Morgunblaðið - 23.05.2020, Page 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020
ÞÝSKALAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Martin Hermannsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, segir merki-
legt til þess að vita að stórlið eins og
Panathinaikos sýni honum áhuga.
Ekki sé langt síðan hann hefði ein-
ungis látið sig dreyma um að spila
með liði í þeim gæðaflokki, en gríska
liðið er það þriðja sigursælasta í
Euroleague frá upphafi. Vefmiðillinn
Sportando greindi frá þessu í vikunni
en Martin segir Panathinaikos hafa
sýnt sér áhuga fyrr í vetur en ekkert
nýtt hafi gerst í því.
„Það er orðið nokkuð síðan þeir
höfðu samband við umboðsmanninn
og sögðust vilja vita af því ef ég færi
frá Alba Berlín í sumar. Ég var hissa
á því að þetta skyldi vera til umfjöll-
unar á þessum tímapunkti því ekkert
hefur gerst frekar varðandi þetta.
Þeir hafa hins vegar áhuga og vilja
vera með ef einhver lið reyna að fá
mig í sumar. Umboðsmaður minn er
frá Grikklandi og hann þekkir alla
þar. Nokkur lið hafa haft samband
við hann til að spyrjast fyrir,“ sagði
Martin þegar Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans í gær. Tveggja ára
samningi Martins við Alba lýkur í
sumar og hann segist vilja gefa Alba
Berlín tækifæri til að gera sér tilboð
áður en lengra verði haldið.
„Þeir buðu mér upphaflega þriggja
ára samning en ég vildi semja til
tveggja ára. Ef til vill var það vitleysa
hjá mér vegna þess að núna hefði ver-
ið þægilegt að vera í meira öryggi
varðandi næsta tímabil. Forráða-
menn Alba hafa látið mig vita að þeir
vilji bjóða mér nýjan samning.
Vandamálið er að á þessum tíma-
punkti vita félögin ekki hvernig fjár-
hagsstaðan verður eftir kórónuveir-
una. Ég mun leyfa þeim að eiga
fyrsta orðið.“
Ýmsar dyr gætu opnast
Martin vakti mikla athygli fyrir
frammistöðu sína gegn bestu liðum
Evrópu í Euroleague í vetur. Sú
frammistaða reyndist mikil kynning
fyrir hann í körfuboltaheiminum í
Evrópu. Í venjulegu árferði má gefa
sér að Martin hefði staðið margt
spennandi til boða í sumar. Staðan er
hins vegar flóknari vegna kórónu-
veirunnar og áhrifa hennar á efna-
hagslífið í Evrópu.
„Hin og þessi lið hafa haft sam-
band og sýnt áhuga, sem er risastórt
fyrir lítinn Íslending í körfubolta-
heiminum. Það er ekki eins og við
njótum sömu virðingar í körfubolta-
heiminum eins og í handboltanum og
fótboltanum. Það virðist vera að ýms-
ar dyr gætu opnast og vonandi hef ég
opnað einhverjar dyr fyrir aðra ís-
lenska körfuboltamenn. Ég yrði stolt-
ur af því ef mér tækist að koma Ís-
landi frekar á kortið í körfunni. Ef
mín frammistaða verður til þess að
fleiri lið erlendis horfi til íslenskra
leikmanna. Umboðsmaðurinn hefur
lagt það til að taka því rólega í þess-
um málum þar til í sumar. Auðvitað
er spennandi að lið hafi samband við
hann sem maður hafði bara látið sig
dreyma um að spila með einn
daginn.“
Tók þrjú flug til Berlínar
Martin er nú staddur í Berlín og er
nýbyrjaður að æfa á ný með Alba
Berlín. Eftir dvöl á Íslandi þegar allri
keppni var frestað fór hann utan á ný
fyrir tíu dögum eða svo þegar hann
og liðsfélagar hans voru boðaðir í
vinnuna. Ekki er það að ástæðulausu
því ákveðið hefur verið að halda tíu
liða úrslitakeppni um þýska meist-
aratitilinn 2020 í München í júní.
Martin var ekki skemmt yfir ferða-
laginu út, sem áður var beint flug frá
Íslandi til Berlín á rúmum þremur
tímum.
„Það var eins og ég væri að fljúga
til Asíu. Ég tók þrjú flug til Berlín.
Fyrst til London og beið þar í þrjá og
hálfan tíma en Heathrow var eins og
eitthvert draugabýli. Þaðan fór ég til
Frankfurt og beið í þrjá tíma þar til
ég komst loksins yfir til Berlínar. Ég
fór að morgni frá Íslandi og kom
heim á miðnætti.
Ég var ekki upprifinn yfir því að
fara aftur út eftir dvölina á Íslandi en
nú þegar maður er byrjaður að æfa
með liðinu er skemmtilegt að vera
farinn að spila körfubolta aftur. Ég
var aðeins farinn að sakna þess. En
líkaminn er strax farinn að láta vita af
sér eftir fyrstu þrjá dagana á æfing-
um. Það er sérstakt að detta svona út
úr æfingum í þetta langan tíma. Mað-
ur tapar niður tilfinningunni fyrir
leiknum að einhverju leyti og flest
skotin þessa dagana eru frekar stutt.
Í þessari viku var okkur leyft að æfa
með hefðbundnum hætti. Þeir leik-
menn sem verið höfðu í Berlín síðustu
vikurnar höfðu verið í þriggja manna
hópum í einstaklingsæfingum enda
mátti ekki senda boltann á milli
manna.“
Munu dúsa á hótelinu
Martin segir mjög erfitt að spá fyr-
ir um úrslitakeppnina í þýsku deild-
inni. „Æfingarnar hafa verið frekar
flottar og menn koma nokkuð vel
undan þessum tveimur mánuðum.
Enginn er á sjúkralistanum en þó var
einn leikmaður sem neitaði að snúa
aftur vegna þess að hann er með und-
irliggjandi hjartasjúkdóm. Úr-
slitakeppnin gæti orðið skrítin. Engir
áhorfendur og alls kyns reglur í
kringum þetta. Menn geta ekki sturt-
að sig í höllinni eftir leik og leikmenn
verða í hálfgerðri sóttkví á hóteli í
München í þrjár vikur. Okkur verður
leyft að fara út af hótelinu í þriggja
manna hópum. En þá eingöngu til að
fara út að hlaupa eða í göngutúr.
Mönnum verður ekki heimilt að
stoppa neins staðar eða hitta fólk sem
þeir þekkja. Nú er reynt að setja dag-
skrá fyrir menn svo þeir geti haft
eitthvað fyrir stafni á hótelinu,“ út-
skýrði Martin, en miðað við styrk lið-
anna í vetur ætti Alba Berlín að vera
eitt þeirra liða sem eiga möguleika á
sigri. Liðið varð bikarmeistari áður
en kórónuveiran skall á.
„Við og Bayern München erum
væntanlega talin sigurstranglegust
svona fyrir fram. Tvö önnur lið
spiluðu mjög vel í vetur. Oldenburg
sem við mættum í bikarúrslitunum
og þeir eru alltaf góðir. Ludwigsburg
var auk þess í hópi efstu liðanna þeg-
ar keppni var frestað. Nú eru liðin á
svipuðum stað, en í vetur vorum við
og Bayern alltaf að spila leiki í Euro-
league meðfram deildakeppninni en
aðrir ekki.“
Þétt leikið í München
Alba mun að lágmarki spila fimm
leiki á tólf dögum í úrslitakeppninni
en ef liðið fer alla leið verða tíu leikir
á tuttugu og tveimur dögum. Tíu lið-
um er skipt í tvo riðla. Þar spilar Alba
fjóra leiki og fara fjögur lið úr hvor-
um riðli í 8-liða útsláttarkeppni. Því
má segja að liðin fái nokkra leiki til að
slípa sig saman áður en útsláttar-
keppnin byrjar og leikmenn verða þá
búnir að stilla miðið. Fyrsti leikur
liðsins verður 7. júní.
Martin lék vel í vetur og hvernig
sem fer náði hann að verða bikar-
meistari, sem var viss áfangi á hans
ferli. „Engin spurning og ég var
ánægður með spilamennskuna. Ég
náði að skila góðri frammistöðu jafnt
og þétt. Þar með náði ég að sýna að
ég á heima í þeim gæðaflokki sem
Euroleague er. Ef ég hefði ekki leikið
vel í vetur væri maður stressaður yfir
því hvað myndi bjóðast eftir tímabil-
ið,“ sagði Martin við Morgunblaðið.
Veit af áhuga stórliðsins
Umboðsmaður Martins Hermannssonar hefur fengið margar fyrirspurnir um
Íslendinginn í vetur Úrslitakeppni í einni borg fram undan í Þýskalandi
EuroLeague
Panathinaikos Martin í leik gegn Panathinaikos í vetur. Gríski landsliðsmaðurinn og fyrirliðinn, Nick Calathes,
reynir að halda aftur af honum. Calathes er líklega á förum í sumar og Martin er ætlað að fylla hans skarð.
Hlynur Bergsson er í þriðja sæti á
fjórum höggum undir pari og Ís-
landsmeistarinn Guðmundur Ágúst
Kristjánsson og hinn efnilegi Dag-
bjartur Sigurbrandsson eru jafnir í
fjórða sæti á þremur höggum undir
pari. Andri Þór Björnsson, sem
vann ÍSAM-mótið um síðustu helgi,
er í 10. sæti ásamt nokkrum öðrum
kylfingum á einu höggi undir pari.
Verður annar hringurinn leikinn
í dag og fara fyrstu kylfingar af
stað klukkan 8. Þriðji og síðasti
hringurinn verður leikinn á sunnu-
dag.
Valdís Þóra Jónsdóttir er með eins
höggs forystu á Ólafíu Þórunni
Kristinsdóttur eftir fyrsta hring á
B59 Hotel-mótinu í golfi, en það er
fyrsta mótið á mótaröð Golf-
sambands Íslands á árinu. Fer mót-
ið fram á Leynisvelli á Akranesi,
heimabæ Valdísar. Eru nær allir
sterkustu kylfingar landsins á með-
al þátttakenda, þar sem ekki er
leikið erlendis um þessar mundir
vegna kórónuveirunnar.
Valdís lék fyrsta hringinn á 67
höggum í gær, fimm höggum undir
pari, en Ólafía lék á 68 höggum.
Hafa Ólafía og Valdís verið fremstu
kylfingar Íslands síðustu ár og
munu þær væntanlega berjast um
sigurinn. Íslandsmeistarinn Guðrún
Brá Björgvinsdóttir er í þriðja sæti
á einu höggi undir pari. Vann Guð-
rún Brá ÍSAM-mótið á Hlíðavelli í
Mosfellsbæ um síðustu helgi eftir
harðan slag við Ólafíu.
Í karlaflokki eru
atvinnukylfingurinn Haraldur
Franklín Magnús og áhugakylfing-
urinn Hákon Örn Magnússon efstir,
en þeir léku báðir á 67 höggum og
eru því fimm höggum undir pari.
Með naumt forskot á heimavelli
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Heimavöllur Valdís Þóra Jónsdóttir
er í forystu á heimavelli.
Sigurður Pétursson, þrefaldur
Íslandsmeistari, var í viðtali í
aukablaði um golfi sem fylgdi
Morgunblaðinu á fimmtudag. Þar
kom ýmislegt athyglisvert fram.
Sigurður segist nú slá lengra,
tæplega sextugur, en hann gerði
þegar hann var í kringum 25 ára
aldurinn. „Ég myndi telja að ég
geti slegið 40-60 metrum lengra
með driver núna heldur en ég
gerði þegar ég var upp á mitt
besta,“ sagði Sigurður m.a.
Þeir sem fylgjast með golf-
íþróttinni vita að bestu kylfingar
heims slá miklu lengra í dag en
þeir bestu gerðu á árum áður. Af
umræðunni má stundum ráða að
kylfingarnir í dag séu högglengri
en kylfingarnir á árum áður.
Þessi ummæli Sigurðar benda
til að málið sé ekki endilega svo
einfalt. Ef vil vill eru þeir bestu á
hverjum tíma svipað högglangir
en allar breytingarnar sem orðið
hafa á boltum, kylfum, kylfu-
hausum og sköftum ráða mun
meiru. Svo ekki sé talað um
mælingarnar og stillingarnar
sem eru í boði í dag.
„Við gömlu keppnismennirnir
köllum þessar nútímagolfkylfur
svindlkylfur, því það er búið að
auðvelda svo mikið að hitta golf-
boltann beint og langt,“ segir
Sigurður einnig í viðtalinu.
Eftir að vinsældir íþróttarinnar
jukust mjög á þessari öld eru
fleiri heimsklassa kylfingar sem
leggja mikið á sig hvað líkamlega
þáttinn varðar. Það er ljóst. En
þeir sem á undan gengu unnu
hins vegar ekki minna í slætt-
inum og sveiflunni. Mögulega var
það alveg jafn árangursríkt varð-
andi högglengdina.
Þetta væri áhugavert að skoða
nánar. Hver veit nema maður
geti það með hjálp góðra manna.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þýski fótboltinn
heldur áfram um
helgina, en fyrsta
umferðin eftir
kórónuveirufrí fór
fram um síðustu
helgi. Guðlaugur
Victor Pálsson
var eini Íslend-
ingurinn af fjór-
um í tveimur
efstu deildum
Þýskalands sem lék um síðustu helgi.
Á því verður líklega engin breyting
um helgina. Alfreð Finnbogason
verður ekki með liði sínu Augsburg
er það mætir Schalke á útivelli í 1.
deildinni á morgun. Alfreð hefur ver-
ið að glíma við hnémeiðsli að undan-
förnu. Er hann byrjaður að æfa en
ekki klár í keppnisleik að sögn Heiko
Herrlich, knattspyrnustjóra Augs-
burg. Þá er Samúel Kári Friðjónsson
nýbyrjaður að æfa með liðsfélögum
sínum í Paderborn en verður líkleg-
ast ekki með liðinu gegn Hoffenheim
í 1. deildinni í dag. Guðlaugur Victor
Pálsson er lykilmaður hjá Darmstadt
í 2. deildinni og verður væntanlega á
sínum stað í byrjunarliðinu er liðið
fær St. Pauli í heimsókn í dag. Rúrik
Gíslason er ekki í náðinni hjá knatt-
spyrnustjóranum Uwe Koschinat hjá
Sandhausen og því væntanlega ekki í
liðinu sem mætir Jegensburg á
heimavelli á sama tíma.
Aðeins einn
Íslendingur
klár í slaginn
Guðlaugur Victor
Pálsson