýju foringjum sem tóku við
stéttarfélögunum tölvupóstssvar
fyrirrennara þeirra, eini nýi for-
maðurinn sem var sammála mér
var Vilhjálmur Birgisson á Akra-
nesi, hinum fannst þetta ekki
svaravert. Ég mun birta þessi
svör í næsta pistli mínum.
Stéttarfélög
fyrir hvern?
Eftir Guðjón
Jónsson
Guðjón Jónsson
» Þegar meðlimur í
stéttarfélagi fer á
eftirlaun virkar félagið
eins og spilakassi; þegar
klinkið hættir að koma
stoppar kassinn.
Höfundur er fyrrverandi skipstjóri.
Seaways@simnet.is