Morgunblaðið - 23.05.2020, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
✝ Magnús Val-steinn
Tryggvason fædd-
ist á Akureyri 5.
febrúar 1936. Hann
lést á Kristnesi 15.
maí 2020. For-
eldrar hans voru
hjónin Tryggvi
Stefánsson, f. 14.
nóvember 1893, d.
11. mars 1983, og
kona hans Sigrún
Jónína Trjámannsdóttir, f. 18.
desember 1898, d. 23. júní 1965.
Systkini Magnúsar voru Hörður
Zóphaníasson, f. 25. apríl 1931,
d. 13. maí 2015,
Stefán Trjámann, f.
2. júní 1933, d. 22.
október 2001, Jós-
ef, f. 5. febrúar
1936, d. 17. febrúar
2007, og Sigríður
Sigurrós, f. 27. nóv-
ember 1938, d. 2.
apríl 2010.
Magnús kvæntist
9. nóvember 1960
Lilju Magn-
úsdóttur, f. 7. mars 1941, d. 4.
september 1988. Lilja var fædd í
Hvammi á Hjalteyri og ólst að
mestu upp á Hjalteyri. Börn
Magnúsar og Lilju eru: 1) Magn-
ús, f. 27. maí 1962. Kona hans er
Ingveldur Guðrún Ólafsdóttir.
Þau búa á Akureyri. Saman eiga
þau tvö börn, Ólaf Þór og Lilju.
Áður átti Magnús dótturina
Freydísi Dögg. Barnabörnin eru
níu. 2) Valrún Helga, f. 29. apríl
1968. Maður hennar er Jóhann
Pétursson. Börn þeirra eru
Heiðar Gauti, Lilja Katrín og
Gunnborg Petra. Þau búa á Ak-
ureyri.
Magnús stundaði sjó á yngri
árum. Síðan lærði hann trésmíði
og starfaði sem húsasmíða-
meistari um árabil. Síðasta ald-
arfjórðung starfsævinnar var
hann húsvörður og hafði umsjón
með leiguíbúðum Akureyr-
arbæjar.
Útför Magnúsar fer fram í
Möðruvallakirkju í Hörgárdal
23. maí 2020 klukkan 14.
Maggi frændi er látinn. Þar
með eru öll fimm börn Sigrúnar
Trjámannsdóttur og Tryggva
Stefánssonar farin heim. Þau ól-
ust upp í Lundargötu og Ægis-
götu á Oddeyri, fjórir bræður og
ein systir. Samheldin fjölskylda,
strákarnir hver öðrum stríðnari –
en traustir þegar á reyndi.
Hörður faðir okkar var elstur,
Magnús yngstur bræðranna.
Samgangur systkinanna og af-
komenda þeirra var alltaf mikill.
Síðustu áratugi hafa reglulega
verið haldin ættarmót, oftast á
Þrastarhóli, en þangað fluttu Sig-
rún og Tryggvi 1954 og bjuggu
þar um árabil með Jósef syni sín-
um, Vilborgu konu hans og
stórum barnahópi þeirra. Ættar-
mótin hafa alltaf verið góðar sam-
komur, þar sem gleðin hefur ríkt.
Maggi var ævinlega hrókur alls
fagnaðar, hélt ræður og sagði
sögur.
Systirin Sigga giftist til
Klakksvíkur í Færeyjum – og af
henni er kominn stór ættbogi,
Gunnarstein-fjölskyldan. Stund-
um voru ættarmótin haldin þar.
Maggi kom auðvitað þangað og
hélt sterkum tengslum við fær-
eyska ættlegginn.
Við elstu systkinin bjuggum á
Þrastarhóli 1954-55 og á Hjalt-
eyri 1955-58. Þar kynntumst við
Magga vel. Hann var þá ógiftur
og sinnti frændsystkinum sínum
mikið – og af glettni. Í Ólafsvík
bjuggum við 1958-60. Maggi kom
þangað á vertíð – og sömuleiðis
Lilja Magnúsdóttir, sem hafði
verið í skátaflokki hjá föður okkar
á Hjalteyri. Þau bjuggu hjá okkur
í skólastjórabústaðnum við Enn-
isbraut – og úr varð farsælt
hjónaband.
Á yngri árum stundaði Maggi
sjóinn, m.a. á togaranum Agli
Skallagrímssyni, sem landaði
stundum á Hjalteyri. Það fannst
okkur kennarabörnunum töff. En
lengst af vann hann í landi.
Lilja og Maggi giftu sig 1960
og bjuggu þrjú ár á Hjalteyri.
Þaðan fluttu þau í Lundargötu,
þar sem Tryggvi Stefánsson hafði
starfrækt skósmíðaverkstæði –
og þar sem Maggi ólst upp fyrstu
æviárin. Ættingjar að sunnan
voru alltaf velkomnir í gistingu
þar, þó að húsakynnin væru ekki
stór. Áratug síðar byggðu Maggi
og Lilja myndarlegt hús í Lerkil-
undi á Akureyri. Þar bjuggu þau
með börnum sínum – og áfram
voru ættingjarnir ávallt velkomn-
ir í heimsókn. Gott var að hlusta á
hjónin segja á gamansaman hátt
frá svaðilförum sínum í tíðum
óbyggðaferðum um Ísland – og
smástríða hvort öðru í leiðinni.
Lilja dó langt fyrir aldur fram
1988, aðeins 47 ára að aldri – og
var okkur öllum mikill harm-
dauði.
Á kveðjustund er margs að
minnast. Maggi var traustur
maður og góður, ekki síst við
börn. Hann var ævinlega ræðinn
og skemmtilegur, hafði skoðanir á
öllu – og stutt var í bros og hvell-
an hlátur. Við systkinin sendum
afkomendum og ættingjum öllum
dýpstu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Magnúsar
Valsteins Tryggvasonar.
Ólafur Þ. Harðarson,
Sigrún, Ragnhildur,
Elín, Kristín Bessa og
Guðrún Harðardætur.
Magga frænda, föðurbróður
minn, hef ég þekkt frá fæðingu í
bókstaflegri merkingu. Hann
heimsótti mig, nýfæddan frænda
sinn, á fyrsta degi á fæðingar-
deild Sjúkrahússins á Akureyri
og tæplega 65 árum síðar gat
hann bent mér á fæðingarstofu
mína.
Maggi var mér afar kær alla tíð
enda mikill öðlingsmaður í alla
staði. Hann byrjaði að dekra við
mig strax í bernsku minni.
Oft rifjaði hann upp fyrir mér
að eftir að fjölskylda mín hafði
flutt í íbúð í Miklagarði á Hjalt-
eyri, eftir árs búsetu í gamla torf-
bænum á Þrastarhóli, hefði ég
vafið honum um fingur mér og
látið hann skutla mér fram og til
baka milli Hjalteyrar og Þrastar-
hóls, allt eftir því hvort ég vildi
sofa heima hjá foreldum mínum
eða hjá Tryggva afa og Sigrúnu
ömmu. Þrátt fyrir að það hafi ver-
ið fyrir mitt minni hafa þá þegar
myndast sterk og órjúfanleg
tengsl okkar á milli.
Síðar, laust fyrir 1960, bjó ég í
Ólafsvík. Þá var Maggi frændi
mættur til okkar og stundaði sjó
þaðan.
Er mér enn í fersku minni þeg-
ar óveður gekk yfir og flestir
bátar á sjó. Hálfur bærinn var
mættur niður á bryggju til að
fylgjast með bátunum koma að
landi, en í þá daga fórust allt of
margir sjómenn á Íslandsmiðum.
Man ég glöggt hvað mér létti
þegar báturinn hans Magga kom
siglandi inn höfnina heilu og
höldnu.
Meðan ég bjó á Hjalteyrinni
var Maggi þegar farinn að gera
hosur sínar grænar fyrir Lilju frá
Ytri-Bakka, sem síðar átti eftir að
verða eiginkona hans. Átti ég eft-
ir að eiga margar ánægjulegar
samverustundir með þeim.
Meðan ég var í sveit í Dagverð-
artungu var afar kærkomið að
koma við hjá þeim Magga og Lilju
í Lundargötunni og leika við litlu
frændsystkini mín.
Síðar átti ég eftir að heim-
sækja þau í Lerkilundinn og njóta
gestrisni þeirra. Alltaf var tekið
jafn vel á móti manni og rifjaðir
upp gamlir tímar. Höfðu þau bæði
gaman af að segja mér sögur af
sjálfum mér frá því fyrir mitt
minni. En Lilja lést langt fyrir
aldur fram og blessuð sé minning
hennar.
Í Skógarhlíðinni naut ég einnig
gestrisni Magga frænda. Alltaf
var hann sami öðlingurinn, ljúf-
mennið og snyrtipinninn líkt og
faðir hans, afi Tryggvi.
Þá eru ógleymanlegar minn-
ingar frá Færeyjaferðum þegar
við heimsóttum frændfólk okkar í
Klaksvík.
Um leið og ég kveð kæran
frænda færi ég Madda, Valrúnu
og fjölskyldum þeirra mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Tryggvi Harðarson.
Magnús V.
Tryggvason
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Minningargreinar
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undirbúnings og
framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju
að leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
MARÍUS KÁRASON,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hólmavík
10. maí. Útför hans fór fram frá
Hólmavíkurkirkju 16. maí.
Þökkum hlýhug og vinsemd alla.
Kristbjörg Jónsdóttir
Ægir Þórunn Elfa
Selma Óli Þór
Berglind Kristný Maren
Hafrún Hallgrímur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN VILBERG VILHJÁLMSSON,
Faxabraut 13,
Keflavík,
lést á Hrafnistu, Hlévangi, laugardaginn
16. maí. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ásta Vigdís Böðvarsdóttir
Kristjana P. Kristjánsdóttir Raymond McQueen
Anna Magnea B. Kristjánsd. Kjartan Þór Guðmundsson
Böðvar Þórir Kristjánsson Guðrún Karitas Garðarsdóttir
Helga Marín Kristjánsdóttir Hörður Ingi Sveinsson
afabörn og langafabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma
og tengdamóðir,
RANNVEIG TÓMASDÓTTIR,
Brekkubyggð 26, Garðabæ,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar
þriðjudaginn 19. maí.
Útför verður auglýst síðar.
Þórhallur Arason
Halla Björg Þórhallsdóttir Guðmundur Kristinsson
Þorbjörg Þórhallsdóttir Gísli Þór Guðmundsson
Tómas Magnús Þórhallsson Unnur Lilja Hermannsdóttir
Rannveig Myrra Gísladóttir
Rakel Tómasdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐBJÖRG GUÐMANNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk mánudaginn
18. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á
hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir einstaka
umönnun. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Svandís Magnúsdóttir Stefán Benediktsson
Guðmann Magnússon Sigríður Ólafsdóttir
Sigurður Bjarki Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
LILJA HELGA GUNNARSDÓTTIR,
lést laugardaginn 9. maí.
Útförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 27. maí klukkan 15.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að láta Elliheimilið Grund njóta.
Ingimundur Magnússon
Magnús Ingimundarson Brynhildur Ingvarsdóttir
Gunnar Ingimundarson Hrund Sch. Thorsteinsson
Bolli Þór Bollason Hrefna Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
ÁGÚST Á. JÓHANNSSON,
Vatnsnesvegi 20, Keflavík,
lést sunnudaginn 17. maí.
Í ljósi aðstæðna verða eingöngu nánasta
fjölskylda og vinir viðstödd útförina
sem fer fram miðvikudaginn 27. maí frá Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Elvar Ágústsson Steinunn Hákonardóttir
Elva Björk Elvarsdóttir Elvar Örn Brynjólfsson
Ágúst Rúnar Elvarsson Guðrún Pétursdóttir
og barnabarnabörn
Sálm. 14.2
biblian.is
Drottinn horfir á
mennina af himnum
ofan til þess að sjá
hvort nokkur sé
hygginn, nokkur
sem leiti Guðs.