Morgunblaðið - 23.05.2020, Qupperneq 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
Klippt og beygt
fyrirminni og
stærri verk
ÍSHELLU 1 | HAFNARFIRÐI | S. 534 1500 | KAMBSTAL.IS
50 ára Hlynur ólst upp
á Hvolsvelli en er kúa-
bóndi á Voðmúlastöð-
um í Austur-
Landeyjum og trúba-
dor. Hlynur er
bifreiðasmiður að
mennt.
Maki: Guðlaug Björk Guðlaugsdóttir, f.
1971, kúabóndi.
Börn: Valtýr Freyr, f. 1992, Brynja Sif, f.
1994, og Sæbjörg Eva, f. 1999. Barna-
börnin eru orðin þrjú.
Foreldrar: Brynja Bergsveinsdóttir, f.
1947, fv. starfsmaður Rarik, og Theodór
Guðmundsson, f. 1943, fv. verkstjóri hjá
Skógrækt ríkisins. Þau eru búsett á
Hvolsvelli.
Hlynur Snær
Theodórsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Varastu ofríki því það skemmir fyrir
sambandi þínu við samstarfsmenn eða vini.
Hrós getur breytt deginum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér hættir til að færast of mikið í fang
í dag. Treystu á innsæið og gakktu úr
skugga um að upplýsingarnar sem þú færð
séu réttar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú getur lært mikið á því að
skiptast á skoðunum við vin þinn. Haltu ró
þinni. Þér finnst ástin liggja í loftinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Láttu ekki gráma hversdagslífsins
ná tökum á þér. Vertu ekki of bráðlát/ur.
Bíddu með að láta skoðanir þínar í ljós, sér-
staklega ef þú ert ósammála síðasta ræðu-
manni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er auðvelt að finna til vanmáttar
síns í dag. Láttu samt ekki áhyggjurnar taka
völdin, sólin heldur áfram að koma upp.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert opin/n fyrir fegurðinni í kring
um þig. Spurðu sjálfa(n) þig hvort rifrildið
snúist í raun um peninga eða um eitthvað
sem ekki hefur verið rætt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú skalt ekki vera vonsvikinn þótt eitt-
hvað renni þér úr greipum. Þér finnst öll
vandamál heimsins hvíla á herðum þér. Lof-
aðu fólki að segja sína skoðun.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert eitthvað annars hugar í
vinnunni og verður að taka þig á áður en allt
fer í vitleysu. Njóttu frelsisins á meðan það
varir því það verður ekki mikið lengur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú færð tækifærri til að taka
stjórnina í einhverju máli, gríptu þá tækifær-
ið. Ekki efast um getu þína til að finna bestu
leiðina út úr vandanum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu ekki aðra fara í taugarnar á
þér þótt þeir vilji tjá þér vangaveltur sínar
um daginn og veginn. Farðu samningaleið-
ina í skiptamáli.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er einhver spenna í þér og
hætt við að þú látir það bitna á fólkinu í
kring um þig. Reyndu að koma einhverju af
því í verk, því þá líður þér betur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú reynir á skipulagshæfileika þína
og sjálfsaga næstu vikur. Ekki er allt gull
sem glóir, þú færð kannski að kynnast því ef
þú ert ekki á varðbergi.
stjóranum á Suðurnesjum, en þá var
verið að stofna Varnarmálastofnun Ís-
lands og var ég fenginn í þá uppbygg-
ingu.“
Sumarið 2010 var Varnarmálastofn-
un lögð niður og starfsemin flutt til
Landhelgisgæslu Íslands og fluttist
Óskar þá til ríkislögreglustjóra, þar
sem hann tók við peningaþvættis-
skrifstofu. Vorið 2013 var Óskar beð-
inn um að skoða öryggismál Stjórnar-
ráðsins, en í framhaldi af því lá leiðin á
varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, en sú skrifstofa sá um
öryggis- og varnarmál og tengingu við
NATO. Þar starfaði Óskar þar til
hann fór á eftirlaun 1. júní 2015, eftir
44 ár í lögreglunni og tengdum störf-
um. Lögreglumenn þurfa að fara,
samkvæmt lögum, á eftirlaun 65 ára.
Óskar tók síðan að sér að fara á veg-
um varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins til Noregs, Hollands,
Belgíu og Englands til að vinna
varnaráætlanir hjá NATO, sem lauk
haustið 2017.
Óskar tók virkan þátt í félags-
störfum, var í stjórn IPA (Inter-
national Police Association) á Íslandi
og forseti í nokkur ár og ýmsum öðr-
um stjórnum s.s. Landssambandi lög-
reglumanna, Lögreglufélagi Suður-
nesja, framsóknarfélögum á Suður-
nesjum og Suðurkjördæmi og nú í
steinsson lögreglustjóri honum að
veita forystu nýrri fíkniefnadeild. Árið
1991 var Óskar skipaður yfirlög-
regluþjónn á Keflavíkurflugvelli.
Vorið 2004 fór Óskar í sérverkefni
til NATO í Belgíu. Öllum aðildar-
ríkjum NATO var boðið að senda full-
trúa til ACCI (Allied Command
Counter Intelligence) sem var banda-
rísk gagnnjósnadeild. Auk þess tók
Óskar sæti hermálafulltrúa Íslands í
SHAPE (Supreme Headquarters
Allied Powers Europe) og sinnti öðr-
um störfum tengdum öryggis- og
varnarmálum. „Eftir komuna frá
Belgíu haustið 2008 var ætlunin að ég
færi aftur í mitt starf hjá lögreglu-
Ó
skar Herbert Þórmunds-
son er fæddur 23. maí
1950 í Reykjavík og ólst
upp í Melabragganum
við Hjarðarhaga.
„Fyrstu minningarnar eru fjaran við
Ægisíðuna, kappleikir á Melavellin-
um, en við strákarnir grófum okkur
undir bárujárnsgirðinguna til að kom-
ast inn, Trípólíbíó og Dairy Queen ís-
búðin við enda braggans,“ segir
Óskar. Hann segist einnig ráma í
skrítinn karl sem bjó í bragganum og
hét Vilhjálmur frá Skálholti.
Þegar Óskar var sex ára fluttu for-
eldrar hans á Nýbýlaveg 44a í Kópa-
vogi. „Það var sumpart til að komast í
betra og stærra húsnæði og sumpart
til að forða okkur bræðrunum frá að
hefja skólagöngu sem „braggabörn“.“
Húsið Nýbýlavegur 44a var kjallari,
hæð og ris og stóð beint fyrir ofn
sveitabæinn Grænuhlíð, þar sem
Markús Sigurðsson bóndi bjó, en
stendur nú á horni Hlaðbrekku og
Þverbrekku.
„Æsku- og unglingsárin í Kópavogi
voru skemmtileg og í minningunni
hreint ævintýri. Það var verið að allan
daginn, fótbolti, stríðsleikir, fallin
spýtan, bryggjuveiði, dúfukofasmíði,
hasarblöð, þrjú bíó með Roy, Zorro og
Tarzan og margt fleira. Ég var hepp-
inn að hafa eignast góða og skemmti-
lega æskuvini sem maður ræktar of
lítið sambandið við og hittir of
sjaldan.“
Nokkru eftir að hafa lokið gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Kópa-
vogs ætluðu fjórir ungir menn úr
Kópavogi að leggja land undir fót og
fara til Ástralíu. Tveir heltust úr lest-
inni, einn kom nokkrum mánuðum síð-
ar þar sem hann var fastur á sjó, en
Óskar hélt sínu striki og fór einn á vit
ævintýranna. „Í Ástralíu var ýmislegt
brallað og er það saga út af fyrir sig.“
Eftir rúmt ár í Ástralíu kvæntist Ósk-
ar Elviru Platek og komu þau til Ís-
lands haustið 1971 og var hún þá
barnshafandi.
Óskar gekk í lögregluna í Reykja-
vík eftir komuna frá Ástralíu haustið
1971, en vorið 1972 fór hann í lögregl-
una á Suðurnesjum. Fyrst í almennu
lögregluna og síðan rannsóknarlög-
regluna en vorið 1979 fól Jón Ey-
stjórn Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Einnig er hann virkur félagi í frímúr-
arareglunni á Íslandi og hefur gegnt
þar ýmsum trúnaðarstörfum. Þá sat
Óskar í stjórn Hitaveitu Suðurnesja í
nokkur ár.
Áhugamálin eru mörg og segir
Óskar að dagurinn sé oftast of stuttur,
en áhugamálin eru golf, myndlist, silf-
ur- og skartsmíði, veiðar, smíðar og
ferðalög.
Fjölskylda
Eiginkona Óskars er Helga Ragn-
arsdóttir, f. 22.4. 1961, fótaaðgerðar-
fræðingur og flugfreyja. Þau gengu í
hjónaband 1992 og eru búsett í Kefla-
vík. Foreldrar Helgu eru Ragnar Eð-
valdsson, f. 6.11. 1940, bakarameistari
og Ásdís Guðrún Þorsteinsdóttir, f.
12.3. 1942, húsmóðir. Þau eru búsett í
Keflavík.
Börn Óskars og Elvu Bjargar
Georgsdóttur (Elviru Platek) eru 1)
Hólmfríður Þóra, f. 20.11. 1971, leik-
skólakennari, búsett í Kópavogi, maki:
Brynjar Jónsson; 2) Þorkell Jósef, f.
30.12. 1972, smiður, búsettur í Kefla-
vík, maki: Hafdís Ólafsdóttir; 3) Þor-
björg Magnea, f. 8.1. 1975, listamaður,
búsett í Keflavík; sonur Óskars með
Helgu B. Björnsdóttur flugfreyju er 4)
Óskar Björn, f. 30.5. 1989, nemi, bú-
settur í Reykjavík. Barnabörn Óskars
Óskar Þórmundsson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn – 70 ára
Löggæsla, öryggis- og varnarmál
Hjónin Helga og Óskar.
Stórfjölskyldan Óskar ásamt konu sinni, móður,
tengdaforeldrum og öllum afkomendum nema Kamillu
Birtu, Breka Arndal og Brynjar Arndal jólin 2018.
40 ára Guðný ólst
upp í Seláshverfi í
Reykjavík en býr í
Mosfellsbæ. Hún er
stuðningsfulltrúi í
Varmárskóla. Guðný
ræktar St. Bernharðs-
hunda og hefur hlotið
ýmar viðurkenningar fyrir hundarækt.
Maki: Farney Moore, f. 1990, rafvirki hjá
Veitum.
Synir: Alexander Tryggvi, f. 2009, og
Arthur Valur, f. 2019.
Foreldrar: Anna Ósk Völundardóttir, f.
1956, uppeldisfræðingur og sálfræðingur
og vinnur í Rimaapóteki, og Tryggvi
Ólafsson, f. 1953, stofnandi og fv. eigandi
Plasthúðunar og pökkunar. Þau eru bú-
sett í Reykjavík.
Guðný Vala
Tryggvadóttir
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Arthur Valur
Farnleysson Moore fæddist 10.
desember 2019 kl. 10.40 í Reykja-
vík. Hann vó 4.050 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans eru Guðný
Vala Tryggvadóttir og Farnley
Moore.
Nýr borgari