Morgunblaðið - 23.05.2020, Síða 33

Morgunblaðið - 23.05.2020, Síða 33
250 NÝ SUMARSTÖRF                   !!   "        585 5500         Vísindi á vakt Hjá Veðurstofu Íslands starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk að stuðla að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar. Því hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga. Jafnframt er það hlutverk Veðurstofunnar að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni. Nánari upplýsingar um Veðurstofu Íslands má finna á vedur.is Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða í tvö spennandi störf: Snjóflóðasérfræðingur á Eftirlits- og spásviði Á sviðinu starfa rúmlega 50 starfsmenn við ýmis störf er leika lykilhlutverk í íslensku samfélagi þegar kemur að eftirliti, vöktun og þjónustu vegna náttúruvár og veðurs. Viðkomandi er hluti af samstilltu teymi sérfræðinga ofanflóðavöktunar Veðurstofunnar, sem er í nánu samstarfi meðal annars við snjóathugunarfólk víðsvegar um landið og veðurfræðinga á vakt. Sérfræðingur á sviði ofanflóðahættumats á Úrvinnslu-og rannsóknasviði Á sviðinu starfa rúmlega 50 manns við ýmis spennandi þróunar- og rannsóknaverkefni er tengjast veður- og loftslagsrannsóknum, ofanflóðum, jökla-, vatna- og haffræði, jarðskorpuhreyfingum og eldgosum. Viðkomandi yrði hluti af teymi 10 sérfræðinga á fagsviði ofanflóða. Hópurinn vinnur meðal annars að hættumati, vöktun og rannsókna- og þróunarverkefnum tengdum ofanflóðum. Ef þú hefur áhuga á að vinna í samstilltu teymi sérfræðinga sem sinnir mikilvægum og krefjandi verkefnum þegar kemur að eftirliti, vöktun, rannsóknum og þjónustu vegna náttúruvár og veðurs, þá skaltu kynna þér störfin á Starfatorginu – starfatorg.is en þar eru að finna nánari upplýsingar og hæfniskröfur sem gerðar eru. Umsóknafrestur er til og með 2. júní, 2020. – sem sinna eftirliti, vöktun, rannsóknum og þjónustu vegna ofanflóða TVÖ STÖRF Í ÖFLUGU TEYMI SÉRFRÆÐINGA Gildi Veðurstofunnar eru þekking áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum. capacent.is       Ráðgjafar okkar búa                  

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.